Morgunblaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 47
Menning 47FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2009
Eða ég reyni að
gleyma að ég dansi
og dansa þá eins og ég
hafi aldrei fyrr dansað. 50
»
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í Fen-
eyjum hófst með pompi og prakt í
fyrradag með frumsýningu á nýrri
kvikmynd ítalska leikstjórans Guis-
eppe Tornatore, Baaria, en sögusvið
hennar er Sikiley. Það þótti nokkuð
óvænt val því kvikmyndir frá Holly-
wood hafa jafnan verið opnunar-
myndir hátíðarinnar hin seinustu ár
og kvikmyndastjörnur úr drauma-
borginni stolið senunni á rauðum
dreglum. Hátíðin er besta kvik-
myndahátíð í heimi, að mati taív-
anska leikstjórans Ang Lee sem
gegnir hlutverki formanns dóm-
nefndar á hátíðinni í ár, dómnefndar
sem mun velja bestu myndina á há-
tíðinni og afhenda leikstjóra hennar
Gullljónið. Ang Lee hlaut Gulljónið
fyrir fjórum árum fyrir kvikmyndina
Brokeback Mountain.
Lee segir í spjalli við breska ríkis-
útvarpið BBC að í raun sé ekki hægt
að keppa um það hvaða kvikmynd sé
best því allar myndir séu góðar á
sinn hátt. Lee efast þó ekki um mik-
ilvægi kvikmyndahátíða og -verð-
launa og segir það t.d. hafa verið af-
ar mikilvægt fyrir asíska kvik-
myndagerð þegar Sjö samúræjar
Akira Kurosawa hlaut aðalverðlaun-
in í Feneyjum árið 1954.
Meðal þeirra mynda sem keppa
um aðalverðlaunin í Feneyjum í ár
er The Road með Charlize Theron
og Viggo Mortensen í aðalhlut-
verkum; endurgerð Werner Herzog
á The Bad Lieutenant og hin
franska White Material með Isa-
belle Huppert í aðalhlutverki. Þá
verður nýjasta mynd Michaels
Moore, Capitalism: A Love Story,
frumsýnd.
Reuters
Í Feneyjum Leikstjórinn Ang Lee.
„Besta
hátíðin“
Kvikmyndahátíðin í
Feneyjum hafin
Í DAG kl 14 verður haldin sýn-
ing á verkum tveggja, ungra
íslenskra fatahönnuða frá
Dream Catcher Clothing við
Humarskipið í Reykjavík-
urhöfn. Sýningin er hluti af Ís-
lensku tískuvikunni, Iceland
Fashion Week. Aðgangseyrir
er enginn.
Íslenska tískuvikan var
haldin fyrsta sinni árið 2000 en
það var Kolla Aðalsteinsdóttir
sem átti veg og vanda af því, að því er fram kemur
á vefsíðu tískuvikunnar, reykjavikfashion.is. Í
upphafi var ætlunin að vekja athygli á íslenskri
fatahönnun en fljótlega komu að henni hönnuðir
víða úr heiminum. Því er hún orðin alþjóðleg.
Hönnun
Dream Catcher
Clothing við höfnina
Húfa merkt Dream
Catcher Clothing
Á MORGUN kl. 17 mun Kling
& Bang gallerí opna sýninguna
Andvökur – Sleepless nights í
samvinnu við Truck Gallery í
Calgary í Kanada. Níu kan-
adískir myndlistarmenn sýna
verk sín, þeir Robin Arse-
neault, Ken Buera, Kay Burns,
Jason de Haan, Craig LeBlanc,
Kris Lindskoog, Walter May,
Phillip McCrum og Robyn
Moody. Sýningarstjóri er Dav-
id Diviney og segir hann sýninguna þróaða sem
„svar og endurgjald“ við sýningunni Sundogs
Contemporary Art from Iceland sem sex íslenskir
listamenn héldu í Alberta í fyrra. Frekari upplýs-
ingar má finna á slóðinni this.is/klingogbang.
