Morgunblaðið - 04.09.2009, Page 29

Morgunblaðið - 04.09.2009, Page 29
albjargar. Hugur minn er einnig hjá Sigga og Ingibjörgu og fjölskyldum þeirra og sendi ég þeim einnig samúð mína. Ljúflingurinn skemmtilegi, Gunni Hauks, skilur eftir sig minningar sem hægt er að ylja sér við. Síðustu daga hef ég heyrt í mörgum sem kynntust honum og eru allir á sama máli: ein- stakt ljúfmenni er fallið frá. Takk fyr- ir samfylgdina. Sigrún Böðvarsdóttir og fjölskylda. Það eru ótvíræð lífsgæði að eiga góða vini. Gunnar Hauksson sem við erum að kveðja var einn slíkur. Hann kom inn í líf okkar í Skíðadeild Hrannar með virkum hætti. Það var á þeim árum sem lífið var tóm hamingja og maður trúði því að með því að vera góð manneskja, hegða sér sómasamlega, borða rétt og skaða engan eins og sagt er …yrði lífið bara auðvelt. Já og skemmtilegt. En því hefur enginn lofað. Það fengu þau Jóhanna kona hans að reyna. Samhent og af þeirri yfirvegun sem einkennir góðar manneskjur tókust þau á við lífið. Þanning héldu þau í hönd hvort annars til hinstu stundar. Samskipti ganga út á það að gefa og þiggja. Gunnar hafði mikla fé- lagshæfni og góða spauggreind. Hann var veitull á gleði sína, sem við nutum svo ríkulega í fjallinu, á ferða- lögum og á fallegu heimili þeirra hjóna. Fiskurinn sem hann dró upp úr vötnunum fyrir og eftir vinnutíma, og færði okkur, bráðnaði á tungu. Þetta voru allt hamingjustundir. Ótímabært fráfall hans færir okkur heim sanninn um að lífið er einungis að láni. Það er áminning um að lífið er hér og nú. Lagið „The First Hello The Last Good-bye“ sem Roger Whittaker söng hér áður, fjallar um það að þegar við heilsumst erum við jafnframt að kveðja. Við erum ekki hér til eilífðar og síðasta kveðjan kemur alltaf. Alltaf. Það er ekki hægt að tryggja sig fyrir því. Gunnar var ástríkur eiginmaður og umhyggjusamur pabbi sem gaf alla ást sína og gleði um leið og hann veitti börnum sínum aðhald og hvatningu í leik og starfi. Þau eru engir eftirbátar foreldra sinna. Þau hafa öll misst mikið. Á kveðjustundu er efst í huga okk- ar Guðmundar þakklæti fyrir gleðina sem var blönduð hlýjum hug og góð- vild til allra manna. Þannig fann hann einfalda leið að þeim sem voru sam- ferða honum í lífinu. Ástvinum hans öllum biðjum við blessunar. Vilborg Runólfsdóttir. Það var mikið áfall að heyra að góð- an vin og félaga til áratuga langt leiddan í baráttu sinni við alvarlegan sjúkdóm. Nú er hann fallinn frá í blóma lífsins, aðeins 58 ára. Við Gunnar kynntumst fyrst í starfi okk- ar fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 1974. Þá vakti strax athygli mína hversu duglegur, samviskusamur og einlæg- ur Gunnar var. Hann tók að sér hvert verkefnið á fætur öðru og leysti þau öll af mikilli útsjónarsemi og lipurð. Allir sem unnu með honum treystu honum til góðra verka. Honum verða seint fullþökkuð þau mikilvægu störf sem hann vann á vettvangi hverfafélaga Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík, m.a. sem for- maður hverfafélaganna í Laugarnes- hverfi og Fella- og Hólahverfi, formaður Varðar og þátttakandi í fjölmörgum nefndum og ráðum. Hann var einstaklega tillögugóður og lagði mikið á sig til að ná sáttum í þeim fjölmörgu erfiðu úrlausnarefn- um sem urðu á vegi hans í störfum á þeim vettvangi. Ég man sérstaklega eftir því að á þeim árum sem ég starfaði fyrir full- trúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík ásamt Hönnu Elíasdóttur ræddum við oft hve mikill og góður fengur væri að slíkum manni sem Gunnari til starfa fyrir flokkinn. Gunnar áorkaði miklu í þeim tilgangi að efla samstöðuna, byggja upp og sætta ágreining