Morgunblaðið - 28.08.2009, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009
Skór Leður ökklastígvél
22.990 kr. GS Skór Smáralind.
Kate Moss Bolur 4.990
kr. Retro Smáralind og
Galleri 17.
Gallabuxur Frá Diesel,
flottar í haust. 29.990 kr.
Retro Smáralind og
Galleri 17.
Haust 2009
Frá haust-
tískusýningu
Desquered².
Umsjón/Gríma Björg Thorarensen
Ljósmyndir/Heiddi
Eye dust Flottur litur
sem hægt er að nota í
bæði náttúrulegt look
og dekkri skyggingu.
Litur – inka 2.890 kr.
Make Up Store.
Á óskalistanum
Naglalakk Dökkt
og flott í haust
Litur – jazmine
2.490 kr. Make Up
Store.
Twin Glossin Litur rasberry.
Í túpunni er glært gloss og litur.
Þú velur hvað þú vilt hafa mikinn lit
með því hvar þú ýtir á túpuna, all-
gjör snilld! 2.690 kr. Make Up Store.
Daglegt líf 21
„BÖÐLARNIR dunduðu sér við að
lita hárið á mér grænt með matarlit
og eggjahvítu og settu á mig mask-
ara, skrifuðu framan í mig og fleira,“
segir fyrrum MH-busi, en hann var
festur við eitt borða á hinum svo-
nefnda Matgarði á meðan. Var það
gert með því að vefja sterku lím-
bandi um hann allan og borðið þann-
ig að hann gat sig hvergi hrært.
„Þetta voru eldri vinir mínir úr grunnskóla og allt gert í
góðu,“ segir businn og lætur vel af vígslunni.
Á þessum tíma var nýbúið að banna að líma nýnema
við borð en það ku hafa tíðkast nokkuð í MH áður. Einn
af skólastjórnendum kom að hinum borðlímda busa og
skakkaði leikinn eftir um klukkustund. Businn segist þó
hafa beðist undan því að vera leystur. „Þegar hann bar
að garði voru stelpurnar í hópnum farnar að hafa sig
mikið í frammi og mér, sextán ára krílinu, líkaði það
mjög vel,“ segir hann og hlær.
Límdur við borð
Menntaskólinn á Akureyri hefur
störf um miðjan september og er
undirbúningur að busavígslunum
hafinn. „Þetta verður með hefð-
bundnu móti, við höfum það að
leiðarljósi að hafa þetta
skemmtilegt,“ segir Axel I. Árna-
son, formaður skólafélagsins
Hugins.
Axel segir að undanfarin ár
hafi verið reynt að láta af því að
niðurlægja busa eins og títt var.
Nú sé aðalatriðið að bjóða ný-
nema velkomna. Busaréttir eru
gamalgróin hefð í MA og verður
haldið í þær. Á þeim eru skiptar
skoðanir en Axel segir þær verða
á góðum nótum.
Í busaréttum
Inspector scholae Skólafélags
Menntaskólans í Reykjavík, Árni
F. Snorrason, segir að þar á bæ
sé byggt á þeim hefðum sem
skotið hafa rótum í langri sögu
skólans. Böðlar efstu bekkjanna
munu klæðast tóga-sloppum og
tollera nýnema að venju og mað-
urinn með ljáinn mun láta sjá sig.
„Í busavikunni verðum við svo
með létt grín,“ segir inspektor-
inn. Meðal annars munu busarnir
þurfa að lúta ýmsum reglum,
halda sig á vissum svæðum og
syngja skólasönginn sé á þá yrt.
Enginn verður þó þvingaður til að
vera með en flestir vilja taka þátt
og láta vígja sig inn.
Halda í hefðir
„Það er búið að taka fyrir allt
þetta gamla, allt ógeðið,“ segir
Gunnar Sigfússon, forseti nem-
endafélags Framhaldsskólans á
Laugum. Nú sé hópefli og
skemmtun í hávegum höfð, farið
í leiki og fleira. Þetta þykir Gunn-
ari góð þróun en hann mátti þola
busun af „gamla skólanum“ og
þótti það ganga of langt.
