Morgunblaðið - 24.05.2009, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 2009
NÝ Idol-stjarna var krýnd í
Bandaríkjunum í vikunni og var
það hinn 23 ára Kris Allen sem
þótti fremstur meðal jafningja á
söngsviðinu að þessu sinni.
Meira hefur þó farið fyrir um-
fjöllun um dalandi áhorf á þætt-
ina, en ekki hafa jafn fáir fylgst
með úrslitum í þættinum síðan ár-
ið 2004.
„Einungis“ 28,8 milljónir
manna fylgdust með úrslitaþætt-
inum, en það eru um 4 milljónum
færri áhorfendur en fyrir ári síð-
an. American Idol heldur þó enn
þeim virðingarverða titli að vera
áhorfsmesti þátturinn í banda-
rísku sjónvarpi.
Áhorfið helst þó talsvert í
hendur við stöðugt minnkandi
áhorf á sjónvarp í Bandaríkjunum
almennt og er auknu framboði á
tölvuleikjum og auknu niðurhali
efnis á netinu meðal annars kennt
um.
Framleiðendur American Idol
hafa beitt ýmsum brögðum til að
laða fleiri áhorfendur að skjánum
í nýlokinni þáttaröð, meðal ann-
ars bætt við aukadómara.
Framtíð þáttanna er þó í nokk-
urri óvissu ef áhorfið heldur
áfram að minnka og hafa þær
sögusagnir meðal annars heyrst
að Simon Cowell hyggist ekki
endurnýja samning sinn við þætt-
ina sem rennur út á næsta ári.
Hissa Kris Allen gapti þegar ljóst
var að hann er nýjasta Idol-stjarna
Bandaríkjanna. Einnig sást ofaní
maga á kynninum Ryan Seacrest.
Sífellt færri
fylgjast
með Idol
Reuters
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
VEFSÍÐA vikunnar er ekki þess eðl-
is að undirritaður sæki hana en hann
hefur vissulega tekið eftir miklum
áhuga kvenfólks á henni. Þessi síða er
sem sagt fyrir ykkur, stelpur.
Vissulega jaðrar heiti síðunnar við
dónaskap og má segja að innihaldið
sé óttalega dónalegt. Þeir sem gera
út síðuna hakka í sig þá ríku og
frægu, einkum og sér í lagi konur og
virðist tilgangurinn aðeins einn, þ.e.
að setja út á klæðaburð frægra
kvenna og gera grín að þeim. Ein-
staka sinnum og reyndar afar sjaldan
er hrós veitt fyrir klæðaburð. Afar,
afar sjaldan.
Svo dæmi sé tekið um þá illu útreið
sem þær frægu fá á síðunni þá á eft-
irfarandi lýsing við efni í kjól leikkon-
unnar Michelle Monaghan:
„Þó svo mér líki við efnið hafa
læknarannsóknir sýnt að það getur
valdið höfuðverk, hræðslu, svefnleysi,
ógleði, uppköstum, hægðatregðu,
munnþurki, óeðlilegum áhuga á fitu-
snauðum osti, meltingartruflunum,
brjóstsviða, syfju, suði fyrir eyrum,
svima, þokukenndri sjón, nefstíflu,
þyngdaraukningu, verkjum í liðum,
aukinni munnvatnsframleiðslu, syk-
ursýki, sjálfsvígshugsunum, háum
blóðþrýstingi, óeðlilegum vöðva-
hreyfingum sem verða varanlegar,
óútskýranlegum og skelfilegum út-
brotum og bólgum, skjaldkirtils-
ofvirkni, átusárum, sveppasýkingum,
getuleysi, hárlosi og dauða. Vinsam-
legast hafið sambandi við lækni ef þið
finnið til einhverra af ofangreindum
áhrifum af þessu munstri.“
Svo mörg voru þau orð (!) og vissu-
lega er þessi húmor lýsandi fyrir síð-
una. Áhugasamir um klæðaburð
fræga fólksins, einkum kvenna, ættu
alls ekki að láta þessa síðu framhjá
sér fara. Þá sakar ekki að búið er að
raða öllum helstu fórnarlömbum
hennar í stafrófsröð. Góða skemmt-
un.
Grín gert að klæðaburði
hinna frægu og ríku
Fug! Britney Spears kemur oft fyrir
á hinni kvikindislegu vefsíðu gofu-
gyourself. Hér má Spears á Billbo-
ard tónlistarverðlaunahátíðinni árið
2004 í allsérstakri flík.
• Deildarstjóri-meðeigandi óskast að meðalstóru þjónustufyrirtæki á sviði
tölvu- og tæknibúnaðar. Æskilegt að viðkomandi sé rafeindafræðingur eða
hafi svipaða menntun og starfsreynslu. Fyrirtækið er ört vaxandi og er nú
með 12 starfsmenn. Fyrirtækið er 100% í eigu starfsmanna.
• Ein þekktasta og elsta ísbúð borgarinnar. Ársvelta 50 mkr. EBITDA 8 mkr.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að verslunarfyrirtæki sem gengur vel.
Ársvelta um 300 mkr. Æskilegt að viðkomandi leggi fram 15 mkr. hlutafé.
• Heildverslun með neytendavörur (ekki matvæli). Ársvelta 260 mkr.
• Þekkt sérverslun með heimilisvörur. Ársvelta 170 mkr.
Góður leigusamningur.
• Sérhæft hugbúnaðarfyrirtæki með langtímasamninga.
Hentugt til sameiningar.
• Rótgróin heildverslun með fyrirtækjavörur. Ársvelta 140 mkr.
Hagstæðar skuldir.
VEFSÍÐA VIKUNNAR: www.gofugyourself.com»