Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 14
14 Sakamál MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009 Eftir Ragnhildi Sverrisdóttur rsv@mbl.is L eikstjórinn Roman Polanski var handtekinn í Sviss fyr- ir rúmri viku og verður að líkindum framseldur til Bandaríkjanna. Þar eiga stjórnvöld óuppgerðar sakir við hann vegna atburðar í Kaliforníu fyrir 32 árum. Roman Polanski gaf 13 ára stúlku áfengi og róandi lyf og nauðg- aði henni. Á þeim 32 árum sem liðin eru hefur sagan smám saman breyst, Polanski í hag. Raunar höfðu margir samúð með honum þegar hann var ákærður á sínum tíma, enda hafði maðurinn gengið í gegnum hrylling þegar barnshafandi eiginkona hans, Sharon Tate, var myrt af Manson-genginu árið 1969. Og svo taldist hann til snill- inga í kvikmyndagerð. Það breytir því ekki, að hann nauðgaði 13 ára stúlkubarni. Hann átti ekki í ást- arsambandi við hana og hafði ekki samfarir við hana með hennar sam- þykki, eins og stundum er haldið fram, enda er ekki hægt að fá sam- þykki 13 ára barns fyrir kynmökum. Hann nauðgaði henni. Ljósmyndir fyrir Vogue Málskjölin í dómsmálinu gegn Pol- anski vegna nauðgunarinnar hafa verið gerð opinber. Þar kemur fram, að hann sóttist eftir að mynda stúlk- una, Samönthu Gailey. Hún kann- aðist við hann, af því að systir hennar var kærasta kunningja hans. Og þar að auki var maðurinn auðvitað fræg- ur, hafði til dæmis leikstýrt Rosem- ary’s Baby og Chinatown, en í síðari myndinni var Jack Nicholson í aðal- hlutverki. Polanski sagði stúlkunni að hann vildi mynda hana fyrir frönsku útgáf- una af tískuritinu Vogue. Þau hittust einu sinni og hann tók margar mynd- ir, þar af nokkrar þar sem hún var ber að ofan. Henni fannst það óþægi- legt, en reiknaði með að hann myndi ekki gera þetta, nema af því að það væri í lagi. Hann birtist svo aftur á heimili hennar nokkru síðar og vildi ólmur fá hana í myndatökur. Hún hafði hugs- að sér að fá vinkonu sína með, en leik- stjóranum lá á, það var farið að dimma og hann vildi nýta birtuna. Fyrst myndaði hann hana í húsi ekki fjarri heimili hennar, þar sem leikkonan Jaqueline Bisset bjó. Svo hringdi hann heim til Jacks Nichol- son og fékk leyfi til að nota húsið hans fyrir myndatökurnar. Þegar þangað var komið tók á móti þeim ráðskona, en hún fór og þau voru tvö eftir. Kampavín og lyf Myndatakan hófst og smám saman krafðist Polanski þess að stúlkan fækkaði fötum. Hann vildi að hún sötraði kampavín á meðan hann smellti af og hún varð drukkin. Þá gaf hann henni líka róandi lyf. Hann sagði henni að fara í heita pottinn. Sem hún gerði, nakin sam- kvæmt fyrirmælum hans. Hann fór svo sjálfur nakinn í pottinn til hennar, en hún fór þá upp úr, þrátt fyrir að leikstjórinn reyndi að halda henni í fanginu. Þá vildi hann að hún synti með sér í lauginni. Hún neitaði lengi vel, en stakk sér svo til sunds, synti laugina á enda og fór upp úr. Næst vildi hann að hún færi inn í svefnherbergi og legðist á rúmið. Hún fór inn í svefnherbergi, en sett- ist á sófa. Hann fylgdi á eftir og læsti hurðinni. Svo hófst nauðgunin. Hún bað hann allan tímann að hætta, en hann sinnti því ekki. En hún þorði ekki að streitast á móti, sagðist hafa verið skelfingu lostin, enda vissi hún að þau voru tvö ein í húsinu. Svo var bankað á dyrnar. Kona var við dyrnar og kallaði á Polanski. Hann fór í gættina, sagðist hafa verið í sturtu og myndi koma fram rétt bráðum. Stúlkan klæddi sig í nær- fötin á meðan, en Polanski lokaði hurðinni, sneri sér aftur að henni og lauk við að nauðga henni. Eftir nauðgunina klæddi stúlkan sig og fór fram. Konan, sem síðar kom í ljós að var leikkonan Angelica Huston, unnusta Jacks Nicholson, heilsaði henni og hún muldraði eitt- hvað til svars. Fyrir rétti sagði Ange- lica að stúlkan hefði virst fýluleg og það hefði sér þótt ruddalegt af henni. Stúlkan fór út í bíl Polanskis og sat þar grátandi. Hann kom út 10 mín- útum síðar, ók henni heim og bannaði henni að nefna atburði við móður sína. Tálkvendið Samantha En móðir hennar frétti samt af nauðguninni, frá systur stúlkunnar. Hún lét lögregluna strax vita og þá upphófst gríðarlegt fjölmiðlafár. Hús stúlkunnar var umsetið og blöð víða um heim birtu myndir af henni, stundum með þeirri skýringu, að þetta væri litla Lólítan, sem hefði táldregið leikstjórann. En hún var aðeins 13 ára og henni hafði verið nauðgað. Enn í dag birtast þó fréttir, þar sem sagt er að hún hafi átt í ást- arsambandi við Polanski, sem hafi komist upp og það sé ástæðan fyrir vandræðum Polanskis, en ekki sú staðreynd að hann er nauðgari. Roman Polanski