Morgunblaðið - 04.10.2009, Qupperneq 22
22 Dauðarefsing
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
Þ
að er ekki skortur á góð-
um ástæðum fyrir því að
afnema dauðarefsingu í
Bandaríkjunum; flestar
vestrænar þjóðir telja
hana siðlausa, hún hindrar ekki aðra
í því að fremja morð og reynslan hef-
ur sýnt að hún mismunar minni-
hlutahópum. Leiðarahöfundur The
New York Times á þó ekki í vand-
ræðum með að benda á eina góða
ástæðu til viðbótar – hún kostar fé-
vana ríki stjarnfræðilegar fjárhæðir.
Það kemur ekki af engu að ýmsir
löggjafar í Bandaríkjunum eru nú
tvístígandi vegna gríðarlegs kostn-
aðar sem hlýst af dauðarefsingunni.
Ríki landsins verja ómældum upp-
hæðum í að ná fram sigri fyrir dóms-
stólum í sakamálum þar sem farið er
fram á dauðarefsingu. Það kostar
tvöföld réttarhöld með því sem til-
heyrir; nýjum vitnum og löngum
kviðdómasetum. Þá kalla dauða-
deildirnar í fangelsunum á aukna ör-
yggisgæslu og mikinn viðhalds-
kostnað. Áfrýjunarferlið tekur 15 til
20 ár en að leggja það af væri bæði
siðlaust og yki hættuna á að saklaust
fólk yrði tekið af lífi.
Leiðarahöfundur bendir á að sam-
kvæmt Upplýsingamiðstöð vegna
dauðarefsingar (Death Penalty In-
formation Center) kostar dauða-
deildin Flórídaríki 51 milljón banda-
ríkjadala (um 6,3 milljarða króna)
meira á ári en ef fangarnir fengju
lífstíðardóm án möguleika á reynslu-
lausn. Kostnaður Norður-Karólínu
við hverja aftöku er 2,16 milljónir
dala (um 233 milljónir króna) en frá
árinu 1976 hafa 43 fangar verið tekn-
ir þar af lífi. Áætlað er að þær fimm
aftökur sem fóru fram í Maryland á
árunum 1978 til 1999 hafi kostað
samtals um 186 milljónir dollara
(eða um 23 milljarða króna).
Aftaka á 31 milljarð
Ýktasta dæmið er þó án efa Kali-
fornía, en dauðadeildin kostar skatt-
greiðendur í ríkinu 114 milljónir
dollara (um 14,2 milljarða kr.) árlega
umfram það sem það myndi kosta þá
að dæma fangana þar til lífstíð-
arfangavistar. Ríkið hefur tekið 13
manns af lífi frá árinu 1976 og hefur
hver aftaka kostað að meðaltali um
250 milljónir dala (um 31 milljarð
króna). Á sama tíma eru fangelsi rík-
isins yfirfull og búið er að boða gríð-
arlegan niðurskurð á fjármagni til
félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu
og menntakerfisins í ríkinu.
Ekki er langt síðan ríkisstjóri
Kansas lagði til að dauðarefsingin,
sem þar var endurvakin árið 1994,
yrði afnumin á ný enda hafa stjórn-
völd þar ekki tekið neinn af lífi í yfir
40 ár. Engu að síður strandaði frum-
varp hans. Svipuð umræða hefur
farið fram í ríkjum á borð við New
Hampshire, Maryland og Colorado,
án þess þó að hún hafi leitt til breyt-
inga. Á þessu ári hefur aðeins Nýja-
Mexíkó gengið alla leið en þar var
dauðarefsingin afnumin í mars síð-
astliðnum. ben@mbl.is
Reuters
Dauðadeildin Fangavörður í Livingston í Texas, við klefa dauðamanns.
Dýr er dauðinn allur
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Æ
tli aumingja Jamie Carragher og Mart-
in Skrtel hafi ekki liðið eins og þeir
væru staddir í miðri auglýsingu fyrir
undraefnið Ajax í Flórens í vikunni.
Svartfellska ungstirnið Stevan Jovetić
var eins og stormsveipur í kringum þá. Áður en yfir
lauk hafði hann gert tvö prýðileg mörk fyrir heima-
menn í Fiorentina og Rauði herinn frá Liverpool lá
emjandi í valnum. Fyrir vikið er allt upp í loft í E-riðli
Meistaradeildar Evrópu.
„Þetta var einstakt kvöld,“ sagði Jovetić, sem verður
tvítugur eftir mánuð, við heimasíðu Knattspyrnu-
sambands Evrópu eftir leikinn. „Við unnum frábært lið
Liverpool, 2:0, hirtum þrjú stig og lékum ljómandi vel.
