Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 31

Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 31
ömmusystur að Melum í Melasveit, hann kunni vel við sig þar. Á þess- um tíma fengum við einnig að fara til Bretlands, til Lóu frænku. Þetta þóttu fréttir og kom grein í Morg- unblaðinu með mynd, þar sem við vorum bara tveir og pössuðum hvor annan. Þetta var með gamla Gull- faxa. Það var talað um í greininni að tveir lifandi póstbögglar hafi verið sendir til London, við vorum nefnilega merktir með heimilisfangi og símanúmeri Lóu frænku. Mörg- um árum seinna komst Nonni á samning hjá Loftleiðum í flugvirkj- un til Tulsa í Oklahoma, þar var hann við nám í að mig minnir í tvö ár. Kom síðan heim og starfaði hjá Loftleiðum. Nú var hann líka orð- inn einkaflugmaður. Á þessum tíma þótti það ekkert tiltökumál að lenda á túnum, melum eða jafnvel vegum. Nonni eignaðist síðan eigin flugvél sem hann seldi síðar og er ein af gullmolum flugflotans. Eitt sinn var hann á flugvélinni sinni uppi á Sandskeiði og varð eitthvað svang- ur, svo hann skaust á vélinni upp að Litlu kaffistofunni, lenti þar á hlaðinu, skaust inn og fékk sér eina með öllu og kók. Nonni stundaði mikið sportflug, hann tók þátt í Ís- landsmóti í vélflugi og vann, hann fór líka á Norðurlandamót í Dan- mörku 1973. Fáum árum áður kynntust þau Hedy Kues, finnsk flugfreyja hjá Loftleiðum og urðu fljótt mjög sam- rýnd og ástfangin, þau giftust í júlí 1969. 1970 eignuðust þau dótturina Larissu sem var alltaf augasteinn föður síns. 1973 veiktist Hedy illi- lega og 18. september eftir stutta sjúkralegu andaðist hún, Larissa þá aðeins þriggja ára og Nonni og Hedy höfðu aðeins verið gift í fjög- ur ár. Þetta var mikið áfall fyrir Nonna og ég held að hann hafi aldr- ei náð sér til fulls. Ég gæti trúað að Nonni væri fyrsti Íslendingurinn sem eignast tveggja hreyfla flugvél einungis til einkanota. Hann flaug þessari vél í nokkur ár og endaði með að fljúga henni til Bandaríkjanna þar sem hann seldi hana. Nonni hélt áfram að vinna hjá Flugleiðum sem flug- vélstjóri og í ýmsum sérverkefnum, einnig hjá öðrum flugfélögum eins og Icecargo, German cargo og síð- ast sem yfirflugvélstjóri og flug- maður hjá bandarísku flugfélagi með höfuðstöðvar í Flórída. Við vorum alltaf í góðu sambandi á tölvu eða síma og þegar ég talaði við hann var hann alltaf svo bjart- sýnn og hress. Þegar ég talaði við hann um áramótin síðustu sagði hann mér að hann væri kominn með hækjur, en það væri allt í lagi, hann mundi losna við þær með vor- inu, þegar ég svo hringdi í vor sagði hann mér að hann væri laus við hækjurnar en í stað kominn í hjóla- stól. Hann sagðist engar áhyggjur hafa af því, hann mundi losna við stólinn með haustinu. Það var líka rétt hjá Nonna frænda. Elsku Larissa og Maja, innilegar samúðarkveðjur, Hafliði. Nú þegar við kveðjum Jón E.B. koma margar góðar minningar upp í huga mér. Ég kynntist honum um það leyti þegar ég byrjaði að fljúga 1965 og hefur kunningsskapur sem síðan varð að vináttu haldist alla tíð síðan. Jón E.B. var mjög liðtækur flug- maður. Hann byrjaði í svifflugi og fór síðan í vélflug. Varð hann t.d. tvisvar sinnum Íslandsmeistari í vélflugi og fór hann til Finnlands, Noregs og Danmerkur til að taka þátt í Norðurlandamóti í vélflugi fyrir hönd Íslands. Við unnum nokkur ár saman á DC-8, síðast í 2 ár hjá German Cargo (Lufthansa) og á ég margar góðar minningar frá þeim árum. Jón vann mikið fyrir grasrót flugs- ins og átti hann meðal annars flug- vélina TF-JON, sem við fórum sam- an á margar skemmtilegar flugferðir um Ísland. Með þessum fátæklegum orðum vil ég kveðja vin minn Jón E.B. og þakka honum fyrir samveruna. Larissu og öðrum ættingjum votta ég samúð mína. Otto Tynes. Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009 ✝ Þorbjörg LiljaJónsdóttir fæddist í Stykkishólmi 10. september 1923. Hún andaðist á hjúkr- unarheimilinu Víðinesi 18. ágúst 2009. For- eldrar hennar voru Jón Jóhannes Lár- usson skipstjóri, fædd- ur í Stykkishólmi og Björnína Sigurð- ardóttir, fædd á Hara- stöðum á Fellsströnd í Dalasýslu. Eignuðust þau 10 börn og var Þorbjörg Lilja yngst systkina sinna. Þau eru nú öll látin. Þorbjörg Lilja giftist Stefáni Jóns- syni, múrarameistara frá Vatnsholti í Staðarsveit, f. 6. júní 1918, d. 13. september 1995. Þau slitu sam- vistum. Börn þeirra eru: 1) Jón Lárus Hólm, fyrrum héraðsráðunautur, nú bóndi og lögg. fasteignasali á Gljúfri í Ölfusi, f. 21. desember 1945, maki Rósa Signý Finnsdóttir, kennari frá Eskiholti í Borgarfirði. Börn þeirra eru 3 og barnabörn 8. 2) Nína Ás- laug, verslunarmaður á Akranesi, f. 14. des- ember 1946, maki Daníel Daníelsson, verktaki og verslunar- maður, frá Vogatungu í Leirársveit. Börn þeirra eru 3, barna- börn 9 og barna- barnabörn 2. 3) Rann- veig Margrét, nemi í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst, f. 30. júní 1955. Börn hennar eru 5 og barnabörn 7. 4) Drengur er lést í fæðingu árið 1961. 5) Bergur Viðar, sérfræðingur í lyf- lækningum og læknir í Gautaborg í Svíþjóð, f. 5. maí 1963, maki Ingi- björg Stefánsdóttir, sjúkraþjálfari frá Akureyri. Börn þeirra eru 3. Þorbjörg Lilja bjó síðustu árin í þjónustuíbúð fyrir aldraða á Skúla- götu 40 í Reykjavík og í rúmt ár á hjúkrunarheimilinu Víðinesi. Útför Þorbjargar Lilju fer fram frá Háteigskirkju í dag, 28. ágúst, og hefst athöfnin kl. 13. Fæðing barns er mikill viðburður og tenging móður og afkvæmis sterk. Í ólgusjó lífsins getur þessi taug skadd- ast eða rofnað en styrkleikinn er mikill og oftast helst taugin ósködduð. Svo er um taug okkar móður minnar, Þor- bjargar Lilju Jónsdóttur, sem jarðsett er í dag. Hún var af alþýðufólki komin, missti föður sinn ung og ólst upp í stórum systkinahópi í Stykkishólmi, sem stjórnað var af móður hennar, Björnínu Sigurðardóttur. Sú kona, amma mín, var ekki bara fögur ásýnd- um, heldur einnig göfug í andanum, út- sjónarsöm athafnakona og hafði heil- ræði til handa börnum sínum sem að minnsta kosti voru móður minni hug- leikin allt til dauðadags. Móðir mín var mikil húsmóðir þar sem smekkvísi og hreinlæti voru að- alsmerki ásamt því að ótvírætt var að hún réð ríkjum á sínu heimili. Matseld hafði hún yndi af og naut viðurkenn- ingar á því sviði. Móðir mín var falleg kona, bæði að útliti og innræti. Hún var félagsvera, hafði gaman af dansi og hvers kyns skemmtan í góðra vina hópi. Hún var söngelsk og kunni mikið af ýmsum söngtextum og vísum sem hún fór gjarnan með fyrir sína nán- ustu. Mamma hafði gaman af hvers kyns hannyrðum. Hún var trúuð kona og fór ekki leynt með trúariðkun sína. Hún hafði sterka lífssýn og skoðanir á mönnum og málefnum en fór gætilega með. Hún lagði mikla áherslu á sjálfs- björg og vitnaði þá til mömmu sinnar. Hugsanlega fyrir þau áhrif var mamma afar stolt kona og þáði helst ekki aðstoð annarra. Þessa gætti mjög þegar ellin færðist yfir. Þá var erfitt að bjóða aðstoð. Hún vildi sjá um sig sjálf og gerði það af