játaði sakir, en gerði sér vonir um að hann þyrfti ekki að afplána fangelsisdóm. Þegar leið að ákvörðun refsingar óttaðist hann þó hið versta og flúði land. Hann hefur síðan verið á flótta undan bandarískri réttvísi og búið í Frakk- landi. Á þeim tíma hefur hann sótt um að málinu verði vísað frá, en ekki hlotið erindi sem erfiði. Hann telur hafa verið á sér brotið í málsmeðferð- inni. Hann mun hafa greitt Samönthu einhverjar bætur fyrir ódæðið. „Aumingja Polanski“ Samantha Gailey er nú 45 ára, gift, þriggja barna móðir og búsett á Hawaii. Af viðtölum, sem birst hafa við hana, er ljóst að atburðir í kjölfar nauðgunarinnar hafa reynt gríð- arlega á hana. Í viðtali við tímaritið People fyrir 12 árum sagði hún m.a.: „Afleiðingarnar voru verri en atburð- urinn þetta kvöld. Þetta var í kvöld- fréttum á hverju einasta kvöldi. Fréttamenn og ljósmyndarar komu í skólann minn og settu mynd af mér í æsifréttablað í Evrópu, með text- anum litla Lólíta. Allir sögðu: „Aum- ingja Roman Polanski, leiddur í gildru af 13 ára tálkvendi.“ Ég átti góða vinkonu, sem var af góðu kat- ólsku heimili, og pabbi hennar vildi ekki leyfa henni að koma heim til mín eftir þetta. Þetta var jafnvel verra fyrir mömmu, af því að allir sögðu að þetta væri henni að kenna. Ég þagði bara og vildi ekki tala. Ég var ljúf 13 ára stelpa, en svo breyttist ég í reið- an, 14 ára ungling. Ég var reið við lögfræðinginn minn, ég var reið við mömmu. Ég kenndi henni aldrei um það sem gerðist, en ég var reið af því að hún hafði hringt á lögregluna og þess vegna þurftum við að ganga í gegnum þessa eldraun. Núna veit ég að hún upplifði helvíti þegar hún reyndi að gera það sem rétt var.“ Missti tökin Móðir hennar hefur sannarlega fengið sinn skerf af umtali. Hún hefur margsinnis verið sökuð um að hafa lagt blessun sína yfir atburðinn, því henni hafi verið mikið í mun að koma dóttur sinni á framfæri sem fyr- irsætu. Svo langt hafa ásakanirnar gengið, að henni hefur verið líkt við melludólga. Fyrstu fimm árin eftir nauðgunina missti Samantha öll tök á lífi sínu. Hana hafði dreymt um að verða fyr- irsæta og leikkona, en hún gaf alla slíka drauma upp á bátinn. Segist ekki hafa treyst sér til að fara í prufur og jafnvel fá hlutverk, því hún vissi að nauðgunin myndi ávallt fylgja henni. Þess í stað hætti hún í skóla 16 ára, varð ófrísk 18 ára og giftist. Hún skildi við eiginmanninn áður en sonur þeirra varð eins árs og segir sjálf að þá hafi hún loks áttað sig á hvað skipti máli. Hún þurfti að sjá um soninn og hætta að láta nauðgunina og afleiðingar hennar stjórna lífi sínu. En því fær hún ekki ráðið. Í hvert sinn sem menn velta vöngum yfir flóttamanninum Polanski hefjast sím- hringingarnar. Hún gætir þess vel að börnin hennar svari ekki símanum. Í ljósi þessa er skiljanlegt að hún vilji að málinu ljúki loksins. „Þegar ég var yngri hafði ég enga stjórn á at- burðarásinni, en núna vil ég takast á við málið á mínum eigin forsendum. Ég finn ekki fyrir reiði í garð Pol- anskis. Ég get meira að segja fundið til nokkurrar samúðar með honum. Móðir hans dó í útrýmingarbúðum nasista, Sharon Tate konan hans var myrt af Manson-genginu og hann hefur lifað sem flóttamaður. Lífið hef- ur reynst honum erfitt, rétt eins og mér. Hann gerði viðbjóðslega hluti við mig, en fjölmiðlarnir eyðilögðu líf mitt.“ Mál að linni Samantha sagði í viðtalinu að henni væri alveg sama þótt Polanski fengi að snúa aftur til Bandaríkjanna. „Það væri fínt. Þá myndi þessu alla vega ljúka. Þessu lýkur aldrei fyrr en það gerist.“ Fjölmiðlar hafa gert mikið úr um- mælum Samönthu í áranna rás og haldið á lofti, að hún hafi fyrirgefið nauðgunina. Má þó öllum vera ljóst, sem lesa viðtöl við hana, að hún þráir það eitt að málinu ljúki. Hún vill fá að rækta garðinn sinn með manni og börnum á Hawaii, en ekki vera fyrr- verandi ástkona Polanskis, sem kom leikstjóranum dáða í klandur. Henni hefur verið refsað í rúma þrjá áratugi fyrir brot Polanskis. Hann var aldrei elskhugi hennar. Hann nauðgaði henni, 13 ára gamalli. Nauðgari, ekki ástmaður Reuters Nauðgari Kvikmyndaleikstjórinn Roman Polanski verður að líkindum framseldur til Bandaríkjanna, þar sem hann þarf loks að axla ábyrgð á nauðgun sem átti sér stað fyrir 32 árum. Hann hefur um langt árabil verið á flótta undan bandarískri réttvísi. Hér er hann að kynna eina mynda sinna fyrir þremur árum. Málalok Samantha Gailey, nú Samantha Geimer, vill að málinu ljúki og hún fái loks frið. Hún lýsti þeirri skoðun m.a. í viðtali við tímaritið People.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.