Morgunblaðið - 04.10.2009, Síða 8
8 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
„ÞÚ lýgur!“ Þessi orð bergmála nú í pólitískri um-
ræðu í Bandaríkjunum. Tvö orð hrópuð í miðri
ræðu Baracks Obamas Bandaríkjaforseta um heil-
brigðismál á þinginu þykja bera vitni þeirri heift,
sem nú einkennir umræðuna á hægri væng banda-
rískra stjórnmála. Joe Wilson, þingmaður repú-
blikana, segir að hann hafi ekki kallað Obama lyg-
ara að yfirlögðu ráði. Wilson segir að orðin hafi
sprottið ósjálfrátt af vörum sér og nú keppast
fréttaskýrendur við að greina frammíkallið; búa
kynþáttafordómar að baki eða ofbauð þingmann-
inum einfaldlega málflutningur Obama í heilbrigð-
ismálum? Víst er hins vegar að stuðningsmönnum
hans mislíkaði ekki stimpillinn, sem hann gaf for-
setanum. Eftir hrópið hafa milljón dollarar flætt í
kosningasjóði hans.
Venjan er sú að þegar forsetar ávarpa Banda-
ríkjaþing eru þeir aðeins truflaðir með lófataki, en
ekki svívirðingum, sama hvað grunnt er á því góða
milli þeirra og þingheims. En frammíkallið end-
urspeglar þá harkalegu umræðu, sem beinist gegn
stjórn Obama – og reyndar stjórnkerfinu öllu.
Hægri menn hafa hingað til ekki verið at-
kvæðamiklir í fjöldamótmæladeildinni ef frá eru
taldir andstæðingar fóstureyðinga. Fjöldamótmæli
hafa verið látin vinstri vængnum eftir – þar til 12.
september þegar tugir þúsunda manna söfnuðust
saman í Washington til að mótmæla því að „sósíal-
ismi“ væri að ná yfirhöndinni í Bandaríkjunum.
Reiði mótmælenda beindist að því að óheyrilegu fé
hefur verið mokað í að bjarga bönkum og bíla-
framleiðendum. Þeir eru andvígir breytingum á
heilbrigðiskerfinu og finnst fjárlagahallinn kominn
úr böndum. Á einu skilti stóð skrifað „Yf-
irsníkjudýrið“ við mynd af Obama í ræðupúlti, á
annað var letrað „Obammúnismi er kommúnismi“.
Fjöldamótmælin í Washington eiga rætur sínar í
borgara- og mótmælafundum, sem hófust í vor og
eru afsprengi umræðu sem hefur átt sér stað lengi
á vefsíðum og blöðum íhaldsmanna. Hreyfingunni
hefur verið gefið nafnið Teveislan og er þar vísað
til þess þegar andstæðingar breskrar skattheimtu
hentu nokkrum teförmum í höfnina í Boston árið
1773. Sennilega má ætla að þessi málstaður eigi
hljómgrunn hjá um fjórðungi kjósenda. Þessi hóp-
ur leitar í málflutning fjölmiðlamanna á borð við
Glenn Beck og Rush Limbaugh. Stjórnmálamenn
repúblikana leiða ekki umræðuna heldur fylgja
henni.
Öfugt við vinstri hreyfingar þarf þessi hópur
ekki að kvarta undan skorti á peningum. Eru dæmi
um auðmenn, sem láta margar milljónir dollara af
hendi rakna. Gjafmildi hagsmunaafla hefur orðið
andstæðingum Teveislunnar tilefni til að halda því
fram að hér sé ekki um grasrótarhreyfingu að
ræða heldur gervigrasrótarhreyfingu. Það væri
hins vegar misskilningur að ætla að andstaðan við
Obama sé óekta.
Reuters
Af hörku gegn Obama
Hægri menn grípa til fjöldamótmæla Í augum tugþúsunda manna sem mótmæltu í
Washington 12. september er Barack Obama yfirsníkjudýrið og sósíalismi á næsta leiti
Reuters
Lygari Obama ræðir heilbrigðismál á þingi.
Mótmæli Tugþúsundir hægri
manna mótmæltu 12. sept-
ember í Washington. Á einu
skiltanna er Barack Obama í
gervi varmennisins Joker,
helsta andstæðings Leð-
urblökumannsins.
Samtökin ACORN hafa verið ein
helsta skotskífa hægri manna í
Bandaríkjunum. Samtökin berj-
ast gegn fátækt, en myndskeið,
sem tekin voru á laun, hafa komið
þeim í veruleg vandræði. Á mynd-
skeiðunum sjást maður og kona,
sem þykjast vera melludólgur og
vændiskona, fá ráð um það hvern-
ig þau eigi að sniðganga lögin til
að koma á fót vændishúsi með
börnum frá Suður-Ameríku og
komast undan skatti.
