Morgunblaðið - 28.08.2009, Síða 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Heilsa
REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI
STREITU- OG KVÍÐALOSUN
Notuð er m.a. dáleiðsla og
EFT (Emotional Freedom
Techniques).
Viðar Aðalsteinsson,
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694-5494,
www.EFTiceland.com.
Hljóðfæri
Til sölu Rippen píanó
H. 115 sm, br. 145 sm, d. 57 sm.
Verð tilboð. Upplýsingar í síma
822 0558.
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 34.900. Hljómborð frá kr.
8.900. Trommusett kr.69.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Húsnæði óskast
Atvinnuhúsnæði
Fellihýsi - Hjólhýsi -
Tjaldvagnar. Tökum til geymslu
fellihýsi, hjólhýsi,tjaldvagna og
húsbíla. Engin stærðartakmörk.
Leigutími september til 15. maí.
Upphitað fyrsta flokks húsnæði í
hjarta Reykjavíkur. Uppl. í
símum: 544-5466 og 893-1162.
Bílskúr
Bílskúr til leigu í Hvassaleiti
Góður 22 fm bílskúr til leigu í Hvassa-
leiti. Langtímaleiga. Kalt vatn og
rafmagn fylgir. Sími 617 6330.
Sumarhús
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu eignarlóðir Möðruvöllum 1
(Norðurnes) í Kjós. Upplýsingar í
símum 561 6521 og 892 1938.
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Sumarbústaðalóðir
Eignarlönd til sölu í landi Kílhrauns á
Skeiðum, 50 km frá Rvk. í stærðunum
0,5 ha. til 1,1 ha. Hentar vel til
gróðursetningar og er með fallega
fjallasýn, kalt vatn, síma og þriggja
fasa rafmagn að lóðarmörkum, til
afhendingar strax, hagstætt verð og
góð kjör. Verið velkomin.
Hlynur í síma 824 3040.
www.kilhraunlodir.is
Rotþrær-siturlagnir
Heildarlausnir - réttar lausnir.
Heildarfrágangur til sýnis á staðnum
ásamt teikningum og leiðbeiningum.
Borgarplast, www.borgarplast.is
s. 561 2211 - Völuteigi 31 -
Mosfellsbæ.
Minniborgir.is
Opið hús nk. laugardag frá
kl. 13.00-17.00 í Minniborgum
Grímsnesi. Kíktu í kaffi til okkar og
skoðaðu aðstöðuna hjá okkur.
Leiktæki o.fl. fyrir börnin.
Minniborgir.is
Spennandi gisting á góðum stað.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum til sölu.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Microsoft kerfisstjóranám
Windows Server 2008 Administrator
nám hefst 14.9. Verð kr. 229.000 fyrir
341 st. nám. Upplýs. og skráning á
www.raf.is og í síma 863 2186.
Rafiðnaðarskólinn.
Til sölu
Íslenskur útifáni
Stór 100x150 cm. 3.950 kr.
Krambúðin, Skólavörðustíg 42,
Strax Laugarvatni, Strax Mývatni,
Strax Seyðisfirði, Strax Flúðum,
Úrval Selfossi, Úrval Egils-
stöðum, Hyrnan Borgarnesi,
Strax Búðardal.
Handslípaðar kristalsljósakrónur
frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið
úrval. Frábær gæði og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Óska eftir
Óska eftir eftir að kaupa
færanlegan söluvagn, og einnig tvö
stykki candy flos vélar.
Uppl. gefur: jón s. 661 3700.
Píanó óskast
Verður að vera gæðavara, helst með
silent - búnaði.
Upplýsingar í síma: 862 -2291.
KAUPUM GULL
Kaupum gull til að smíða úr. Spörum
gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins
í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og
Óskar - jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Ýmislegt
Teg. 7273 - léttfylltur í BC-skálum á
kr. 3.950,- rosalega flottar boxer bux-
ur í stíl á kr. 1.950.
Teg. 6579 - mjög fallegur í CDE-
skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr.
1.950.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Nýi Freemans-listinn kominn
Haust- og vetrarlisti Freemans er
kominn. Listinn er yfir 1000 bls. með
nýjustu tískuna frá London. Góð verð.
Pantið eintak í síma 565-3900 eða
www.freemans.is
Mjög vandaðir og fínir
dömuskór úr leðri, lakkaðir. Stærðir:
36-41. Litur: Svart lakk. Verð 8.300.-
Mjúkar og þægilegar
leðurmokkasíur á lágum hæl.
Stærðir: 36-40. Litur: Svart.
Verð 10.950.-
Mjúkar og þægilegar
leðurmokkasíur með gúmmísóla.
Stærðir: 36-41. Litur: Svart.
Verð 11.950.-
Vandaðir og þægilegir
götuskór úr leðri með gúmmísóla og
höggdeyfi í hæl. Stærðir 36-41.
Litur: Svart. Verð 8.875.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vélar & tæki
Vélaleiga og hellulagnir
Traktorsgrafa, minigrafa og vörubíll.
Hellulagnir, drenlagnir og jarðvegs-
skipti. Margra ára reynsla og vönduð
vinnubrögð. Mr vélar, símar 698 1710
og 616 1170.
Bátar
Strandveiðimenn
Fiskiker gerðir 300, 350, 450
og 460. Línubalar 70 og 80 l.
Allt íslensk framleiðsla í hæsta
gæðaflokki.
www. borgarplast.is
Völuteig 31,
Mosfellsbæ,
s: 561 2211.
Slöngubátur til sölu
Splunkunýr 10 manna slöngubátur til
sölu, ca. 5,7 m langur, 10 manna, frá-
bær í ferðaþjónustu. Ath. samskonar
bátur og á mynd. Uppl. s: 661 0988.
