Morgunblaðið - 14.08.2009, Page 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
Eftir Gunnlaug Árnason
Stykkishólmur | St. Franciskus-
reglan hefur sett sterkan svip á bæj-
arlífið í Stykkishólmi í tæp 80 ár og
verið skapandi afl í heilbrigðisþjón-
ustu og atvinnusögu Hólmara. Þeim
kafla er nú að ljúka. St. Franc-
iskusreglan hefur ákveðið að hætta
starfsemi í Stykkishólmi. Nunn-
urnar hafa verið kallaðar til annarra
starfa erlendis. Á síðustu mánuðum
hafa fjórar nunnur verið starfandi í
Hólminum en þær flytja burtu al-
farnar á næstu dögum. Þar með lýk-
ur merku samstarfi St. Franciskus-
reglunnar, Hólmara og annarra
Snæfellinga.
Frá því að St. Franciskusspítalinn
tók til starfa í Hólminum árið 1936
hafa störf systranna haft mikil áhrif
í Hólminum á svo margan hátt. Þær
hafa rekið öflugt sjúkrahús. Þar hef-
ur leiðarljósið verið metnaður og
kærleikur. Þær hafa komið að mörg-
um öðrum verkefnum, t.d. starfrækt
prentsmiðju, boðið upp á tóm-
stundastörf fyrir unglinga og rekið
leikskóla.
Hólmarar eiga mikið að þakka
Fyrir nokkrum dögum var systr-
unum haldið kveðjuhóf á St. Franc-
iskusspítala. Þangað mætti fjöldi
bæjarbúa til að kveðja systurnar og
þakka þeim áratuga samfylgd.
Í kveðjuræðum kom fram að
Hólmarar eiga þeim mikið að þakka.
Án starfsemi þeirra væri margt
öðruvísi í bæjarfélaginu. Klaustrið
hefur verið kjölfestan í öllu starfi
systranna og alls starfs sem syst-
urnar hafa komið að í gegnum tíðina.
Þær hafa getið sér gott orð meðal
landsmanna og starfsemi þeirra
aukið hróður Stykkishólms. Spít-
alinn hefur í mörg ár verið einn fjöl-
mennasti vinnustaður bæjarins.
Þar sem reglan er að yfirgefa
landið og hætta allri starfsemi hér á
landi ákváðu stjórnendur reglunnar
að stofna vináttu- og stuðningsfélag
sem hefði það verkefni að styðja þá
sem veita heilbrigðisþjónustu í
Stykkishólmi til handa þeim sem á
hjálp þurfa að halda vegna sjúk-
dóma. Sinnir sjóðurinn meðal ann-
ars verkefnum sem gera hlutaðeig-
andi kleift að stuðla að bata
skjólstæðinga sinna og velferð
starfsmanna. Enn fremur varðveitir
sjóðurinn gögn sem vitna um sögu
reglustarfsins í Stykkishólmi og hef-
ur á annan hátt í heiðri minningu
þess. Sem stofnfé leggja systurnar
fram 5.000.000 kr. og fasteignina á
Austurgötu 8 í Stykkishólmi. Stofnfé
skal ávaxta og nýta vextina til styrk-
veitinga.
Á kveðjustund sýnir St. Franc-
iskusreglan enn og aftur íbúum
Stykkishólms og nágrennis hlýjan
hug með stofnun Vináttu- og stuðn-
ingsfélag St. Franciskussystra.
Það er því með söknuði sem
Hólmarar kveðja nunnurnar og um
leið þakka þeir þeim áralanga þjón-
ustu og vináttu.
Systur kveðja Hólminn
St. Franciskussystur stofna sjóð til styrktar heilbrigðisþjónustu í Stykkishólmi
Systranna sárt saknað eftir starfsemi í Hólminum í meira en áttatíu ár
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Kveðjustund Íbúar Stykkishólms héldu nunnunum kveðjuhóf en Franciskussysturnar hafa þjónað þar í rúm 80 ár.
Fjöldi St. Franciskussystranna í
Stykkishólmi hefur verið misjafn í
gegnum tíðina. Flestar voru þær
um tíma 16 talsins, en oftast hafa
þær verið átta í einu. Fjórar þær
síðustu eru semsagt farnar.
