Morgunblaðið - 04.09.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
EFNAHAGS- og framfarastofnunin,
OECD, telur enn sem fyrr að mikið
svigrúm sé til niðurskurðar útgjalda
til heilbrigðis- og menntamála án
þess að það komi niður á gæðum
þjónustunnar. Ábendingar í þessa
veru eru endurteknar í nýrri skýrslu
OECD en komu einnig fram í
skýrslum 2006 og 2008.
Í nýju skýrslunni er lof borið á
góðan árangur heilbrigðiskerfisins
en bent á að hann sé keyptur dýru
verði. OECD leggur til að hindranir
fyrir einkaframtaki í heilbrigðisþjón-
ustu verði fjarlægðar en nú sé einka-
rekstur einungis fjórðungur af heil-
brigðisþjónustu sem hið opinbera
kostar. Einnig er lagt til að opnað
verði fyrir samkeppni. Þá er talið
mögulegt að draga úr kostnaði við
rekstur sjúkrahúsa með því að taka
upp kostnaðarhlutdeild og að taka
upp kostnaðarskipan á verkefna-
grundvelli sem umbunar framleiðni.
Talið er að eftir enn meiru sé að
slægjast á menntasviðinu hvað hag-
ræðingu varðar. OECD segir að
þrátt fyrir umtalsverð framlög til
menntamála hafi árangur íslenska
menntakerfisins valdið vonbrigðum.
Þá er vísað til svonefndra PISA-
prófa. Eftir að rekstur leik- og
grunnskóla færðist til sveitarfélaga
hafi rekstrarkostnaður á hvern nem-
anda aukist þótt námsárangur, eink-
um í dreifbýli, hafi áfram verið slak-
ur. Íslendingar verja lengri tíma til
að ljúka framhaldsskóla en nemend-
ur í öðrum EES-löndum og er hvatt
til þess að námstíminn verði styttur.
Talið er mögulegt að spara á háskóla-
stigi með sameiningu, og að fremur
ætti að hvetja til náms erlendis en að
bjóða hér upp á framhaldsnám í há-
skólum á breiðu sviði. Þá eigi opin-
berir háskólar að eiga möguleika á að
krefjast skólagjalda fremur en að
þurfa að skera niður námsframboð.
Krafa um einkavæðingu
Ögmundur Jónasson heilbrigðis-
ráðherra segir ráðleggingar OECD
varðandi heilbrigðiskerfið vera
„gamlar lummur“ eins og sagt sé á
góðri íslensku.
„Það er krafa um niðurskurð í heil-
brigðiskerfinu, einkavæðingu og
sjúklingaskatta. Þetta eru ráðlegg-
ingar sem við höfum heyrt oft áður
frá OECD, en við heyrum minna
núna um ráðleggingar sem við heyrð-
um í fyrra, hittiðfyrra og þar áður um
fjármálakerfið. Þar var mikil lofgjörð
um hvað við hefðum gert í þeim efn-
um og við vorum hvött til að mark-
aðsvæða og einkavæða af enn meiri
krafti en áður. Menn halda sig við
heilbrigðiskerfið og ráðleggingar um
markaðsvæðingu þess. Maður furðar
sig á að svona skuli borið á borð fyrir
okkur,“ sagði Ögmundur.
Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra sagði að ábendingar OECD
um menntakerfið hefðu ekki komið
sér á óvart og sumar þeirra hefðu
komið fram áður.
Kristján Möller, ráðherra sam-
göngu- og sveitarstjórnarmála,
kvaðst vera ánægður með hvatningu
OECD um sameiningu sveitarfélaga.
„Ég er þeirrar skoðunar að það eigi
að fara í stórátak í sameiningu og efl-
ingu sveitarfélaga. Það sé nauðsyn-
legt m.a. vegna fyrirhugaðs verk-
efnaflutnings til sveitarfélaga.“
Kallað eftir niðurskurði
Í nýrri skýrslu OECD um íslenskt efnahagslíf er sagt að hægt sé að skera niður kostnað í heilbrigðis-
og menntamálum án þess að skerða gæði Heilbrigðisráðherra segir þau ráð vera „gamlar lummur“
Morgunblaðið/Frikki
Lengri bið Framlög til opinberrar þjónustu verða skorin niður. Búast má við að þjónusta muni skerðast á ýmsum
sviðum. Ekki eru allir sammála um að leiðir OECD séu til farsældar fyrir notendur opinberrar þjónustu.
Í HNOTSKURN
»„Fjármagnsmarkaðurinná Íslandi er blómlegur og
aðgangur að fjármagni hefur
batnað mikið …
»Höftum á þessum markaðihefur fækkað, viðskipta-
bankarnir [hafa verið] einka-
væddir og markaðurinn hefur
verið opnaður fyrir al-
þjóðlegri samkeppni …
» Þessar aðgerðir í frjáls-ræðisátt hafa borið prýði-
legan árangur og þeim ber að
halda áfram.“ (OECD 2006)
Efnahags- og framfarastofnunin,
OECD, birti í fyrradag nýja
skýrslu um íslensk efnahagsmál.
Þar segir að þörf sé á verulegu
átaki í ríkisfjármálum, m.a. nið-
urskurði í heilbrigðis- og
menntamálum.
