Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 48
48 MenningGLÓSUBÓK MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009 Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is K vikmyndin Psycho eftir Alf- red Hitchcock, frá árinu 1960, er brautryðjendaverk og eitt af meistaraverkum kvikmyndasögunnar. Myndin gjörbreytti hrollvekjum og spennumyndum til frambúðar og hafði mikil áhrif á marga heimskunna leik- stjóra, m.a. Brian de Palma og John Car- penter. Psycho þykir merkileg fyrir margra hluta sakir, m.a. óvenjulega myndatöku og hrátt útlit miðað við kvik- myndir þess tíma sem hún var gerð á. Merkilegt þótti að Hitchcock vildi hafa myndina í svart/hvítu þegar litmyndir voru farnar að ryðja sér til rúms. En Al- freð vissi hvað hann var að gera, myndin sígilt meistaraverk og jafnvel talin besta hrollvekja kvikmyndasögunnar. Handritið að myndinni gerði Joseph Stefano og byggði það á skáldsögu Ro- berts Blochs, Psycho, eða Brjálæðingur. Aðalpersónu bókarinnar, Norman Ba- tes, mun Bloch hafa byggt að einhverju leyti á morðingjanum og grafarræningj- anum Ed Gein. Gein þessi gróf upp lík úr kirkjugarði í Wisconsin og bjó m.a. til minjagripi úr beinunum, að því er fram kemur á alfræðivefnum Wikipedia, og myrti tvær manneskjur að því er vitað er. Ódýr framleiðsla Sagan segir að Hitchcock hafi viljað að myndin liti út fyrir að vera ódýr og notaði sama tökulið og vann með honum við gerð sjónvarpsþáttanna víðfrægu. Psycho kostaði 800.000 dollara, sem var lítið á Hollywood-mælikvarða á þessum tíma, fyrir einum 50 árum. Myndin þótti heldur langt frá íburðarmiklum myndum meist- arans á borð við Rear Window og Vertigo. Hitchcock mun hafa sagt við kollega sinn Truffaut að hann væri að leikstýra áhorf- endum, að leika sér að þeim. Hann hefði gert „skemmtilega“ mynd (Hitchcock var mikill húmoristi). Myndin þótti ein sú skelfilegasta sem nokkru sinni hafði verið sýnd á hvíta tjaldinu þegar hún var frumsýnd árið 1960. Leikstjórinn beitti ýmsum brögðum til að áhorfendur fengju samúð bæði með morðingjanum og fórnarlambinu og setti þá um leið í spor þess sem fylgist bjarg- arlaus með glæpnum en getur ekki hætt að horfa. Í auglýsingum var fólk beðið sérstaklega um að segja ekki frá neinum óvæntum atriðum myndarinnar. En þó svo flestir kvikmyndaáhugamenn þekki söguþráðinn í dag og ekkert komi á óvart lengur má enn dást að frásagnarsnilld og frumlegri sýn meistara Hitchcocks. hún fyrir einkennilegan hóteleiganda, Norman Bates (Anthony Perkins), sem í fyrstu virðist hlédrægur og kurteis ungur maður. Hann segist búa einn með móður sinni í húsi ofan við hótelið og heyrir Marion þau rífast þegar hún er að koma sér fyrir á hótelherberginu. Fer svo að Norman myrð- ir Marion, eftir að hafa legið á gægjum og fylgst með henni, í víðfrægu og -stældu sturtuatriði myndarinnar, en áhorfendum talin trú um að ókunnug kona hafi myrt hana og þá líklega móðir Normans. Unnusti Marion fer að leita hennar sem og einkaspæjarinn Milton Arbogast, sem yfirmaður Marion réð til að hafa uppi á henni. Milton rekur slóð Marion að vega- hóteli Normans sem lýgur því að Marion hafi yfirgefið hótelið. Milton grunar að ekki sé allt með felldu og laumar sér síðar inn í hús Normans sem myrðir hann. Sam, unnusta Marion, og systur hennar, Lilu, er nú farið að gruna að ekki sé allt með felldu enda hafa þau verið í sambandi við einkaspæjarann frá því hann kom á hót- elið en lætur nú ekkert í sér heyra. Sam og Lila ákveða því að leigja sér herbergi á hóteli Normans og þykjast vera hjón. Eftir nokkur átök tekst þeim að yfirbuga Norman sem endar á geðsjúkrahúsi. Undir lokin kemur í ljós að Norman þjá- ist af persónuleikaröskun, að í huga hans takast á persóna hans sjálfs og látinnar móður hans sem hann myrti ásamt ást- manni hennar fyrir margt löngu. Átökum móður og sonar, þ.e. í huga Bates, hefur lokið með því að móðirin hafði betur. Hún er nú hinn