Morgunblaðið - 14.08.2009, Page 33
Menning 33FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA byrjaði allt með því að ég rakst á grein
sem fjallaði um það hvernig atvinnuleysi getur ýtt
undir heimilisofbeldi,“ segir Sigríður Soffía Níels-
dóttir, annar tveggja höfunda dansverksins Fresh
Meat sem frumsýnt verður á morgun. Verkið, sem
er eftir þær Sigríði og Snædísi Lilju Ingadóttur,
var unnið í spuna og var ástandið í þjóðfélaginu í
dag helsti innblástur þess.
„Við fórum að rannsaka samband gerenda og
þolenda í heimilisofbeldi. Við skoðuðum líka stað-
reynd á borð við þá að það fólk sem beitir ofbeldi
varð oft fyrir ofbeldi í æsku. Við notum það svolít-
ið í uppbyggingu verksins.“
Aðspurð segir Sigríður verkið því vissulega
nokkuð ofbeldisfullt.
„En þó ekki á bókstaflegan hátt, þótt allur und-
irtónninn sé mjög þungur. En svo vinnum við með
þá staðreynd að heimilisofbeldi er oft mjög falið,
þannig að á yfirborðinu virðist oft allt vera í lagi.
En það fer ekki framhjá neinum um hvað þetta
verk snýst.“
Dómar til hliðsjónar
Að sögn Sigríðar gengu þær stöllur svo langt í
rannsóknarvinnu sinni að þær skoðuðu dóma sem
fallið hafa í tengslum við heimilisofbeldi.
„Við vorum aðallega að skoða formið sem dóm-
arnir eru birtir í. Það er sem sagt þannig að í
hverju máli eru að minnsta kosti fimm lýsingar á
sama atburðinum – það er að segja frásögn fórn-
arlambsins, gerandans og vitna, auk mjög fag-
legra læknaskýrslna, og svo sjálfur dómurinn.
Það er mjög áhugavert að lesa það allt saman,
enda oft mikið misræmi í því sem er sagt. Í text-
um í sýningunni erum við með þessa dóma til hlið-
sjónar,“ segir Sigríður og bætir því við að þótt um
dansverk sé að ræða kalli þær það „dansskotið
leikhúsverk“.
Þær Sigríður og Snædís útskrifuðust báðar af
dansbraut Listaháskólans nú í vor. Þær vinna
verkið í samvinnu við myndlistarmanninn Björk
Viggósdóttir sem sér um sjónrænt umhverfi sýn-
ingarinnar, en tónlistin og hljóðmyndin er eftir
Lydíu Grétarsdóttur.
Fresh Meat, sem er hluti af listahátíðinni Art-
fart, verður sýnt í Leikhúsbatteríinu (fyrir ofan
gamla Organ) og eru sýningar 15., 16. 21. og 22.
ágúst kl. 18 alla dagana, en á sunnudaginn, 16.
ágúst, verður aukasýning kl. 20.
Miðasala er í síma 897-0496 og miðaverð er
1.000 krónur.
Dansað í gegnum ofbeldið
Dansverkið Fresh Meat eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur og Snædísi Lilju Inga-
dóttur frumsýnt á Artfart Tekur á heimilisofbeldi á afar áhrifaríkan hátt
Morgunblaðið/Heiddi
Skuggalegt „Við fórum að rannsaka samband gerenda og þolenda í heimilisofbeldi,“ segir Sigríður Soffía Níelsdóttir um tilurð dansverksins Fresh Meat.
www.artfart.is
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
SAGNFRÆÐINGURINN geð-
þekki Guðjón Friðriksson vinnur nú
hörðum höndum að bók um Kaup-
mannahöfn sem höfuðstað Íslend-
inga ásamt Jóni Þ. Þór. Guðjón er nú
staddur í Kaupinhafn vegna þessa
en á þriðjudaginn ákvað hann að
sleppa skræðugrúski um stund og
skella sér á tónleika – með sjálfri
Madonnu. Guðjón fór af stað í hálf-
gerðu flippi, skellti sér á hjólhest
sinn með stuttum fyrirvara og
tryggði sér miða með seinni skip-
unum.
„Þetta var skyndiákvörðun,“ upp-
lýsir Guðjón blaðamann um. „Ég
skellti mér bara einn. Ég skemmti
mér alveg stórkostlega, þetta var
gríðarlegt „sjó“, vídeó, dansarar og
fleira. Heilmikil upplifun.“
Guðjón segir að um 40.000 manns
hafi verið þarna og hann hafi stuðst
við risaskjái til að nema það sem
fram fór á sviðinu.