með sinni lipurð, góða skapi og hógværð. Hvarvetna sem Gunnar kom skildi hann eftir sig gleði og uppörvun, ekki síst þegar kosningaundirbúningur var í gangi. Samtöl við Gunnar um þau mál sem efst voru á baugi í þjóðmálum á hverj- um tíma voru bæði áhugaverð og upplýsandi. Gunnar kom víða við á lífsleiðinni og í öllum sínum störfum gat hann sér afar gott orð. Hann lagði mikla rækt við allt sem hann tók sér fyrir hendur, var ekki einungis yfirmaður, heldur vinur og samherji undirmanna sinna. Með þeim hætti náði hann miklum ár- angri, hvatti þá til dáða, aðstoðaði þá í ólíklegustu málum og lét sér annt um velferð þeirra. Gunnars verður sárt saknað. Sjálfstæðismenn í Reykjavík þakka honum ábyrgðarmikil störf í áratugi sem ávallt voru unnin af mik- illi samviskusemi og ósérhlífni. Fjölskyldu Gunnars og aðstand- endum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þessa góða drengs. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar. Fallinn er frá á besta aldri Gunnar Hauksson, eftir baráttu við erfið veik- indi. Gunnar var forstöðumaður hjá ÍTR og Reykjavíkurborg í tæpa tvo áratugi. Þegar litið er yfir afar far- sælan feril Gunnars hjá borginni eru þrjú orð sem koma upp í hugann, trúnaður, traust og vinnusemi. Trún- aður Gunnars við vinnuveitendur sína, notendur þjónustunnar og íþróttahreyfinguna var einstakur. Samviskusemi í öllum málum er sneru að rekstri og samskiptum var þannig að eftir var tekið. Traust hlaut Gunnar hjá öllum þeim sem við hann áttu samskipti og mikið traust bar hann til starfsmanna sinna og samstarfsfélaga hjá ÍTR. Vinnusemi Gunnars var aðdáunar- verð, alltaf var hann boðinn og búinn að bregðast við, þjóna borginni, skólanemum, íþróttaiðkendum, íþróttahreyfingunni og öðrum sem til hans leituðu. Allan sinn starfsferil hjá ÍTR heyrðist Gunnar aldrei segja nei, það orð var ekki til í hans orðasafni og aldrei var neitt verkefni óyfirstígan- legt. Alveg frá því að Gunnar átti fyrst við veikindin að stríða, var hann aldr- ei fáanlegur til að draga úr vinnu. Hann reyndi eftir fremsta megni og með miklum dugnaði að sinna sínu og í samtölum okkar við hann nú undir það síðasta fannst honum verst að hafa ekki lagst viku síðar inn á spít- alann því þá hefði hann náð að klára það mesta við undirbúning vetrar- starfsins. Fyrir hönd samstarfsmanna og vina þökkum við Gunnari frábær kynni. Minning um góðan dreng mun lifa meðal okkar. Fjölskyldu Gunnars færum við innilegar samúðarkveðjur. Ómar Einarsson. Steinþór Einarsson. Kveðja frá saumaklúbbnum. Við kynntumst Gunnari Haukssyni þegar Jóhanna vinkona okkar og skólasystir kynnti hann fyrir sauma- klúbbnum fyrir um 35 árum. Við fundum strax að þarna var kominn yndislegur maður og drengur góður, glaðvær og elskulegur. Við fórum nokkrar ferðir saman um landið, þá fyrstu að Kóngsstöðum í Skíðadal, þar sem hann hljóp upp um allar brekkur og tíndi ber og lék sér við krakkana okkar. Síðustu ferðina fór- um við að Höfðabrekku fyrir rúmu ári, um það leyti sem Gunnar fór að kenna sér þess meins sem dró hann að lokum til dauða. Flest okkar sáu hann í síðasta sinn nú í maí síðast- liðnum í veislu, þá var mjög af honum dregið, en samt var hann ótrúlega hress og kátur. Gunnar var mjög skipulagður og ábyrgur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Þegar hann var að stofna fjölskyldu fór hann til dæmis á mat- reiðslunámskeið til að verða liðtækur við eldhússtörfin. Einnig undirbjó hann sig fyrir félagsstörf og var síðar treyst fyrir ábyrgðarstöðum í þeim félögum sem fengu að njóta krafta hans. Hann gekk ungur í Sjálfstæð- isflokkinn og var alla tíð einlægur