ráðandi persónuleiki. Móðir og sonur Í Psycho segir af einkaritara í Phoenix, Marion Crane, sem leggur á flótta eftir að hafa stolið vænni fúlgu fjár af yfirmanni sínum til þess að geta gifst unnusta sínum, Sam, sem býr í Kaliforníu. Hún leggur á flótta til Kaliforníu með peningana og ákveður að gista á vegahóteli. Þar hittir Glósubókin: Psycho Í sturtu Marion Crane myrt í þekktasta sturtuat- riði kvikmyndasögunnar í Psycho, frá árinu 1960. Mættu á réttum tíma! Hitchcock á aug- lýsingaveggspjaldi. ALÞJÓÐLEGT ráð kvikmynda- leikstjóra úr fremstu röð var árið 1999 beðið um að velja bestu kvikmynd Hitchcock og varð Psycho fyrir valinu. Meðal leik- stjóra í ráðinu voru kanónur á borð við Martin Scorsese og Baz Lurhmann en það var tímaritið Sight and Sound sem bað þá um að velja, í tilefni af því að 100 ár voru þá liðin frá því meistarinn fæddist. Tveimur árum síðar var Psycho krýnd spennuþrungnasta, kvik- myndin, af öllum þeim sem fram- leiddar hafa verið í Bandaríkj- unum, af Bandarísku kvikmyndastofnuninni. Ókindin lenti í öðru sæti og Særingamað- urinn í því þriðja. Besta mynd Hitchcock NOKKRAR framhaldsmyndir hafa ver- ið gerðar um hinn fársjúka morðingja Norman Bates, auk endurgerðar og sjónvarpsþáttar. Anthony Perkins lék í þremur, Psycho 2 og 3 og sjónvarps- myndinni Psycho 4. Sú síðastnefnda segir sögu Bates áður en Marion Crane kemur til sögunnar. Skal engan undra að framhaldsmyndirnar þóttu verri en fyrsta myndin. Þá átti að gera sjón- varpsþætti byggða á Psycho, Bates Mo- tel, en fyrsti þátturinn þótti svo slakur að ákveðið var að gera heldur sjón- varpsmynd. Árið 1998 gerði Gus Van Sant end- urgerð, ramma fyrir ramma, af meist- araverki Hitchcock en reyndar í lit. Vince Vaughn fór með hlutverk Norm- an Bates og Anne Heche með hlutverk Marion Crane. Myndin hlaut heldur dræmar viðtökur gagnrýnenda. Þá gerði Jonathan M. Parisen kvikmynd- ina A Conversation with Norman fyrir fjórum árum, en hún er byggð á mynd Hitchcocks. Sú mynd fær 4,1 af 10 í Imdb.com og litla sem enga gagnrýni um hana að finna. Framhaldsmyndir og endurgerðir Aftur Úr endurgerð Gus van Sant frá árinu 1998. PSYCHO hefur að geyma eitthvert hryllilegasta atriði kvikmyndasög- unnar, sturtuatriðið góðkunna. Það atriði er merkilegt fyrir margra hluta sakir og gríðarlega flókið ef litið er til þess að sjónarhorn myndavélarinnar eru 77 talsins í þessu eina atriði, þó atriðið sé að- eins um þrjár mínútur að lengd. Hringformið er mjög áberandi í sturtuatriðinu og reyndar er það gegnumgangandi í myndinni al- mennt; augu í uppstoppuðum fugl- um, auga Norman Bates í gægju- gatinu, niðurfallið í baðinu og sturtuhausinn m.a., og hafa kvik- myndaspekúlantar á freudískum nótum sagt þau tákn fyrir kven- mannssköp sem mæti hinum ýmsu reðurtáknum í myndinni, hnífum og goggum á fuglum til dæmis. Þessi tákn hafa svo verið sett í sam- hengi við kynferðislegan undirtón myndarinnar og gægjuþörf manns- ins. Með augum morðingjans Myndatakan upp í sturtuhausinn í þessu atriði þótti afar frumleg á þeim tíma sem myndin var gerð og þurfti að útbúa sérstakan sturtu- haus fyrir tökuna og beita sérstakri linsu. Vatnið rennur ekki út úr miðju haussins en auga áhorfand- ans veitir því ekki athygli. Eftir að Norman myrðir Marion er aftur sýnt upp í sturtuhausinn en þvínæst farið ofan í niðurfallið, blóðblönd- uðu vatninu fylgt þar ofan í. Nið- urfallið rennur saman við annað auga Marion, sem liggur látin á gólfinu og myndavélin færist löt- urhægt út frá því með örlítilli hringhreyfingu, líkt og morðinginn sé að virða fyrir sér fórnarlambið. Áhorfandinn sér fórnarlambið með hans augum, er settur í hans spor. Þaðan er haldið út af baðherberg- inu og inn í hótelherbergið í einni töku, allt með auga morðingjans. Það tók Hitchcock og félaga sex daga að taka þetta sígilda atriði. Blóðugt steypibaðSpilað með áhorfendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.