Morgunblaðið - 14.08.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
„ÉG sá aldrei neitt ljós við göngin,
bara svartamyrkur. Líklega hef ég
verið sendur niður því það hefur
náttúrlega aldrei komið til greina að
hleypa mér nálægt Gullna hliðinu en
svo höfnuðu þeir í víti mér líka,“
segir Jóhannes og hlær. „Þú hefur
sjálfur snúið við,“ segir Gunnar
Mýrdal, hjartaskurðlæknir og lækn-
ir Jóhannesar. „Þú hefur skynjað að
þarna væri komið gott efni í grín.“
Það ríkir glaðværð á sjúkrastof-
unni hjá Jóhannesi þrátt fyrir al-
vöru málsins. Þar eru staddir, fyrir
utan Jóhannes, Halldóra Sigurð-
ardóttir, kona hans, og Gunnar
læknir sem dregur upp úr tösku
undarlega pípulögn sem Jóhannes
starir á í forundran. „Er þetta skil-
vindan sem er inni í mér? Þetta er
bara eins og í Ferguson. Mikið er
þetta sniðugt, ég væri steindauður
ef enginn hefði fundið upp á þessu.“
Skyndilega leggst Jóhannes mar-
flatur í rúmið og flettir upp hvítum
sjúkrahúsbolnum: „Sjáðu, hérna
kemur út úr mér snúra sem tengist
við hjarta sem ég ber við beltisstað.
Það eru nú ekki margir sem geta
státað af slíku! Svo tengist ég líka
orkuvirkjunum. Sogsvirkjun hjálpar
græjunni við sogið og pumpið. Þess-
ar skammbyssur sem ég ber eru líka
ansi góðar,“ segir hann og sýnir
hulstur sem hann ber og minna
óneitanlega á byssuhulstur. „Hér
geymi ég batterí sem drífa þetta
áfram, en á næturnar sting ég mér
bara í samband.“
Fær kannski kratahjarta
Jóhannes bíður eftir að komast í
hjartaígræðslu í Gautaborg. Biðin
gæti orðið sólarhringur en gæti líka
orðið eitt ár. Oftast er biðin þó um
þrír til fjórir mánuðir. „Ég má fullt
eins búast við að fá kratahjarta!“
segir Jóhannes kíminn.
Hann kveðst vonast til að fá að
dveljast á spítalanum þangað til,
konu sinnar vegna. „Ég vil nú ekki
drepa hana Hallóru á því að þurfa að
hugsa um mig daginn út og inn.“
Halldóra fussar og segir að hún ætti
þá að vera löngu dauð, og svo
springa þau bæði úr hlátri. „Hann
fær nú að koma í heimsókn á sunnu-
daginn og hans bíður þessi fína
bleikja sem á að skella á grillið.“
„Ég hlakka nú óneitanlega til,“ segir
Jóhannes.
Sagt að fá sér banana
Veikindasaga Jóhannesar er orðin
nokkuð löng. „Ég fékk kransæða-
stíflu fyrir tíu árum. Þegar ég
hringdi á læknavakt var mér sagt að
borða banana og fá mér mjólkur-
glas, það slægi vel á brjóstsviða. Ég
bara hlýddi og fór ekki til læknis
fyrr en daginn eftir og þá var komin
skemmd í hjartað. Síðan hef ég verið
hálflélegur. Ég var alltaf með bláar
varir og svo urðu eyrun á mér líka
helblá. Við stress varð þetta hálfu
verra og það varð alltaf að varalita
mig þegar ég kom fram í sjónvarpi,“
segir Jóhannes sem kveðst vera
einkar ánægður með litaraft sitt eft-
ir að hann fékk pumpuna góðu.
