Morgunblaðið - 07.05.2009, Page 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Húsnæði óskast
Lítil íbúð á höfuðborgarsvæðinu
óskast - Eldri kona óskar eftir lítilli
og bjartri íbúð til leigu til langs tíma.
Öruggar greiðslur, góð umgengni og
ekkert ónæði. Góð meðmæli.
Sími: 661 63 61. Guðrún.
Bókhald
Bókhald - Framtöl
Framtals- og bókhaldsþjónusta -
VSK uppgjör, stofnun EHF. erfðarfjár-
skýrslur o.fl. Sanngjarnt verð.
Uppl. í s. 517-3977.
Vélar & tæki
Til leigu með/án manns.
Gerum einnig tilboð í hellulagnir og
drenlagnir. Upplýsingar í síma
696 6580.
Reiðhjól
Rafmagnsreiðhjól
Rafmagnsreiðhjól, verð 98.900,-
engin tryggingariðgjöld/bensín-
kostnaður. Allt að 25 km/klst. án
þess að stíga hjólið, ca. 20 km á
hleðslunni. www.el-bike.is
Bílar
Óska eftir góðum bíl.
Verð 150 - 200.000.-
Upplýsingar í síma 863 3318.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
KRINGLUBÓN ekið inn stóri-
litli turn. Opið mán.-fös. 8-18,
lau. 10-18. S. 534 2455
GÆÐABÓN Hafnarfirði bílakj.
Firðinum (undir verslunarm.)
Opið mán.-fös. 8-18. S. 555 3766
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, mössun, teflon,
bryngljái, djúphreinsun.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR.
Hvert sem er hvenær sem er.
16 manna.
9 manna.
Með eða án ökumanns.
Fast verð eða tilboð.
CC bílaleigan sími 861-2319.
Vélsleðar
Skidoo MXZ 800
Í toppstandi, sleði upp á 790.000,-
fæst á 450.000,- vegna flutnings til
Noregs. Aukasæti fylgir, ný yfirfarinn
af Mótormax. Skoða öll tilboð. Hafið
samband í síma 772-0737! Kv. Birgir.
Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Einkamál
Chat.is - spjallvefur
Frábær, nýr, íslenzkur spjallvefur,
ókeypis og öllum opinn. Þið notið
hljóðspjall (Voice Chat) til að tala
saman alveg eins og í síma!
Bridsfélag Kópavogs
Seinna kvöld Butler-tvímennings-
keppninnar fór fram síðastliðinn
fimmtudag.
Úrslit kvöldsins urðu þessi:
Jón Sigurðss. og Kristmundur Einarss. 45
Árni M. Björnss. og Heimir Tryggvas. 34
Þórður Jörundss. og Jörundur Þórðars. 32
Björn Jónsson og Þórður Jónsson 27
Lokastaðan varð þessi:
Jón Sigurðss. og Kristmundur Einarss. 82
Eiður M. Júlíusson og Guðlaugur Bessas. 56
Gísli Tryggvason og Leifur Kristjánsson 51
Baldur Bjartmannss. og Sigurjón Karlss. 47
Næsta og jafnframt síðasta
keppni félagsins í vor er tveggja
kvölda vortvímenningur. Vonum við
að sem flestir sjái sér fært að mæta
og ljúka þannig ágætlega vel sóttum
bridskvöldum félagsins í vetur.
Keppt er í Þinghól að venju og hefst
keppni kl. 19.30 fimmtudaginn 7.
maí.
Gullsmárabrids
Spilað var á 13 borðum fimmtu-
daginn 30. apríl. Úrslit í N/S:
Leifur Kr. Jóhanness. – Guðm. Magnúss.225
Þorsteinn Laufdal – Sigtryggur Ellertss.219
Ernst Backman – Hermann Guðmss. 201
Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfss. 200
A/V
Lilja Kristjánsd. – Guðrún Gestsdóttir 217
Elís Kristjánsson – Páll Ólason 211
Elís Helgason – Gunnar Alexanderss. 210
Samúel Guðmss. – Kjartan Sigurjónss. 195
Aðalfundur bridsdeildarinnar var
haldinn í lok spilamennsku. Leifur
Kr. Jóhannesson var endurkjörinn
formaður.
