Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 39
Umræðan 39BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009 NÚ SÍÐSUMARS bar það til tíð- inda í Gleðivík á Djúpavogi að þar voru sett upp listaverk Sigurðar Guðmundssonar myndhöggvara. Þetta náði at- hygli fjölmiðla, sem eðlilegt var, nema að Rík- issjónvarpið fjallaði aðeins stuttlega um málið og það í neikvæðum tón. Innihald fréttar- innar var meint óánægja ótil- greindra íbúa Djúpavogshrepps vegna kostnaðarhluta sveitarfé- lagsins í verkinu. Af fréttinni mátti ráða að þetta framtak orkaði tví- mælis. Ekki kom fram umfang þess og eðli, né skírskotun þess til um- hverfisins og hins framsækna anda sem sannarlega einkennir fámennt byggðarlag, sem mjög hefur þurft að berjast fyrir sínum hlut. Verkin sem um ræðir eru fjöl- margir skúlptúrar úr graníti, form- aðir sem egg. Hvert egg um sig er tileinkað tiltekinni fuglategund sem sjá má á hverju sumri í friðuðu fuglaskoðunarsvæði á Búlandsnesi, steinsnar frá þorpinu á Djúpavogi. Staðsetning þessara steineggja vekur athygli og er táknræn, ekki síður en verkin sjálf: Við Gleðivík á Djúpavogi var loðnubræðsla sem hætti rekstri og vélarnar voru seld- ar til útlanda. Eftir stóð verksmiðjubyggingin, lönd- unarbryggjan og stöplarnir undan löndunarmannvirkjunum. Má segja að leifar bræðslunnar hafi staðið þar sem ímynd þeirrar hverfulu gæfu og óblíðra skilyrða til styrk- ingar atvinnulífinu sem svo mjög einkennir íslensk sjávarpláss. Á undanförnum árum hefur Djúpavogsbúum tekist að vekja at- hygli á einstöku og ríku fuglalífi sem finna má á Búlandsnesi, rétt við bæjardyrnar. Aðstöðu hefur verið komið upp og svæðið verið kynnt hverjum þeim sem stunda vilja þá vistvænu dægradvöl að fylgjast með fuglum, sjá þá og taka af þeim myndir. Auk merkilegrar sögu staðarins, sem verður ljóslif- andi við heimsókn í gamla versl- unarhúsið Löngubúð, er fuglaskoð- unarsvæðið það áhugaverðasta í augum ferðamanna á þessum slóð- um. Nú er unnið að því að gera Djúpavog að viðkomustað skemmti- ferðaskipa og hefur það starf þegar skilað árangri. Gleðivík ber því nafn með rentu, þrátt fyrir allt. Fjölmörg smærri byggðarlög um land allt hafa mátt þola brottflutn- ing íbúa og hafa þó staðið í ströngu við að veita hverjum og einum góða þjónustu. Þau fá litla aðstoð í bar- áttu sinni og oft á tíðum lítinn skilning. En þegar lítið samfélag eins og Djúpivogur sýnir lífsvilja sinn eins glögglega og hér var gert er það allrar athygli vert. Lista- verkunum var komið fyrir á auðum stöplum sem standa í röð frá lönd- unarbryggjunni og upp að hinu auða verksmiðjuhúsi bræðslunnar fyrrverandi. Í stað þess að vera táknmynd vonbrigða og hnignunar hafa þessar járnbentu steintennur fengið nýtt inntak bjartsýni og lífs, sem tengt er von og vilja lítils sam- félags til að rata nýjar leiðir á eigin forsendum. Þar gleðja þau augu hvers sem njóta vill. Það var því með lítilli gleði að ég á dögunum sá umfjöllun Ríkissjón- varpsins um þetta menningar- framtak. Athyglinni var beint að því að sveitarsjóður hafði kostað tæpan helming verksins. Þó kom fram að heildarkostnaður þess var svo lítill að undrum sætir. Að óreyndu mætti halda að upphæðin dygði vart til meira en til flutnings- kostnaðar efnis á staðinn um lang- an