Allt í einu allir á móti Icesave
Áttunda júní sl. hætti hjarta Jó-
hannesar að slá. „Þetta var eins og
að verða fyrir byssuskoti. Ég man
ekkert fyrr en einhverjum vikum
síðar. Þá var ég búinn að dveljast
hér á spítalanum í góðan tíma, fljúga
til Gautaborgar, fara þar í stóra að-
gerð og kominn heim á ný. Eftir
myndum að dæma var ég eins og
spaghettíréttur með óendanlega
mikið af snúrum tengdum mér. Og
þegar ég vaknaði loksins voru allt í
einu allir orðnir gríðarlega mikið á
móti Icesave!“
Dýrasti skemmtikrafturinn
Jóhannes er fyrsti Íslendingurinn
sem fær pumpuna með góðum
árangri. Hann segist vera virkilega
ánægður með að vera tilraunadýr í
tilraun sem lukkist. Hann voni að
fleirum verði gefið tækifæri líkt og
sér. Gunnar segir að ekki hafi annað
komið til tals en að bjarga lífi eins
skemmtilegasta manns landsins.
„Og nú er ég orðinn dýrasti
skemmtikraftur landsins,“ segir Jó-
hannes. Gunnar bætir við að fyrir
utan að vera skemmtilegur sé Jó-
hannes vart kominn af unglings-
aldri, bara 54 ára. „Bíddu var ekki
Michael Jackson á svipuðum aldri,“
segir Jóhannes. „Nei, hann var
miklu yngri en þú,“ fullyrðir Hall-
dóra.
„Hann var bara búinn að fara í
fleiri lýtaaðgerðir en ég. Það á ég
eftir. Læknarnir segja að ef allt fari
vel eigi ég jafnvel 25 góð ár eftir og
því tími til vel heppnaðra lýtaað-
gerða. Nú er blóðflæðið hjá mér orð-
ið svo gott að ekki er hætta á að nef-
ið detti af mér,“ segir Jóhannes
grafalvarlegur á svip en springur
svo úr hlátri. „Það er kostulegt að
hafa lifað allt þetta. Ég væri dauður
ef ekki hefði tekið á móti mér og
annast mig svona fært fólk. Hér er
gott að staldra við. Maður lærir
margt um lífið á sjúkrahúsi. Það
liggur við að ég segist ekki hefðu
viljað missa af þessari veikinda-
reynslu allri saman.“
Sting mér bara í samband!
Morgunblaðið/RAX
Hjartanlegir Jóhannes Kristjánsson skemmtikraftur ásamt hjartaskurðlækninum Gunnari Mýrdal.
Fékk góðan efnivið í grín og glens úr þessari hjartanlegu reynslu sinni Alvara málsins snúist um
að hægt verði að sinna sjúklingum með svipaða kvilla Sá ekkert ljós og var líklega sendur niður
Hinn 8. júní hélt Jóhannes Kristjánsson að hann hefði orðið fyrir byssuskoti. Hjartað hafði hætt að slá. Til að bjarga lífi eins skemmti-
legasta manns landsins var ekki um annað að ræða en að setja í hann hjartapumpu og undirbúa hjartaígræðslu. Jóhannes er fyrsti
Íslendingurinn sem fær hjartapumpu með góðum árangri. Hann er nú í endurhæfingu og sér fram á betri tíð með nýju hjarta.
