Morgunblaðið - 14.08.2009, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
EFTIR ströng fundahöld fjárlaga-
nefndar Alþingis undanfarna viku
náðist samkomulag í gær um að
leggja mögulegar breytingar á
frumvarpi um ríkisábyrgð Trygg-
ingasjóðs innstæðueigenda, vegna
útgreiðslu til innstæðueigenda af
Icesave-reikningum Landsbankans í
Hollandi og Bretlandi, í hendur
fimm manna nefndar lögfræðinga.
Nefndina skipuðu Benedikt Boga-
son, Einar Gunnarsson, Helgi Áss
Grétarsson, Páll Þórhallsson og Ei-
ríkur Tómasson prófessor. Verkefni
nefndarinnar var að fara yfir texta
og koma með tillögur um fyrirvara.
Komu meðal annars fram tillögur
um að greiðslur vegna Icesave-
skuldanna mættu ekki fara yfir 3,5
prósent af landsframleiðslu árlega
og einnig að tryggt væri að ekki
væri hægt að ganga að nátt-
úruauðlindum, eða nýtingarmann-
virkjum þeirra, kæmi til vandamála
við greiðslu. Þá var einnig settur
fyrirvari um að Ísland hefði mögu-
leika á því að taka upp viðræður við
Breta og Hollendinga kæmi upp
réttaróvissa, t.d. ef regluverki um
innstæðutryggingar í Evrópu yrði
breytt. Tillögurnar voru til umræðu
hjá fjárlaganefnd á fundi klukkan 15
og síðan komu þingflokkar saman
klukkan 18. Greinileg spenna var í
Alþingishúsinu vegna málsins og
deildu Guðbjartur Hannesson, for-
maður fjárlaganefndar, og Hösk-
uldur Þórhallsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, meðal annars
um málsmeðferðina í sölum Alþingis
áður en þingflokkar héldu til fundar.
Að fundum loknum voru línur tekn-
ar að skýrast. Forsvarsmenn stjórn-
arflokkanna, sem Morgunblaðið
ræddi við að loknum fundi, töldu
meiri líkur en minni á því að meiri-
hluti væri fyrir málinu, með þeim
fyrirvörum sem náðst hefði sam-
komulag um. Samfylkingarmenn
voru þó jákvæðari en vinstri græn.
Þar voru enn efasemdarmenn í
hópnum, þar helst Lilja Mós-
esdóttir, Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir og Ögmundur Jónasson.
Hann sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að málið væri
enn í vinnslu og helst væri stað-
næmst við efnahagsfyrirvarann.
Stjórnarandstöðuflokkarnir, bæði
sjálfstæðis- og framsóknarmenn,
sögðu tillögur um hámarksgreiðslur
vegna Icesave á hverju ári óvið-
unandi. Um þær var deilt á fundi
fjárlaganefndar í gærkvöldi og leit
ekki út fyrir að samstaða allra flokka
næðist.
Engin samstaða
Ekki hefur náðst samstaða um fyrirvara ríkisábyrgðar
Tryggingasjóðsins Stjórnarflokkar vongóðir um meirihluta
ÞINGMENN stjórnarflokkanna, Samfylkingarinnar og Vinstri grænna,
lögðu áherslu á það á þingflokksfundum sínum í gær að reyna eftir fremsta
megni að ná sátt meðal þingmanna allra flokka um málið. Sérstaklega
lagði Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra áherslu á það í samtölum
við sína flokksmenn að möguleiki á breiðri sátt yrði fyrir hendi. Að loknum
þingflokksfundi í gær ítrekaði hann að farsælast væri að ná breiðri sátt um
málið, ef mögulegt væri.
Fjárlaganefnd þyrfti þó að fá að klára málin. Ákaft var reynt að ná sam-
stöðu, og voru þingmenn oftar en ekki í símanum að ræða við aðra þing-
menn um stöðu mála. Einnig hlupu starfsmenn Alþingis með skilaboð inn á
þingflokksfundi ótt og títt, enda mikið í húfi. Þingmenn stjórnarflokkanna
gáfu ekkert upp um afstöðu sína til tillagna að loknum þingflokksfundi og
sögðu fjárlaganefndina þurfa að klára málið.