veg, hvað þá meir. En það verða alltaf til úrtöluraddir gegn hverju framtaki á menningarsviðinu sem ráðist er í. Þær raddir munu þagna, en Djúpavogsbúar munu lengi og vel njóta nýrra dýrgripa í það góða safn sem fyrir var og von- andi líka þeirra einstaklinga sem láta hjartað ráða, fremur en mag- ann. ÞÓRHALLUR PÁLSSON arkitekt. Djásn í Gleðivík Frá Þórhalli Pálssyni Steinegg Sigurðar Guðmundssonar, myndhöggvara. Þórhallur Pálsson MIKIÐ er nú talað um að nýta mannauðinn sem best, sbr. ræður menntamálaráðherra, og eru það orð í tíma töluð. Í allflestum tilfellum er átt við að nýta sem best þá þekkingu sem ein- staklingurinn hefur aflað sér í skóla og því lengur sem hann hefur verið í skóla (að mennta sig) því verð- mætari á hann að vera þjóðfélaginu Samkvæmt þessu er sá sem hefur dvalið í skóla svo og svo lengi verð- mætari þjóðfélagsþegn, en sá sem lítillar skólamenntunar hefur aflað sér. Þetta tel ég ekki alveg rétt og þarna er nýyrði til alhæfingar of- metið. Ég tel að mesti mannauður hverrar þjóðar sé ævistarf og reynsla hvers þess manns og konu, sem við starfslok hefur skilað góðu og vönduðu starfi fyrir samfélag sitt óháð því hvort viðkomandi hafi langa skólagöngu að baki eða ekki. Nýting þess mannauðs sem býr í reynslu og þekkingu eldra fólks er stórlega vanmetin. Þegar fólk hefur lokið ævistarfi sínu, orðið 65 eða 67 ára og er komið á eftirlaun, þá er sú skoðun rík í þjóðfélaginu að þetta eldra fólk eigi að setjast í helgan stein og hætta öllum afskiptum af þjóðfélaginu. Oft er þetta fólk enn við góða lík- amlega og andlega heilsu og þá er slæmt, að setja þetta fólk til hliðar, því í þessu fólki býr að mínu mati verðmætasti mannauður hverrar þjóðar. Ég ætla að nefna nokkur dæmi þessu til staðfestingar. Umburðar- lyndi þróast með árunum og eldra fólk hefur að öllu jöfnu meira um- burðarlyndi en ungt fólk. Eldra fólk er að öllu jöfnu mjög skyldurækið og ábyrgðarfullt til allra þeirra starfa sem það tekur að sér. Nægjusemi og hógværð er yfirleitt meiri hjá eldra fólki en því yngra. Unga fólkið er kröfuharðara til lífs- gæða en það eldra. Einnig held ég að heiðarleiki, réttlætiskennd og al- menn dómgreind vaxi á langri lífs- leið. Sjálfsagt mætti fleira tína til, um mismun þeirra eldri og yngri, en yngra fólkið hefur margt fram yfir það eldra svo sem kraft, snerpu, flýti og færni á ýmsum svið- um. Þessi upptalning er eingöngu sett fram til að minna á, að það býr mik- ill mannauður í eldra fólki. Ég held að það sé mjög miður að eldra fólk sé ekki lengur við stjórn- unarstörf, t.d. hjá hinu opinbera. Það hefur yfirleitt rúman tíma, ílengist ekki of lengi í störfum (nátt- úrleg afföll) og örugglega ekki kröfuhart til launa (því það hefur sín eftirlaun). Öldungaráð hafa verið til frá örófi alda, eða frá því að sögur hófust, og verið stór þáttur í stjórnskipulagi þjóða og enn þann dag í dag er það talið nauðsynlegur þáttur stjórn- kerfisins. Mannauður er ekki aðeins góð þekking á einu sviði, hann er manngildið í sinni víðustu merk- ingu. Ég vil svo ljúka þessum hugleið- ingum með þeirri fullyrðingu, að þekking sem þrykkt er á blað og kennd nú í skólum sé reynsla og rannsóknir genginna kynslóða. HAFSTEINN SIGURBJÖRNSSON, ellilífeyrisþegi. Mannauður Frá Hafsteini Sigurbjörnssyni