Mjög góð þátttaka var sl.mánudag
í Gullsmára.Spilað
var á 14 borðum.Úrslit í N/S
Hrafnh. Skílad. - Þórður Jörundsson 344
Elís Kristjánsson - Páll Ólason 338
Dóra Friðleifsd. - Heiður Gestsd. 309
Haukur Guðbjartss. - Jón Jóhannss. 303
A/V
Díana Kristjánsd. - Ari Þórðarson 323
Lúðvík Ólafsson - Þorleifur Þórarinss. 316
Guðbjörg Gíslad .- Sigurður Sigurðss. 314
Elís Helgason - Gunnar Alexanderss. 301
Vakin er athygli á vorgleði deild-
arinnar sem haldin verður laugar-
daginn 23. maí.
Fjölmenn árshátíð
bridskvenna
Árshátíð bridskvenna fór fram á
Hótel Sögu 1. maí og mættu 100
konur og fengu sér gott að borða
og spiluðu skemmtilegan brids á
eftir. Mót þetta hefur farið vax-
andi undanfarin ár og þarf líklega að
huga að stærra húsnæði fyrir
næsta ár.
Helstu úrslit urðu þessi í N/S:
Harpa Ingólfsd. - Brynja Dýrborgard.
67,3%
Hrafnh. Skúlad. - Soffía Daníelsd. 65,9%
Ragnh.Nielsen - Hjördís Sigurjónsd. 64,2%
María Haraldsd. - Bryndís Þorsteinsd.61,1%
A-V
Elín H Þórisd. - Berghildur Reynisd. 65,0%
Erla Sigvaldsd. - Lovísa Jóhannsd. 61,3%
Birna Lárusd. - Helga Sturlaugsd. 60,0%
Valgerður Einarsd. - Rannveig Lund 59,8%
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
✝ Guðríður Þor-steinsdóttir fædd-
ist að Holtsmúla í
Landsveit í Rang-
árvallasýslu 14. nóv-
ember 1920. Hún lést
á líknardeild Landa-
kotsspítala 24. apríl
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Þorsteinn Þor-
steinsson, f. 28. febr-
úar 1875, d. 1. mars
1936 og Guðrún Guð-
brandsdóttir, f. 5. júlí
1877, d. 20. júlí 1965.
Bróðir Guðríðar var Marel, f. 1.
ágúst 1911, d. 20. maí 1983.
Guðríður giftist 18. ágúst 1945
Elísi G. Víborg, f. 27. júlí 1918, d.
1. desember 1998. Foreldrar hans
voru Guðmundur Pétursson, f. 10.
þeirra eru Katrín Ásta, f. 19. nóv-
ember 1996, og Vilhelm Þráinn, f.
17. maí 2002. b) Þorsteinn Már, f.
6. apríl 1979, maki Vala Steins-
dóttir, f. 7. júlí 1979, barn þeirra
er Áflhildur Edda, f. 30. október
2008. c) Elísa Björk, f. 18. febrúar
1983.
Guðríður ólst upp á Holtsmúla í
Landsveit. Hún flutti til Reykjavík-
ur 1937 og bjó á Öldugötu 4. Hún
vann hjá h.f Föt í 7 ár. 1944 –1945
fer hún vestur á Ísafjörð á Hús-
mæðraskólann. Hún kynnist Elís á
þessum árum og giftast þau fyrir
vestan, flytja síðan 1946 til Reykja-
víkur og búa í Miðtúni. 1948 flytja
þau í Barmahlíð 36, en það hús
reistu þeir í sameiningu tengda-
faðir Guðríðar og fjölskylda.
Bjuggu þau þar öll sín hjúskap-
arár. Guðríður var fyrst og fremst
húsmóðir en vann í mötuneyti
Eimskipafélags Íslands í hartnær
20 ár eða til ársins 1990.
Útför Guðríðar fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 7. maí og hefst
athöfnin kl. 13.
mars 1891, d. 21.
apríl 1993 og María
Hálfdánardóttir, f.
28. október 1889, d.
14. febrúar
1980.Guðríður og El-
ís eignuðust þrjú
börn. Þau eru: 1)
Viðar Guðmundur, f.
21. mars 1947, 2)
Guðrún Elsa, f. 21.
mars 1950, sonur
hennar og Gunnlaugs
Sveinbjörnssonar, f.
