Morgunblaðið - 28.08.2009, Page 23

Morgunblaðið - 28.08.2009, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 Mótmælt á ný Birgitta Jónsdóttir alþingismaður er á sínum stað á Austurvelli þó að hún sitji núna hinum megin borðs. Í gær var framkallaður mikill hávaði þegar mótmælt var samþykkt Icesave-samkomulagsins. Birgittu til samlætis var nokkurn veginn þverskurðurinn af þjóðfélaginu. Eggert ÖLL efnahagsvanda- mál okkar Íslendinga nú um stundir eru af- leidd af þrem grunn- vandamálum sem upp komu í kjölfar hruns- ins: IceSave-reikning- unum; stöðu ríkisfjár- mála og; skuldastöðu heimila og fyrirtækja. Það er skuldastaðan sem er umfjöllunar- efnið hér. Ef hún er ekki leyst fer efnahagslífið ekki af stað og við festumst í vítahring sem endað getur með allsherjar efna- hagshruni. Endurreisn bankanna er ekki möguleg fyrr en gæði lána- safna bankanna verða það mikil að vanskil verði „eðlileg“ á ný. Ef léleg lánasöfn verða stofn eignahliðar efnahagsreiknings nýju bankanna sitjum við uppi með ónýta banka. Betra er heima setið en af stað farið ef sú yrði raunin. Það er því ekki einungis heimilum og fyrirtækjum í hag að skuldir verði leiðréttar. Það gerir stjórnvöldum kleift að byggja upp heilbrigt bankakerfi sem þjón- að getur efnahagslífinu. Jafnframt verður greiðsluviljanum þannig við- haldið. Niðurfærsla lána Í byrjun október á síðasta ári komu fram hugmyndir um að krefja viðskiptabankana um betri veð í viðskiptum við Seðlabanka Íslands. Þetta var gert til að tryggja hags- muni bankans ef illa færi fyrir við- skiptabönkunum. Hugmyndin var að fara fram á við bankana að þeir skiptu út bankabréf- um sem þeir höfðu sett að veði í endur- hverfum viðskiptum fyrir íbúðalán. Lánin yrðu tekin sem veð með 20% afföllum og færð inn í Íbúðalána- sjóð ef allt færi á versta veg eins og síðar átti eftir að koma í ljós. Þegar vandamál á íbúða- lánamarkaði kæmu fram – sem var fyrirsjáanlegt vegna verðbólgu og gengishruns –væri hægt að nota afföllin til að koma heimilum sem lentu í vandræðum vegna íbúðarlána til hjálpar. Það er skemmst frá því að segja að hug- myndinni var því miður hafnað. Bankabréfin töpuðust (yfir 300 milljarðar) og ekkert var upp á að hlaupa til að aðstoðaskuldunauta vegna íbúðarlána. Í aðdraganda kosninga tóku framsóknarmenn hugmyndina um 20% niðurfellingu lána upp á arma sína. Jafnframt skrifaði undirrit- aður skýrslu sem nefnd var Leið- réttingin um hagfræðilegar ástæður þess að aðgerðin væri ekki einungis skynsamleg heldur væri hún nauð- synleg til að koma efnahagslífinu af stað. Skömmu síðar setti sú mæta kona Lilja Mósesdóttir, þingmaður vinstri grænna, fram svipaðar hug- myndir um niðurfærslu lána. Öllum þessum hugmyndum var um- svifalaust hafnað af valdhöfunum sem hugarórum. Nú nýverið setti Benedikt Jóhannesson trygg- ingastærðfræðingur fram enn eina útgáfu af flatri niðurfærslu þar sem hann stingur upp á að gengislán verði færð flatt niður um 30% og verðtryggð lán um 10%. Í efnahagstillögum okkar sjálf- stæðismanna sem lagðar voru fram í formi þingsályktunartillögu 8. júní síðastliðinn er skuldavandamálið tí- undað. Þar er sýnt hvernig vanskil eru að stigmagnast og að brýn þörf sé að taka strax á vandamálinu. En eins og áður var hugmyndum um að rétta heimilunum hjálparhönd um- svifalaust hafnað. Svo virðist vera sem valdhafarnir séu að vakna til meðvitundar ef marka má fréttaflutning af kúvend- ingu félagsmálaráðherra í afstöð- unni til niðurfærslu skulda. Nú ber svo við að rök sem voru tínd til í Leiðréttingunni hafa ratað í orða- forða ráherrans – er það vel. Ráð- herrann segir nú að fella ætti niður þann hluta skulda fólks sem það ræður ekki við að greiða sem er út- færsla á fyrri hugmyndum. Aðferðafræði Ef færa á niður skuldir er mik- ilvægt að það sé gert eftir gagn- sæjum skýrum reglum og að jafn- ræðis sé gætt. Það verður að vera algjörlega skýrt fyrirfram hvernig staðið verði að niðurfærslunni þannig að umræða geti átt sér stað um kosti og galla hennar. Stjórn- völd þurfa að útskýra aðgerðina, hvaða afleiðingar það hefur að leið- rétta ekki skuldirnar og ná þannig sátt um aðgerðina fyrirfram. Ef ekki ríkir sátt verður leiðréttingin eldiviður fyrir misklíð og deilur um ókomin ár – nóg er nú samt. Ekki má gera sömu mistök og í IceSave- deilunni að láta eins og lands- mönnum komi hún