Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 27
prófi. Árum hans í Illinois, þar sem
hann staðfesti ráð sitt og setti upp
lögfræðistofu. Hann þótti sérkenni-
legur, viðskiptavinirnir flestir fátæk-
ir, jafnvel litaðir. Eitt frægasta málið
sem hann vann var að bjarga tveimur
blökkumönnum frá því að verða
teknir af lífi án dóms og laga. Það
þótti ekki góð pólitík um miðja 19.
öldina, en veitti Lincoln brautargengi
á þing og framhaldið er letrað stórum
stöfum í mannkynssöguna. Henry
Fonda fer snilldarlega með hlutverk
þessa unga hugsjónamanns sem átti
eftir að verða einn virtasti og ástsæl-
asti forseti Bandaríkjanna.
Beau Geste
(William A. Wellman)
Samvinna Wellmans og handrits-
höfundarins Roberts Carsons er
skráð í sögubækurnar og sjaldan
tókst þeim jafn vel upp í bestu kvik-
myndagerð bókarinnar af mörgum.
Aukinheldur var Beau Geste ein
mest sótta mynd ársins, en hún er
æsispennandi ævintýramynd um
hetjudáðir Frönsku útlendinga-
herdeildarinnar. Þótt þeir líti ekki út
fyrir að vera breskir, og því síður
bræður, fara Gary Cooper, Ray Mill-
and og Robert Preston myndarlega
með aðalhlutverk Geste-bræðranna,
sem berjast eins og hetjum sæmir við
arabískan ótrosalýð og yfirmann
deildarinnar, sadistann Markoff lið-
þjálfa (Brian Donlevy), sem var af
einhverjum ástæðum sniðgenginn af
starfsfélögum sínum á tökustað.
Hann náði fram hefndum er hann var
einn tilnefndur til Óskars árið eftir.
Klassísk ævintýramynd með grimmi-
legum bardagaatriðum, eldheitum
ástamálum og fífldjörfum demant-
aþjófnaði, en „Sahara“ var reyndar
sandöldurnar í Imperial-héraði í
Kaliforníu.
The Hunchback of Notre Dame
(William Dieterle)
Vafalaust ein besta mynd litla ris-
ans í Hollywood, RKO, sömuleiðis
talin besta kvikmyndagerð klassíkur-
innar eftir franska rithöfundinn Vic-
tor Hugo. Myndin gerist í Frakk-
landi á tímum Loðvíks XI. og þung
áhersla lögð á óánægjuna og óstöð-
ugleikann sem var farinn að ríkja í
þjóðfélaginu. Bilið á milli ríkra og
snauðra var skelfilegt og óx með
hverjum deginum, kröfur um frelsi
og menntun tókust á við fáfræði og
miðaldamyrkur. Meðferðin á íbúun-
um grimmdarleg, engum þó sýnd
ámóta niðurlæging og kroppin-
baknum í Notre Dame-kirkjunni,
sem er eftirminnilega leikinn af
Charles Laughton. Leikhópurinn er
glæsilegur, líkt og tónlist Alfreds
Newmans. Rándýr, vönduð og stór-
fengleg í alla staði.
Mr. Smith Goes to Washington
(Frank Capra)
Capra gerði margar og snjallar sí-
gildar gamanmyndir með alvarlegu
ívafi og er myndin um heiðarlega
meðaljóninn, hr. Smith, með þeim
bestu. James Stewart leikur Smith af
kunnri rósemi, einlægni og skop-
skyni og gerir frábæra mynd enn
betri. Hann er dálítið barnalegur
hugsjónamaður sem er kosinn á þing
þar sem á að kveða hann í kútinn í
dyragættinni. En Smith tekur eft-
irminnilega á pólitískri spillingu og
valdahroka sem er allsráðandi innan
dyra. Sagan af hinum þrjóska og stál-
heiðarlega hr. Smith er þörf lexía á
öllum tímum.
Of Mice and Men
(Lewis Milestone)
Fátt er tilkomumeira en að lesa
meistaraverk Johns Steinbecks,
hvort sem menn kjósa frummálið eða
snilldarþýðingu Ólafs Jóhanns Sig-
urðssonar. Myndin hans Milestones
fangar frábæra aðlögun Eugenes
Solows á einni af perlum heims-
bókmenntanna. Kreppan mikla er í
algleymingi, tveir vinir og far-
andverkamenn eru að leita að vinnu í
Salinas-dalnum. George (Burgess
Meredith) er sá sterki og heldur hlífi-
skildi yfir vini sínum, fáráðnum
Lenny (Lon Chaney jr.). Að lokum
reynist það honum ofviða og George
verður að bjarga vini sínum á þann
eina hátt sem er fær. Átakanleg, fal-
leg og ógleymanleg í allri sinni dýrð
og áhrifamikla einfaldleika.
The Women
(George Cukor)
Cukor var talinn bera höfuð og
herðar yfir aðra karlleikstjóra þegar
kom að því að stjórna kvenleikurum.
Um það ber The Women klassískt
vitni og víst er að fá verk voru betur
fallin til að sanna þessa hæfileika Cu-
kors. Myndin fjallar um konur á
gamansaman og alvarlegan hátt;
hnyttin og andrík, byggð á þekktu
leikriti um hjónabönd, samskipti
kynjanna, framhjáhald, tryggð, deil-
ur og uppgjör. Leikhópurinn er stór-
kostlegur með Normu Shearer, Joan
Crawford, Rosalind Russell, Paulette
Goddard og Joan Fontaine, svo þær
helstu séu nefndar. Þær, ásamt
sterkri sögu, gera myndina ógleym-
anlega.