stuðningsmaður hans og var meðal annars formaður Varðar. Hann var bindindismaður og starfaði með bind- indisfélaginu Hrönn og þar eignuðust þau Jóhanna marga bestu vini sína. Gunnar var hrókur alls fagnaðar á mannamótum. Hann var mikill leið- togi og naut sín vel í góðra vina hópi. Iðulega opnuðu þau hjón heimili sitt og voru sem einn maður um að láta gestina njóta sín sem best. Gunnar var útivistarmaður og margar bestu stundir sínar átti hann við vötnin í nágrenni Reykjavíkur, þar sem hann stundaði veiðiskap, oft einn síns liðs en líka með góðum vin- um. Hann var göngugarpur og lengi leiðsögumaður í gönguferðum innan- lands. Gunnar starfaði um árabil í Rammagerðinni með föður sínum, en hefur verið forstöðumaður íþrótta- húsa hjá Reykjavíkurborg síðustu ár- in. Þau Jóhanna bjuggu allan sinn bú- skap í Breiðholti þar sem þau störf- uðu einnig lengst af. Gunnar vann fyrir Fella- og Hólakirkju, meðal annars sem formaður sóknarnefndar. Hann var einnig mikill stuðnings- maður Knattspyrnufélagsins Leiknis og bar hag félagsins mjög fyrir brjósti. Við í saumaklúbbnum minnumst hans þegar hann heilsaði upp á okkur þegar saumaklúbburinn var hjá Jó- hönnu, glaður og elskulegur og kyssti okkur allar, alltaf með spaugsyrði á vörum. Hann var mikill fjölskyldu- maður og stóð sem klettur með sínu fólki þegar erfiðleikar steðjuðu að. En skjótt skipast veður í lofti og mikið hefur nú reynt á fjölskylduna í erfiðum veikindum hans undanfarið ár. Við sendum henni innilegar sam- úðarkveðjur. Elsku Jóhanna, Aðal- björg, Haukur, Valur og aðrir ætt- ingjar og vinir, guð veri með ykkur öllum og gefi ykkur styrk. Kveðja frá saumaklúbbnum og mökum, Árný, Erna, Fjóla, María, Nína og Þuríður. Leirutá á Lambhaga við Þingvalla- vatn skipar sérstakan sess í huga ákveðins hóps silungsveiðimanna. Í skammdegi vetrarins dreymir þá um þennan stað við vatnið bjarta baðað geislum sumarsólar. Friðsældin og náttúrufegurðin einstök, fjallahring- urinn tignarlegur með Botnssúlur, Ármannsfell, Skjaldbreið og Hrafna- björg sem helstu djásn til norðurs en Arnarfell og Hengil til suðurs. Á þessum fagra stað í viðurvist himbrima, toppandar og kríu kynnt- ist ég Gunnari Haukssyni. Við hitt- umst þarna fyrir tilviljun, stóðum hlið við hlið, köstuðum flugum okkar út á vatnið og tókum tal saman. Hvatinn var einfaldlega þörfin fyrir að deila með öðrum, eða eins og segir í Háva- málum. Auðugur þóttist er ég annan fann. Maður er manns gaman. Umræðuefnið var veiðin, veiðiflug- urnar, fluguhnýtingar, bleikjan, fugl- arnir og náttúran almennt. Eftir þetta hittumst við Gunnar öðru hverju á sama stað og einnig við El- liðavatn og með okkur þróaðist kunn- ingsskapur sem byggðist á sameig- inlegu áhugamáli okkar. Ég er lánsamur að hafa fengið að njóta félagsskapar Gunnars. Hann var viðræðugóður og sannur náttúru- unnandi. Við deildum gleðinni sem fylgir góðum feng og yfir því að vera úti í fallegri náttúru snemma morg- uns við lognkyrrt veiðivatn. Síðast hitti ég Gunnar á Leirutá 16. maí í vor. Þann morgun var lítil veiði, en Gunnar náði samt tveim fallegum bleikjum á flugu sem hann hafði mik- ið dálæti á. Ég vissi að hann gekk ekki heill til skógar, en gerði mér von- ir um að honum væri að batna því að þarna út eftir er talsverður gangur. En því miður varð mér ekki að ósk minni. Ég veit nú að Gunnar fór þetta á viljanum og reyndar fleiri veiðiferð- ir eftir þetta uns kraftar hans voru þrotnir. Ég á eftir að sakna félagsskapar Gunnars á Leirutá, en aldrei mun ég koma þangað héðan í frá án þess að minnast góðs drengs og félaga. Og Killerar hnýttir eftir fyrirmyndinni sem hann gaf