Morgunblaðið - 04.09.2009, Page 20
EINN þekktasti tískubloggari Svíþjóðar er hin 26 ára El-
in Kling. Kling byrjaði að blogga fyrir nokkrum árum og
vakti fljótt talsverða athygli en sló rækilega í gegn eftir
að hún fór að birtast reglulega í sjónvarpsþættinum
Klick. Hún sér nú um tískuþætti í sænskum tímaritum
enda þykir hún með eindæmum smekkleg og hefur hún
m.a. hannað gallabuxur fyrir gallabuxnarisann Levi’s. Þá
hafa verið sögusagnir um að hún eigi að hanna línu fyr-
ir H&M.
Kling er mjög dugleg að blogga og má lesa færslur
og skoða fjölda mynda sem Kling tekur af sjálfri sér á
síðunni stylebykling.tv4.se. Hún tiltekur alltaf versl-
anirnar þar sem fötin hennar og skótau eru keypt og
ólíkt mörgum tískudrósum hik-
ar hún ekki við að ganga í
fötum frá Zöru og H&M þó
dýrari merki komi oft við
sögu.
Síðan er að sjálfsögðu á
sænsku en fyrir þá sem
ekki skilja málið mælum
við með Google translate.
Fyrir tískuspekúlanta - og alla hina
ÞAÐ getur verið skemmtileg tilbreyting að tú-
pera létt á sér hárið þegar gera á sér daga-
mun. Það hefur verið vinsælt meðal leik-
kvennanna í Hollywood og engin ástæða til
þess að við hinar ættum ekki að geta leikið
það eftir.
1) Til að byrja með er gott að setja efni sem
gefur fyllingu (e. volumizer) í rakt hár. Þurrkið
hárið með hárblásara og notið stóran, kringlóttan
bursta til að greiða lokkana út frá hársverðinum.
2) Skiptið hárinu, annaðhvort til hliðar eða í miðju, og tú-
perið hárið á hvirflinum með greiðu. Spreyið hárspreyi yfir
og greiðið aðeins yfir flókann svo hárin efst í túperingunni
séu slétt.
3) Eftir að túperingunni er lokið er ýmiss konar greiðsla í boði.
Hægt er að taka lokka báðum megin við skiptinguna og spenna aftur,
taka hárið aftur í tagl eða einfaldlega vera með það slegið. Flottar Nicole Richie, Drew Barrymore og Jennifer Love-Hewitt með túperað hár.
Túperað og kynþokkafullt
ÞEGAR tekur að kólna í veðri þarf ekki
aðeins að klæða sig betur heldur þarf
að passa betur upp á húðina. Líkt og
sandalarnir henta ekki yfir vetrartím-
ann passar gamla góða rakakremið,
sem notað er á sumrin, ekki alltaf
þegar kalt er úti.
Sigrún Kristjánsdóttir, eigandi
snyrtistofunnar Paradís, segir að
meðan hefðbundin rakakrem dugi vel
á sumrin þurfi að breyta yfir í varn-
arkrem og krem með meiri fitu í þeg-
ar haustar. „Ef maður er með krem
með miklum raka þegar frost er úti
getur rakinn frosið og maður fengið
háræðaslit og lent í nokkrum vand-
ræðum,“ segir Sigrún. Hún segir að
gæta þurfi sérstaklega að kinnunum
sem séu viðkvæmasta svæðið fyrir
háræðasliti.
Sigrún segir jafnframt að þar sem
varaþurrkur sé algengur á haustin
geti verið gott að nota varn-
arvarakrem, láta andlitskremið vel yf-
ir varirnar eða nota varasalva sé mað-
ur sérstaklega viðkvæmur. Þá sé
einnig vörn í sumum varalitum.
Sigrún mælir með Serenite-
kreminu frá Gatineau sem selt er í
Paradís. Það er fyrir viðkvæma húð
og hjálpar kremið til við að styrkja
varnir húðarinnar. Verð 6.480 kr. fyrir
50 ml.
Hjá Lyfjum og heilsu í Kringlunni
var mælt með Super defense-kreminu
frá Clinique. Líkt og öll krem frá Clini-
que er kremið án ilmefna og hannað
af húðlæknum. Það er með SPF 25, en
SPF ver líka gegn kulda, og ver krem-
ið húðina gegn öllu umhverfisáreiti.
Húðumhirða
Vörn gegn vetri
Gatineau
Serenite
Clinique
Superdefense
20 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009
Hvað viltu lesa? Sendu okkur
tölvupóst á daglegtlif@mbl.is
NÚ er kominn tími til að draga fram
Buffalo-skóna því annað kvöld verður
haldið á Broadway eitt stærsta 90’s
partí sem sögur fara af hér á landi.
Það er ekki ómerkari hljómsveit en 2
Unlimited sem leikur fyrir dansi en
hljómsveitin sló í gegn á fyrrnefndum
áratug með smellum eins og „Get
ready for this“ og „Tribal dance“ svo
ekki sé minnst á lagið „No limit“ sem
gerði allt vitlaust á sínum tíma og
ætti að vera vandlega greypt í huga
allra þeirra sem hlustuðu eitthvað á
tónlist á 10. áratugnum.
2 Unlimited hefur reyndar breyst
úr því að vera tveggja manna band
Ray Slijngaard og Anitu Doth yfir í að
vera sólóverkefni þeirrar síðarnefndu
en það ætti ekki að koma að sök.