ACORN hefur veitt fólki aðstoð
við að fylla út skattframtöl án
endurgjalds, en bandarísk skatt-
yfirvöld hafa nú slitið samstarfi
við þau.
Starfsmennirnir, sem veittu
ráðin, hafa verið reknir og sam-
tökin segjast vera að taka til í
sínum ranni, en það gildir einu.
Gamlir stuðningsmenn samtak-
anna halda að sér höndum og
fjárframlögin þorna upp. Á þingi
er þess krafist að farið verði ofan
í saumana á starfsemi ACORN og
skorað hefur verið á stjórnvöld að
ekkert fé, sem rennur til félags-
mála, endi í vösum samtakanna.
Repúblikanar hafa löngum haft
horn í síðu ACORN, sem hefur að-
stoðað þá, sem minna mega sín,
frá 1970.
Samtökin hafa meðal annars
lagt áherslu á að fá kjósendur til
að skrá sig á kjörskrá og er talið
að í fyrra hafi þau skráð eina
milljón nýrra kjósenda. Und-
irliggjandi er að þessi skráning-
arherferð hafi hjálpað Barack
Obama. Hægri menn hafa gagn-
rýnt þetta framtak og nú hefur
verið hrint af stað rannsókn á því
hvort allt hafi verið með felldu í
skráningunni.
Verjendur ACORN segja að
starfsmennirnir hafi verið leiddir
í gildru og um rógsherferð sé að
ræða, en erfitt er að verja fárán-
leika ráðgjafarinnar til hins dul-
búna pars.
Tilhneiging stóru fjölmiðlanna
í Bandaríkjunum til að gera lítið
úr málinu hefur verið vatn á myllu
hægri manna. Þeir telja að þetta
staðfesti fullyrðingar sínar um að
helstu fjölmiðlarnir hallist til
vinstri og hagi fréttaflutningi
sínum eftir því.
Ráðgjöf um lögbrot
Glenn Beck hefur virkjað
óánægju manna á hægri vængnum í
bandarískri pólitík. Suma daga fara
áhorfendur á þátt hans á sjónvarps-
stöðinni Fox yfir þrjár milljónir. Út-
varpsþættir hans eru sendir út á
400 stöðvum og rúmlega átta millj-
ónir hlusta. Fimm milljónir manna
fara inn á vefsíðu hans á mánuði.
Bækur hans rjúka út. Ný bók, sem
heitir Deilt við fífl, er væntanleg og
búist er við að hún verði sú þriðja
eftir hann, sem fer í efsta sæti bók-
sölulista The New York Times.
Tímaritið Forbes reiknaði út í júní
að árið á undan hefði Beck þénað
23 milljónir dollara (2,8 milljarða
króna). „Ég er hræddur,“ segir
Beck iðulega. „Þú ættir að vera
hræddur líka.“ Við hvað? Beck tel-
ur að allir pólitíkusar séu spilltir,
jafnt repúblikanar sem demókrat-
ar. Nú er stjórn Baracks Obamas í
eldlínu Becks, sem lætur gamminn
geisa, spyrðir saman staðreyndir
og gefur til kynna að allsherj-
arsamsæri búi að baki, sem hann þó
trúir ekki endilega á. Og aðdá-
endur hans geta ekki fengið nóg.
„Ég er hræddur, þú ættir
að vera hræddur líka“
Skömmu áð-
ur en Barack
Obama settist í
forsetastól
sagði Rush
Limbaugh,
ljósvakastjarna hægri manna í
Bandaríkjunum, í viðtali að hann
hefði verið beðinn um að skrifa 400
orða grein um væntingar sínar til
hins nýja forseta og bætti við að
hann þyrfti miklu færri orð: „Ég
vona að honum mistakist.“ Um 20
milljónir manna hlusta á hann í
hverri viku. Limbaugh er óvæginn
og meinhæðinn, en um leið ákaf-
lega viðkvæmur fyrir sjálfum sér
og þingmenn repúblikana hafa
neyðst til að biðja hann afsökunar
þegar þeir hafa stigið á tær hans.
Limbaugh á harðan kjarna aðdá-
enda, en hann hrindir einnig frá
sér. Ef Limbaugh er ein rödd af
mörgum í Repúblikanaflokknum
sýnir það breidd, en verði hann
eina röddin er það áhyggjuefni.
Óvægin og meinhæðin
rödd á öldum ljósvakans