Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 46
46 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009 Sudoku Frumstig 8 2 6 6 4 1 5 7 3 6 8 5 7 1 4 2 9 7 5 4 2 3 9 2 5 3 1 9 2 8 4 6 5 3 1 8 5 3 3 9 5 1 2 6 4 9 8 9 7 2 7 2 3 4 8 6 5 7 6 4 3 1 3 2 6 5 1 9 3 8 2 7 3 9 1 4 6 8 5 9 1 4 6 8 5 2 3 7 6 8 5 3 2 7 1 4 9 8 4 2 5 6 9 7 1 3 5 3 1 4 7 2 9 6 8 7 6 9 8 3 1 4 5 2 1 2 8 7 5 6 3 9 4 3 9 7 1 4 8 5 2 6 4 5 6 2 9 3 8 7 1 8 4 6 2 1 3 7 5 9 3 9 2 5 8 7 4 1 6 7 1 5 6 9 4 8 2 3 4 5 1 9 6 2 3 8 7 9 3 8 4 7 5 2 6 1 6 2 7 8 3 1 5 9 4 1 8 4 3 5 9 6 7 2 5 7 3 1 2 6 9 4 8 2 6 9 7 4 8 1 3 5 2 1 9 6 5 7 3 4 8 5 7 6 4 3 8 9 1 2 3 8 4 2 1 9 6 5 7 6 2 5 7 8 4 1 9 3 1 9 7 5 2 3 8 6 4 8 4 3 1 9 6 7 2 5 9 5 8 3 6 2 4 7 1 7 6 2 8 4 1 5 3 9 4 3 1 9 7 5 2 8 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er sunnudagur 4. október, 277. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í sam- anburði við þá dýrð, sem oss mun op- inberast. (Rm. 8, 18.) Víkverji rak augun í sérkennilegaauglýsingu í sjónvarpsdagskrár- blaðinu Birtu. Auglýsingin er frá Samstarfshópi um vinnuvernd á Ís- landi. Í rauðum hástöfum stendur: EINELTI Á KENNARASTOF- UNNI! Þar er skorað á alla kennara sem hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni og „bolun“ að tilkynna það taf- arlaust til Kennarasambands Íslands. x x x Er virkilega svo ástatt innan kenn-arastéttar landsins að sérstök ástæða sé til að beina því til hennar að vara sig á kynferðislegu ofbeldi? Eru kennarar landsins upp til hópa veiklundað fólk sem ekki getur tekið á málum? Og eru kynferðispervertar innan kennarastéttar grasserandi í svo miklum mæli að ástæða sé til að senda út viðvörun í formi auglýsingar til værukærra kennara sem átta sig ekki á hættunni sem stafar frá þess- um mönnum? x x x Víkverji vinnur á fjölmennumvinnustað. Má hann eiga von á að Blaðamannafélagið sendi frá sér auglýsingu um að blaðamenn eigi að vara sig á kynferðislegri áreitni fé- laga sinna og kæra hana samstundis? Víkverja, sem er kvenkyns, varð það á um daginn að klappa einum yf- irmanna sinna, karlkyns, á öxlina. Víkverja þykir einfaldlega vænt um þennan mann og hugsaði snertinguna ekki sem kynferðislegt káf. Hann vonar innilega að yfirmaðurinn sé þeirrar gerðar að hann hafi þolað snertinguna. Víkverji er ekki alveg frá því að hann hafi jafnvel klappað yfirmanninum tvisvar. En þetta hlýt- ur að sleppa í þetta sinn því viðkom- andi yfirmaður er töffari af guðs náð og töffarar þola næstum því allt. Kannski Víkverji klappi honum bara í þriðja sinn. x x x Víkverji spyr sig líka að því afhverju sé verið í þessari auglýs- ingu að nota orð eins og „bolun“. Hvers lags orðskrípi er það nú eig- inlega? Svona ljótt og óþarft orð á hvorki að heyrast né sjást. víkver- ji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 skrautgjarn, 8 fiskveiðar, 9 hrósar, 10 slæm, 11 dregur, 13 mannsnafn, 15 æki, 18 ofsamaður, 21 guð, 22 ginni, 23 fuglinn, 24 ná- býliskona. Lóðrétt | 2 slóttug, 3 tal- ar, 4 lítill bátur, 5 skott- ið, 6 knippi, 7 ósoðinn, 12 bardaga, 14 sefa, 15 hæð, 16 ílát, 17 stíf, 18 ósvífin, 19 sárið, 20 skýra frá. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 trýni, 4 bolti, 7 nefna, 8 riftu, 9 níð 11 rýrt, 13 grun, 14 askur, 15 fork, 17 árás, 20 urt, 22 mokar, 23 efnuð, 24 linna, 25 glita. Lóðrétt: 1 týnir, 2 ýlfur, 3 iðan, 4 borð, 5 lifir, 6 Iðunn, 10 ískur, 12 tak, 13 grá, 15 fámál, 16 rakan, 18 rengi, 19 síðla, 20 urða, 21 teig. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. c4 e6 2. e4 b6 3. Rc3 Bb7 4. Rf3 c5 5. d3 Rc6 6. Bf4 d6 7. h3 Rf6 8. Be2 Be7 9. 0-0 0-0 10. Bh2 He8 11. a3 Bf8 12. Hb1 d5 13. e5 d4 14. Rb5 Rd7 15. b4 a6 16. Rd6 Bxd6 17. exd6 e5 18. Rd2 Db8 19. Bg4 Dxd6 20. Re4 Dc7 21. Bxd7 Dxd7 22. bxc5 Rd8 23. Rd6 Dc6 24. Dg4 h5 25. Dg3 He6 26. Rxb7 Dxb7 27. Hxb6 Hxb6 28. cxb6 Dxb6 29. Dxe5 Re6 30. f4 Rc5 31. f5 Hd8 32. f6 g6 33. De7 Hc8 34. Bd6 Rxd3 35. Hf3 Rc5 36. Kh2 Dc6 37. Hg3 Re6 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti í Reykjavík sem Taflfélag Bolungar- víkur hélt en Útgáfufélagið Sögur styrkti. Sigurvegari mótsins, stór- meistarinn Normunds Miezis (2.558) frá Lettlandi hafði hvítt gegn Birni Þorfinnssyni (2.395). 38. Hxg6+! Kh8 39. Dxf7 Dxd6+ 40. Kh1 Df8 41. Dxe6 He8 42. Df5 He1+ 43. Kh2 og svartur gafst upp. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Úlfakreppa. Norður ♠D1073 ♥ÁD103 ♦K63 ♣86 Vestur Austur ♠84 ♠95 ♥G2 ♥K9876 ♦D1085 ♦G9 ♣ÁG542 ♣D1093 Suður ♠ÁKG62 ♥54 ♦Á742 ♣K7 Suður spilar 4♠. Stundum er full ástæða til að efast um frelsi viljans. Eða hversu frjáls er austur þegar hann stendur frammi fyr- ir óvæntu tilboði sagnhafa í fyrsta slag? Skoðum málið. Vestur kemur út með ♥G og sagnhafi dúkkar! Hvað á austur að gera? Austur getur leyft makker að halda slagnum, en þá verður hægur vandi fyrir sagnhafa að trompsvína síðar fyr- ir ♥K og losa sig við eitt lauf heima. Hinn kostur austurs er að yfirdrepa ♥G með kóng til að spila laufi. Þá nær vörnin í laufslagina tvo, en á móti getur sagnhafi hent tíglum niður í ♥D10. Þótt austur hafi hér frjálst val á milli tveggja kosta ræður hann samt engu um útkomuna. Hann er í úlfakreppu, getur valið um tvær leiðir, sem báðar liggja til andskotans. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Misskilningur, tafir og óreiða hafa sett mark sitt á samskipti þín að und- anförnu. Láttu ekki aðra taka það sem er þitt. (20. apríl - 20. maí)  Naut Tvíburinn gefur og gefur og þegar kvöldar gleðst hann yfir viðleitni sinni. Aukið annríki og óreiða halda þér við efn- ið. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ert nú ekki heppilegasti mað- urinn til þess að bjarga heiminum á með- an þú getur ekki einu sinni skipulagt þitt eigið líf. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þið megið hvergi slaka á við að vinna fólk á ykkar band. Gefðu þér tíma til þess að vinna hugmyndunum fylgi. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Nú er rétt að taka aftur til við verk, sem þú slóst á frest fyrir nokkru. Lykill- inn að velgengi er að koma fram með eitt- hvað nýtt. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú þarft að berjast fyrir til- verurétti þínum í dag. Borðaðu annan mat en þú ert vanur eða farðu í fjallgöngu á stað sem einhver mælti með. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú hefur gaman af því að skiptast á hugmyndum við aðra. Nú er í lagi að bera sig eftir því sem þú óskar þér. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú þarft að tjá þig mjög skýrt í dag, jafnvel þótt þú eigir í samskiptum við fólk sem skilur þig oftast. Einhver ná- kominn þér fær kaupauka eða hlunnindi sem koma þér jafnframt til góða. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Nú verður ekki lengur undan því vikist að koma skikki á peningamálin. Gerðu bragarbót á því hið fyrsta. Vertu bara sátt(ur) við sjálfa(n) þig og und- irbúðu þig. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Gættu þess að þú látir ekki erf- iðleika þína bitna á þínum nánustu. Reyndu að setja þér reglur og fara eftir þeim. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú þarft að standa í fé- lagslegum leiðindum eins og afsökunum og öðrum átökum. Hið góða er að allir virðast skilja þig. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú ert friðsæll og í góðu jafnvægi og hefur því góð áhrif á alla í kringum þig. Sýndu þínum nánustu þolinmæði og hlýju. Stjörnuspá 4. október 1908 Þórhallur Bjarnarson, 52 ára forstöðumaður Prestaskólans, var vígður biskup yfir Íslandi. Hann var biskup til æviloka, 1916. 4. október 1928 Reykjavíkurborg keypti bronsafsteypu af Móðurást eftir Nínu Sæmundsson, að frumkvæði Listvinafélagsins. Tveimur árum síðar var stytt- unni komið fyrir í Mæðragarð- inum við Lækjargötu, en þetta var fyrsta listaverk eftir konu sem sett var upp í borginni. 4. október 1939 Þjóðviljinn sakaði ráðherra landsins um að hafa dregið að sér eldivið á skömmt- unartímum. Málið var nefnt Kolamálið. Lögreglurannsókn fór fram, ráðherrarnir voru hreinsaðir af þessum áburði og ritstjórar blaðsins dæmdir fyrir meiðyrði. 4. október 1956 Sjómannaþátturinn „Á frí- vaktinni“ hóf göngu sína í Út- varpinu. Morgunblaðið sagði að flutt yrðu „óskalög fyrir sjómenn á hafi úti“. Þátturinn var á dagskrá í áratugi. 4. október 1984 Verkfall BSRB hófst. Það hafði víðtæk áhrif, m.a. lá skólahald niðri, strætisvagnar gengu ekki og útsendingar Ríkisútvarpsins féllu að mestu niður. Samningar tókust 30. október. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… JÓHANNA Sigurðardóttir forsætisráðherra verð- ur 67 ára í dag. Þessi tímamót þýða að Jóhönnu er heimilt að fara á eftirlaun. Hún er hins vegar ekki á þeim buxunum að fara að taka það rólega. Starf forsætisráðherra er annasamt, ekki síst núna þeg- ar þjóðin stendur frammi fyrir miklum erf- iðleikum. Það hefur verið nóg að gera hjá Jóhönnu síð- ustu daga. Á miðvikudaginn leit út fyrir að rík- isstjórnin væri að falla í kjölfar afsagnar Önundar Jónassonar. Í gær ávarpaði Jóhanna landsþing Ungra jafnaðarmanna og afhenti bikarinn í bik- arkeppni KSÍ. Á morgun flytur Jóhanna stefnuræðu sína á Alþingi en þar fer hún yfir helstu stefnumál ríkisstjórnarinnar í vetur. Í framhaldinu hefjast umræður um fjárlagafrumvarpið og fleiri þingmál. Jóhanna var kosin alþingismaður Reykvíkinga 1978 og hefur setið á þingi síðan. Hún var félagsmálaráðherra á árunum 1987-1994. Hún varð aftur félagsmálaráðherra 2007 og forsætisráðherra 1. febrúar sl. Hún er fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra á Ís- landi. egol@mbl.is Jóhanna Sigurðardóttir fagnar 67 ára afmæli Nóg að gera alla daga ;) Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamt upplýsingum um fæðingarstað og stund, þyngd, lengd og nöfn foreldra, á netfangið barn@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.