Morgunblaðið - 28.08.2009, Síða 15

Morgunblaðið - 28.08.2009, Síða 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 UPPHAFSTÓNLEIK AR Vladimir Ashkenazy er stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á fyrstu tónleikum vetrarins og einleikarinn er Vovka sonur hans. Feðgarnir koma nú í fyrsta sinn fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands og flytja hina stórkostlegu Wanderer-fantasíu Schuberts í útsetningu Liszts þar sem bæði einleikari og hljómsveit njóta sín til fulls. Tryggðu þér miða í síma 545-2500 eða á www.sinfonia.is 04.09.09 „Þegar ég stíg á stjórnandapallinn líður mér eins og ég sé kominn heim.“ Vladimir Ashkenazy HAFNAR eru framkvæmdir við gatnamót Kringlumýrarbrautar, Laugavegs og Suðurlandsbrautar, sem miða að því að auka öryggi þar. Umrædd gatnamót hafa um langa hríð verið með þeim hættulegustu í höfuðborginni. Verkið felst m.a. í því að breyta umferðarljósastýringu úr þremur fösum í fjóra á gatnamótunum, líkt og gert var á gatnamótum Miklu- brautar og Kringlumýrarbrautar fyrir nokkrum árum. Sú fram- kvæmd heppnaðist mjög vel og slys- um stórfækkaði í kjölfarið. Sams konar breyting verður gerð á gatna- mótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns. Áætluð verklok eru 1. nóvember næstkomandi. Fram- kvæmdirnar koma í kjölfar sam- komulags Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar um ódýrar að- gerðir til að draga úr umferðar- töfum og/eða auka öryggi í borginni. Einkum er um að ræða úrbætur á fjölförnum gatnamótum ásamt að- gerðum til að greiða fyrir almenn- ingssamgöngum, umferð gangandi og hjólandi vegfaranda ásamt um- ferðaröryggismálum. Heildarkostnaður við þessar framkvæmdir allar er áætlaður um 460 milljónir króna. Þar af er hluti Vegagerðarinnar áætlaður 320 m.kr og hluti Reykjavíkurborgar 140 m.kr. sisi@mbl.is Öryggið aukið á gatnamótum Ein hættulegustu gatnamót borgarinnar Morgunblaðið/Heiddi Gatnamótin Með því að breyta umferðarljósunum er ætlunin að stórauka öryggi á gatnamótunum. Talsverðar framkvæmdir eru þessu samfara. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is UTANVEGAAKSTUR er ofbeldi gegn landinu,“ segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. „Við sjáum á verstu dæmunum að hann veldur nánast óafturkræfum skaða – rofi sem verður mjög alvarlegt. Ég held að það sé mikilvægt að hnykkja á því að utanvegaakst- ur er bannaður. Náttúran á ekki skilið að farið sé með hana með þessum hætti.“ Starfshópur um utanvega- akstur var skipaður fyrrihluta ársins 2008. Hann á að vinna á grunni korta Landmælinga og gera tillögur um hvaða vegir og slóðar á miðhálendinu, utan vegakerfis Vegagerðarinnar, skuli teljast til vega. Einnig að gera tillögur í samráði við sveitarfélög um hvaða vegir eða slóðar skuli vera lokaðir til frambúðar eða tímabundið og hverjir skuli vera opnir. Svandís sagði að hópurinn væri búinn að funda með átta sveitarfélögum af þeim rúmlega tuttugu sem eiga lögsögu á miðhálendinu. Einnig með hagsmunasamtökum, m.a. Ferðaklúbbnum 4x4, Slóðavinum, Samtökum útivistarsamtaka o.fl. Hrunamannahreppur er eina sveitarfélagið sem hefur skilað endanlegri tillögu um vegi og slóða innan sinna marka. Svandís sagði næsta skref að fá tillögur sveitarfélaga um hvernig tillögur Hrunamannahrepps verði lögleiddar. Svandís kvaðst hafa hugleitt hvort innleiða ætti vottunarkerfi fyrir útgáfu landakorta, sérstaklega af miðhálendinu. Landmælingar Íslands myndu þá geta gæðavottað þau landakort sem gerð væru samkvæmt viðurkenndum skilgreiningum á veg- um. Svandís nefndi að mikilvægt væri að t.d. bíla- leigur væru einungis með kort sem sýndu við- urkennda vegi. Á Reykjanesi hefur verið unnið að sérstöku verkefni til að verja viðkvæma náttúru svæðisins. Í sumar skipaði Svandís átaksteymi með fulltrú- um frá umhverfisráðuneytinu, Reykjanesfólk- vangi, Grindavíkurbæ, Sveitarfélaginu Vogum, lögreglunni á Suðurnesjum, Umhverfisstofnun og Landgræðslunni. Hún sagði hugmyndina þá að út úr þessari vinnu kæmi sáttmáli allra hlutaðeig- andi um viðbrögð. „Utanvegaakstur er ekki bara skemmdarverk. Hann er líka hegðun. Sveitar- félögin hafa áhuga á að koma að þessu meðal ann- ars í gegnum æskulýðsstarf. Þau ungmenni sem taka þátt í utanvegaakstri fái þá útrás fyrir sínar þrár með öðrum hætti,“ sagði Svandís. Þá undirrituðu Vegagerðin, tryggingafélög og bílaleigur nýlega samstarfssamning um gerð og uppsetningu skilta við helstu hálendisleiðir lands- ins með fræðslu gegn akstri utan vega. Utanvegaakstur er skemmdar- verk og ofbeldi gegn landinu Umhverfisráðherra hefur hugleitt að taka upp vottun landakorta sem sýna viðurkennda vegi Morgunblaðið/Árni Sæberg Skemmdarverk Utanvegaakstur hefur víða valdið skemmdum á viðkvæmri náttúru landsins. Sums staðar eru skemmdirnar varanlegar og annars staðar er landið mörg ár eða áratugi að jafna sig. Svandís Svavarsdóttir Starfshópur á vegum fjár- málaráðuneytisins, með að- komu frá iðnaðarráðuneyti og umhverfisráðuneyti, er að skoða upptöku umhverfis- gjalds. Það er í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkis- stjórnarflokkanna. Svandís Svavarsdóttir um- hverfisráðherra sagði ýmsar leiðir hafa verið reifaðar, m.a. almenna leið sem felist í gjaldi á flugmiða, hótelnætur eða slíkt. Einnig sértæk leið sem felst í innheimtu gjalds að tilteknum svæðum. Svandís sagði að með um- hverfisgjaldi eignuðumst við tekjustofn til að hlúa að frið- lýstum svæðum, ferðamanna- stöðum og ferðaþjónustu. „Hugmyndin er að þessi tekju- stofn renni að einhverju leyti til friðlýstra svæða og nátt- úruverndar og svo til innviða ferðaþjónustunnar á landinu. Ég vonast til að við sjáum þetta gerast þegar næsta sumar. Þá getum við betur staðið vörð um þessi svæði,“ sagði Svandís. Umhverfisgjald

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.