Morgunblaðið - 04.09.2009, Síða 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009
• Hagstæðar afborganir
• Söluaðilar geta valið um lán með breytilegum vöxtum eða vaxtalaus
• Söluaðilar greiða ekkert þjónustagjald af Kortalánum
• VALITOR greiðir út til söluaðila annan virkan dag eftir að sala fer fram
FYRIRTÆKJALAUSNIR VALITOR • Laugavegi 77 • 101 Reykjavík • fyrirt@valitor.is • www.valitor.is
Þetta helst ...
● KR hefur gert gagnkröfu í þrotabú
Samsonar, eignarhaldsfélags Björgólfs-
feðga, vegna kröfu Helga Birgissonar
hrl., skiptastjóra þrotabúsins, um að 11
milljóna króna gjöf Samsonar til KR,
þegar liðið varð bikarmeistari í fyrra,
skömmu fyrir hrun Landsbankans, verði
rift. Björgólfur breytti láni til KR í gjöf
skömmu áður en bankinn hrundi. For-
varsmenn KR halda því fram að Sam-
son hafi skuldbundið sig til að styðja
við akademíu félagsins, sem nemur
hærri fjárhæðum en þeim ellefu millj-
ónum sem Björgólfur breytti úr láni í
gjöf fyrir hönd Samsonar. Ekki er ljóst
enn hvenær niðurstaða fæst í málinu
sem nú er rekið fyrir dómstólum.
magnush@mbl.is
KR gerir gagnkröfu í
þrotabú Samsonar
● ERLENDAR eign-
ir þjóðarbúsins
námu 8.389 millj-
örðum króna í lok
annars fjóðrungs
þessa árs. Skuldir
námu þá 14.343
milljörðum króna.
Hrein staða þjóð-
arbúsins við útlönd
var því neikvæð um 5.954 milljarða
króna og jókst um 571 milljarð á þrem-
ur mánuðum, eða frá lokum fyrsta
fjórðungs þessa árs. Þetta kemur fram í
yfirliti frá Seðlabanka Íslands, sem birt
var í gær.
Seðlabankinn segir að inni í tölum
um stöðu þjóðarbúsins séu enn eignir
viðskiptabankanna þriggja, sem nú
eru í greiðslustöðvun. Áætlaðar eignir
þeirra hafi numið 6.673 milljörðum og
skuldir 11.020 milljörðum og neikvæð
eignastaða þeirra hafi því numið 5.347
milljörðum í lok annars ársfjórðungs.
Staða þjóðarbúsins án áhrifa frá bönk-
unum sé því neikvæð sem nemur 606
milljörðum. gretar@mbl.is
Neikvæð staða um
6.000 milljarðar króna
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
NÓNÓ ehf., öðru nafni Reykjavík
Economics, sem er í eigu Magnúsar
Árna Skúlasonar, hefur höfðað mál
gegn Straumi Burðarási fjárfesting-
arbanka vegna vangoldinnar skuldar
sem varð til vegna þjónustusamnings
í gjaldeyrisviðskiptum eftir banka-
hrunið. Krefst fyrirtæki Magnúsar
Árna 26 milljóna króna.
Í bankaráði Seðlabankans
Málið verður ekki rekið fyrir dóm-
stólum þar sem Straumur er í slita-
meðferð. Var málshöfðunin felld nið-
ur og fór út af málaskrá í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Fer krafa Magnúsar
Árna nú fyrir slitastjórn Straums sem
mun þurfa að taka afstöðu til hennar.
Magnús Árni situr í bankaráði Seðla-
banka Íslands
fyrir hönd Fram-
sóknarflokksins
og er einn af for-
svarsmönnum
Indefence-hóps-
ins svokallaða.
Í stefnu NóNó
gegn Straumi
segir að eftir
þjóðnýtingu stóru
viðskiptabank-
anna þriggja hafi Magnús Árni átt
fund með starfsmönnum Straums þar
sem þeir hafi mótað sameiginlega
greiðslumiðlunarkerfi til að geta boð-
ið viðskiptamönnum sínum upp á
miðlun gjaldeyris til Íslands með
skjótvirkari hætti en ef greiðslur
færu í gegnum Seðlabanka Íslands.
Gerði tilboð í gjaldeyri
Kerfið fólst í því að Magnús kom
Straumi í samband við aðila á Íslandi,
m.a. útflutningsaðila í sjávarútvegi.
Straumur gerði þessum viðskipta-
mönnum síðan tilboð í gjaldeyri í
þeirra eigu. Fóru viðskiptin fram með
þeim hætti að viðkomandi lagði um-
samda fjárhæð í gjaldeyri inn á reikn-
ing Straums í banka erlendis, til að
mynda Skandinaviska Enskilda
Banken AB. Straumur borgaði svo
viðskiptavininum fyrir gjaldeyrinn
inn á reikning hérlendis í krónum á
grundvelli svokallaðs skiptagengis
sem var umsamið hverju sinni.
Ágreiningurinn snýst um ógreidda
þóknun.
„Það var neyðarástand sl. haust og
viðvarandi erfiðleikar að koma fjár-
magni til landsins. Tilgangurinn með
þessu var að reyna að bjarga fyrir-
tækjum,“ segir Magnús Árni. Ekki
hafi verið hægt að koma á gjaldeyr-
isviðskiptum gegnum Seðlabankann
og því hafi fyrirtæki hans í samvinnu
við Straum hannað kerfi til að koma
til móts við viðskiptavini til þess að
tryggja greiðslumiðlun við útlönd.
