Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009 Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is K reppan sigldi hraðbyri inn í fortíðina og velmegunin að taka á ný við stjórn- taumunum þegar árið 1939 gekk í garð. Reynd- ar voru blikur á lofti, síðari heims- styrjöldin að brjótast út í Evrópu og Asíu en Bandaríkjamenn stóðu enn utan við átökin. Níðingsverkið kennt við Pearl Harbour enn í hartnær tveggja ára fjarlægð og eftir harð- ræði áratugarins sem var að renna sitt skeið þyrptust íbúar í Vest- urheimi í bíó sem aldrei fyrr. Kvik- myndaverin kyntu óspart undir að- sókninni með óvenju stórbrotnu myndavali, ekkert var til sparað svo áhorfendur gætu skemmt sér, draumaverksmiðjan var á miklu flugi. Fram eftir árinu var furðu mikið umleikis á kvikmyndasviðinu í Evr- ópu, þótt „gamli heimurinn“ bærist á banaspjót. Í frostbitinni Moskvuborg var Pétur mikli frumsýnd í byrjun mars, Fransmenn voru afkastamiklir en stríðið batt enda á gróskuna með haustinu og setti jafnframt mark sitt á kvikmyndaiðnaðinn í öðrum lönd- un, eins og Bretlandi, þar sem fram- leiðslan datt niður í 40 myndir, sam- anborið við 228 tveimur árum áður. Vestur í Hollywood var aðra sögu að segja, það var ljóst að árgang- urinn yrði sterkur árið 1939. Miklu fé hafði verið varið í kvikmyndagerð ár- in á undan og það var að skila sér. Í öðru lagi höfðu evrópskir leikstjórar og handritshöfundar flykkst unn- vörpum til Bandaríkjanna undan ógn og dauðadómum Þriðja ríkisins. Ekki aðeins listamenn og framleiðendur af gyðingaættum, sem hafa löngum ver- ið áberandi í kvikmyndaheiminum, heldur sægur fólks af öðrum kyn- þáttum, líkt og eftirlætisgoð þýskra, leikkonan Marlene Dietrich. Hér á eftir verða kynntar 10 bestu myndir ársins, af nógu er að taka þegar það er skoðað og sjálfsagt ekki allir full- komlega sammála valinu á listann. Á hverfanda hveli (Victor Fleming) Ef sanngirni er gætt þá hefur eitt nafn vinninginn yfir ótrúlegt safn stórmynda sem voru frumsýndar á þessu merkisári. Það er að sjálfsögðu Gone With the Wind, sem Arnór Sig- urjónsson þýddi Á hverfanda hveli, sem er ein snjallasta og lífseigasta titilþýðing fyrr og síðar (þ.e.a.s. á meðan við höfðum metnað til að sinna móðurmálinu á þeim vettvangi). Hún var frumsýnd með mikilli viðhöfn í desember í suðurríkjaborginni Atl- anta, þar sem aðalsenurnar voru teknar. Hún fékk bullandi aðsókn, frábæra dóma og mun tróna til eilífð- arnóns á sínum stalli í sögunni. Á hverfanda hveli tók inn óheyrða summu í aðgangseyri, röskar 400 milljónir dala. Í gegnum árin var hún endursýnd æ ofan í æ um allan heim, ef þær tölur eru teknar með og öll upphæðin framreiknuð á raunvirði dagsins er þessi mikilfenglega, róm- antíska stríðsmynd úr þrælastríðinu með mest sóttu myndum allra tíma. Á hverfanda hveli er byggð á met- sölubók eftir Margaret Mitchell og ákvað framleiðandinn, David O. Selz- nick, að ekkert yrði til sparað til að hádramatískt söguefnið yrði raun- verulegra og glæsilegra en aðrar kvikmyndir. Selznick var maðurinn á bak við myndina, leikstjórnin er reyndar skráð á Victor Fleming, en hann varð jafnan að lúffa fyrir Selz- nick og lét ekki sjá sig á frumsýning- unni. Reyndar komu fjórir leik- stjórar og fimmtán handritshöfundar, þ.á m. F. Scott Fitzgerald og Ben Hect, að myndinni á einhverjum tímapunkti. Kvik- myndagerðin var því enginn dans á rósum og var fyrsti leikstjórinn, George Cukor, rekinn eftir árekstra við stjörnuna Clark Gable, sem var valinn af aðdáendum bókarinnar til að leika aðalhlutverkið, Rhett Butler. Erfiðlegar gekk að finna leikkonu til að túlka Scarlett O’Hara. Frægustu stjörnur tímabilsins, Bette Davis, Katharine Hepburn og Paulette Goddard, ásamt tugum annarra og 1.400 óþekktum almúgakonum sem tóku þátt í forvali um öll Bandaríkin, börðust um hlutverkið – sem féll að lokum í skaut bresku leikkonunni Vi- vien Leigh, sem hafði átt glæstu gengi að fagna á leiksviði og í bresk- um bíómyndum. Um þessar mundir voru til aðeins sjö fullkomnar technicolor-tökuvélar í kvikmyndaborginni og voru þær all- ar notaðar við gerð Á hverfanda hveli. Afraksturinn var hrífandi, margverðlaunuð klassík, tæpir þrír tímar að lengd og kostaði metfé, um fjórar milljónir dala, sem reyndist stórkostleg fjárfesting. The Wizard of Oz (Victor Fleming) Ef einhver mynd frá ’39 nær að rísa í námunda við GWTW er það önnur mynd frá MGM, The Wizard of Oz. Reyndar