„Ég var ein-
faldlega forvitinn
um þetta, ætli
það megi ekki
kalla mig laumu-
aðdáanda. Ég hef
löngum hrifist af
söngkonunni, en
ekki sem sagn-
fræðilegu við-
fangsefni eða ein-
hverju slíku. Ég sótti tónleikana sem
afþreyingu. En ég geri mér vel grein
fyrir því að fræðimenn hafa rýnt í
feril hennar, enda má segja að hún
sé orðin ákveðið fyrirbæri – það má
segja að hún sé poppdrottningin
með stóru P-i“
Guðjón segir að tónleikarnir hafi
fengið slælega dóma í dönsku blöð-
unum, talað um umbúðir á kostnað
innihalds.
„En ég var í öllu falli að fíla þetta
vel.“
Guðjón Friðriksson sagn-
fræðingur rýndi í Madonnu
Morgunblaðið/Golli
Í skyndi Hér er Guðjón í Laxness-boðhlaupinu árið 2002. Hvað Madonnu
varðaði dugðu tveir jafnfljótir hins vegar skammt og reiðhjólið var brúkað.
Smellti sér með
skömmum fyrir-
vara á tónleika
í Parken
Madonna
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
LOGI Pedro Stefánsson, hinn knái
bassaleikari Retro Stefson, gaf ný-
lega út fjögurra laga netskífu undir
listamannsnafninu Pedro Pilatus.
Platan kemur út undir hatti World
Champion Records, sem er í eigu
Árna Plúseins (FM Belfast o.fl.).
Plötuna má nálgast frítt á síðu út-
gáfunnar.
Logi segist hafa verið að vinna
einn að tónlist í dágóðan tíma en
hann hafi fyrst farið af stað með út-
gáfu af einhverju ráði fyrir stuttu.
„Ég hef verið að prófa mig áfram
með stíla, ég byrjaði t.d. á því að
búa til hipp-hopp, en þessi fjögurra
laga plata inniheldur raftónlist.
Nýjasta lagið, „Stella“, sem ég vinn
með Bear Hug (Hugi Þeyr) er þá
mun lífrænna og poppaðra, og þar
erum við að prófa okkur áfram með
alvöru hljóðfæri.“
Árna Plúseinum kynntist Logi í
Austurbæjarskóla, en Árni var
tölvukennarinn hans auk þess að
vinna í félagsmiðstöðinni.
„Hann kenndi mér og Unnsteini
bróður á tónlistarforrit og leiddi
okkur dálítið inn í þann heim.“
Logi er þó síður en svo að segja
skilið við Retro Stefson en meðlimir
eru allir uppteknir við hin ýmsu
hliðarverkefni.
„Pælingin hjá mér er að skjóta út
lögum á netið jafnt og þétt og
byggja þannig upp stemningu. Svo
er ég að fara að leggja í stóra plötu
sem kemur vonandi út á næsta ári.“
Logi úr
Retro Stef-
son gefur út
sólóefni
Slakur Pedro Pilatus nýtur lífsins.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Leikferð um landið 13. - 22. september
Fim 10/9 kl. 20:00 Fors U
Fös 11/9 kl. 20:00 Fors U
Lau 12/9 kl. 20:00 Frums U
Sun 13/9 kl. 20:00 U
Fim 17/9 kl. 20:00 U
Fös 18/9 kl. 19:00 U
Lau 19/9 kl. 19:00 U
Þri 20/10kl. 20:00 U
Fös 4/9 kl. 19:00 U
Lau 5/9 kl. 19:00 U
Sun 6/9 kl. 19:00 Ö
Mið 9/9 kl. 20:00 U
Fim 10/9 kl. 19:00 U
Fös 11/9 kl. 19:00 Ö
Fös 18/9 kl. 19:00 Ö
Lau 19/9 kl. 19:00 U
Sun 20/9 kl. 14:00 Ö
Lau 26/9 kl. 14:00 Ö
Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust.
Djúpið (Litla sviðið)
Mið 23/9 kl. 20:00 U
Sun 27/9 kl. 16:00 Ö
Mið 30/9 kl. 20:00 Ö Sun 4/10 kl. 16:00
Opið hús laugardaginn 29. ágúst kl. 13-17
Líf og fjör um allt hús - allir velkomnir
Nýtt glæsilegt leikár kynnt 23. ágúst