BRJÓSTKASSINN er opnaður og annar hluti pump-
unnar tengdur inn í vinstri slegilinn. Hinn hlutinn
liggur í gollurshúsinu fyrir utan hjartað. Tækið sog-
ar blóðið úr hjartanu og inn í tækið. Þar er eins kon-
ar hverfill, sem minnir á litla útgáfa af hverflum sem
sjá má í orkuverum. Hverfillinn snýst 9.800 snúninga
á mínútu. Blóðið sogast út úr hjartanu yfir í hina píp-
una sem er tengd við ósæðarnar og flæðir svo um lík-
amann. Hjá Jóhannesi er vinstri slegillinn í hjartanu
hættur að virka og pumpar engu blóði af sjálfs-
dáðum. Hægri slegillinn ræður við að pumpa blóði til
lungnanna. Út úr tækinu liggur kapall sem er leidd-
ur út úr líkamanum og tengdur stjórnstöð sem sjúk-
lingur ber við beltisstað. Þetta er síðan drifið áfram
með rafmagni eða batteríum. Hjartapumpan góða
hefur bjargað mörgum mannslífum og hægt er að
lifa með hana í nokkuð langan tíma. Gunnar Mýrdal
lærði og starfaði um árabil í Svíþjóð. Hann segist
muna eftir sænskum bónda sem hafi verið með
hjartapumpuna í tvö og hálft ár. Það var svo mikið
að gera í búskapnum að þegar hann var kallaður í
hjartaígræðslu eftir eitt ár þá hafnaði hann hjartanu
vegna anna. Þegar hægri slegill hjartans var farinn
að gefa sig samþykkti hann að fá nýtt hjarta. Bónd-
inn sinnir enn búskap. Þá minnist hann konu sem
ekki uppfyllti skilyrði fyrir hjartaígræðslu vegna
annarra sjúkdóma sem hana plöguðu. Konan hefur
nú lifað með pumpuna í fjögur og hálft ár.
Hjartapumpan góða
„PENINGARNIR koma úr sama vasanum en hendurnar eru tvær,“ segir
Gunnar Mýrdal hjartaskurðlæknir og vísar til sjúkrahússins annars vegar
og Tryggingastofnunar hins vegar. „Við flugum með Jóhannes til Gauta-
borgar með tilheyrandi kostnaði en hefðum vel getað framkvæmt aðgerð-
ina hér á landi. Vandamálið er að ef aðgerðin er gerð hér þá fellur kostn-
aðurinn á sjúkrahúsið en ef sjúklingur er sendur úr landi til meðferðar fer
reikningurinn til Tryggingastofnunar.“ Gunnar segir kunnáttu og aðstöðu
fyrir hendi til að framkvæma þessa aðgerð hér, fyrir utan að vera miklu
hagkvæmara. „En í sparnaðarátakinu mikla má ekki hefja neina nýja með-
ferð á sjúkrahúsum. Það undarlega er þó að á uppgangstíma var heldur
aldrei peningur til! Sparnaðurinn hefur þó ekki svipt okkur mannlegum
kenndum og við teygjum okkur langt til að bjarga mannslífum. En það er
sannast sagna mjög gremjulegt að fá ekki að nýta kunnáttuna til að bjarga
fólki. Kannski það væri hugmynd að við læknar leigðum skurðstofu sjúkra-
hússins, framkvæmdum aðgerðir og sendum svoTryggingastofnun reikn-
inginn! Það verður að sinna betur sjúklingum með alvarlega hjartabilun,
sem er nokkuð algeng. Margir eru á besta aldri og gætu öðlast langt, gott
og gjöfult líf. Mannlegt líf verður vonandi aldrei metið til fjár en það er þó
hægt að fullyrða að þetta væri hreinlega þjóðhagslega hagkvæmt. Það er
líka fásinna að nýta ekki kunnáttu lækna og hjúkrunarliðs. Þetta fólk fer
eðlilega ef það fær ekki störf við hæfi. Yfirmaður deildarinnar í Gautaborg
er íslenskur læknir sem ekki fékk vinnu hér. Við verðum að skoða sparn-
aðinn í víðu samhengi.“
Einn vasi en tvær hendur
Nú getur þú tryggt þér síðustu
sætin í sólina við Alicante
19. ágúst á hreint ótrúlegu verði.
Gríptu tækifærið og tryggðu þér
flugsæti á frábærum kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt
til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 24.990
Netverð á mann. Flugsæti aðra
leið með sköttum til Alicante.
Sértiboð 19. ágúst. Takmarkaður
fjöldi sæta á þessu verði.
Allra síðustu sætin!
Alicante
19. ágúst
frá kr. 24.990