hefur verið meira um dýrðir í sambandi við 70 ára afmæli hennar en annarra mynda. Þar skipt- ir mestu að Galdrakarlinn í Oz er gjörsamlega tímalaust ævintýri fyrir alla fjölskylduna, klassík sem á ekki eftir að safna svo miklu sem einu ein- asta rykkorni í tímans rás. Til þess sér hrífandi leikur Judy Garland og óaðfinnanleg og hugvits- samleg aðlögun Noels Langleys á sí- gildu ævintýri L. Franks Baum, sem kom út aldamótaárið 1900. Enn þann dag í dag fær það hug lesenda til að taka flug hátt, hátt yfir regnbogann. Í myndinni úir og grúir af ódauðleg- um persónum, dæmisögum og ekki síst frábærum söngatriðum með Judy Garland, sem þá var ung og efnileg barnastjarna og gerði lagið Somewhere Over the Rainbow eitt það frægasta í allri kvikmyndasög- unni um ókomin ár. Þessi dýrasta kvikmyndagerð MGM fór fjarri því að ganga eins og í ævintýri. Leikstjórarnir komu og fóru. Richard Thorpe var sá fyrsti og George Cukor leysti hann af eftir nokkrar vikur og öllu sem var búið að festa á filmu var fleygt á haugana. Cukor hélt það út í þrjár vikur, þá var hann látinn taka pokann sinn og leitað til Victors Flemings, uns hann var látinn taka við stjórntaumum GWTW, og King Vidor kom síðan ævintýrinu í höfn. Þá gekk illa að manna aðalhlutverk Dórotheu; MGM vildi ólmt fá Shirley Temple, vinsæl- ustu barnastjörnu allra tíma, en 20th Century Fox var ekki á því að lána aðalkeppinautnum gullmolann sinn. Universal var á sama máli þegar MGM bar víurnar í Deönnu Durbin. Þá kom nafn Garland til sögunnar og það reyndist snilldarlausn sem er eignuð meistara Cukor. Efnismiklir og jafnvel varhugaverðir búningarnir ollu vandræðum og veikindum en verstu gallagripirnir á tökustað voru dvergarnir, af öllum mönnum. Hópur þeirra kemur við sögu og árið 1939 dugðu engar þekktar brellur til að koma í þeirra stað heldur þurfti að grafa þá upp í fjölleikahúsum. Þeir voru lífsglaðir mjög og var drykkju- skapur þeirra og spilafíkn illhemj- anleg. Stagecoach (John Ford) Vestrinn hafði einkennst um sinn af B-myndum, uns meistari John Ford geystist ofan úr Monument Valley, með þrjár stórmyndir í hnakktöskunni. Sú besta og frægasta er klassíkin Stagecoach, með John Wayne í sögufrægu hlutverki útlag- ans The Ringo Kid, sem gerði hann að stórstjörnu. The Kid bætist í hóp misjafnra sauða með ólík markmið og er myndin í senn hreinskilnari per- sónuskoðun en venja var þá og utan vagnsins var aðsteðjandi hætta og svo ægifegurð tökustaðarins. Myndin er merkur tímapunktur á ferli Fords og Waynes og jafnframt myndin sem gerði Wayne að nánasta samstarfs- manni leikstjórans um árabil. Í far- þegahópnum er einnig „gleðikonan með gullhjartað“, Claire Trevor; Thomas Mitchell (Óskarsverðlaun), John Carradine, Andy Devine og fleiri afbragðs skapgerðarleikarar. Ekki má gleyma stórfenglegri tónlist Richards Hagemans o.fl., sem einnig vann til Óskarsverðlaunanna ’39. Young Mr. Lincoln (John Ford) John Ford á heiðurinn af tveimur af minnisstæðustu stórmyndum árs- ins ’39. Eins og nafnið bendir til fjallar Young Mr. Lincoln um verð- andi 16. forseta Bandaríkjanna á sín- um yngri árum. Áður en hann gerðist þjóðhetja og baráttumaður gegn kynáttamisrétti og afnámi þræla- halds í Norður-Ameríku. Myndin segir frá 10 árum í lífi ungs og vel gerðs bóndasonar frá Kentucky, sem barðist til náms og lauk lögfræði- Sjötugar myndir Árið 1939 er af mörg- um talið eitt besta ár kvikmyndasögunnar. Lítum á ástæðurnar. Konurnar The Women fjallar um konur á gamansaman og alvarlegan hátt; hnyttin og andrík. George Cukor þótti snjall við að leikstýra konum. Togstreita Clark Gable og Vivien Leigh í Á hverfanda hveli. – meira fyrir áskrifendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 5. október. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105, kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt sérblað um tísku og förðun föstudaginn 9. október 2009. Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna haustið 2009 í hári, förðun, snyrtingu og fatnaði auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. Meðal efnis verður : Nýjustu förðunarvörurnar. Húðumhirða. Haustförðun. Ilmvötn. Snyrtivörur. Neglur og naglalökk. Hár og hárumhirða. Tískan í vetur. Flottir fylgihlutir. Góð stílráð. Íslenskir fatahönnuðir. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. Tíska og förðun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.