Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 16
16 Myndaalbúmið
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
Rauðkolla
Æfing
Brúðkaupsdagurinn 24. júní 2006 giftist Dísella Teddy Kernizan í litlu
kirkjunni í Mosfellsdal.
Ásamt „litlu“ hundunum
sínum, Raskal og Boris.
Knapi Tveggja ára fékk hún fyrst
að fara á bak Bjössa sem var fyrsti
reiðskjóti allra systranna þriggja.
„Þá var ekki aftur snúið.“
Hjördís Elín Lárusdóttir sópransöngkona, betur þekkt semDísella, fæddist í Reykjavík 12. mars 1977. Hún er dóttirhjónanna Sigríðar Þorvaldsdóttur leikkonu og Lárusar heitins
Sveinssonar, trompetleikara hjá Sinfóníuhljómsveitinni, en systur
hennar eru Þórunn leikkona og Ingibjörg flugfreyja og lögfræðinemi
en þær systur ólust upp í Mosfellssveit.
Dísella útskrifaðist úr Söngskólanum í Reykjavík árið 2002 og fór
þaðan í meistaranám við Westminster Choir College, Rider Univer-
sity í Princeton í Bandaríkjunum, þaðan sem hún útskrifaðist í maí
2005. Árið 2006 sigraði hún í Astral Artist-tónlistarkeppninni, komst
í undanúrslit í Lauren S. Zachary-söngkeppninni og í undanúrslit í
söngkeppni Plácidos Domingos.
Árið eftir sigraði hún svo í Greenfield-keppni Fíladelfíuhljóm-
sveitarinnar og í kjölfarið bauðst henni að koma fram með hljóm-
sveitinni á árlegum galatónleikum hennar ásamt fjölda þekktra
listamanna. Stuttu síðar komst hún í undanúrslit í Metropolitan
Opera National Council Auditions og í framhaldi af því fékk hún
starfssamning hjá Metropolitan-óperunni. Í apríl 2008 hélt hún
debúttónleika sína í New York og fékk einróma lof fyrir.
Eiginmaður Dísellu er Teddy Kernizan og eru þau
búsett í Washington DC í Bandaríkjunum.
ben@mbl.is
Dísella
Lárusdóttir
Heima
Í Washington „DC Mamma kom að heimsækja okkur Tedda í
fyrra.“
Síðustu áramót Í miklu stuði ásamt systrum sínum.
Hvítkollur „Ég og fífurnar
erum eiginlega alveg eins.“
Um sjö ára aldur.
Í Grikklandi á ný Ég fór aftur út í heim-
sókn þegar ég var 18 ára og kom þá við í
gömlu íbúðinni okkar.
Í sólinni Fjölskyldan bjó
í Grikklandi í um hálft ár
þegar Dísella var tíu ára.
Rabbabaraprinsessa Þórunn
systir dressaði Dísellu litlu upp
með „fatnaði“ úr garðinum. „Ég
veit ekki alveg til hvers sundgler-
augun voru.“
Ellefu ára Dísella stalst til að rækta
kanínur í kofanum í garðinum og það
uppgötvaðist ekki fyrr en þær voru
orðnar 14 talsins.
Fjölskyldan Íbyggin í myndatöku með Lárusi pabba, stóru
systrunum Ingibjörgu og Þórunni og Sigríði mömmu.
Jólastelpa Þessum kjól varð
mamma að henda og segja mér að
hann væri týndur því þetta var eini
kjóllinn sem ég vildi vera í.
Ég og pabbi að spila á trompetinn, sem er klárlega
hljóðfæri sálar minnar. Pabbi átti til að vekja okkur
með trompetinum ef við vorum erfiðar fram úr.
Á fyrsta ári í hoppurólunni og dýra-
ástríðan strax farin að láta á sér kræla.
Þrettán ára
„Ég hef einu
sinni unnið
til verðlauna í
íþróttakeppni
og það var á
þessum hesti,
Bjarti.“