Morgunblaðið - 28.08.2009, Page 40
40 Menning
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2009
Tíunda mynd Pixar-manna,hin tölvuteiknaða Up, erfrumsýnd hérlendis í dag,
rúmum þremur mánuðum eftir að
ég sá hana á Cannes. Og líklega
skipta þessir rúmu þrír mánuðir
öllu máli ef marka má myndina.
Myndin fjallar um þybbinn skáta-
dreng sem heimsækir gamlingja
nokkurn í þann mund sem hús
þess gamla fer á flug, bókstaflega.
Það er langt á milli rómantíska
fýlupokans Carls Fredricksens,
sem er 78 ára og pattaralega
skátadrengsins Russells, sem er
átta ára. En myndin fjallar í raun
fyrst og fremst um þennan tíma
sem er á milli þeirra.
Þeim tíma eru gerð skil í atriðisem er ekki nema kannski
fimm mínútur eða svo, snemma í
myndinni, en þar er sjötíu árum
þjappað saman í eina stórfenglega
þögla senu sem nær að krystalla
heila mannsævi orðlaust, ævi fulla
af gleði en ekki síður brostnum
draumum. Brostnu draumarnir
ríma örugglega ágætlega við ófáa
íslenska drauma samtíðarinnar,
draumarnir bresta nefnilega flest-
ir á sama hátt. Eitthvað óvænt
gerist og það þarf að brjóta söfn-
unarkrúsina upp á ný (Fredrick-
sen-hjónin höfðu þó vit á að
geyma spariféð ekki í banka),
draumar Fredricksen áttu sér
flestir stað fyrir tíma yfirdrátt-
arins.
Og þótt megnið af myndinnieigi sér stað eftir þessa senu
þá litar hún hana alla, þessa
brostnu drauma má alltaf lesa í
hrukkunum á andliti Fredricksen.
Þetta er nefnilega alls ekki barna-
mynd, heldur einhver forvitnileg-
asta mynd um ellina og það að
eldast og hrörna sem lengi hefur
sést. Gamli skröggurinn með gull-
hjartað er vissulega klassískur
karakter í barnamyndum, en örlög
hans eru þó venjulega aukaatriði,
þau eru sjaldnast í forgrunni. Hér
er það skátadrengurinn Russell
sem er í aukahlutverki, aðeins
minning um æskuna fyrir von-
brigðin.
Þetta er saga um drauma,brostna drauma sem fölna,
vissulega, en líka draumana sem
við lifðum án þess að taka eftir
því. Og loks ekki síður það óhugn-
anlega augnablik þegar okkar eig-
in draumur rætist loks, aðeins til
þess að komast að því hvað
draumar eru hættulegir. Hvernig
þeir geta afskræmst og eyðilagt
fólk, en líka hvernig þeir geta
þróast og þroskað fólk.
Að því sögðu má líka finna ímyndinni fljúgandi hús, tal-
andi hunda, suður-ameríska furðu-
fugla og tvö gamalmenni sem fá í
bakið í miðjum skylmingum, þann-
ig að krökkunum ætti svosum ekk-
ert að leiðast.
asgeirhi@mbl.is
Draumar án yfirdráttar
» Þetta er nefnilegaalls ekki barnamynd,
heldur einhver for-
vitnilegasta mynd um
ellina og það að eldast
og hrörna sem lengi hef-
ur sést.
Upp! Þessi skemmtilega teiknimynd hefur fengið mjög góða dóma gagnrýnenda erlendis.
AF LISTUM
Ásgeir H. Ingólfsson
Erlendir dómar
Metacritic 88 / 100
Variety 100 / 100
Time 100 / 100
The New York Times 70 / 100