mér verða ávallt með í för. Jóhönnu, eiginkonu Gunnars, og öðrum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Megi góðar minning- ar um Gunnar lifa með okkur, sam- ferðamönnum hans. Björn Guðmundsson. Góður samstarfsmaður er fallinn frá langt um aldur fram eftir harða baráttu við illvígan sjúkdóm. Gunnar Hauksson kom inn í stækkandi hóp forstöðumanna íþróttamannvirkja í Reykjavík, er hann 1991 var ráðinn að nýju íþrótta- húsi, Austurbergi í Breiðholti. Þegar aðstæður breyttust var honum einnig falin umsjón aðliggjandi sundlaugar, Breiðholtslaugar, og enn bættust síð- ar við íþróttahús Seljaskóla og Kenn- araháskólans. Á þessu tímabili tók hann einnig að sér um 10 ára skeið formennsku skíðadeildar Hrannar sem á og starfrækir skíðaskála í Skálafelli. Gunnar naut virðingar og var afar vinsæll í starfi forstöðumanns, sem leysti af ljúfmennsku hvern þann vanda sem upp kom í samskiptum við íþróttafélög og sérsambönd. Gunnar átti í starfi sínu tíðar heim- sóknir á skrifstofu Íþróttabandalags- ins og var alltaf aufúsugestur. Það var létt yfir honum, stutt í húmorinn og hláturinn. Þá átti hann það til að skella fram tilvitnun úr Njálu en hana hafði hann lengi grandskoðað. Íþróttabandalagið þakkar sam- starf um tveggja áratuga skeið og vottar eftirlifandi eiginkonu og öðr- um aðstandendum hluttekningu og samúð. Fyrir hönd starfsfólks Íþrótta- bandalags Reykjavíkur, Sigurgeir Guðmannsson. Kveðja frá sóknarnefndum og starfsfólki Fella- og Hólakirkju Það getur verið erfitt að skilja reglurnar á leikvelli lífsins. Stundum eru menn teknir útaf í miðjum leik, menn sem virðast vera að gera góða hluti og valda sinni stöðu fullkom- lega. Menn eins og Gunnar Hauks- son. Í okkar augum var Gunnar ómissandi lykilmaður, duglegur og ráðagóður. Maður sem við máttum ekki missa. Gunnar þekkti leikreglurnar vel. Hann vissi að leiknum gæti lokið þeg- ar minnst varði og þegar hann veikt- ist horfðist hann í augu við þann möguleika af algeru æðruleysi. Hann óttaðist ekki. Hann treysti leikstjórn- andanum mikla. Hann treysti því að hvernig sem færi fyrir sér héldi leik- urinn áfram og leikið yrði til sigurs. Gunnar var ekki vanur að verma varamannabekkinn. Hann vildi taka þátt og leggja sitt af mörkum hvort sem var í einkalífi, starfi eða fé- lagsmálum. Gunnari var annt um fólk og hann var ætíð reiðubúinn til að taka þátt í að skapa gott og þroska- vænlegt samfélag þar sem allir fengu að njóta sín. Gunnar gaf kost á sér í sóknar- nefnd Fellasóknar árið 2003. Hann starfaði þar sem meðstjórnandi, gjaldkeri og síðan sem formaður þar til hann varð að draga sig í hlé vegna þeirra veikinda sem drógu hann til dauða. Hann notaði reynslu sína og þekkingu í þágu kirkjunnar og lagði áherslu á að fjalla opinskátt um hlut- ina svo sjónarmið allra komust til skila og allt var uppi á borðinu. Hann var óhræddur við að taka á erfiðum málum, alltaf málefnalegur og sann- gjarn. Og alltaf var stutt í brosið. Sem sóknarbarn í Fellasókn hef ég notið góðs af þeim hlutum sem Gunn- ar átti þátt í að koma til leiðar. Með öðrum sóknarbörnum vil ég þakka fyrir það. Sem samstarfsmaður í sóknar- nefnd eignaðist ég jákvæðan og ein- lægan félaga í skemmtilegu og áhugaverðu starfi. „Við leysum það!“ var viðkvæði hans þegar upp komu snúin mál. „Við leysum það í samein- ingu!