ÖGMUNDUR Jónasson heilbrigðisráðherra sagði Ís-
lendinga nauðbeygða til að grípa til verulegs samdráttar
í heilbrigðiskerfinu. Hann taldi ábendingar OECD óháð-
ar aðsteðjandi efnahagsþrengingum. Ábendingarnar
snúi að markaðsvæðingu velferðarþjónustunnar og það
sé nokkuð sem Íslendingar kæri sig ekki um. Ögmundur
sagði að samdrátturinn myndi bitna á öllum stofnunum
sem heyrðu undir heilbrigðisráðuneytið.
„Þegar á heildina er litið erum við að tala um 6-7%
niðurskurð í stofnunum sem heyra heilbrigðisþjónust-
unni til. Það er mjög mikið þegar haft er í huga að annað
eins var gert á þessu ári,“ sagði Ögmundur. Hagræðing-
unni má skipta í þrjá þætti: Í fyrsta lagi skipulagsbreytingar innan ein-
stakra heilbrigðisstofnana sem þær ákveða sjálfar og á eigin forsendum. Í
öðru lagi samhæfingu þar sem reynt verður að stuðla að samstarfi milli
stofnana og ná þannig fram hagræðingu. Í þriðja lagi varðandi sjúkra-
tryggingar en undir þær heyra sérfræðikostnaður og lyfjakostnaður. Ög-
mundur sagði að þetta krefðist mikillar samvinnu mjög margra aðila.
Reynt verður að halda áfram við nýtt háskólasjúkrahús og sagði Ög-
mundur góðan vilja hjá lífeyrissjóðum að koma að því. Hann taldi að mjög
yrði til bóta að fá nýtt sjúkrahús og það myndi spara fé til lengri tíma litið.
Samdráttur bitnar á öllum
Ögmundur
Jónasson
OECD leggur til að stjórnvöld leggi áherslu á að stytta
nám á framhaldsskólastigi úr fjórum árum í þrjú. Einnig
séu tækifæri til hagræðingar á háskólastiginu. Opinber-
ir háskólar eigi að eiga kost á að innheimta skólagjöld í
stað þess að skera niður námsframboð.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sagði að
þetta væri spurning um pólitík. Hún teldi að ekki ætti að
skerða námsinnihald á framhaldsskólastigi, þótt skoða
mætti leiðir til að stytta námstímann. Katrín sagði að
verið væri að skoða nýja námshætti og kennsluhætti í
tengslum við nýleg lög um framhaldsskóla. Einnig væri
verið að skoða leiðir til að hagræða á háskólastigi, m.a.
með því að sameina stofnþjónustu, og samstarf háskóla um doktorsnám.
„Ég held að það sé mjög mikilvægt ef við ætlum að viðhalda líflegu há-
skólaumhverfi á Íslandi að bjóða upp á doktorsnám, að minnsta kosti í sum-
um greinum,“ sagði Katrín. Hún sagði skólagjöld vera pólitískt mál og
hluta af hægrisinnaðri hugmyndafræði. Þau snertu grundvallaratriði á
borð við jafnrétti til náms. Hér hefðu skólagjöld verið fjármögnuð af LÍN,
það er opinberu fé, og verið að hluta niðurgreidd.
Ábendingar snúast um pólitík
Katrín Jak-
obsdóttir
KRISTJÁN Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála, taldi
ekki óeðlilegt að kostnaður við leik- og grunnskóla hefði
aukist við flutninginn til sveitarfélaga því starfið á þess-
um skólastigum væri orðið miklu öflugra en það var.
„Sveitarfélögin tóku vel á þessu sem staðfestir að það er
gott að færa verkefni frá ríki til sveitarfélaga.“ Kristján
sagði að möguleikar á hagræðingu væru hjá sveitar-
félögum eins og sæist nú í sameiningu leikskóla, grunn-
skóla og tónlistarskóla í nokkrum sveitarfélögum.
OECD hvetur til sameiningar sveitarfélaga. Kristján
kvaðst hafa látið semja frumvarp um að hækka lág-
marksíbúafjölda sveitarfélaga úr 50 í 1.000 íbúa. Frumvarpið hefur ekki
verið lagt fram. „Á síðasta ársfundi sveitarfélaga nefndi ég leið sem ýmis
nágrannalönd hafa farið. Það er að Alþingi tæki ákvörðun um sameiningu
sveitarfélaga,“ sagði Kristján. „Það kom mér mjög á óvart, við þessar hug-
myndir um að hækka lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga, hvað margir komu
til mín og hvöttu til að þeir yrðu leystir undan því að kjósa um sameiningu.
Hvort ekki væri hægt að gera þetta í gegnum Alþingi.“
Sveitarfélög sameinuð á þingi
Kristján Möller
IdeaPad U350 er betri hugmynd og kostar aðeins frá154.900kr.
Kíktu inn á betrihugmynd.is og sjáðu um hvað málið snýst
Sölustaðir •VerslunNýherja -Borgartúni 37 •VerslunNýherjaAkureyri - Kaupangi • SenseCenter -Kringlunni •www.netverslun.is • Söluaðilar um landallt