Ákaft reynt að ná sáttum
Morgunblaðið/Eggert
Á hlaupum Það gekk mikið á hjá þingmönnum í gærkvöldi. Hér sést hluti þingflokks Vinstri grænna áður en fundur
hófst, skömmu fyrir kvöldmat í gær. Ákaft var reynt að ná samstöðu um málið meðal allra flokka á Alþingi.
Samstaða á Alþingi um frumvarp
vegna ríkisábyrgðar fyrir Trygg-
ingasjóð innstæðueigenda virð-
ist ekki fyrir hendi. Stjórnarand-
staðan enn hörð á móti. Vill
skýrari efnahagsfyrirvara.
Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur
sigrunrosa@mbl.is
„ÞETTA er ekki búið fyrr en það er
búið,“ sagði Guðbjartur Hannesson,
formaður fjárlaganefndar, rétt fyrir
síðasta fund nefndarinnar í gær-
kvöldi sem var um þá fyrirvara sem
fyrirhugað er að setja við Icesave-
frumvarpið. Guðbjartur sagði í
kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í
gær að þó að náðst hefði meirihluti
ríkisstjórnarflokkanna um málið
væri samt æskilegra að reyna að ná
sem breiðastri sátt.
Samningurinn í uppnámi?
Bjarna Benediktssyni, formanni
Sjálfstæðisflokksins, þótti kallið eft-
ir samstöðu koma nokkuð seint í gær
þegar rætt var við hann í gærkvöldi.
Ekki væri hægt að fallast á rík-
isábyrgðina á þeim forsendum sem
lagt væri upp með. „Það þurfa að
vera raunverulegir fyrirvarar við
ríkisábyrgðina til þess að við höfum
eitthvað um að tala og mér sýnist
slíkir fyrirvarar vera í burðarliðnum.
En þessari vinnu er langt í frá lokið.“
Andrúmsloftið innan Alþingis-
hússins var spennuþrungið. Fundað
var í hliðarherbergjum og mönnum
jafnvel bókstaflega stillt upp við
vegg. Orð eins og trúnaðarbrestur
heyrðust falla eftir að Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknar, tjáði sig um fyrirvar-
ana í beinni útsendingu í sjónvarpinu
og sagði þá „svik við þjóðina“.
Var mikil óánægja með að hann
skyldi þannig hafi rofið þann trúnað
sem hefði átt að ríkja um vinnu fjár-
laganefndar þar til henni væri lokið.
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra vildi ekki tjá sig um um-
mæli Sigmundar Davíðs en sagðist
telja að sýna ætti vinnu fjárlaga-
nefndar og þeim trúnaði sem þar
væri reynt að halda virðingu.
Áður hafði verið talið að það gæti
verið meirihluti innan fjárlaganefnd-
ar fyrir samþykkt fyrirvaranna en
eftir þær efasemdir sem menn létu í
ljós í viðtölum dró úr þeirri vissu.
Varðandi það að það væri þungt
hljóðið í minnihluta nefndarinnar
þar sem ríkisstjórnin ætlaði sér að
keyra málið í gegn sagðist Stein-
grímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra ekki hafa skilið það þannig.
„Það kom fram á þingflokksfund-
inum að sumir fulltrúar minnihlut-
ans hefðu tekið tiltölulega vel í þá
vinnu sem var kynnt í nefndinni í
dag. Þannig að ég held að það sjái
það allir að það er búið að leggja
mikið á sig til að finna besta mögu-
lega búning á málinu og þar með ná
sem mestri samstöðu um það.“
Mikil spenna
fyrir fund fjár-
laganefndar
Áhersla á samstöðu um afgreiðslu
Morgunblaðið/Eggert
Staðið í ströngu Mikið hefur geng-
ið á í starfi fjárlaganefndar.