mikilli þrautseigju, raunar lengur en getan bauð. Að lokum lét hún undan og þáði dvöl á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð þar sem hún naut góðrar aðhlynning- ar á allan hátt hjá góðu starfsfólki. Það er gott að móðir mín hefur fengið þá hvíld sem hún þráði. Eftir stendur slitinn strengur kærrar móður og sonar, dulin taug sem rofnar, en er samt heil í andanum þar sem minn- ingin lifir og tengir saman ást, um- hyggju og vonina um endurfund. Jón Hólm Stefánsson. Tíminn líður trúðu mér taktu maður vara á þér. Heimurinn er sem hála gler hugsaðu um hvað á eftir fer. (Höf. ók.) Þessa vísu fór hún mamma mín alltaf með þegar ég kom til hennar og mun hún alltaf minna mig á hana. Nú ert þú búin að fá hvíldina sem þú varst búin að biðja um. Mörg minningabrot koma í hugann eins og t.d. frá Vatnsholti, skola þvottinn í læknum á sumrin, veiða og tína ber og skauta á ísnum um vetur, hekla, prjóna, sauma og allar góðu stund- irnar hjá ömmu í Stykkishólmi. Já mikið var hlegið og mikið var gaman, það er svo margs að minnast og sakna. Ég vil þakka starfsfólkinu í Víði- nesi fyrir frábæra umönnun, mamma var alltaf svo fín og hárið vel lagt, en það skipti hana miklu máli og hjálpaði henni að halda reisn sinni. Ástvinir allir nú saman hér stöndum og leitum að styrk kæri Drottinn til þín. Trú á þig bindi oss fastari böndum nú að huggun í harmi við leitum til þín. Á kveðjustund við erum hér kæru vinir, frændur og frænkur. Lífið kemur og lífið fer en öll við hittumst um síðir aftur. Nú kveðjum við þig kæra vina, sem á förum ert í burtu hér. En nú hittir þú alla ættmennina sem farnir eru á undan þér. (Höf. ók.) Hvíl í friði elsku mamma mín, þín dóttir Nína Áslaug. Komið er að leiðarlokum mamma mín. Nú ert þú ert leyst þrautunum frá. Þú ert farin á betri stað, stað sem þú hafðir þráð svo lengi að komast á. Það er gott að hafa getið verið hjá þér síðustu klukkustundir lífs þíns hér, að eiga minninguna um síðasta andvarp- ið þitt, þá stund sem þú fórst til þíns uppruna. Oft kallaðir þú „Jesús, því fæ ég ekki að koma til þín“? nú ertu hjá Honum. Margs er að minnast, og skýrastar eru minningarnar frá Vatnsholti. Þar komu margir og alltaf var til matur og húsnæði fyrir alla. Þú varst einstak- lega góð í matargerð, sama hvað þú matreiddir, allt var svo gott og flott, alltaf var eins og um stórveislu væri að ræða. Allt sem þú barst fram á borð var skreytt og steikti silungur- inn sem skreyttur var með tómötum og gúrkum var flottur, því í þá daga var ekki mikið um að maturinn væri skreyttur en þú sagðir alltaf „þetta á að vera eins og hjá kónginum“. Í Vatnsholti var nóg af laxi og silungi sem þú matreiddir á svo ótal marga vegu og gott var að fá þessa fæðu í barnskroppinn, svo ég tali nú ekki um öll eggin sem maður fékk. Það að fá að alast upp með ykkur pabba í kirkj- unni að Staðarstað, vera með ykkur á öllum kóræfingunum og messunum eru forréttindi, enda voru sálmarnir og messusvörin mér í fersku minni þegar ég fór sjálf að syngja og starfa á þessum vettvangi. Skýr er minningin um aðfanga- dagskvöld í Vatnsholti, við pabbi sát- um saman inni í stofu og sungum með útvarpinu og framan úr eldhúsi barst til okkar þín fallega söngrödd. Það kemur einnig upp í huga minn minn- ingin um dvöl „frænku“, sem „eign- aðist“ mig, alnöfnu, sjötug að aldri. Hún lést á heimili okkar þegar ég var unglingur. Þú annaðist hana þar til yfir lauk og hún skildi við í rúminu mínu og var kistulögð í mínu her- bergi. Með