Doth kemur fram ásamt þrautreynd-
um dönsurum og þykir sýningin
hennar vera með þeim allra flottustu.
Til að halda uppi samfelldri 90’s
stemningu munu plötusnúðarnir Fri-
gore og Sindri BM af Flass 104,5
spila vinsælustu tónlist 10. áratug-
arins bæði fyrir og eftir að Doth fyllir
gesti Broadway 90’s nostalgíu. Þá
mun Haffi Haff frumflytja nýtt lag.
Miðasala fer fram í verslunum
Skór.is í Kringlunni og Smáralind og
kostar miðinn 2.500 kr.
Laugardagskvöld
Bandið Engin takmörk hjá þessum tveimur.
Heljarinnar
90’s partí
SOPHIE Kinsella
nýtur gríðarlegra
vinsælda víða
um heim fyrir
bráðskemmti-
legar afþreying-
arbækur sínar þar
sem ástin gegnir
stóru hlutverki.
Þekktust er hún
fyrir metsölubæk-
urnar um kaup-
alkann geðþekka, Rebeccu Blum.
Í Manstu mig? er hún á nýjum slóð-
um en aðalpersónan, eins og í öllum
bókum hennar, er ung kona. Lexí
vaknar upp á sjúkrahúsi, hefur misst
minnið og hin nýja tilvera hennar
reynist heldur betur ævintýrarík.
Þetta er fyndin og fjörug bók og
hin besta afþreying. kolbrun@mbl.is
Bókin
Fyndni og fjör
Manstu mig? Góð
afþreying.
Í meginatriðum gerir maður þrennt á
djamminu: Þjórar, stígur mök-
unardans og stendur í biðröð.
Galdurinn við gott djamm er að
eyða sem mestum tíma í tvennt
hið fyrra og sem minnstum í það
síðasta. Reyndar vilja margir stytta
dansinn sem mest, ljúka djammi og fara sem fyrst „heim
saman,“ tvö/tveir/tvær eða fleiri. Það skal þó brýnt fyrir les-
endum að eftirförin er fengnum oft fremri. Eðli málsins
samkvæmt ætti ævinlega að vera lengst röð inn á bestu
öldurhúsin. Eftir viðamiklar rannsóknir hef ég komist
að því að raunveruleikinn er fjarri því. Það er þver-
öfugt. Því lengri röð sem er inn á krá, þeim mun
leiðinlegri og óvistlegri eru innviðirnir. Og
dropinn yfirleitt dýrari.
Þá komum við að kjarna þessa pistils: Ég
ætla að dissa Kaffibarinn (KB). Það eru
alltaf tvær raðir á KB, önnur fyrir almúg-
ann og hin fyrir almúga með þotuliðsduld.
Báðar silast jafnhægt áfram en þotuliðsduld-
arröðin er ævinlega háværari, með endalaust nafnakall og
handapat framan í dyraverði. Fyrir slembilukku tekst hinu
meinta þotuliði endrum og eins og komast fram fyrir almúga-
röðina. Ber liðið fyrir sig kunningsskap við frægt fólk. Sumir segjast
jafnvel frægir sjálfir og miðað við fullyrðingar þeirra eru nú átta
starfandi trommarar í Sigur Rós.
Sama hvernig farið er að þá þarf að bíða löngum stundum eft-
ir inngöngu. Og til hvers? Eftir 40 +/-15 mínútur í röð kaupir
maður dýrt, bragðdauft og fremur danskt öl til þess eins að
sulla því á annað fólk sökum þrengsla. Það má reyna að
spjalla en það er tilgangslaust því tónlistin er svo há-
vær.
Reyndar kemur það kannski ekki að sök því bar-
gestirnir eru svo óhemjuleiðinlegir og lítt spenn-
andi. Tilraun til að dansa leiðir af sér hálfpott af
bjór á djammgallann. Skórnir eru trampaðir í
döðlur. Örvæntingin liggur í loftinu frá
klukkan korter í þrjú en þá er nóg eftir,
leiðindin standa til morguns. Gredd-
umóða á gluggum en enginn að digga
og þaðan af síður höstla.
Reyndar er þetta eina par að
nudda saman sínum prívatsvæðum á
dansgólfinu. Þau þurfa stóran leigubíl
heim og neyðarpillu í morgunsárið.
Ég ætla ekki á KB í kveld.
Skúli Á. Sigurðsson | skulias@mbl.is
’…eru nú áttastarfandi tromm-
arar í Sigur Rós.
HeimurSkúla
Í KVÖLD kl. 20 eru
síðustu forvöð til
að sjá dansverkið
Shake me á
Reykjavík dance
festival í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu.
Markmið hátíð-
arinnar er að færa
danslistina nær
hinum almenna borgara og víst er að
Shake me höfði til margra þar sem
sýningin er unnin út frá dramatísk-
ustu dauðasenunum í harmleikjum
Shakespeare, svo sem Rómeó og Júl-
íu, Hamlet, Júlíusi Sesari og Lér kon-
ungi, og þau fléttuð saman við kraft-
ballöður Tinu Turner, Bonnie Tyler,
Meatloaf, Steelheart o.fl. Sjálfir segj-
ast höfundar verksins gera með verk-
inu dramatíska tilraun til að drepa
sig.
Það sem ætti svo að höfða til enn
fleiri er að áhorfendur ákveða sjálfir
hve mikið þeir borga inn á sýninguna.
Í kvöld
Dauðadans