Morgunblaðið - 04.10.2009, Qupperneq 1
4. O K T Ó B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
269. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Holtagörðum
Opið í dag frá kl. 13-17
Frábær opnunartilboð
OPIÐ Í DAG!
PÖRUPILTURINN
POLANSKI
GLÓSU-
BÓKIN
Gluggað í
Psycho
MYNDAALBÚM
DÍSELLU
H
V
E
R
N
IG
V
A
R
Í
K
ÍN
A
,N
ÍN
A
?BESTU BÍÓ-MYNDIRNAR
FYRIR
ÁRUM70
SUNNUDAGUR
STJÓRNMÁL»8 MANNRÉTTINDI»4
Vestræn lýðræðisríki gagnrýna harka-
lega Mannréttindaráð Sameinuðu þjóð-
anna, UNHRC, fyrir ófagleg vinnubrögð,
hrossakaup og hlutdrægni. Á und-
anförnum þrem árum hefur aðildarríki
25 sinnum verið fordæmt fyrir mann-
réttindabrot, þar af var Ísrael skot-
spónninn í 20 skipti.
Kína og fleiri ríki sem ljóst er að
traðka stöðugt á mannréttindum fá
hins vegar silkihanskameðferð og músl-
ímaríki vilja takmarka mjög tjáning-
arfrelsið þegar íslam er annars vegar.
Framkvæmdastjórar SÞ hafa harmað
vinnubrögð UNHRC og forvera þess á
undanförnum árum.
Umdeilt ráð
Um miðjan sept-
ember tóku tug-
þúsundir manna
þátt í fjöldamót-
mælum gegn Bar-
ack Obama. Ýmsir
stimplar voru
dregnir á loft og
vildu menn mót-
mæla því að „sósí-
alismi“, „komm-
únismi“ og jafnvel
„nasismi“ væri að taka völdin í Banda-
ríkjunum.
Andóf gegn
Obama
Andlit Obama sett á
varmennið Joker.
ÞRÁTT fyrir að feðgarnir Pétur Gunnarsson rithöfundur og Dagur Kári Pétursson kvikmyndagerðarmaður hafi báðir rólegt yfirbragð og búi báðir yfir
leiftrandi sagnagáfu eru þeir ólíkir um margt. Þeir hafa fundið sögum sínum ólíkan farveg og beita gerólíkum aðferðum við vinnu sína. | 20
Morgunblaðið/Golli
Syngja hvor með sínu nefi
UNDIRTEKTIR eru almennt já-
kvæðar meðal þingmanna við til-
lögum Árna Páls Árnasonar félags-
málaráðherra um aðgerðir til að létta
greiðslubyrði almennings vegna hús-
næðis- og bílalána. Lilja Mósesdóttir
Vinstri grænum segir að aðgerðirnar
geri fólki kleift að leyfa sér meira,
„sem eykur eftirspurn og skapar at-
vinnu, og það skilar aftur auknum
skatttekjum, sem er akkúrat það sem
við þurfum í dag“.
En hún segir að áhrifin hefðu verið
meiri ef skuldabyrðin hefði líka verið
minnkuð, „sem ekki gafst svigrúm til,
meðal annars vegna þrýstings frá
AGS, skilst mér“. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknar, tekur undir að höfuðstóls-
lækkun hefði skilað jákvæðari áhrif-
um, „til dæmis losað um húsnæðis-
markaðinn“.
En lagt er upp með að ríkissjóður
beri engan kostnað af aðgerðunum og
ekki Íbúðalánasjóður, þar sem reikn-
að er með að lánin innheimtist að
fullu. „Kröfuhafar í bönkunum hagn-
ast á því að lánin haldist sem mest í
skilum,“ segir Árni Páll.
Formúlan er kunnugleg. „Í raun
byggist tillagan á sömu aðferðafræði
og notuð var í fyrirvaranum við Ice-
save,“ segir Tryggvi Þór Herberts-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
„Það er verið að plata fólk: Þú færð
afslátt á afborgunum þínum á morg-
un – þangað til einhvern tíma,“ segir
Þór Saari. „Víst kemur þetta fólki til
góða til skamms tíma, en það þarf að
gera eitthvað raunverulegt í þessu
máli.“ pebl@mbl.is | 12-13
Gott til
skamms
tíma
Þingmenn jákvæðir
en vilja ganga lengra
Morgunblaðið/Arnaldur
Þakið Skuldavandi heimila hefur
ratað á borð stjórnmálamanna.