Allt kapp var lagt á að afgreiða
breytingar á fyrirvörum við Ice-
save úr fjárlaganefnd í gær. Ósk-
að var eftir breiðri samstöðu um
málið sem virtist ekki ætla að
nást seint í gærkvöldi.
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
0
9Ljósadagar
13. ágúst - 23. ágúst
15 - 70% afsláttur
af öllum ljósum
Nostalgic. Borðlampi. Matt stál.
H 98 cm. Verð 17.900,- NÚ 9.995,-
Nýtt
kortatímabil
Icesave
„ÍSLENDINGAR eru reiðir en
munu færa fórnir,“ er fyrirsögn
greinar eftir Jóhönnu Sigurð-
ardóttur sem birt var á vef Fin-
ancial Times laust fyrir klukkan
19 í gær.
Í greininni neitar Jóhanna ásök-
unum um að Íslendingar hneigist
til að halda að allt sem miður hef-
ur farið megi rekja til samsæris
Breta og Hollendinga. „Íslend-
ingar, sem telja sig ekki bera
ábyrgð á bankakreppunni í heim-
inum, eru tilbúnir að færa fórnir
til að tryggja eðlileg tengsl og við-
skipti við umheiminn. En þeir eru
reiðir yfir því að þurfa að bera
byrðarnar vegna Icesave-
reikninga Landsbanka.“
Í greininni gagnrýnir Jóhanna
bresk stjórnvöld fyrir að beita
hryðjuverkalögum gegn Íslandi
eftir bankahrunið.
Hún segir sterk rök hafa verið
færð fyrir því að
Ísland hafi orðið
fórnarlamb galla
á tilskipun ESB
um innláns-
tryggingar.
Jóhanna segir
að umfjöllun
Financial Times
um meintan
þrýsting Hol-
lendinga og
Breta á Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
hafi torveldað ríkisstjórninni að
sannfæra Alþingi um að sam-
komulag um Icesave væri óhjá-
kvæmilegt. „Vonandi gerir fólk í
stórum löndum á borð við Bret-
land og Holland sér grein fyrir
þeim varanlegu afleiðingum sem
gerðir ríkisstjórna þeirra geta
haft fyrir lítið land eins og okkar
þegar miklir erfiðleikar steðja að
því.“
Eru reiðir en
munu færa fórnir
Jóhanna
Sigurðardóttir
Forsætisráðherra á vef Financial Times
„VIÐ ætlum að
standa við skuld-
bindingar okkar
og ætlum að
halda því alveg til
streitu,“ sagði
Guðbjartur
Hannesson, for-
maður fjár-
laganefndar,
spurður hversu
almennir fyr-
irvararnir sem fyrirhugað er að
setja við Icesave-samninginnn væru
og hvort þeir gætu fellt samninginn.
Spurður um líkur á samþykkt nefnd-
arinnar sagði hann það nýtt fyrir sér
að menn hefðu efasemdir líkt og
komið hefði fram í viðtölum. Guð-
bjartur sagði fyrirvarana hafa veru-
legt vægi, bæði efnahagslega og
lagalega, og þeir hefðu verið samdir
að óskum fjárlaganefndar. Sú vinna
var svo lögð fram í gær fyrir nefnd-
ina og aftur eftir lítillegar lagfær-
ingar. Lögfræðingar hefðu lagað til-
lögurnar lítillega og þær því verið
lagðar fyrir aftur en alls fundaði
fjárlaganefnd fimm sinnum í gær.
Staðið við
skuldbindingar
Guðbjartur
Hannesson
Steingrímur J. Sigfússon neit-
aði því að þeir fyrirvarar sem
fyrirhugað er að setja við samn-
ingana sem gerðir voru í umboði
hans, feli á nokkurn hátt í sér
höfnum á þeim.
Steingrímur sagðist ekki sjá
ástæðu til þess að telja að staða
sín veikist við að settir verði fyr-
irvarar við samninginn.
„Ég á ekki í nokkrum einustu
vandræðum með það að fagna
vandaðri vinnu um þingmál sem
ég hef lagt fyrir þingið.“
Ekki veikari staða