Morgunblaðið - 24.05.2009, Page 45
Velvakandi 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 2009
Kalvin & Hobbes
ÉG GET VEL
SKILIÐ ÞAÐ
ÞETTA
VIRKAR SVIPAÐ
OG RAFLOSTS-
MEÐFERÐ
ÞEGAR MAÐUR
ER BÚINN AÐ
LÆRA AÐ HJÓLA
GLEYMIR MAÐUR
ÞVÍ VÍST ALDREI
Kalvin & Hobbes
SVONA...
RÓLEGA
SVONA... SJÁÐU! ÉG HELD
JAFNVÆGI!
VILTU NÚNA
PRÓFA ÁN ÞESS
AÐ HAFA STAND-
ARANN NIÐRI?
Kalvin & Hobbes
ÞAÐ RÉÐST
Á MIG!
Grettir
ÉG GÁÐI Í
ÍSSKÁPINN...
VIÐ EIGUM EKKERT AÐ
BORÐA NEMA NÚÐLURNAR FRÁ
ÞVÍ Í GÆR OG PAKKA AF
SÚKKULAÐIBÚÐING
HEPPNIN ER MEÐ
OKKUR Í KVÖLD!
SVONA ER
AÐ VERA
PIPARSVEINN
Hrólfur hræðilegi
EN SÚ ÓHEPPNI! SKIPIÐ
OKKAR SÖKK OG NÚNA ERUM
VIÐ ALLIR FASTIR Á
ÞESSARI LITLU EYJU
EKKI HAFA
ÁHYGGJUR
ÞÚ ERT
EKKI EINN
Á BÁTI!
AF HVERJU TEKST ÞÉR ALLTAF
AÐ SEGJA EITTHVAÐ RANGT Á
VITLAUSUM TÍMA
Gæsamamma og Grímur
TOUR DE OZ
Ferdinand
HVAÐ er í pokanum? var einu sinni spurt og kannski er innihaldið eitt-
hvert andafóður. Það er einstaklega friðsælt við Reykjavíkurtjörn í góðu
veðri og nú eru fréttir um, að líklega muni fleiri ungar komast á legg en í
langan tíma. Hvernig væri líka miðborgin án Tjarnarinnar og fuglalífsins?
Morgunblaðið/Ómar
Spígsporað við Tjörnina
Er þetta tilraun?
FYRIR stuttu síðan
voruð þér, hr. Árni
Páll Árnason félags-
málaráðherra, í Kast-
ljósþætti í ríkissjón-
varpinu. Þar sögðuð
þér frá því sem þér og
yðar ráðuneyti var
með á prjónunum í
sambandi við ein-
staklinga og kreppu-
vandamál þeirra. Átti
að bjarga fólki, setja
það niður með skuldu-
nautum þeirra, og allir
aðilar áttu að sættast á
greiðslur. Einstaklingurinn að sýna
hvað hann gæti borgað og eigandi
skuldanna að fella niður hluta
þeirra. Þetta átti að gera það að
verkum að skuldarinn þyrfti eigi að
eyða sinni stuttu ævi í að vera í
skuldafangelsi. Einnig áttuð þér og
yðar ráðuneyti ásamt tveimur öðr-
um ráðuneytum að setjast niður
einu sinni í viku og fara yfir gjörðir
ykkar og sjá hvort allt gengi vel eða
hvort breytingar þyrfti að gera.
Það sem þér sögðuð í þessum
þætti vakti hjá oss þá trú að ríkið
væri að hugsa líka um fólkið, ekki
bara fyrirtækin í landinu, sem þessa
stundina virðast vera í forgangi
hvað björgunaraðgerðir varðar.
Enn samt virðist þetta bara enn
vera fögur hugmynd, hvort hún á að
koma til framkvæmda virðist vera
allt annað mál. Það sem fólkið sér er
að stór tilraun virðist vera í gangi.
Sú tilraun virðist vera að athuga
hvað hægt verður að blóðmjólka
fólkið þar til önnur bylting verður
framkvæmd. Tilraun sú sem þér
virðist vera að framkvæma gengur
bara vel. Að meðaltali ein fjölskylda
á dag flytur úr landi þessa dagana.
Nú hafið þér aðgang að mörgum
tegunda upplýsinga í
ráðuneyti yðar. Þér
ættuð að fara stundum
út úr yðar fílabeinst-
urni og heimsækja
fólkið sem á í miklum
vandræðum með sín
skuldamál. Og sjá það
beint með því að tala
við fólk og sjá hvernig
staðan er.
Kastljósþættir bjóða
bara opinberum starfs-
mönnum í heimsókn.
Það myndu vera
stjórnmálamenn, lista-
menn og þess háttar. Í
þau fáu skipti sem
Kastljós hefur talað við fólkið á göt-
unni, þá er farið heim til þess, það
er alls ekki nógu háttsett til að
verða boðið í höfuðstöðvar RÚV. En
svo látið þér hafa eftir yður, að þér
fagnið brotthvarfi fólksins úr land-
inu!
Þér segið að það hafi gott af því
að vinna og læra erlendis, því þá
komi það betur menntað og með
reynslu til Íslands aftur. Eruð þér
vissir um að fólkið komi aftur eftir
þá meðferð sem það hefur fengið af
stjórnvöldum þessa lands? Þar sem
ég veit að þér munið eigi svara
þessu sem hér er skrifað þá vona ég
að þér lesið þetta og reynið að skilja
að fólk á í miklum vandræðum.
Herra Árni Páll Árnason félags-
og tryggingarmálaráðherra. Ég
skora á yður að kíkja á götuna og
tala við fólkið sem á í miklum vand-
ræðum og getur varla keypt mat og
þarf að fara til fjölskylduhjálpar til
að eiga ofan í sig.
Halldór Sigurðsson
verkamaður.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Handavinnusýning á
morgun. Sumarferð miðvikud. 27. maí.
Bólstaðarhlíð 43 | Handverksýningin
stendur til 29. maí og er opið virka daga
kl. 9-16. Línudanssýning á þriðjud. kl. 14.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur kl. 20-23.30. Danshljómsveitin
Klassík leikur danslög við allra hæfi.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Farið verður í Reykjanesbæjar
mánud. 25. maí og skoðuð ný aðstaða
félagsstarfs eldriborgara á staðnum.
Lagt af stað kl. 13 frá Hlaðhömrum.
Skráning í s. 586-8014 og 692-0814,
milli kl. 13-16.
Félagsstarf Gerðubergi | Gerðubergs-
kórinn verður með tónleika í Fella og
Hólakirkju kl. 20, stjórnandi Kári Frið-
riksson, undirleikari Árni Ísleifs. Aðgang-
ur er ókeypis.
Hraunbær 105 | Blái demantshring-
urinn 27. maí: Strandarkirkja, Herdís-
arvík, Krísuvík, Grindavík, Reykjanes,
Sandgerði, Garður og Reykjanesbær.
Brottför frá Hraunbæ kl. 9.30. Verð
6.300 kr. og hádegismatur innifalinn.
Skráning á skrifstofu eða í síma 411-
2730 í síðasta lagi 25 maí.
Hæðargarður 31 | Tölvuleiðbeiningar,
Taichi, framsögn, hláturjóga, hannyrðir,
línudans, morgunandakt, útskurður,
World Class, bókmenntir, söngur, bíó-
dagar, Gönuhlaup, hljóðbók, spænska,
myndlist, Qi-gong, skapandi skrif, postu-
línsmálun, Þegar amma var ung... o.fl.
Sími 411-2790.