“. Fyrir hönd okkar allra sem höfum unnið með Gunnari í Fella- og Hóla- kirkju vil ég þakka yndislega við- kynningu og vel unnin störf. Við geymum minninguna um mikinn öðl- ing og traustan vin í hjörtum okkar. Megi Drottinn blessa störf Gunnars og safnaðarstarfið allt. Við sem eftir erum á vellinum skulum þjappa okk- ur saman og halda leiknum áfram. Við vitum eins og Gunnar að við erum í vinningsliðinu. Sigurinn er í sjón- máli. Gunnar var mikill fjölskyldu- maður og skilur eftir sig samhenta og sterka fjölskyldu sem er honum til mikils sóma. Við sendum Jóhönnu, fjölskyldu og ástvinum Gunnars öll- um okkar innilegustu samúðarkveðj- ur og biðjum Drottin að blessa þau og styrkja í þeirra mikla missi. Það er bjart yfir minningu Gunn- ars. Hið eilífa ljós lýsi honum og okk- ur öllum. Í þeirri birtu er best að lifa. Og deyja. Gry Ek Gunnarsson, formaður sóknarnefndar Fellasóknar. Það var okkur félögunum mikið áfall, þegar við fengum fréttir af and- láti góðvinar okkar Gunnars. Hann kom upphaflega sem vara- maður inn í badmintonhópinn okkar en eins og hans var von og vísa varð hann fljótlega aðal-driffjöðrin. Hann var óþreytandi að drífa menn áfram sem meðal annars birtist í því að hann fékk bróður sinn Sigurð til að hlaupa í skarðið ef einhver forfallaðist til þess að tími félli ekki niður. Einnig innleiddi hann mót þar sem okkur gömlu körlunum gafst tækifæri til að keppa í tvenndarleik. Öll framkoma Gunnars á badmin- tonvellinum einkenndist af dreng- skap og dugnaði líkt og öll framkoma hans almennt í lífinu. Hann var mikill ljúflingur, ávallt glaður og hvetjandi án þess að vera með yfirgang og hló sínum dillandi hlátri, sama á hverju gekk. Við kveðjum með söknuði góðan dreng og vin og sendum Jóhönnu og fjölskyldunni okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Badmintonfélagarnir Einar, Hans, Júlíus og Sigurður. Í dag kveðjum við frábæran Leikn- ismann. Íþróttafélagið Leiknir var svo lánsamt að hafa Gunnar Hauks- son innan sinna raða. Gunnar kom inn í starf Leiknis þegar elsti sonur hans, Haukur, hóf að iðka knatt- spyrnu hjá félaginu. Gunnar varð strax áberandi í starfi félagsins og ekki fækkaði stundunum úti á Leikn- isvelli þegar yngri sonur hans, Valur, hóf að leika með félaginu. Hann lét sig sjaldan vanta á leiki og var dóttir hans Aðalbjörg oft með í för. Leikn- isfólk þekkir því vel jákvæð hróp hans og köll inn á leikvöllinn. Þegar við horfum til baka munum við eftir mörgum góðum stundum með Gunnari. Hann var þekktur fyrir góðmennsku sína og velvild og ekki að ástæðulausu sem hann var oft kall- aður „Gunnar góði“. Hann fylgdi son- um sínum og félögum þeirra vítt og breitt um landið á fótboltaleiki, þeim til stuðnings, hvort sem það var í yngri flokkum eða meistaraflokki, og eru til margar skemmtilegar sögur af því. Gunnar átti það líka til að bregða sér í hlutverk dómara og dæma leiki í yngri flokkum félagsins. Gunnar hefur fylgt félaginu í gegn- um sigra og ósigra með sína einlægu jákvæðni að leiðarljósi. Fáum fellur úr minni þegar Gunnar stóð upp á uppskeruhátíð Leiknis og hélt hvatn- ingarræðu eftir erfitt tímabil félags- ins. Honum tókst að breyta slæmri niðurstöðu sumarsins í jákvæða upp- byggingu á liðinu og félaginu í heild. Þarna sýndi Gunnar leikmönnum og félagsmönnum á eftirminnilegan hátt að það er alltaf hægt að finna já- kvæða þætti í lífinu, hvort sem það er innan vallar eða utan. Öll íþróttafélög þurfa að hafa mann eins og Gunnar innan sinna raða. Það hafa verið okkur Leiknismönnum for- réttindi að kynnast og starfa með Gunnari Haukssyni. Hugir okkar og hjörtu eru hjá fjölskyldu hans í ein- lægri samúð.Gunnar leit alltaf björt- um augum á lífið, minningin um hann mun ávallt lifa með okkur Leiknis- mönnum og hróp hans með: Koma svo Leiknismenn. F.h. Íþróttafélagsins Leiknis, Arnar Einarsson.  Fleiri minningargreinar um Gunn- ar Hauksson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.