Morgunblaðið - 28.08.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
SVANDÍS Svavarsdóttir umhverfis-
ráðherra og Katrín Júlíusdóttir iðn-
aðarráðherra heimsóttu Sements-
verksmiðjuna á Akranesi í gær.
Svandís sagði langt síðan að for-
svarsmenn verksmiðjunnar óskuðu
eftir heimsókninni. Ráðherrarnir
hittu starfsfólk og stjórnendur og
skoðuðu fyrirtækið. „Við fórum í
gegnum helstu áhyggjur þeirra af
starfseminni. Það var mjög áhugavert
að sjá íslenska framleiðslu sem er
svona þróuð og stendur á svo traust-
um merg,“ sagði Svandís. „Vandi
þeirra er samdrátturinn í byggingar-
iðnaði og að eiga ekki aðkomu að öll-
um verkefnum, sem stafar af sam-
keppnisumhverfinu.“
Ríkisstjórnin fól nýlega umhverfis-
ráðherra og iðnaðarráðherra að láta
taka saman atriði sem heyra undir
ráðuneyti þeirra varðandi Sements-
verksmiðjuna. Svandís sagði að hvað
umhverfisráðuneytið varðaði hefðu
m.a. verið ræddir möguleikar á að
nýta mikinn hita sem myndast í verk-
smiðjunni til að brenna sorpi. Á því
væru engar formlegar hindranir, þó
það væri frekar þeirra sem annast
förgun sorps að eiga frumkvæði að
slíku en ráðuneytisins.
Framleiðsla Sementsverksmiðj-
unnar er komin niður í 70-80 þúsund
tonn á ársgrundvelli sem er hægt að
framleiða á hálfu ári. Þegar umsvifin
voru sem mest 2006 og 2007 var árs-
notkun á sementi á Íslandi um 300
þúsund tonn. Nú er notkunin um 110
þúsund tonn og framleiðir verksmiðj-
an 70-80 þúsund tonn af því.
Nýir mögu-
leikar kannaðir
Umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra
heimsóttu Sementsverksmiðjuna í gær
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
HANDBÆRT fé frá rekstri ríkis-
sjóðs fyrstu sjö mánuði þessa árs var
neikvætt um 91 milljarð króna. Það
er 118,1 milljarði lakari útkoma en á
sama tímabili í fyrra. Tekjur ríkis-
sjóðs frá janúar til júlí voru 37,4
milljörðum minni en á sama tímabili
2008. Gjöldin jukust hins vegar um
71,6 milljarð á þessu tímabili milli
ára. Þetta kemur fram í greinargerð
um greiðsluafkomu ríkissjóðs sem
fjármálaráðuneytið birti í gær.
„Þetta kemur mér í sjálfu sér ekk-
ert á óvart,“ sagði Kristján Þór Júl-
íusson alþingismaður sem á sæti í
fjárlaganefnd. „Það sem slær mann
er að á sama tíma og þessi þróun á
sér stað hefur fjárlaganefnd ekki
gefist tími til að sinna þeim þáttum
sem lúta að eftirlitshlutverkinu.“
Hann sagði að fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks í fjárlaganefnd hafi varað við
þessari þróun. Þegar fjallað hafi ver-
ið um ráðstafanir í ríkisfjármálum á
liðnu vori hafi þeir sagt að staðan
væri mun illviðráðanlegri en þar var
lýst. „Þetta er staðfesting á þeim
veruleika, því miður,“ sagði Krist-
ján.
Tekjur sem ríkissjóður innheimti
á fyrstu sjö mánuðum ársins voru
tæplega 227 milljarðar en áætlun
fjárlaga gerði ráð fyrir að inn-
heimtar tekjur yrðu um 20 millj-
örðum meiri á tímabilinu. Skattar á
vöru og þjónustu skiluðu m.a. minna
en áætlunin gerði ráð fyrir.
Skatttekjur og tryggingagjöld
námu tæplega 197 milljörðum. Það
er 18,2% samdráttur að nafnvirði.
Samdrátturinn milli ára jókst að
raunvirði (m.v. vísitölu neysluverðs
án húsnæðis) frá síðasta mánuði og er
orðinn 31,1% þegar horft er til fjög-
urra mánaða meðaltals. Aðrar rekstr-
artekjur ríkissjóðs jukust um 37,7%
að nafnvirði frá sama tíma 2008 og
voru nú tæplega 29 milljarðar. Aukn-
ar vaxtatekjur vógu þar þyngst.