28. maí 1954, er Guð-
jón Ingi, f. 24. nóv-
ember 1983, 3) Þorsteinn, f. 8.
mars 1953, maki Ásta Fríða Bald-
vinsdóttir, f. 10. apríl 1957. Börn
þeirra eru a) Hildur Jóna, f. 14.
apríl 1976, maki Sigurjón Einar
Þráinsson, f. 5. júní 1972, börn
Jæja, Gauja mín, þá er komið að
leiðarlokum þíns jarðneska lífs, þú
hafðir þráð þetta lengi, en kannski
ekki eins og þú hafðir vonað eða
hélst. Láttu Guðs hönd þig leiða hér,
lífsreglu halt þá bestu. Blessað hans
orð sem boðast þér, í brjósti hjarta
festu. Ég kom inn í fjölskylduna fyr-
ir 35 árum. Það var mjög sérstakt
að koma inn í og kynnast svona
„stórfjölskyldu“. Þar sem amman og
afinn og bræður bjuggu öll í sama
fjölskylduhúsinu, sem þau höfðu
byggt saman. Það var ekki alltaf
auðvelt að vera í svona fjölskyldu-
húsi, það gekk nú stundum ýmislegt
á eins og gengur og gerist, en þú
hafðir það að leiðarljósi að hafa alla
góða. Það má kannski segja um þig
að þú hafir verið eins konar sátta-
semjari í húsinu.
Lýs, milda ljós, í gegnum þennan geim,
mig glepur sýn,
því nú er nótt, og harla langt er heim.
Ó, hjálpin mín,
styð þú minn fót; þótt fetin nái
skammt,
ég feginn verð, ef áfram miðar samt.
Þú hafðir létta lund, gast gert
grín að sjálfri þér og öðrum. Ég
minnist þess ekki í öll þessi ár að þú
hafir verið í slæmu skapi þegar við
komum í heimsókn. Þú talaðir um
það að þú hefðir átt gott líf. En lífið
hafði ekki verið þér alltaf auðvelt,
en þú barst ekki tilfinningar þínar á
torg sem hefði kannski stundum
verið þér og þínum betra. Þú talaðir
um að þú værir sátt við Guð og
menn sem er ekki lítið þegar svona
er komið.
Ég spurði fyrr: Hvað hjálpar heilög trú
og hennar ljós?
Mér sýndist bjart, en birtan þvarr, og
nú
er burt mitt hrós.
Ég elti skugga, fann þó sjaldan frið,
uns fáráð öndin sættist Guð sinn við.
Þú varst trúuð kona. Trúðir því að
þín biði eitthvað annað eftir þetta líf.
Berdreymin varstu og komu
draumar þínir oft fram. Ljóðelsk
varstu og þú kunnir alveg ógrynni
af þeim. Ég vil að leiðarlokum
þakka þér og Elís fyrir alla ykkar
hjálp sem við höfum fengið frá ykk-
ur, ekki síst okkar fyrstu hjúskap-
arár. En það sem ég þakka þér mest
fyrir er hann Steini minn, betri
mann og vin hefði ég ekki geta eign-
ast. Og með honum á ég þrjá gull-
mola sem síðan hafa gefið okkur
aðra þrjá gullmola.
Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bárur, brim og voðasker.
nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögru dyr
og engla þá, sem barn ég þekkti fyrr.
(Matthías Jochumsson.)
Guð veri með þér og lýsi þér á
þinni leið, Gauja mín, eigðu góða
heimkomu.
Þín tengdadóttir
Ásta Fríða Baldvinsdóttir.
Guð þig leiði sérhvert sinn
sólarvegi alla.
Verndarengill varstu minn
vissir mína galla.
Hvar sem ég um foldu fer
finn ég návist þína.
Aldrei skal úr minni mér
mamma, ég þér týna.
(Jón Sigfinnson.)
Við burtför þína er sorgin sár
af söknuði hjörtun blæða.
En horft skal í gegnum tregatár
í tilbeiðslu á Drottin hæða.
og fela honum um ævi ár
undina dýpstu að græða.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Takk fyrir allt.
Guðrún og Guðjón.
