Morgunblaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009 Eins og gefur að skilja hafa lands-menn beðið með nokkurri eft- irvæntingu eftir upplýsingum um það hver verða viðbrögð breskra og hollenskra stjórnvalda við nýsam- þykktum lögum um Icesave- ríkisábyrgð og þeim fyrirvörum sem settir eru við ábyrgðina í frum- varpinu.     Forsetinn settiá svið sjón- arspil með „sér- stakri áritaðri til- vísun til fyrirvara Alþing- is“ sem vitanlega raskaði ekki ró nokkurs manns, hvorki Íslend- inga, Breta né Hollendinga, eins og þegar hefur verið fjallað um í Morgunblaðinu.     Svo gerðist það í hádeginu í gærað sendinefnd, sem fundaði með breskum og hollenskum emb- ættismönnum í Haag fyrr í vikunni, gekk á fund fjárlaganefndar, þar sem til stóð að kynna nefndinni hver væru viðbrögð Breta og Hol- lendinga.     En ekkert í þá veru gerðist, efmarka má orð Guðbjarts Hann- essonar, formanns fjárlaganefndar, sem sagði á mbl.is að afloknum „kynningarfundinum“ í gær: „Það er allt í eðlilegum farvegi og engin svör eða neitt komið.“     Vitanlega er það í anda rík-isstjórnar Samfylkingar og vinstri grænna að það sé hinn eðli- legi farvegur, að engin svör berist! Eða hvað?     Er það ekki líka í anda hins „nýja,opna Íslands, þar sem allt á að vera uppi á borðum, opið og gegn- sætt“ að engin svör berist? Eru stjórnvöld svo skyni skroppin að þau skynji ekki að þolinmæði al- mennings á Íslandi er á þrotum? Guðbjartur Hannesson Engin svör eðlilegi farvegurinn? „MÉR hefur ekki borist neitt erindi frá Höskuldi,“ segir Guð- bjartur Hannesson formaður fjárlaganefndar Alþingis, en Höskuldur Þórhallsson, sem sæti á í fjárlaganefnd, segist hafa spurst fyrir um tilurð svo- kallaðrar ríkisfjármálanefndar. Taldi Höskuldur óeðlilegt að blanda saman starfi löggjafar- og framkvæmdavalds með þessum hætti. Guðbjartur segir að ekki sé til nein ríkisfjármálanefnd. Þetta hafi verið nafn sem hann hafi notað þegar Morgun- blaðið hafi spurst fyrir um málið en líklega hafi þetta verið óheppilegt orðalag. Guðbjartur segir að í raun hafi formaður og varaformaður fjárlaganefndar hitt forsætis- og fjármálaráðherra til að fara yfir vinnu við fjár- lagagerðina. „Þetta var pólitískur hópur að fara yfir málin, við erum öll alþingismenn, ráðherrarn- ir líka,“ segir Guðbjartur. Hann segir að þetta sama fyrirkomulag hafi gilt þegar Sjálfstæðis- flokkur og Samfylking sátu saman í stjórn. Guðbjartur minnir á að rammi fjárlaga fyrir ár- in 2000 til 2013 hafi verið markaður í skýrslu sem lögð var fram á Alþingi í júní s.l., um svipað leyti og stöðugleikasáttmálinn svokallaði hafi verið samþykktur. Þar hafi verið lagðar línur um það hve mikið yrði dregið saman í einstökum mála- flokkum, í prósentum talið. „Þetta var heilmikið plagg og vonandi verður þetta form notað við fjárlagagerð í framtíðinni. Þingið setur rammann, framkvæmdavaldið fyllir inn í hann og Alþingi tekur svo við vinnunni á nýj- an leik,“ segir Guðbjartur. sisi@mbl.is Pólitískur hópur fór yfir málin Rammi fjárlaganna var markaður í skýrslu sem lögð var fyrir Alþingi í júní Guðbjartur Hannesson Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 11 skýjað Lúxemborg 15 skýjað Algarve 27 heiðskírt Bolungarvík 9 skýjað Brussel 17 skýjað Madríd 31 heiðskírt Akureyri 9 léttskýjað Dublin 14 léttskýjað Barcelona 26 skýjað Egilsstaðir 8 skýjað Glasgow 13 skýjað Mallorca 29 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 10 skýjað London 18 léttskýjað Róm 30 léttskýjað Nuuk 6 skýjað París 20 heiðskírt Aþena 28 léttskýjað Þórshöfn 14 léttskýjað Amsterdam 18 léttskýjað Winnipeg 22 léttskýjað Ósló 15 skýjað Hamborg 16 skýjað Montreal 23 heiðskírt Kaupmannahöfn 18 léttskýjað Berlín 20 léttskýjað New York 23 heiðskírt Stokkhólmur 17 skýjað Vín 27 léttskýjað Chicago 22 léttskýjað Helsinki 16 skýjað Moskva 21 skýjað Orlando 29 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 4. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 0.18 0,6 6.18 3,7 12.24 0,5 18.32 4,0 6:20 20:34 ÍSAFJÖRÐUR 2.24 0,3 8.17 2,0 14.27 0,4 20.26 2,2 6:19 20:45 SIGLUFJÖRÐUR 4.43 0,3 10.54 1,2 16.41 0,3 22.56 1,4 6:02 20:28 DJÚPIVOGUR 3.28 2,0 9.35 0,4 15.48 2,1 21.56 0,5 5:48 20:05 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á laugardag Austlæg átt, víða 8-13 m/s og rigning en mun hægari og úr- komulítið á N- og A-landi. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast N-lands. Á sunnudag Suðaustan 8-13 m/s og rigning S- og V-lands en hvassari úti við sjóinn. Hægari og þurrt NA- lands til kvölds. Hiti 10 til 15 stig. Á mánudag Stíf sunnanátt með rigningu eða skúrum en úrkomulítið á N- og A-landi. Áfram milt veður. Á þriðjudag og miðvikudag Útlit fyrir breytilegar áttir með vætu víða um land. Áfram milt veður. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hvessir með SV-ströndinni og bætir í vætu. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast SV-lands en hlýnar held- ur fyrir norðan á morgun. BIRGIR Gunnarsson, forstjóri Reykjalundar, endurhæfing- armiðstöðvar SÍBS, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta að und- anförnu um gjaldþrot Reykjalund- ar-plastiðnaðar og meint fjárdrátt- armál því tengd. „Rekstur Reykjalundar-plastiðnaðar er ekki í neinum tengslum við Reykjalund, endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Meint fjársvikamál í tengslum við fram- angreint gjaldþrot tengjast heldur ekki á neinn hátt, hvorki núverandi eða fyrrverandi stjórnendum á Reykjalundi, endurhæfing- armiðstöð SÍBS. Talsvert hefur borið á misskilningi að þessu leyti sem skapast væntanlega af keim- líkri nafngift,“ segir m.a. í yfirlýs- ingunni. Yfirlýsing frá forstjóra Reykjalundar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.