ykkur tókst mikil vinátta og mikill kærleikur og nú færðu að hvíla við hlið hennar, eins og þú hafðir óskað þér. Þú varst einstaklega góð og mikil húsmóðir og vildir alltaf hafa allt svo fínt í hringum þig. Þú vildir ávallt vera svo fallega til höfð og aldrei var annað að sjá í þínu fari. Mikill dans- unnandi varstu og þóttir eftirsóttur dansfélagi. Svo lögðust veikindi yfir og þú aflagðir þessa tómstundaiðju en þú hélst áfram að hekla og prjóna, þó það hafi einnig aflagst síðustu árin. Dvöl þín á hjúkrunarheimilinu Víð- inesi var góð og hugsað um þig með einstaklega mikilli natni sem og alla þá sem þar dvelja, umhugsun í alla staði til fyrirmyndar. Þar var dúllað við þig og þú fórst í snyrtingu, klipp- ingu og hárlagningu, þú varst fín og flott, í tískufötum, eins og þú vildir ávallt vera. Hjúkrunarfólki, læknum og öðru starfsfólki Víðiness vil ég færa mínar kærustu þakkir fyrir alla umönn- unina. Guð þig geymi mamma mín og ég veit að þú hvílir í friði í faðmi Hans. Þín dóttir, Rannveig Margrét Stefánsdóttir. Elsku amma, nú hefur þú kvatt þennan heim, og ég er viss um að þinn stóri systkinahópur, foreldrar, litli drengurinn þinn, sem þú misstir í fæðingu og fleiri hafa tekið vel á móti þér á nýjum stað. Þú varst mjög stolt, sjálfstæð og dugleg kona með mikinn húmor og sterkar skoðanir, þú vaktir allstaðar athygli, þar sem þú fórst, fyrir smekklegt útlit og framkonu, þú hafðir svo fallega útgeislun. Ég man þegar ég var barn og við vorum að koma í heimsókn til Reykjavíkur, þá komum við stundum til þín í Sunda- höfn þar sem þú varst að vinna í mötuneytinu. Þá gafstu okkur eitt- hvað gott og þó þú værir í vinnuslopp varstu samt svo glæsileg. Þú varst mikil húsmóðir og varst alltaf svo stolt af heimilinu þínu, sem var mjög smekklegt. Ég man þegar við systk- inin vorum börn vorum við stundum að reyna að finna ryk hjá þér, en það tókst aldrei. Þegar ég bjó einn vetur í Reykjavík og var að vinna á Lauga- veginum og þú varst flutt á Skúlagöt- una, þá komstu svo oft með nýsmurða samloku til mín í hádeginu, og það voru sko alvöru samlokur með ýmsu góðgæti, sem ég hefði aldrei látið mér detta í hug að setja á samloku, en þú hafðir einstakt lag á að láta þær smakkast eins og sælgæti. Svo bauðstu mér oft í steiktan fisk í kvöld- mat, en þú áttir þér einhver leyni- númer í sambandi við að steikja fisk. Þú varst mikið fyrir hannyrðir og varst ýmist að prjóna eða hekla. Ég naut oft góðs af því t.d. þegar þú komst með flottan trefil í vinnuna til mín, þegar kalt var í veðri. Við spjölluðum oft um heima og geima, þegar ég kom í fiskveislurnar hjá þér. Þú hafðir mjög ákveðnar skoðanir á ýmsum málum. Ég man að þú varst mjög ákveðin, þegar þú tal- aðir um að það versta í mannkyninu væri öfund og afbrýðisemi. Ég held að það sé mikið til í því hjá þér. Þú varst mikil félagsvera og hafðir gam- an af því að fara út að dansa og fleira, en þegar elli kerling fór að sækja á þig, fórstu að einangra þig og vildir ekki fara út á meðal fólks, af því þér fannst þú ekki vera nógu fín. Þú varst svo stolt, að þú vildir ekki fá neina að- stoð, og þú varst mjög dugleg að vera ein í íbúðinni þinni á Skúlagötunni, sem þér þótti svo vænt um. En fyrir rúmu ári varðstu að láta í minni pok- ann og þú fékkst pláss í Víðinesi, þar sem var hugsað mjög vel um þig, en þér hrakaði fljótt eftir að þú komst þangað. Ég held að þér líði betur núna, það átti ekki við þig að geta ekki hugsað um þig sjálf. Þú varst mikil