Nemar á Laugum hafa gjarna
verið vígðir í tjörn sem er að
finna þar skammt frá. „Fólki er
ekki kastað út í, en það hefur
verið sagt að það sé hefð fyrir að
fólk hoppi út í,“ segir Gunnar.
Flestir nýnemar munu taka
þessu vel og láta sig gossa.
Ekkert ógeð
„Í fyrra var vatn leyft og þá var
allt á floti,“ segir Lárus J. Björns-
son, forseti nemendafélags
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Matur og allir vökvar hafa nú ver-
ið bannaðir í busun í skólanum.
„Þetta er samt ekki orðið eins
og víða að það er bara tekið í
höndina á busunum og þeim gef-
in rós,“ segir Lárus og kveður
MH-inga halda fast í að busa sína
nýnema þó skólastjórnin vilji
halda því í lágmarki. „Við reynum
að berjast fyrir að fá sem mest
fram,“ segir Lárus og segir að
busunin fari alltaf siðsamlega
fram þó óhjákvæmilega séu
svartir sauðir inn á milli.
Fá sitt fram
Í Verslunarskólanum í Reykjavík
var farið í óvissuferð með ný-
nema í fyrra og verður það gert á
ný í ár. Daníel Takefusa, formað-
ur skemmtinefndar, segir stefnt
að því að ferðin verði hefð í
Verslunarskólanum.
„Þau fara í leiki og verða látin
gera ýmislegt, bara venjuleg bus-
un,“ segir Daníel og kveður grófa
busun aldrei hafa viðgengist í
skólanum. Áhersla sé lögð á að
þjappa nýnemahópnum saman
og efla andann. „Við erum að
brjóta ísinn, gerum þau svolítið
vandræðaleg og þá er það bara
búið og þau geta slakað á og
skemmt sér saman.“
Ísinn brotinn
Framhaldsskólar víða umland taka flestir til starfaum þessar mundir. Eins oghefð er fyrir mega nýnem-
ar búast við að vera „boðnir velkomn-
ir“ með ýmsum hætti, les busaðir. Það
er þó víðast hvar af sem áður var að
níðst sé ótæpilega á busagreyjunum.
Aðfarirnar eru öllu penni núorðið.
Ógeðsdrykkir, þorramatur, matar-
leifadýfingar, Reykjavíkurtjörn í
glasi, hvers konar niðurlæging og
annað miður geðslegt eru siðir sem
ekki þykja eiga við í menntastofn-
unum siðmenntaðra ríkja. Sitt sýnist
hverjum um það en ljóst er að inn-
vígsla nýnema hefur tekið nokkrum
breytingum á undanförnum árum og
er í stöðugri þróun.
Skólarnir aðlaga sig nýjum tímum
og hertum reglum á ýmsan hátt. Allt
er breytingum háð en á endanum
hlýtur að eiga að hafa að leiðarljósi
að þegar upp er staðið geti busarnir
vaxið úr grasi og litið ánægðir til
baka á busadaginn. skulias@mbl.is
Enn er böðlast
á busagreyjum AÐ VERA „skírður“ upp úr viku-gömlum matarleifum úr mötuneyt-
inu, blönduðum saman við lýsi, var
ekki draumabyrjun mín í heima-
vistarskólanum þar sem ég stund-
aði nám á níunda áratugnum,“ segir
kona um reynslu sína af busavígslu.
Á busadeginum var busunum
smalað út í port. „Eftir dýfu í fiski-
kar með úldnum mat beið skírn-
arathöfn í fornri laug á staðnum.“ Dagurinn hafi þó
verið mjög skemmtilegur og eftirminnilegur.
„Árið eftir ætlaði ég að hefna mín á busum þess árs
en þá var búið að banna matarafgangana og lýsið. Við
fengum þess í stað tómata til að grýta í nýnemana.
Verst var að tómatarnir voru óþroskaðir og því fengu
flestir marbletti í stað lýsisfýlunnar.“
Matarleifar með
„dash“ af lýsi