AÐGERÐIR ríkisstjórn- arinnar til lausnar vanda heim- ilanna sem kynntar hafa verið eru allsendis ófullnægjandi, leysa ekki vandann sem þeim er ætlað að leysa, lægja ekki óánægjuöldur og koma ekki í veg fyrir uppreisn og landflótta ungs fólks. Það sem gera þarf er að færa höfuðstól allra húsnæðislána til lánskjaravísitölu 1. maí 2008, fella niður vísitölutryggingu og breyta myntkörfulánum í al- menn húsnæðislán. Þá er meg- invandi heimilanna leystur og bankar og lánastofnanir neyð- ast til að vanda sig og hjól at- vinnulífsins fara að snúast. Kostnað af þessu skal greiða með sektum fjárglæframanna og eignum þeirra sem gerðar verða upptækar. TRYGGVI GÍSLASON, fv. skólameistari Mennta- skólans á Akureyri. Uppreisn og land- flótti Frá Tryggva Gíslasyni: NPA þjónusta og núverandi stofnanaþjónusta borin saman NPA Stofnanaþjónusta Notandi auglýsir eftir og ræður eigin aðstoðarmenn í vinnu. Notandi hefur engin áhrif á hver það er sem veitir aðstoðina. Er verkstjóri yfir eigin aðstoðarmönnum. Ákveður hvaða þarfir fyrir aðstoð skal uppfylla og hvernig aðstoðin er veitt. Hið opinbera er verkstjóri og ákveður og úthlutar aðstoðarmönnum, hvað þeir gera, hvernig, hvenær og tímafjölda. Getur lifað í samfélaginu á sama hátt og aðrir. Fær nauðsynlega aðstoð, t.d. til að geta lifað eðlilegu fjölskyldu- og félagslífi. Aðstoð oft aðeins veitt inni á heimilinu svo virk þátttaka utan heimilis er oft útilokuð. Margir upplifa félagslega einangrun. Fær fasta aðstoðarmenn. Í Noregi er 60% af einstaklingum með NPA með 1 til 2 aðstoðarmenn. Vegna vaktafyrirkomulags hérlendis og örra mannaskipta hafa mun fleiri aðilar komið að þjónustunni við hvern einstakling. Verkstjóri, einstaklingurinn sjálfur, ákveður hvenær aðstoðin er veitt. Hið opinbera ákveður hvenær aðstoðin er veitt (s.s. hvenær þú ferð í sturtu, borðar, ferð á fætur eða út úr húsi, leggur þig o.s.frv.) Sveigjanleiki. Einstaklingur ráðstafar sjálfur hvernig hann nýtir útthlutaðan tímafjölda. Ósveigjanleiki. Hið opinbera skipuleggur og ráðstafar úthlutuðum tímafjölda Ein samræmd þjónusta, sem einstaklingurinn skipuleggur og ráðstafar. Hefur bein samskipti við aðstoðarmenn frá upphafi til enda. Hið opinbera sleppur við daglega stjórnun á daglegu lífi einstaklings. Aðskilin, ósamræmd, ófullnægjandi þjónusta. Hið opinbera notar margar stofnanir til að þjónusta einstaklinginn. Skipulagið er sniðið að verksviði fagstéttanna. Meira skrifræði og meiri stjórnsýsla. NPA er fé- lagsþjónusta sem ætlað er að uppfylla þarfir fatlaðs fólks fyrir aðstoð heima og úti í samfélaginu og njóta þannig þess frelsis í daglegu lífi er ófatlað fólk tekur sem gefnu. Rétturinn til aðstoðarinnar á sér stoð í meg- inmarkmiðum Stjórn- arskrár Íslands og samnings Sam- einuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun. Markmiðið með NPA er að fólk með líkamlegar eða andlegar skerðingar og þörf fyrir aðstoð hafi möguleika á að lifa sjálfstæðu og virku lífi. NPA þjón- usta hefur ekki verið innleidd á Íslandi, en er þó veitt nokkrum einstaklingum á takmarkaðan hátt og í flestum tilvikum sem til- raunaverkefni. Á Norðurlöndum er þessi þjónusta við lýði og á sér lengsta sögu í Svíþjóð eða allt frá árinu 1993. 