Myndlist
Andvökur í Kling
& Bang galleríi
Verk á sýningunni
Andvökur
Í KVÖLD og annað kvöld kl. 20
verða tvær stuttar óperur
sýndar í Iðnó, The Telephone
eftir Menotti og Biðin eftir
Tariverdiev. Alexandra
Chernyshova, sópran, Michael
Jón Clarke, barítón, Daníel
Þorsteinsson, píanó, flytja The
Telephone, en Chernyshova
syngur ein í seinni óperunni.
Aðalsteinn Bergdal sér um
leikstjórn. Í The Telephone
segir af ástarþríhyrningi hinnar rússnesku Lucy,
kærasta hennar Ben og símans á heimilinu. Í Bið-
inni segir hins vegar af einmana söngkonu sem
bíður eftir draumaprinsinum með mikilli örvænt-
ingu. Frekari upplýsingar á idno.is.
Tónlist
Ástarþríhyrningur
og einmana kona
Alexandra
Chernyshova
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
JÓHANN Ágúst Hansen hefur
tekið við sem framkvæmda-
stjóri Gallerís Foldar af El-
ínbjörtu Jónsdóttur. Auk þess
hefur hann keypt þriðjung í
galleríinu af Elínbjörtu og eig-
inmanni hennar, Tryggva Frið-
rikssyni.
„Þetta hefur verið rekið sem
fjölskyldufyritæki síðan 1992.
Ég kom inn í fyrirtækið 1996
ásamt konu minni, sem er dóttir
Tryggva og Elínbjartar, þegar við opnuðum Gall-
erí Fold í Kringlunni. Við lögðum það gallerí af um
áramótin síðustu og í kjölfarið var ákveðið að ég
tæki við hluta af rekstrinum,“ segir Jóhann sem
mun áfram starfa sem listmunasali hjá galleríinu.
„Ég stefni ekki að því að beita mér fyrir miklum
breytingum innan Foldar, við höfum verið að efla
uppboðin og sýningarhald og munum halda því
áfram.“
Fleiri og betri myndir
Fyrsta uppboðið eftir sumarfrí verður í Galleríi
Fold á mánudaginn, Jóhann segir það líta vel út.
„Það eru komnar inn fleiri og betri myndir en voru
í vor. Við erum mest að eiga við gömlu meistarana
á uppboðunum og það eru komnar inn fínar mynd-
ir eftir Ásgrím Jónsson, Svavar Guðnason og Þor-
vald Skúlason. Svo er auðvitað alltaf einhverjar
myndir eftir Kjarval.“
Spurður hvort fólk selji verk í meira mæli eftir
efnahagshrunið til að losa um pening segir Jóhann
eitthvað vera um það.
„Flest verk sem við fáum í sölu koma inn vegna
þess að það er verið að skipta búum og eldra fólk
er að minnka við sig, en við finnum auðvitað fyrir
því líka að fólk selur núna til að losa um aura,“
segir Jóhann og bætir við að verðlækkun hafi líka
orðið á málverkum.
„Verðið síðasta vetur lækkaði töluvert og það
má alveg sjá 40% lækkun á sumum listamönnum
miðað við hvernig þetta var í hæstu hæðum 2006-
2007. Ég veit ekki hvort sú lækkun heldur áfram
enda ekki viss um hvort þeir sem selja eru tilbúnir
að láta verkin fara neðar. Ég veit ekki hvort ég get
sagt að botninum sé náð en einhverjum stöð-
ugleika er náð,“ segir Jóhann.
Komnar inn fleiri og betri myndir
Framkvæmdastjóri Gallerís Foldar segir verk sumra listamanna hafa lækk-
að um 40% miðað við árin 2006 og 2007 Fyrsta uppboðið á mánudaginn
Þorvaldur Verk eftir Þorvald Skúlason
sem verður boðið upp á mánudaginn.