Bílar
Til sölu Cadillac Seville
Árg. 1998, ek. 145 þús., 4 dyra,
sjálfskiptur, leður, sóllúga, rafmagn í
sætum, rúðum og speglum. Sumar-
dekk og vetrardekk á felgum. Verð
1 millj. eða tilboð. Upplýsingar í síma
897 2519.
Bílaþjónusta
Bón og þvottur, Vatnagörðum 16,
sími 445 9090
Bón & þvottur. Gerir meira en að þvo
og bóna bílinn þinn, djúphreinsa og
nánast hvað sem þú biður um. Við
lagfærum bíla fyrir skoðun og skilum
þeim nýskoðuðum heim til þín. Fram-
kvæmum einnig smærri viðgerðir.
Bjóðum einnig fyrirtækjum upp á
nætur- eða helgarþjónustu - ódýr og
góð þjónusta. www.bonogtvottur.is
sími 445-9090, gsm 615-4090.
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
✝ Bryndís HersirLund fæddist á
Skólavörðustíg 23 í
Reykjavík 23. sept-
ember 1927 og ólst
upp í bænum. Hún
lést í Noregi sunnu-
dagskvöldið 23. ágúst
sl. Foreldrar hennar
voru hjónin Guð-
mundur B. Hersir
bakarameistari, f. 19.
júlí 1894, d. 7. júlí
1971, og Helga Emilía
Hersir, f. Pedersen,
frá Thurø í Dan-
mörku, f. 16. júní 1896, d. 24. júlí
1956. Systur Bryndísar eru Ása
Hersir Eriksen og Sigríður Ødeg-
ård, báðar látnar og búsettar lengst
af í Noregi, tvíburasystirin Halla
Hersir, látin, en yngst
er Unnur María Hers-
ir, til heimilis í
Reykjavík. Hálfbróðir
þeirra og samfeðra
var Sigurþór Hersir,
látinn.
Bryndís bjó í Nor-
egi frá árinu 1950,
lengst af í Skien. Hún
var gift Rolf Lund og
eignuðust þau tvö
börn, Berit og Öistein
sem áttu sitt hvora
dótturina, Sunniva og
Liv. Liv á tvö börn,
Tomas og Lina þannig að barna-
barnabörnin eru tvö.
Útför Bryndísar fer fram frá
Gimsøy kirkju í Skien í dag, 28.
ágúst, klukkan 12.30.
Í dag er kvödd í Skien í Noregi
Bryndís Hersir Lund, oftast bara
kölluð Binna, tæplega 82 ára. Hún
ólst upp í Reykjavík, dóttir Guð-
mundar bakarameistara og Helgu
konu hans. Í Reykjavík var Binna í
vist meðal annars hjá Stefáni
Bjarnasyni og Þóreyju Þórðardótt-
ur og hélst vinátta milli fjölskyldna
þeirra. Einnig vann hún í Mjólk-
ursamsölunni. Árið 1948 hélt hún
til Danmerkur ásamt Unni, eftirlif-
andi systur sinni, á heimaslóðir
Helgu móður þeirra. Þar unnu þær
systurnar ýmis störf í Hellerup,
nærri Kaupmannahöfn, en árið
1950 fór Binna til Noregs. Eldri
systur hennar tvær, Ása og Sigríð-
ur, höfðu flust búferlum til Noregs
og gifst þar norskum mönnum í
kjölfar stríðsins og vildi hún vera
nærri þeim a.m.k. um stundarsak-
ir. Þetta varð til þess að Binna
settist að í Porsgrunn og vann í
verksmiðju sem framleiddi tölur og
smellur úr málmi. Þar kynntist hún
manni sínum Rolf Lund, flutti til
nágrannabæjarins Skien og stofn-
aði fjölskyldu. Þegar afkomendurn-
ir Öistein og Berit voru vaxin úr
grasi vann Binna við þrif í heima-
húsum.
Eftir að Binna hleypti heimdrag-
anum 1948 kom hún aðeins þrisvar
til Íslands. Það var ekki algengt og
í raun stórmál fyrir alþýðu manna
að ferðast á milli landa langt fram
eftir síðustu öld. Það kom okkur
oft á óvart að hún skyldi skrifa og
tala nær lýtalausa íslensku. Það
var skrifað milli landa til systkina
og vinafólks á Íslandi um jól og
páska, á afmælum og við öll merki-
leg tímamót. Við systkinabörnin
furðuðum okkur oft á því að það
var eins og allt sem máli skipti
væri vitað yfir hafið, þótt einungis
væri stuðst við sendibréf. Flest
okkar systkinabarnanna komum í
heimsókn til fjölskyldnanna þriggja
í Noregi og fengum höfðinglegar
móttökur. Nú hefur síðasta systirin
kvatt okkur en við eigum öll fal-
legar minningar um fjölskrúðugt líf
og skemmtilegar sögur. Þar lék
Binna stórt hlutverk og ekki hvað
síst börn hennar og barnabörn,
sem eru frændrækin, fróðleiksfús
og höfðingjar. Unnur systir Binnu
vill að vitað sé að systir hennar var
liðleg, barngóð og samviskusöm.
Undir það tökum við hin. Það var
líf og fjör þar sem Binna var, en
jafnframt væntumþykja, nærgætni
og tillitssemi. Fjölskyldan hafði
ekki bara áhuga á sjálfri sér heldur
líka vinum og kunningjum og öllu
umhverfinu í kring.
Um leið og við kveðjum kæra
systur og frænku sendum við sam-
úðarkveðjur til barna og barna-
barna.
Með saknaðarkveðju til Noregs.
Unnur og systkinabörn
Binnu á Íslandi.
Bryndís Hersir Lund