Hefðum við tapað værum við í afar erfiðri stöðu í riðl-
inum.“
Jovetić, sem sagður er svar Svartfellinga við Lionel
Messi, gerði ekki mikið úr eigin frammistöðu en við-
urkenndi að hann væri í framför. „Vonandi ber ég gæfu
til að halda áfram á sömu braut.“
Þetta er ekki fyrsta hetjudáðin sem Jovetić drýgir
fyrir þá fjólubláu en fyrr í haust fleytti mark hans gegn
Sporting Lisbon Fiorentina inn í riðlakeppni Meist-
aradeilarinnar.
En hver er þessi eldsnögga og kraftmikla skytta,
sem gárungarnir halda fram að sé óskilgetið afkvæmi
Brians May og Jays Leno?
Sló ungur í gegn
Stevan Jovetić fæddist 2. nóvember 1989 í Titograd í
Júgóslavíu. Þar heitir nú Podgorica og er borgin höf-
uðborg Svartfjallalands. Hann hóf knattspyrnuferil
sinn hjá heimaliðinu FK Mladost en hélt fjórtán ára
gamall sem leið lá til Belgrad, höfuðborgar Serbíu, þar
sem Partizan tók hann upp á sína arma.
Jovetić þreytti frumraun sína með aðalliði Partizan
aðeins sextán ára gamall í deildarleik gegn Vozdovac.
Hann vann sér fljótt fast sæti í liðinu og lék stórt hlut-
verk veturinn 2006-07. Hápunkturinn var þrenna í Evr-
ópuleik gegn króatíska félaginu Zrinjski. Eftir það var
ljóst að hið serbneska sparksvið var of lítið fyrir Jovetić
enda drógust stórlið álfunnar að honum eins og býflug-
ur að hunangi. Manchester United, Real Madrid, Ajax
og hvað þau nú öll heita. Sjö milljónir sterlingspunda
voru nefndar í því sambandi.
Af því tilefni lýsti Dejan Savićević, fyrrverandi leik-
maður AC Milan og núverandi formaður knattspyrnu-
sambands Svartfjallalands, því yfir að Jovetić yrði ekki
utan gátta hjá neinu stórliði í Evrópu. „Manchester
United myndi gera kjarakaup ef félagið greiddi sjö
milljónir punda fyrir hann,“ sagði Savićević.
Átján ára fyrirliði
Þrátt fyrir athyglina ákvað Jovetić að vera um kyrrt í
Belgrad – um sinn. Partizan launaði honum með því að
gera hann að fyrirliða liðsins í janúar 2008, þegar leik-
maðurinn var átján ára og tveggja mánaða. Geri aðrir
betur!
Leiðtogahæfileikar Jovetić eru raunar augljósir en
hann var gerður að fyrirliða landsliðs Svartfellinga
skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri aðeins sautján ára.
Sumarið 2008 sá Partizan sæng sína uppreidda. Jove-
tić var seldur til Fiorentina fyrir 7,3 milljónir punda.
Pilturinn var blóðgaður snemma í ítölsku A-deildinni
og átti þokkalegt tímabil í fyrra. Fyrsta markið lét þó á
sér standa, kom úr vítaspyrnu gegn Atalanta í apríl á
þessu ári. Menn ganga út frá því að þau muni hlaðast
upp á næstu árum.
Varla þarf að taka fram að Jovetić er lykilmaður í
landsliði Svartfellinga en hann tók þátt í fyrsta op-
inbera landsleik þjóðar sinnar gegn Ungverjum í mars
2007. Hann hefur gert sex mörk í ellefu landsleikjum.
Með landsliðinu leikur Jovetić jafnan við hlið fóstra
síns og fyrirmyndar, Mirko Vucinić, leikmanns Roma á
Ítalíu.
Þrátt fyrir að hafa þetta svaðalega tvíeyki innaborðs
hafa Svartfellingar átt erfitt uppdráttar í undankeppni
heimsmeistaramótsins á næsta ári, aðeins hlotið fimm
stig úr átta leikjum. Þannig einhver bið verður á því að
Jovetić troði upp á allra stærsta sviðinu.
En það er nægur tími til stefnu.
Svartfelldi Rauða herinn
Reuters
Sprækur Stevan Jovetić hefur skipað sér á bekk með efnilegustu sparkendum álfunnar. Hann er efni í mikið séní.
Stevan Jovetić, nítján
ára nýstirni frá Svart-
fjallalandi, stal senunni
í Meistaradeild Evrópu
í vikunni með tveimur
mörkum fyrir Fiorent-
ina gegn Liverpool
OFNAR - VERKFÆRASKÁPAR
MÁLNING - VÖRUTRILLUR - HILLUEFNI
BÍLSKÚRSHURÐAROPNARAR
HILLUREKKAR - STÁLVASKAR
FLÚRLJÓS OG MARGT FLEIRA
TAX
FREE!
BÍLSKÚRINN