Frá því að spítalinn tók til starfa
í Hólminum er talið að 53 nunnur
hafi komið hingað til þjónustu.
Íbúar Stykkishólms verða ekki
nunnulausir eftir brottför systr-
anna. Til bæjarins eru komnar
þrjár systur frá Maríureglunni,
Bláu systurnar. Þær hafa starfað í
Hafnarfirði, en hafa nú einnig
fengið það verkefni að starfa í
Stykkishólmi og sinna safnaðarlífi
kaþólskra á Snæfellsnesi.
Bláu systurnar komnar í staðinn
LANDVERND tekur undir áhyggj-
ur SUNN, Samtaka um nátt-
úruvernd á Norðurlandi, vegna fyr-
irhugaðra rannsóknaborana í
Gjástykki í Þingeyjarsýslu. Fram-
kvæmdirnar eru nú í matsferli
vegna umhverfisáhrifa en frestur
til að skila Skipulagsstofnun at-
hugasemdum er til 28. ágúst nk.
Hvetur stjórn Landverndar um-
hverfisráðherra til að taka jákvætt
í áskorun SUNN um friðlýsingu á
Gjástykki.
Landvernd vill friðlýs-
ingu Gjástykkis
STJÓRN Sam-
fylkingarinnar
hefur ráðið Sig-
rúnu Jónsdóttur
stjórnmálafræð-
ing sem fram-
kvæmdastjóra
flokksins frá og
með september-
mánuði. Starfið
var auglýst í júní
sl. og voru umsækjendur tæplega
þrjátíu. Sigrún gegndi tímabundið
starfi framkvæmdastjóra í kosning-
unum í vor er Skúli Helgason lét af
því embætti. Í alþingiskosning-
unum árið 2007 var hún kosn-
ingastjóri Samfylkingarinnar á
landsvísu og árið 2003 kosn-
ingastjóri flokksins í Suðvest-
urkjördæmi.
Framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar
Sigrún Jónsdóttir
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Stuðningshlífar
fjölbreytt úrval
NÝJAR
HANDHÆGARUMBÚÐIR
gerir grillmat að hreinu lostæti!
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
38
33
8
FISKISTOFA og Landhelg-
isgæslan fóru í sameiginlegan leið-
angur í eftirliti á grunnslóð í júlí-
mánuði. Farið var um borð í 23
báta; 20 handfærabáta, togbát,
línubát og netabát.
Af þeim 20 handfærabátum sem
farið var um borð í voru 19 bátar
í strandveiðikerfinu og fjórir
þeirra voru ekki með veiðileyfi um
borð og voru gerðar athugasemdir
við það. Í fimm tilvikum voru
gerðar athugasemdir við skrán-
ingu í afladagbók og verður farið
með þau mál að hætti opinberra
mála að því er fram kemur á
heimasíðu Fiskistofu. Gera má ráð
fyrir að framhald verði á slíkum
leiðöngrum með það að markmiði
að bæta eftirlit á grunnslóð.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Heiddi
Án veiðileyfis og
skráningu ábótavant
MIKILL hiti var í nágrenni eldsins
þegar Hótel Valhöll brann til
grunna á nokkrum klukkustundum
fyrir röskum mánuði. Nokkur tré í
nágrenninu brunnu og sviðnuðu, en
það vekur athygli skógræktar-
manna við skoðun á brunastaðnum
hversu lífseigt íslenska birkið er.
Sviðin tré sem standa í næsta ná-
grenni við rústirnar og hafa orðið
fyrir gífurlegum hita af eldinum
eru byrjuð að skjóta upp rót-
arskotum. Má gera ráð fyrir að þó
nokkuð sé liðið á sumarið ættu
þessi tré að geta myndað dval-
arbrum og lifnað aftur næsta vor.
Líklegt má telja að birkið gæti á
sama hátt spírað og skotið upp öng-
um í kjölfar skógarelda, en sem bet-
ur fer eru slíkar hörmungar afar
sjaldgæfar hér á landi, segir á
skogur.is. aij@mbl.is
Eldur í Valhöll Sviðin tré eru byrjuð
að skjóta upp rótarskotum.
Íslenska birkið bregst ekki