Guðríður
Þorsteinsdóttir
Fleiri minningargreinar um Guð-
ríði Þorsteinsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝ Ingólfur Guð-mundsson fædd-
ist í Villingadal á
Ingjaldssandi í Ön-
undarfirði hinn 25.
desember 1910.
Hann andaðist á
Landspítalanum í
Fossvogi aðfaranótt
27. apríl síðastliðins.
Hann var sonur
hjónanna Guð-
mundar Sigmunds-
sonar bónda, f. 16.8.
1854, d. 30.6. 1925
og Jakobínu Sigríð-
ar Jónsdóttur, f. 8.3. 1868, d.
19.5. 1953. Yngstur fjórtán systk-
ina, sem öll eru látin.
einn son, Örn, f. 21.2. 1945,
kvæntur Hrafnhildi Bjarnadóttur,
þau eiga þrjú börn, og Einar, f.
2.2. 1947, kvæntur Báru Bjarna-
dóttur, þau eiga tvær dætur, Ein-
ar á eina dóttir frá fyrra hjóna-
bandi og Bára tvær dætur frá
fyrra hjónabandi. Afabörnin eru
sjö. Langafabörnin eru tólf.
Ingólfur fluttist til Reykjavíkur
18 ára gamall 1928. Gekk í Sjó-
mannaskólann og var síðan stýri-
maður á togurum fram yfir seinni
heimsstyrjöldina. Eftir að hann
hætti sjómennsku árið 1952
stundaði hann verslunarstörf og
rak um tíma eigin matvöruversl-
un „Ingólfsbúð“ á horni Vest-
urgötu og Ægisgötu allt til ársins
1980 er hann hætti störfum.
Útför Ingólfs fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 7. maí, og hefst
athöfnin kl. 13.
Ingólfur kvæntist
31. maí 1941 Svövu
Ingimundardóttur, f.
14.12. 1916, dóttur
hjónanna Ingimund-
ar Einarssonar
verkamanns og Jó-
hönnu Egilsdóttur
verkalýðsforingja.
Ingólfur og Svava
bjuggu fyrstu bú-
skaparárin að Ei-
ríksgötu 33 í
Reykjavík, en frá
árinu 1954 að Lyng-
haga 12 í Reykjavík.
Þau eignuðust þrjá syni, þeir eru:
Ágúst Rafn, f. 7.2. 1941, kvæntur
Vilborgu Jónsdóttur, þau eiga
Elsku afi.
Ég trúi því bara ekki ennþá að
þú sért farinn en ég veit að þér líð-
ur betur núna. Það var gott að fá að
kveðja þig en mikið rosalega var
það sárt, en að vita að amma, pabbi
og mamma voru hjá þér þegar þú
kvaddir hjálpar manni í sorginni.
Ég man svo vel eftir einum bíltúr
sem við fórum í ásamt ömmu og
Helgu Rut frænku, þá vorum við
Helga unglingar, við vorum í Ford-
inum þínum flotta sem þú hugsaðir
svo vel um og það var passað vel
uppá það að vera á löglegum hraða,
satt best að segja þá varst þú vel
undir löglegum hraða.
Það sem er mér svo minnistætt er
að þegar þú keyrðir framhjá sætum
strákum þá vorum við fljótar að
beygja okkur niður, ég og Helga
Rut, og þóttumst vera að reima
skóna okkar.
Þú hugsaðir líka svo vel um
garðinn á Lynghaganum og alltaf
voru stéttin og garðurinn svo fín,
varst með kústinn á lofti á sumrin
og á veturna varst þú duglegur
með snjóskófluna, þvílíkur dugnað-
ur í einum manni.
Þú passaðir líka svo vel uppá allt
og vildir hafa reglu á hlutunum. Sé
ég að hann faðir minn hefur ekki
langt að sækja það.
Ég er svo þakklát fyrir það að
börnin okkar Óla hafa fengið að
kynnast þér en hún Hildur Karen
varð 4 mánaða daginn sem þú fórst.
Ég kveð þig nú, afi minn, með
mikilli sorg en svo rík af minn-
ingum um yndislegan afa og lang-
afa.
Elsku amma, ég bið guð um að
halda vel utan um þig á þessum
erfiða tíma.
Hver minning dýrmæt perla að liðn-
um lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Svava Arnardóttir.
Ingólfur Guðmundsson