Morgunblaðið - 24.05.2009, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 2009
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
750kr.
750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA
Night at the museum 2 kl. 3:20 - 5:40 - 8 -10:20 LEYFÐ
Angels and Demons kl. 3 - 6 - 9 B.i.14 ára
Boat that rocked kl. 6 - 9 B.i.12 ára
Night at the museum 2 kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
Angels and Demons kl. 2:30 - 5:30 - 8:30 B.i. 14 ára
X-Men Origins: Wolfe... kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Crank 2 kl. 5:40 - 10:40 B.i. 16 ára
Boat that rocked kl. 3 - 8 B.i. 12 ára X men Orgins Wolverine kl. 3:40 - 10 B.i.14 ára
Draumalandið kl. 4 - 6 - 8 LEYFÐ
Night at the museum 2 kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Angels and Demons kl. 3:30 - 6 - 9 B.i.14 ára
Þú færð 5 %
endurgreitt
í HáskólabíóSími 462 3500
HÖRKU HASAR!
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
“Spennandi, fyndin og
hraðskreið út í gegn!
Miklu betri en
Da Vinci Code.”
-T.V., - kvikmyndir.is
-M.M.J., kvikmyndir.com
750k
r.
Ó.H.T., Rás 2
“Englar og Djöflar
verður einn stærsti
smellurinn í sumar“
- S.V., MBL
750k
r.
S.V. MBL
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú b
Þegar ljósin slökkna byrjar fjörið... aftur!
... og nú í stærsta safni í heimi!
HEIMSFR
UMSÝNIN
G
Frábær ævintýra gamanmynd
í anda fyrri myndar!
HEIMSFR
UMSÝNIN
G
Frábær ævintýra gamanmynd
í anda fyrri myndar!
Þegar ljósin slökkna byrjar fjörið... aftur!
... og nú í stærsta safni í heimi!
Vinsælasta myndiní heiminum í dag
750k
r. 750k
r.
Partíið er alveg að verða búið. Mannskap-urinn er orðinn þreyttur og svefnlausen samt vill enginn fara heim, augna-
blikið er núna, heima bíða bara reikningar.
Samt er öllu meiri varkárni til staðar en áður,
Íslendingar eru farnir að þekkja sinn vitj-
unartíma og brenna kertið bara í annan end-
ann, við erum öll brennd, að minnsta kosti öðr-
um megin.
Það er Íslendingapartí hér í Cannes og hlut-verk Íslendings í útlöndum tekur enn á
sig nýjar myndir. Það er góður rómur gerður
að nýrri mynd Rúnars Rúnarssonar, Önnu, og
partíið er fullt af Íslendingum og Dönum auk
Finna, Svía og Þjóðverja á stangli. Blaða-
mannafundurinn eftir stuttmyndasýningarnar
var hins vegar kyndugt fyrirbæri, óþarflega
langur og kynnar sem voru ekkert alltof
öruggir í ensku. Þetta var eins og í annarri
heimsálfu en blaðamannafundir í höllinni, þar
sem fagmennskan er í fyrirrúmi og þraut-
reyndir blaðamenn sitja í flestum sætum. En
um leið var þetta enn önnur mynd af Cannes,
hér mættu unglingar í blaðamennskukúrsum
og stemningin var gjörólík – en þó veitti ég at-
hygli einum gutta sem er efni í hörkublaða-
mann, spurði hnitmiðaðra og góðra spurninga
af miklu öryggi og mér kæmi ekki á óvart að
ég ætti eftir að setja við hliðina á honum í höll-
inni sjálfri eftir ekki alltof mörg ár.
En það er kominn tími á að spá í spilin ogveðja á sigurvegarana, enda verðlaunin
afhent í kvöld, sunnudagskvöld. Ég hef að-
allega verið að horfa á myndir í aðalkeppninni
og þar er óvissan töluverð ennþá, þegar þetta
er skrifað hef ég séð 13 myndir af 20 en vænt-
anlega verða þær orðnar 16 þegar greinin
birtist. Af þeim sem ég á eftir að sjá er orðspor
Bright Star hvað best en hins vegar er orðið
ekki ennþá komið á götuna um myndir á borð
við The Time That Remains, Map of the
Sounds of Tokyo, Andlit (Visage) og Enter the
Void. Þá hafa bæði Í upphafi (Á l’origine) og
Vengence fengið frekar volgar móttökur. En
af keppnismyndunum sem ég hef séð stendur
Looking for Eric tvímælalaust upp úr, en ef
marka má stigatöfluna sem birtist daglega í
Screen Daily er Spámaðurinn (Un prophète)
líklegasta sigurmyndin. Fínasta ræma vissu-
lega en varla sigurmynd.
Þá eru góðar myndir á borð við FishTank, Þorsta (Bak-Jwi) og IngloriousBasterds búnar að fá ágætis viðtökur,
en þó ekki nærri því jafn góðar og fyrri mynd-
ir þessara leikstjóra. Það sama gildir raunar
um Brotin faðmlög (Los abrazos rotos) Alma-
dóvars, enda með síðri myndum spænska
meistarans síðustu árin. Þá eru nokkrar mynd-
ir hreinlega frekar slappar, þar má nefna
Vindhviður á vornóttum (Chun feng chen zui
de ye wan), Taking Woodstock, Vincere, Vil-
ligrös (Les Herbes folles) og Hvíta borðann
(Das Weisse Band) eftir Haneke – en þó útiloka
ég ekki að síðastnefnda myndin gæti nappað
einhverjum verðlaunum. Allar eru þær þó
margfalt betri en hin filippseyska Kinatay,
mynd sem væri hægt að eyða heilum pistli í að
útlista hvernig öll trikkin í bókinni eru notuð
vitlaust í. Loks er það umdeildasta mynd hátíð-
arinnar til þessa, Antichrist. Við erum kannski
fá sem kunnum virkilega að meta hana, en ef
örlögin hafa skipað nógu marga stuðnings-
menn hennar í dómnefnd er aldrei að vita
hvernig fer.
Að þessu sögðu eru raunar margar bestumyndirnar sem ég hef séð utan að-
alkeppninnar. The Imaginarium of Dr. Par-
massus og Up komast báðar á topp fimm
listann hjá mér á hátíðinni sem og himnesk
mynd Bahmans Ghobadi um írönsku neð-
anjarðartónlistarsenuna, Enginn veit um pers-
nesku kettina (Kasi az gorbehaye irani khabar
nadareh), sem keppir í Un Certain Regard.
Það er eina myndin sem ég hef séð í þeim
flokki, sem vissulega fellur nokkuð í skuggann
af aðalflokknum – en ef allar hinar myndirnar
þar eru jafn góðar og persnesku kettirnir hef
ég kannski verið að horfa í vitlausa átt.
asgeirhi@mbl.is
Korter í úrslit
Talið niður Tilkynnt verður í kvöld hvaða
mynd hlýtur Gullpálmann í Cannes og sjálf-
sagt er kominn skjálfti í leikstjórana. Tarant-
ino stígur þó bara dans við leikarana.
FRÁ CANNES
Ásgeir H. Ingólfsson