„Straumur var eini bankinn á Íslandi
fyrir utan Íbúðalánasjóð sem hafði
lánshæfismat og hinir bankarnir nutu
ekki trausts. Því gat Reykjavík
Economics ekki mælt með neinum
öðrum en Straumi varðandi greiðslu-
miðlun,“ segir Magnús Árni. Að hans
sögn lét fyrirtækið hans af viðskipt-
unum áður en höftum var komið á.
Bankaráðsmaður í mál við
Straum vegna gjaldeyrisviðskipta
Í bankaráði Seðlabankans Krefst þóknunar vegna gjaldeyrismiðlunar
Í HNOTSKURN
»Fyrir þá þjónustu, semStraumur veitti viðskipta-
mönnum sem Magnús Árni afl-
aði, lagði Straumur 10 prósent
álag ofan á fjárhæð við-
skiptanna og átti helmingur
þess álags að greiðast til
Magnúsar Árna.
»Eftir að gjaldeyrishöft-unum var komið á í nóv-
ember á síðasta ári var það
mat Magnúsar Árna að „veru-
legur vafi léki á um það hvort
áframhaldandi viðskipti
[Straums] með gjaldeyris-
skipti væru lögmæt,“ eins og
segir í stefnunni.
Magnús Árni
Skúlason
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
TILLAGA sem fram kemur í
skýrslu Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar, OECD, um að tekin verði
upp samræmd neysluverðsvísitala
hér á landi í tengslum við verðbólgu-
markmið Seðlabankans í stað hinnar
hefðbundnu neysluverðsvísitölu,
sem verðbólgumarkið bankans mið-
ast við í dag, hefur ekkert með lána-
mál heimila og fyrirtækja að gera.
Þetta kom fram í skýrslu OECD sem
birt var í fyrradag.
Á það var bent í skýrslunni að
samræmda vísitalan hefði hækkað
minna á uppgangstímanum hér á
landi fram á mitt ár 2007 en neyslu-
verðsvísitalan.
Að sögn Rósmundar Guðnasonar,
skrifstofustjóra efnahagssviðs Hag-
stofu Íslands, er OECD einungis að
leggja til að samræmda vísitalan
verði tekin upp í tengslum við pen-
ingamálastefnu Seðlabankans. „Sú
breyting myndi því ein og sér engin
áhrif hafa á verðtryggingu á lána-
markaði,“ segir Rósmundur.
Hann segir að þetta sé í samræmi
við það sem víðast hvar eigi við, því
allflest ríki sem noti samræmdu vísi-
töluna séu jafnframt með sína eigin
vísitölu. Tillaga OECD snúi hins
vegar að því hvernig hægt yrði að
stuðla að því að Ísland gæti uppfyllt
Maastricht-skilyrðin, ef ákveðið yrði
að ganga í Evrópusambandið og taka
upp evru.
Verðtrygging óbreytt
Tillaga OECD
snýr eingöngu að
peningastefnunni
Morgunblaðið/Kristinn
Tillaga Í skýrslu OECD er lagt til að stjórnvöld beiti sér fyrir því að sam-
ræmd neysluverðsvísitala verði tekin upp hér á landi sem allra fyrst.
LÁNSHÆF-
ISEINKUNN
ríkissjóðs hjá al-
þjóðlega matsfyr-
irtækinu Fitch
Ratings er
óbreytt. Ein-
kunnin í erlendri
mynt fyrir lang-
tímaskuldbind-
ingar er BBB- og fyrir skamm-
tímaskuldbindingar F3. Einkunn í
íslenskum krónum fyrir lang-
tímaskuldbindingar er A- og lands-
einkunn Íslands er BBB-.
Fitch metur horfurnar fyrir Ís-
land áfram neikvæðar. Segir í
skýrslu matsfyrirtækisins að það
sem gæti haft áhrif á lánshæfismatið
til lækkunar sé í fyrsta lagi ef ekki
tekst að leysa Icesave-deilurnar. Í
annan stað myndi það hafa áhrif ef
opinberar skuldir halda áfram að
aukast eftir 2010 og í þriðja lagi ef
það mistekst að koma á jafnvægi í
peningamálum og gengi krónunnar.
gretar@mbl.is
Horfur enn
neikvæðar
!
● GISTINÆTUR á hótelum í júlí síðast-
liðnum voru 203.400 en 202.200 í
sama mánuði árið 2008. Þetta kemur
fram í tölum Hagstofunnar. Gistinótt-
um fjölgaði víða um landið, en þó ekki á
Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestfjörðum
né á Suðurlandi.
Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum
mest á Norðurlandi; úr 22.300 í
25.000, eða um tæp 12%. Gistinóttum
á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði úr
114.500 í 117.200 eða rúmlega 2%.
Fyrstu sjö mánuði ársins fækkaði
gistinóttum Íslendinga um 14% en
aukning meðal erlendra ríkisborgara
var 2% miðað við fyrra ár. sbs@mbl.is
Gistinóttum á hótelum
landsins fjölgaði í júlí