Jóhann Ágúst
Hansen
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞAÐ er alltaf gaman þegar við
feðgarnir vinnum saman, og ég nýt
þess,“ segir maestro Vladimir
Ashkenazy, en hann stjórnar Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á fyrstu tón-
leikum starfsársins í Háskólabíói í
kvöld kl. 19.30. Einleikari á tónleik-
unum er sonur hans, Vovka Stefán
Ashkenazy píanóleikari.
Vladimir Ashkenazy á langan feril
að baki sem einn mesti píanóleikari
okkar tíma, og spurningin er, hvort
ekki sé erfitt fyrir soninn að spila
verk sem hann veit að pabbi þekkir í
þaula sem píanóleikari. „Ég reyni að
hugsa sem minnst um það,“ segir
Vovka, og brosir hlýtt til pabba síns
sem bætir strax við: „Það er mjög
gott samband á milli okkar. Við
þekkjum ógrynnin öll af tónlist, báð-
ir tveir. Það má segja að það sé ekki
mikið um óþekkta tónlist í dag, og
næstum hægt að fá hvaða verk sem
er á plötu.“
Vovka Stefán leikur einleik í einu
þekktasta verki píanóbókmennt-
anna, Wanderer-fantasíunni eftir
Schubert. En í kvöld verður hún
auðvitað ekki flutt sem einleiksverk,
heldur í hljómsveitarbúningi Franz
Liszts. Spurningin er hverju Liszt
gat bætt við snilldarverk Schuberts
fyrir utan það augljósa, hljómsveit-
ina.
„Liszt skapar verkinu önnur og ný
blæbrigði og notar „effekta“ eins og
hamraðri áslátt á píanóið og mikinn
blástur málmblásturshljóðfæranna.
Þetta gerir fantasíuna ef til vill
dramatískari og gefur henni vigt.“
Vovka Stefán kveðst reyna að
hugsa sem svo að hann sé að spila
verk eftir Schubert. „Þetta er Schu-
bert, með viðbótum frá Liszt, en það
er þó mismunandi eftir köflum. Liszt
leyfir Schubert auðvitað að njóta sín.
En þar sem Liszt bregður á leik,
með hamraða ásláttinn og „effekt-
ana“, þá er erfitt að hugsa um Schu-
bert.“
Hvert tónverk með sína sögu
Manfred-sinfónían er eitt af
mestu verkum Pjotrs Tsjaíkovskíjs,
og er sérstök fyrir það að í henni er
dulin saga, eða öllu heldur ljóðið
Manfred, eftir Lord Byron. Slíkt
kallast prógrammmúsík, þegar tón-
skáldið reynir að líkja eftir ákveð-
inni sögu og framvindu. Ég spyr
Vladimir Ashkenazy hvort tónverk,
sem bundið er slíkri sögu, bindi
hendur hljómsveitarstjórans á ein-
hvern hátt. „Nei, það skiptir í raun
engu máli, því ég lít svo á að hvert
einasta tónverk hafi sína sögu. Það
að sagan sé augljós gerir verk
hljómsveitarstjórans hvorki auð-
veldara né erfiðara. Þú skilur tón-
listina þegar þú hlustar á hana. Það
er hennar saga. Ég nota þó söguna
af Manfred sem Tsjaíkovskíj setti í
verkið og útskýri fyrir hljómsveit-
inni hvað hvert stef þýðir. En það
geri ég bara til að upplýsa og skapa
góð tengsl við hljómsveitina.“
Á morgun verður opið hús hjá Sin-
fóníuhljómsveitinni. Þar verður
óvænt dagskrá og vetrarstarfið
kynnt, og Vladimir Ashkenazy
stjórnar leik hljómsveitarinnar.
Liszt skapar
ný blæbrigði
Morgunblaðið/Golli
Ashkenazyfeðgar „Það er mjög gott samband á milli okkar,“ segir Vladim-
ir um samstarfið við Vovka. Þeir koma fram á Sinfóníutónleikum í kvöld.
Feðgarnir Vovka Stefán og Vladimir Ashkenazy í sviðsljósinu á Sinfóníutónleikum í kvöld