ekki við eins og valdhafarnir gerðu fyrst eftir að skrifað var undir samningana við Hollendinga og Breta. Jafnframt er það lykilatriði að öllum sé ljóst að þetta verði aðeins gert einu sinni. Þess vegna þarf að- gerðin að vera vel ígrunduð og hún má alls ekki ganga of skammt. Af tvennu illu er betra að ganga of langt. Allar fjármálakreppur eiga það sameiginlegt að of lítið er gert of seint sem dýpkar og lengir þær. Því miður verður aldrei hægt að koma öllum til hjálpar en leiðrétt- ingin verður að vera svo víðtæk að hefðbundnar afskriftir bankanna ráði við vandamálin sem eftir standa. Í efnahagstillögum okkar sjálf- stæðismanna er lagt til að mynd- aður verði þverpólitískur hópur með fullt rúm allra stjórn- málaflokka og hagsmunaaðila til að vinna tillögur að hvernig standa megi að niðurfærslu skulda. Þetta var gert af ofangreindum ástæðum – til að mynda sátt og samstöðu. Félagsmálaráðherra virðist hafa gert þau mistök að líta algjörlega framhjá þessu ráði. Hann skipaði gæðingana sína í nefnd sem harla ólíklega mun leiða til þver- pólitískrar samstöðu og sáttar sem er svo mikilvæg.Hann er að end- urtaka IceSave-mistökin. Kostnaður En hvaðan koma peningarnir til að færa niður lánin? Aðgerðina er hægt að fjármagna með afskriftum lána sem færð voru á milli gömlu og nýju bankanna eins og rakið er ýt- arlega í Leiðréttingunni. Ljóst er að leiðrétting skulda verður mun kostnaðarsamari nú en ef hún hefði verið framkvæmd í vor – þetta er hinn svokallaði aðgerðaleysiskostn- aður. Því liggur fyrir að nýju bank- arnir og ríkissjóður munu þurfa að taka á sig kostnað. Ef mótbárurnar verða þær að ekki séu til peningar fyrir aðgerðinni er ljóst að skiln- ingur á vandamálinu er ekki enn fyrir hendi hjá valdhöfunum. Að bíða og sjá til er ávísun á enn meiri kostnað. Jafnframt er ekki hægt að skýla sér bak við AGS eins og alltof oft er gert þegar taka þarf erfiðar ákvarðanir – það er fals. Það gleðilega er að valdhafarnir virðast vera að losa svefninn. Von- andi tekst þeim að vakna að fullu og skynja þann raunveruleika sem ís- lensk fyrirtæki og heimili standa frammi fyrir. Fyrr hefst end- urreisnin ekki. Eftir Tryggva Þór Herbertsson » Jafnframt er það lykilatriði að öllum sé ljóst að þetta verði aðeins gert einu sinni. Þess vegna þarf aðgerð- in að vera vel ígrunduð og hún má alls ekki ganga of skammt. Af tvennu illu er betra að ganga of langt. Tryggvi Þór Herbertsson Höfundur er prófessor í hagfræði og alþingismaður. Eru valdhafarnir að losa svefninn? ÞAÐ VÆRI mikið framfaraspor ef ný- skipaður seðlabankastjóri leiddi vaxta- ákvörðunarnefnd Seðlabankans í að lækka stýrivexti og innlánsvexti bankans niður fyrir 4%. Ávinningur fyrir hagkerfið: Lækkun vaxta er einfaldasta og sann- gjarnasta leiðin til þess að rétta við hag þeirra sem skulda. Lækkun vaxta auðveld- ar fyrirtækjum, sveitarfélögum og ríkinu að ná endum saman. Lækkun vaxta hvetur sparifjáreigendur til þess að virkja fjár- magn sitt fremur til fjárfestinga í atvinnu- rekstri. Áhrif vaxtalækkunar við núverandi aðstæður á verðbólgu og gengi krónunnar eru þó nokkuð önnur en við hefðbundnar aðstæður: Verðbólgan sem mælist hérlendis á ekki rætur að rekja til þenslu í hagkerfinu. Verðbólgan stafar af lækkun gengis krón- unnar og auknum álögum ríkisins. Lækkun vaxta mun því ekki auka á verðbólgu, en mögulega draga úr henni. Vegna gjaldeyr- ishaftanna hefur vaxtastig óveruleg áhrif á gengi íslensku krónunnar. Það er fremur að háir vextir leiði til aukins halla á þátta- tekjum vegna vaxtagreiðslna til erlendra fjárfesta sem festust inni með krónur í vaxtamunarviðskiptum á síðasta ári og háir vextir stuðli því að veikingu krónunnar, frekar en styrkingu. Vegna skorts á er- lendu lánsfjármagni á komandi árum munu skuldir íslenskra heimila og fyrirtækja í auknum mælum færast úr erlendum gjald- miðlum yfir í óverðtryggðar íslenskar krónur – það verður óumflýjanlegt við end- urfjármögnun lána. Við það verða stýri- vextir Seðlabankans mun áhrifameira tæki til stýringar peningastefnu en verið hefur mörg undanfarin ár. Seðlabankinn þarf að vinna að því að svo geti orðið, fremur en að vinna gegn því, eins og vaxtastefna bank- ans hefur gert undanfarna mánuði. Erlendur Magnússon Lækkum vexti niður fyrir 4% Höfundur er framkvæmdastjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.