90% ánægð í Noregi Rannsókn á NPA í Noregi skil- greinir NPA-þjónustuna sem mik- inn árangur í þjónustu við fatlað fólk. 90% fatlaðra einstaklinga sem eru háðir aðstoð í daglegu lífi og eru með NPA, eru ánægð með þjónustuna. NPA þýðir færri að- stoðarmenn og meiri sveigjanleika í daglegu lífi. (Noregur, NHF, ØF skýrsla nr. 03/2003). NPA á sér ekki skýra lagastoð hér á landi. Opinberir aðilar sem koma að stofnanastýrðri aðstoð við fatlað fólk á eigin heimilum eru einkum svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra, félagsþjónustur sveitarfélaga og heimahjúkrun heilsugæslustofnana, en auk þess er aðstoð veitt inni á stofnunum og sambýlum þar sem fatlað fólk býr. Á næstunni býðst gott tæki- færi til að endurskoða stofn- anaþjónustuna og taka upp NPA- þjónustu þegar „málefni fatlaðra“ eins og það er kallað verða flutt frá ríki til sveitarfélaga. NPA færir völd og ábyrgð til fatlaðs fólks frá stofnanaþjónust- unni. NPA styður við frelsi fólks með þörf fyrir aðstoð og eykur möguleika þess til sjálfstæðs heimilishalds, fjölskyldulífs, menntunar og atvinnu á við aðra. NPA styður við jafnrétti og jafn- ræði maka fatlaðra einstaklinga. Styður við réttindi barna og jafnrétti kynja NPA-þjónusta gerir fjölskyldum fatlaðra barna kleift að lifa sínu lífi eins og aðrar fjöl- skyldur með börn. Foreldrarnir geta ákveðið og stjórnað daglegu lífi sínu eins og aðrar fjölskyldur. Börnin fá fasta, örugga og viðeigandi aðstoðarmenn skv. eigin vali foreldra. NPA gerir barni með mikla þörf fyrir aðstoð í daglegu lífi mögulegt að búa heima hjá sér eins og sjálfsagt þykir um önnur börn. 74% fólks með NPA þjónustu í Noregi telur þjónustuna „afar mikilvæga“ varðandi það að vera ekki háður fjölskyldu sinni og vin- um um aðstoð. Konur sérstaklega meta NPA sem „afar mikilvæga“ í enn stærra hlutfalli en karlar. (Noregur, NHF, Østlands- forskning: Selvstyrt og velstyrt? 2003.) Fatlað fólk, sem hefur þörf við aðstoð, getur í dag fengið þjón- ustu eins og heimaþjónustu sveit- arfélaga, heimahjúkrun heilsu- gæslunnar, félagslega liðveislu sveitarfélaga, frekari liðveislu svæðisskrifstofa ríkisins, þjónustu á stofnunum, þjónustuíbúða- kjörnum, sambýlum og skamm- tímavistun (hvíldarinnlögn) og maki fatlaðs einstaklings getur í vissum tilvikum fengið „umönn- unarbætur“. Öll þessi þjónusta er hugmyndafræðilega og skipulags- lega komin í öngstræti. Eitt af því sem einkennir þjónustuna er að í mjög takmörkuðum mæli er gert ráð fyrir að einstaklingurinn lifi virku lífi í samfélaginu og haldi sínum borgaralegu réttindum og skyldum. T.d. sé í námi, vinnu eða virku almennu félagslífi meðal fólks. NPA þjónustan snýr valda- pýramídanum við og setur fatl- aðan einstakling efst. Launakostn- aður vegna NPA-aðstoðarmanns er ekki meiri en starfsmanna nú- verandi opinberra þjónustuveit- enda. Hvaða hæfileika og fag- kunnáttu NPA-aðstoðarmenn þurfa að hafa ræðst af vilja og ákvörðun þess sem fær NPA- þjónustuna. Það er kominn tími til að fatlað fólk njóti fullra mann- réttinda í samfélaginu. Frelsi fatlaðs fólks og ábyrgð á eigin lífi Eftir Ragnar Gunn- ar Þórhallsson Ragnar Gunnar Þórhallsson » Á næstunni býðst gott tækifæri til að endurskoða stofn- anaþjónustuna og taka upp NPA-þjónustu... Höfundur er formaður Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.