barnagæla. Við systurnar eigum báð- ar fjögur börn og þó þú værir stund- um léleg, þegar við komum til þín, þá lifnaði alltaf yfir þér þegar þú sást börnin. Ég vil enda þessi minningar- orð á vísu, sem þú fórst svo oft með og er svo mikið til í. Þó þú værir farin að missa minnið mikið, þá mundirðu allt- af þessa vísu: Tíminn líður trúðu mér taktu maður vara á þér. Heimurinn er sem hála gler hugsaðu um það, sem á eftir fer. (Höf. ók.) Hvíl í friði elsku amma. Helga María Jónsdóttir. Okkur fannst alltaf gaman að koma til ömmu, hún var svo góð við okkur, fyndin og skemmtileg. Hún var oft að kenna okkur vísur, syngja og að grín- ast í okkur. Það var skemmtilegt að koma til ömmu á Skúlagötuna, fá lán- aðan kíkinn og horfa á skútur og skemmtiferðaskipin koma inn höfn- ina. Hún var „bleikasjúk“ og var alltaf svo fín í bleiku fötunum sínum. Það var gaman þegar hún setti litla páska- unga og jólasveina í blómapotta og undir borð hjá sér og sagði svo: „Hvað er nú þarna?“ Við söknum hennar mjög mikið og vonum að henni líði vel núna. Magnús Baldvin, Jón Lárus, Signý Ólöf og Stefán Gunngeir. Nú þegar haustar að hefur hún amma mín endað ævi sína. Hugur minn er fullur af góðum minningum og er ég afskaplega þakklát fyrir að eiga þær. Þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast henni svona vel og fyrir allar góðu stundirnar með henni. Amma var alltaf mjög virðuleg kona, vel til höfð og fín og heimilið hennar snyrtilegt og hvergi drasl að sjá. Hún átti það til að vera með góðlátlegt grín, lét fólk „heyra það“ eins og hún orðaði það, skrifaði „svín“ ef hún sá ryk í hillum og sagðist fara oftar út að dansa en við unglingarnir. Það var alltaf gaman að heimsækja ömmu og fórum við Stebbi oft með krakkana til hennar á Skúlagötuna. Hún hafði hressilegt viðhorf til lífsins og vildi okkur alltaf vel. Krakkarnir hændust að henni og hún sýndi þeim hlýju, kenndi þeim vísur og gantaðist í þeim. Ef hana var farið að lengja eft- ir okkur hringdi hún gjarnan og spurði: „Eruð þið lifandi?“ Þannig var amma, alltaf með þennan skemmti- lega húmor sem hún glataði aldrei. Þótt ég viti að amma sé hvíldinni fegin hefði ég gjarnan viljað hafa hana lengur hjá okkur. En minning um góða manneskju lifir áfram og hverfur aldrei úr huga okkar sem eft- ir standa. Hvíl í friði, elsku amma. Þín nafna Þorbjörg Lilja. Elsku amma, nú þegar komið er að kveðjustund langar mig til að þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér. Allar góðu samverustundirnar sem við átt- um saman eru ómetanlegar og margt sem rifjast upp. Þú varst alltaf svo fín og flott og ekki kölluðum við þig Bobbu bleiku út af engu. Við vorum góðar vinkonur og þú varst svo skemmtileg kona, alltaf með svörin á reiðum höndum. Það var svo gaman að fá að heimsækja þig og afa til Reykjavíkur þegar ég var krakki, ég fékk t.d. að koma með ykkur hringinn í kringum landið og líka í Viðeyjar- ferð. Þegar ég var með elstu dóttur mína veika í Reykjavík fékk ég að vera hjá þér og þá höfðum við það kósí á kvöldin með handavinnuna okkar en þú varst mikil hannyrða- kona og kenndir mér mikið. Síðustu árin voru þér erfið en þú hafðir það nú gott á Víðinesi þar sem hugsað var vel um þig. Hvíl í friði, elsku amma mín, og þakka þér fyrir allar minningarnar sem ég á um þig. Þín Anna Lilja. Þorbjörg Lilja Jónsdóttir Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM OG FYLGIHLUTUM Sendum myndalista

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.