Mikið til velferðarmála
Greidd gjöld ríkissjóðs námu 308,6
milljörðum og hækkuðu um 71,6
milljarða (31%) frá fyrra ári. Mest
hækkuðu útgjöld til almannatrygg-
inga og velferðarmála eða um 28,6
milljarða. Þar af var hækkun útgjalda
Atvinnuleysistryggingasjóðs á milli
ára 13,5 milljarðar, vaxtabætur
hækkuðu um 8,3 milljarða, barnabæt-
ur um 3,5 milljarða og bætur sam-
kvæmt lögum um félagslega aðstoð
hækkuðu um 1,1 milljarð.
118 milljörðum lakara en í fyrra
Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrstu sjö mánuði ársins versnaði mjög milli áranna 2008 og 2009 Hand-
bært fé frá rekstri var neikvætt um 91 milljarð frá janúar til júlí sem er 118 milljörðum lakara en í fyrra
Morgunblaðið/Þorkell
Ríkiskassinn Greiðsluafkoma ríkissjóðs versnaði mjög milli ára.
» Um 20 milljörðum
minna var innheimt
en fjárlög áætluðu
» Útgjöld hækkuðu
mest á milli ára til al-
mannatrygginga og
velferðarmála eða
um 28,6 milljarða
20%
afsláttur af
Eik Rustic viðarparketi,
hvíttuðu og mattlökkuðu.
Aðeins þessa helgi.
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
0
9 Eik Rustic. Viðar smelluparket,
míkrófasað. Hvíttað og mattlakkað.
1860 x 189 x 15 mm.
Verð 6.990,-/m² NÚ 5.590,-/m²
1860x189x15 mm
5.590,-/m²
...................................................
sparaðu 1.400,-/m²
Í verslun okkar á Korputorgi er hægt að virða fyrir sér stóra gólffleti
lagða ILVA Home Flooring parketi. Fáðu vandaða og faglega ráðgjöf við
valið hjá starfsfólki gólfefnadeildar.
LÖGREGLAN á
höfuðborgar-
svæðinu er enn
með í sinni vörslu
talsvert magn
skartgripa og
annarra muna
sem hald var lagt
á í kjölfar þess að
þjófagengi voru
nýlega upprætt.
„Það er til-
tölulega auðvelt að koma út fartölv-
um og farsímum. Við getum fundið
úr hverjir eru eigendur þeirra en
það er erfiðara með skartgripi og
þess háttar,“ segir Ómar Smári Ár-
mannsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn. Hann segir reynt að hafa
samband við alla líklega eigendur.
„Þeir koma og skoða og þetta
mjatlast út smátt og smátt.“
Innbrotum fækkaði verulega í
kjölfar handtöku 10 manna í júlílok
og ágústbyrjun að því er Ómar
greinir frá. ingibjorg@mbl.is
Talsvert magn
skartgripa í
vörslu lögreglu
Hálsmen í vörslu
lögreglunnar.
Í GÆR hófst í Kringlunni ritfanga- og bókasöfn-
un Skólastoðarinnar með það að markmiði að
leggja skólabörnum lið. Leitað er til almennings
og fyrirtækja um framlög og er t.d. óskað eftir
pennum, litum, gráðubogum, skærum, reglustik-
um og öðru gagnlegu í skólanum, en hlutunum
verður úthlutað í samstarfi við Fjölskylduhjálp
Íslands eftir helgi. Söfnunin verður fyrir framan
Kúltúr á 2. hæð kl. 13-19 í dag.
Safna skólavarningi fyrir nemendur
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Reykjavíkurborg
er ábyrg fyrir
110 milljörðum af
skuldum Lands-
virkjunar. Þetta
kemur fram í
svari fjármála-
stjóra borgar-
innar við fyrir-
spurn borgar-
ráðsfulltrúa
Samfylking-
arinnar.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, segir að
fari Landsvirkjun í þrot geti lán-
veitendur gengið að borginni og
krafið hana um greiðslu á eftir-
stöðvum kröfu sinnar. Þetta sé enn
einn áfellisdómurinn yfir sölu borg-
arinnar á hlut sínum í Lands-
virkjun.
Óskar Bergsson, formaður
borgarráðs, segir að ein aðal-
ástæðan fyrir góðri lausafjárstöðu
borgarinnar sé salan á hlutnum til
ríkisins. Gott verð hafi fengist fyrir
hlutinn og Landsvirkjun hafi tryggt
afborganir af skuldbindingunum til
ársloka 2011, þegar ábyrgðir
Reykjavíkurborgar renni út.
Ábyrgð fyrir
110 milljörðum
Kárahnjúkar Í eigu
Landsvirkjunar.