Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 GUNNAR Hauksson, forstöðumaður Íþrótta- hússins Austurbergi, Seljaskóla og Kenn- araháskólans, er látinn, 58 ára að aldri. Hann lést á líknardeild Land- spítalans. Gunnar fæddist í Reykjavík 1. febrúar 1951. Foreldrar hans voru Aðalbjörg Sigurð- ardóttir húsmóðir og Haukur Gunnarsson, fyrrverandi verslun- arstjóri í Rammagerð- inni. Gunnar útskrifaðist frá verslunar- deild Verslunarskóla Íslands og stundaði síðan verslunarnám í Lond- on í eitt ár. Er heim kom hóf hann afgreiðslustörf hjá Silla og Valda. Hann var einnig verslunarstjóri Pennans á Laugavegi 178 í rúm tvö ár. Á árunum 1975-1991 starfaði hann með föður sínum í Ramma- gerðinni. Árið 1991 tók hann við Íþróttahúsinu Austurbergi og vann þar til dauðadags. Gunnar starfaði í mörg ár fyrir Sjálf- stæðisflokkinn og var formaður í stjórn Laugarneshverfis og síðar í Fella- og Hóla- hverfi. Hann var for- maður Sjálfstæðis- félagsins Varðar í tvö ár. Gunnar var dyggur stuðningsmaður Íþróttafélagsins Leiknis í Breiðholti. Eftirlifandi eigin- kona Gunnars er Jó- hanna Geirsdóttir. Þau eiga þrjú uppkomin börn. Ákveðið hefur verið að heiðra minningu Gunnars með því að stofna minningarsjóð og verður hlutverk hans að styrkja starf yngri flokka knattspyrnudeildar Leiknis árlega. Stofnendur og umsjónarmenn sjóðs- ins eru Jóhanna Geirsdóttir, ekkja Gunnars, og fjölskylda. Framlög má leggja inn á reikning nr. 0115-15-630268 í Landsbanka Ís- lands, kt. 270551-2039. Andlát Gunnar Hauksson Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 Ermar Verð 3.900 kr. Skokkur Verð 10.900 kr. 2 litir LAGERSALA 50-70% AFSL. Max Mara, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 Opið hús DREKINN WUSHU FÉLAG REYKJAVÍK Skeifunni 3j · Sími 553 8282 www.heilsudrekinn.is S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w. h e i l s u d r e k i n n . i s Kínverskur heilsudagur • Frí Ráðgjöf á kínverskri heilsumeðferð • Kynning á hugrænni teigjuleikfimi • Tai-Chi og Kung-Fu fyrir börn og fullorðna • Kynning á kínversku heilsu tei og heisubætandi áhrif te drykkju Skeifunni 3j. fös-lau 28.-29. ágúst kl. 9-16. Heilsudrekinn og Wu-Shu félag Reykjavíkur kynna: Skráning er hafin Frístundakort Kennari: Meistari Zhang einkatímar og hópatímar Tao lu og Tai chi Laugavegi 63 • S: 551 4422 – Haustlínan Skoðið sýnishornin á laxdal.is Flauelsbuxurnar eru komnar Laugavegi 84 • sími 551 0756 ráðuneytið sendi framhaldsskól- unum niðurstöður þessara sam- ræmdu prófa. „Þetta eru könnun- arpróf en ekki lokapróf og það á ekki að breyta þessu ákvæði,“ segir Arn- ór. Öllum nemendum undir átján ára aldri hefur nú verið boðin vist í fram- haldsskóla sem langflestir hafa þeg- ið. Allir skólar á höfuðborgarsvæð- inu eru fullsetnir. Örfá sæti kunna að vera laus á landsbyggðinni. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is VINNAN við endurskoðun á innrit- unarferlinu í framhaldsskólana er að hefjast, að sögn Arnórs Guðmunds- sonar, skrifstofustjóra skrifstofu menntamála í menntamálaráðuneyt- inu. „Það er alveg ljóst að taka verður á þessu. Það hafa komið það mörg sjónarmið fram,“ segir Arnór. Engin samræmd próf voru haldin upp úr 10. bekk grunnskólanna síð- astliðið vor þar sem þau höfðu verið afnumin með nýjum grunn- skólalögum sem tóku gildi í fyrra- sumar. Samkvæmt nýjum grunn- skólalögum á að útfæra ákvæði um lok grunnskóla og útskrift í aðal- námskrá. Hún kemur hins vegar ekki út í heild fyrr en á næsta ári. Við inntöku nýrra nemenda síð- astliðið vor tóku framhaldsskólarnir mið af skólaeinkunnum. Ósanngjarnt kerfi Inntökukerfið þótti ósanngjarnt og bent var á að grunnskólarnir hefðu ekki nægan ramma frá menntamálaráðuneytinu um hvernig skólaeinkunn skyldi fundin. Þess vegna væru skólaeinkunnir milli skóla ekki sambærilegar. Vinnuhópur á vegum mennta- málaráðuneytisins mun nú afla gagna varðandi skólaeinkunnir, að því er Arnór greinir frá. „Það verður skoðað hvort þær hafi mögulega breyst milli ára,“ segir hann. Jafnframt verður skoðað um hvaða skóla nemendur sóttu helst og hverjir fengu inngöngu. „Það verður einnig skoðað hvernig þetta dreifist eftir búsetu. Í framhaldinu verður skerpt á reglum varðandi innrit- unina,“ bætir Arnór við. Nemendur í 10. bekk munu, sam- kvæmt nýju grunnskólalögunum, þreyta samræmd könnunarpróf í ís- lensku, stærðfræði og ensku um miðjan september. Ekki stóð til að menntamála- Innritun í framhaldsskóla endurskoðuð Morgunblaðið/Kristinn Vinsæll Færri komust að en vildu í Menntaskólanum í Reykjavík. Vinnuhópur skoði einkunnir, val nem- enda og skóla og dreifingu eftir búsetu Í HNOTSKURN »Engin samræmd próf voruhaldin upp úr 10. bekk grunnskólanna síðastliðið »Við inntöku nýrra nem-enda síðastliðið vor tóku framhaldsskólarnir mið af skólaeinkunnum. »Nemendur í 10. bekkmunu, samkvæmt nýju grunnskólalögunum, þreyta samræmd könnunarpróf í ís- lensku, stærðfræði og ensku um miðjan september. Þórður og Sigvatur voru feðgar Ekki var farið rétt með tengsl Þórðar kakala og Sighvatar Sturlu- sonar í frétt í Morgunblaðinu sl. miðvikudag um róðukross sem af- hjúpaður var í Skagafirði. Sig- hvatur var faðir Þórðar kakala, en ekki frændi eins og sagði í frétt- inni. Þórður leitaði hefnda eftir Ör- lygsstaðafund þar sem féllu Sig- hvatur faðir hans og Sturla bróðir hans. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.