Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009 ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 47 28 5 09 /0 9 * Innifalið: Flug ásamt flugvallarsköttum, gisting í 3 nætur með morgunverði, rútuferðir til og frá flugvelli erlendis, einnig í Jónshús og í „Fisketorvet“. Skoðunarferð um Kaupmannahöfn, kvöldverður á Copenhagen Corner, aðgöngumiði í Tívolí og “julefrokost” á Restaurant Kronborg og fararstjórn. Uppgefið verð getur breyst til samræmis við hækkun á eldsneytisgjaldi og álögðum sköttum og gjöldum. Verðið m.v. gengi 27. ágúst 2009. KAUPMANNAHÖFN AÐVENTUFERÐIR FYRIR ELDRI BORGARA VERÐ 99.200 KR.* Á MANN Í TVÍBÝLI (AUKAGJALD FYRIR EINBÝLI: 17.700 KR. Ferðadagar: 15.–18. og 22.–25. nóvember. Íslenskir fararstjórar: Erla Guðmundsdóttir / Emil Guðmundsson + Bókanir á www.icelandair.is/hopar. (Númer hópa er 1207). Nánari upplýsingar hjá Hópadeild Icelandair í síma 50 50 406 eða með tölvupósti á hopar@icelandair.is FORSÍÐUFRÉTT birtist í Morg- unblaðinu í liðinni viku sem ótrúlega litla um- ræðu hefur hlotið og ekki málefnalega. Ís- landsbanki sem einu sinni hét Glitnir býður skuldurum erlendra lána að taka fjórðung þeirra á sig gegn því að skuldarar breyti þeim í innlend óverðtryggð lán. Tónn fréttarinnar í Morgun- blaðinu var að loksins væri nú eitt- hvað gert fyrir skuldara þessa lands. En er það svo? Á sínum tíma plötuðu bankarnir stóran hluta landsmanna til að taka erlend lán á tímum há0gengis. Þegar að er gáð er það afar óskynsamlegt að skuld- setja sig í erlendri mynt þegar gengi krónunnar er mjög hátt og skulda- byrði þessa fólks er mikil í dag. Sjálfur er ég í þessum hópi þó í litlu sé því ég skulda um 8,5 milljónir í erlendu myntkörfuláni og gerði það í miklu grandaleysi að samþykkja uppástungu bankans um að lánið væri með þeim hætti. En þó að slæmt hafi verið að taka erlent lán á hágengistíma er ennþá verra að vera svo vitlaus að skipta því láni yfir í innlent lán á lággengis- tíma. Með því að bjóða 25% afslátt af láninu er Íslandsbanki í raun og veru bara að veðja á að íslenska krónan muni hækka um 20-30%. Birna Einarsdóttir bankastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið: „Við værum ekki að bjóða upp á þessi lán ef við teldum ekki að þetta hjálpaði okkar viðskiptavinum.“ Af hverju segir bankastjórinn ekkert um það hvernig þetta kemur við hagsmuni bankans, hvar bankinn ætlar að hafa fyrir þessum 25% en kemur fram eins og sá jólasveinn sem gefur fólki eftir 25% skulda. Staðreyndin er að bankinn er ekki að gefa þessum skuldurum neitt, hann er að reyna að hafa enn meira af þeim. Ef og þegar krónan hefur styrkst um 40% þá hefur bank- inn grætt umtalsvert á þessum lánabreyt- ingum og lánþeginn sem áður var plataður til að taka erlent lán á hágengistíma situr aft- ur uppi með að hafa verið plataður. Það er vissulega mikil óvissa um gengisþróun næstu missera en miðað við að hér sé um að ræða lán til nokkurra ára er eng- inn vafi á að áhætta við að taka hinu frábæra tilboði er algerlega óásætt- anleg. Þannig sagði Baldur Pét- ursson hjá Endurreisnarbanka Evr- ópu í samtali Morgunblaðið í síðustu viku að gengi krónunnar væri í reynd 30% of lágt skráð og fullvíst má telja að innan fárra ára mun krónan hækka um að minnsta kosti þau 30%. Þar fyrir utan er mér mjög til efs að hægt sé að lækka greiðslubyrði af láni með þessum hætti. Sjálfur prófaði ég að setja mitt 8,5 milljón króna lán í þennan reiknifarveg en mánaðarleg greiðslubyrði af því í dag eru 71 þúsund krónur og fer lækkandi. Lánið er til ársins 2022. Ef ég nú færi þessar 8,5 milljónir niður um 25% í 6,4 milljónir í ís- lensku óverðtryggðu láni með 12% vöxtum þá verður mánaðarleg af- borgun 106 þúsund sem er síðast þegar ég vissi hærri tala en 71 þús- und. Ef ég stilli íslenska lánið af í jafngreiðslum verður afborgunin samt hærri en af því erlenda eða 82 þúsund. (Í fljótu yfirliti get ég ekki séð á heimasíðu Íslandsbanka hvaða vexti bankinn miðar við í þessu sam- bandi en jafnvel þó miðað sé við um- talsvert lægri vexti t.d. 7% þá verð- ur afborgunarbyrði engu að síður liðlega 80 þúsund). Ef krónan styrkist þó ekki sé nema um 25% þá lækkar afborg- unarbyrðin hjá mér á erlenda láninu niður í um 53 þúsund meðan sá sem skiptir samskonar láni í krónulán hjá Birnu borgar áfram 80-105 þús- und og er því með allt að tvöfalda greiðslubyrði við það sem vera þyrfti. Í einkavæddu bönkunum sem nú hafa sungið sinn söng ríkti einhver undarleg bábylja um að allir gætu alltaf grætt, skuldarar og fjár- magnseigendur, bankar og við- skiptavinir. Greiningardeildir þess- ara banka stóðu í að halda að okkur glansmyndum skuldasöfnunar sem stóðust enga skoðun. Það er mín til- finning að sami andi svífi enn yfir vötnum í Íslandsbanka og 25% nið- urfellingin hafi verið sett fram með þeim öfugsnúna hugsunarhætti að báðir gætu grætt. Staðreyndin er að bankinn hefur samt reiknað sinn gróða út með meira öryggi og líkleg- ast að þeir sem hlýða fagurgala Ís- landsbanka nú sitji innan skamms uppi með enn verri stöðu. Samt er þetta einmitt sá hópur sem mál er að bankarnir hætti að hafa að fé- þúfu. Það er aldrei gott að höggva tvisvar í sama knérunn. Um gylliboð Íslandsbanka Eftir Bjarna Harðarson »En þó að slæmt hafi verið að taka erlent lán á hágengistíma er ennþá verra að vera svo vitlaus að skipta því láni yfir í innlent lán á lág- gengistíma. Bjarni Harðarson Höfundur er bóksali.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.