Morgunblaðið - 04.09.2009, Side 45

Morgunblaðið - 04.09.2009, Side 45
Dagbók 45 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009 Sudoku Frumstig 1 6 3 4 2 4 1 6 3 9 8 5 7 5 4 3 2 9 6 7 5 2 1 5 2 1 5 7 6 9 1 2 3 6 7 3 9 8 2 6 8 4 7 9 6 5 5 9 8 8 7 5 9 1 3 9 3 1 6 5 2 7 6 4 7 3 7 6 4 5 1 7 4 6 5 9 8 3 1 2 5 8 9 3 2 1 4 7 6 1 2 3 7 6 4 5 8 9 6 1 5 8 4 7 2 9 3 3 7 8 2 5 9 6 4 1 4 9 2 6 1 3 8 5 7 8 3 4 1 7 2 9 6 5 9 5 7 4 3 6 1 2 8 2 6 1 9 8 5 7 3 4 5 1 3 4 6 2 9 8 7 4 2 9 7 8 1 6 5 3 7 8 6 3 5 9 1 4 2 9 3 8 5 1 4 2 7 6 1 7 4 2 3 6 5 9 8 2 6 5 9 7 8 3 1 4 8 5 1 6 2 7 4 3 9 3 9 2 8 4 5 7 6 1 6 4 7 1 9 3 8 2 5 1 6 7 4 5 8 2 3 9 3 4 2 6 9 7 1 5 8 5 8 9 1 2 3 7 4 6 9 7 3 2 8 6 5 1 4 6 2 4 3 1 5 9 8 7 8 5 1 9 7 4 3 6 2 2 3 8 5 6 9 4 7 1 7 9 5 8 4 1 6 2 3 4 1 6 7 3 2 8 9 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 4. september, 247. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta. (Mk 13, 27.) Athygli vakti að barnung dóttirMichael Jacson flutti tölu við minningarathöfn um hann. Þetta blöskraði sumum sem þótti út úr korti að barn skyldi vera sett í þessa aðstöðu sem eiginlega hæfði bara fullorðnum. Nú er sá siður í Ameríku að menn tala yfir kistum á persónulegum nót- um rétt einsog við Íslendingar skrif- um minningargreinar til birtingar í Morgunblaðinu. Og kemur þá í ljós að margt er líkt með okkur og Banda- ríkjamönnum, því oftar en ekki birt- ast minningargreinar frá börnum og unglingum og stundum minningarorð frá svo ungum börnum að ljóst er að þau hafa ekki burði til að setja slíkt á blað. Vel skrifaðar minningargreinar þykja Víkverja sjálfsagðar en barna- kveðjur eigi bezt heima í kistum við- komenda eins og var áður en það varð lenzka að birta þær opinberlega. x x x Nokkrir kunningjar Víkverja hafasetzt að á erlendri grundu og upplifað sitt af hverju meðan þeir eru að venjast siðum í framandi löndum. Nú síðast flutti einn til Kína. Eins og annars staðar er þar margt ólíkt með mönnum frá því sem við eigum að venjast, samanber eftirfarandi kafla úr einu Kínabréfi: „Þarna kynntist ég hinni miklu gestrisni Kínverja. Það er mikil kurt- eisi að troða mat endalaust í gesti og gestirnir borða á undan heimafólki. Mér fannst ég svo dónaleg að vera að háma í mig mat á meðan hinir biðu en svona er þetta hér og ekkert við því að gera.“ x x x Víkverji lagði í sumar leið sínavestur á firði og fór þá meðal annars í gegnum Búðardal. Víða hef- ur verið komið upp góðri aðstöðu fyr- ir ferðamenn, oftast á tjaldstæðum; borð og bekkir þar sem menn geta snætt nestið í friði og ró og oft fallegu umhverfi. En ekki í Búðardal. Þar voru hvorki borð né bekkir á tjald- stæðinu, þótt setjast megi undir verzlunarvegg með sinn heimabagga. En Víkverja þætti hitt samt vina- legra. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 skortir nær- ingu, 8 faðir, 9 mastur, 10 kvendýr, 11 böggla, 13 ákveð, 15 flaug, 18 svera, 21 sund, 22 kút, 23 trylltir, 24 getuleysi. Lóðrétt | 2 aðhlynning, 3 hafna, 4 knáa, 5 ótti, 6 fita, 7 vegg, 12 þreyta, 14 eignist, 15 vers, 16 ráfa, 17 skessum, 18 glæsileg, 19 látnu, 20 forar. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 hopar, 4 búkur, 7 renni, 8 rokið, 9 fót, 11 naut, 13 iðna, 14 ódæll, 15 barm, 17 lugt, 20 hal, 22 teppa, 23 ormur, 24 runni, 25 tolla. Lóðrétt: 1 hóran, 2 pontu, 3 reif, 4 burt, 5 kákið, 6 riðla, 10 ófæra, 12 tóm, 13 ill, 15 bátur, 16 ræpan, 18 urmul, 19 torfa, 20 hani, 21 lost. 6 8 11 15 22 1 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 O-O 5. O-O d6 6. Rc3 Rc6 7. d3 Rh5 8. e4 e5 9. h3 a6 10. Be3 Bd7 11. d4 exd4 12. Rxd4 He8 13. Hc1 Hb8 14. He1 Ra5 15. b3 Rf6 16. Dd3 c5 17. Rde2 Bc6 18. Hcd1 Bf8 19. g4 b5 20. cxb5 axb5 21. g5 b4 22. gxf6 bxc3 23. Rxc3 Dxf6 24. Rd5 Bxd5 25. Dxd5 He5 26. Dd2 Rc6 27. Bf4 Hh5 28. De3 He8 29. Dg3 Rd4 30. Be3 Rc2 31. He2 Rxe3 32. Dxe3 d5 33. Dd3 Hhe5 34. Hde1 d4 35. b4 cxb4 36. Dxd4 Bc5 37. Dd3 Dh4 38. Kf1 Hd8 39. Db3 Ha8 40. Dc4 Ha3 41. Hd1 Hc3 42. Da6 Kg7 43. Db7 Df4 44. Dd7 Dh2 45. Hd5 Staðan kom upp á 7. minningarmóti Stauntons sem lauk fyrir skömmu í London á Englandi. Rússneski stór- meistarinn Alexander Cherniaev (2428) hafði svart gegn Terry Chapman (2232). 45… Hg3! 46. Hxc5 Hxg2 og hvítur gafst upp enda fátt til varnar. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Draumfarir. Norður ♠ÁG9 ♥G10 ♦KD108 ♣D1094 Vestur Austur ♠D108753 ♠-- ♥D2 ♥876543 ♦95 ♦7632 ♣872 ♣ÁG5 Suður ♠K642 ♥ÁK9 ♦ÁG4 ♣K63 Suður spilar 6G. Freud sagði að ótti okkar og þrár kæmu fram í draumum. Allir spilarar óttast óleguna og þrá snilldina. Suður dreymdi draum. Makker hans opnaði á 1♦ og austur hindraði með 2♥, en svo tók suður völdin og keyrði í 6G. Spaði út og nía blinds átti fyrsta slaginn. Jafnvel í svefni er fljóttalið upp í 12 slagi með svíningu í hjarta. En þá læddist óttinn að: hvað ef ♥D er í vest- ur? Suður bylti sér í rúminu, en svo skyndilega færðist yfir hann angurvær kyrrð. Hann hafði séð hina fullkomnu lausn: að spila fyrst laufi á kóng, taka síðan slagina á spaða og tígul og byggja þannig upp upplýsingaþvingun á austur. Þegar suður vaknaði rifjaðist með hryllingi upp fyrir honum að hann hafði svínað fyrir ♥D í Sumarbrids kvöldið áður og sloppið með skrekkinn. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú hefur mun meiri áhrif á um- hverfi þitt en þú sjálfur heldur. Innri stöðugleiki er grundvallarþáttur þess að fá sem mest út úr deginum. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er mikill kraftur í þér en það skiptir öllu máli að beina honum í rétta átt svo þú fáir því áorkað sem þú óskar. Hvernig væri að fara á stað sem þú hef- ur aldrei komið á áður? (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þér finnst þú hafa verið að- krepptur í nokkurn tíma og þig langar til þess að varpa af þér okinu. Fólki í kringum þig tekst að lífga upp á þitt gáskafulla ímyndunarafl, ekki síst vatns- bera. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þér finnst fjölskylda þín óþægi- lega gagnrýnin og letjandi í dag. Hvað sem því líður dregur þetta ekki úr ár- angri þínum eða endurspeglar þig. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Rannsóknarhæfileikar þínir njóta sín svo sannarlega núna. Slakaðu á og njóttu þess að vera barnslegur. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú lætur hið hagnýta fyrir róða og einbeitir þér að því sem er skemmti- legt. Taktu þetta með í reikninginn og reyndu að líta sem best út. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú finnur löngun hjá þér til að gera eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til þess fyrr en síðar. Búðu þig undir að til þín verði leitað varðandi önnur störf. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú bætir upp fyrir að byrja daginn seint ef þú skipuleggur þig. Láttu ekki óskylda hluti villa þér sýn. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Leggðu þig allan fram og þú munt undrast hversu miklu þú kemur í verk með góðu móti. Nú skiptir öllu máli að halda þétt utan um budduna ef ekki á illa að fara. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það getur reynst erfitt að greina á milli þess sem má og hins sem ekki gengur. Taktu lítil skref í breyt- ingaátt til að byrja með. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Gamall vinur eða ættingi ber upp við þig mál, sem mun koma þér á óvart. Haltu þig fyrir utan allar skærur, þá fellur enginn blettur á mannorð þitt. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þér finnst þú einangraður um of og þér líður illa þess vegna. Reyndu að læra sem mest af sem flestum því það er gott veganesti út í lífið. Stjörnuspá 4. september 1949 Kirkjan í Möðrudal á Fjöllum var vígð. Jón A. Stefánsson bóndi byggði kirkjuna og skreytti. Meðal annars málaði hann altaristöfluna, sem sýnir fjallræðuna. 4. september 1973 Bókstafurinn z var felldur úr opinberu máli, m.a. embætt- isgögnum og kennslubókum, samkvæmt auglýsingu menntamálaráðuneytis. 4. september 1984 Níunda og síðasta hrina Kröfluelda hófst. Hún stóð í tvær vikur. Þetta var öfl- ugasta gosið og í því rann hraun sem var 24 ferkílómetr- ar. Eldarnir stóðu í níu ár, með hléum. 4. september 1998 Viðskiptaháskólinn í Reykja- vík (síðar nefndur Háskólinn í Reykjavík) var settur. Fyrsta skólaárið voru nemendur um þrjú hundruð. Skólinn tók við af Tölvuháskólanum sem hafði starfað í tíu ár. 4. september 2004 Hús nóbelsskáldsins Halldórs Laxness í Mosfellsbæ, Gljúfra- steinn, var opnað sem safn. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Elsa Lilja Eyj- ólfsdóttir, Hólm- garði 2b, Kefla- vík, verður sjötug 7. sept- ember. Í tilefni af afmælinu mun hún taka á móti fjölskyldu og vin- um í Oddfellow- húsinu í Grófinni 6, sunnudaginn 6. september, milli kl. 17 og 19. 70 ára „ÞAÐ verður haldin hangikjötsveisla í Tryggva- skála á Selfossi í kvöld og ég hlakka mikið til. Ég er svo mikill sveitamaður í mér að ég vil fá ekta sveitastemningu. Á eftir hangikjötinu verða síðan ekta rjómatertur frá tengdamömmu, með fullt af rjóma og alls kyns góðgæti,“ segir Magnús. Áttatíu gestum hefur verið boðið og verður kona Magn- úsar, Anna Margrét Magnúsdóttir, veislustjóri svo Magnús sagðist eiga von á óvæntum uppákomum. „Svo verður þarna hljómsveitin Sirkus, sem leikur fyrir dansi. Í henni er Fannar Freyr, elsti sonur minn, og þeir kunna öll gömlu góðu lögin,“ segir hann. Einhverjum gjöfum bjóst Magnús við og þá helst reiðhjólahjálmi. „Ég er búinn að nefna það við mitt fólk. Ég fer út að hjóla daglega og ég hef orðið var við það að fólk sem ég mæti er allt með hjálma og það lítur mig hornauga. Ef ég fæ hjálminn verð ég sáttur!“ Magnús sagðist líka vera búinn að láta fólk vita að hann vildi ekki nýjan, flókinn gemsa. Þessi fimmtán ára dugi vel. „Ég ræð við að hringja og senda sms og vil ekkert meira. Ég vil hafa þetta einfalt og þægilegt.“ Á hinum full- komna afmælisdegi fengi Magnús morgunverðinn í rúmið. Kannski honum verði að ósk sinni. sigrunerna@mbl.is Magnús H. Hreiðarsson, ritstjóri, 40 ára Hangikjöt og rjómatertur Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.