Wuthering Heights
(William Wyler)
Sögur segja að John Huston eigi
meira en lítið í aðlögun þessarar
frægu ástarsögu Emily Brontë um
sígaunadrenginn Heathcliff (Lord
Laurence Olivier), sem er tekinn inn
á heimili Earnshaw-fjölskyldunnar á
Viktoríutímanum. Ástin kemur til
sögunnar með öllum sínum vanda-
málum því Heathcliff og Cathy
Earnshaw (Merle Oberon) verða ást-
fangin þarna í fásinninu. Hesta-
sveinninn og heimasætan á auð-
mannssetrinu fá ekki að elskast en
piltur á eftir að spjara sig. Cathy gift-
ist öðrum (David Niven), sem verður
til þess að Heathcliff kvænist systur
Cathy. Ástin á óteljandi hliðar í
harmrænum ástamálum Brontë-
systra.
1939 og 2009
Það er forvitnilegt að bera saman
stærstu myndir þessara tveggja ára
en ekki mjög sanngjarnt. Tímarnir
breytast og myndirnar með, þær
endurspegla tíðarandann hverju
sinni en hvað sem því líður eru þær
eins og dagur og nótt í samanburð-
inum. Það er auðsætt að bakgrunnur
bestu myndanna fyrir sjö áratugum
er traustur og þéttur; í flestum til-
fellum kvikmyndagerðir heims-
kunnra bókmennta. Í dag leita fram-
leiðendur fyrst og fremst í teikni-
myndasögur og ævintýrabálka fyrir
börn og unglinga. Árið 1939 var
framhaldsmynd ekki til í orðabókum,
nú er sæmilega heppnuð kvikmynd
uppspretta fjölda eftirlíkinga og end-
urgerðir eru árvissar í fleirtölu. Árið
1939 var vissulega miklu betra kvik-
myndaár en 2009, sem dregur hug-
ann að 2039, að ekki sé talað um 2079!
Hvað þá verður efst á blaði hefur
maður takmarkaðan áhuga á að vita.
Eintómar kínverskar kung-fu-
myndir? Hver veit.
en síungar
Hrífandi Judy Garland lék stúlkuna
Dórótheu í Galdrakarlinum í Oz.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
TB
W
A\
RE
YK
JA
VÍ
K
\S
ÍA
09
59
10
Námsstyrkir til blindra
og sjónskertra stúdenta
Þórsteinssjóður auglýsir eftir umsóknum
Ákveðið hefur verið að veita styrk úr Þórsteinssjóði
á árinu 2009.
Tilgangur Þórsteinssjóðs er að styrkja blinda og sjónskerta
stúdenta til náms við Háskóla Íslands og að efla rannsóknir
á fræðasviðum sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri
sýn, einkum í félags- og hugvísindum.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2009.
Í ár verða veittir námsstyrkir til blindra og sjónskertra stúdenta
sem stunda nám eða hyggja á nám við Háskóla Íslands.
Styrkurinn er fyrir háskólaárið 2009–2010. Heildarfjárhæð
úthlutaðra styrkja er 1.000.000 kr.
Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun er að finna
á heimasíðu Háskóla Íslands, www.hi.is.
Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra styrktarsjóða
og hollvina, helgab@hi.is, sími 525 5894.
STYRKTARSJÓÐIR
STYRKTARSJÓÐIR
Bólusetning gegn árlegri inflúensu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill vekja athygli á því að skipulögð bólusetning gegn
inflúensu (ekki svonefndri svínainflúensu) hefst á heilsugæslustöðvum mánudaginn 5.
október 2009.
Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?
Öllum sem orðnir eru 60 ára
Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna-
og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi
sjúkdómum.
Starfsfólki heilbrigðisþjónustu og öðrum sem daglega annast fólk með aukna áhættu.
Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða
komugjald samkvæmt reglugerð nr. 1204 / 2008. Í síðasttalda hópnum eru það þó einungis
heilbrigðisstarfsmenn sem ekki greiða fyrir bóluefnið. Fyrirkomulag bólusetningar getur verið
mismunandi milli heilsugæslustöðva. Vinsamlegast leitið upplýsinga á vef Heilsugæslunnar
www.heilsugaeslan.is, eða hafið samband við hlutaðeigandi heilsugæslustöð.
Heilsugæslan Árbæ, Reykjavík s: 585 7800
Heilsugæslan Efra-Breiðholti , Reykjavík s: 513 1550
Heilsugæslan Efstaleiti, Reykjavík s: 585 1800
Heilsugæslan Fjörður, Hafnarfirði s: 540 9400
Heilsugæslan Garðabæ s: 520 1800
Heilsugæslan Glæsibæ, Reykjavík s: 599 1300
Heilsugæslan Grafarvogi, Reykjavík s: 585 7600
Heilsugæslan Hamraborg, Kópavogi s: 594 0500
Heilsugæslan Hlíðum, Reykjavík s: 585 2300
Heilsugæslan Hvammi, Kópavogi s: 594 0400
Heilsugæslan Miðbæ, Reykjavík s: 585 2600
Heilsugæslan Mjódd, Reykjavík s: 513 1500
Heilsugæsla Mosfellsumdæmis s: 510 0700
Heilsugæslan Seltjarnarnesi s: 561 2070
Heilsugæslan Sólvangi, Hafnarfirði s: 550 2600
Heilsugæslan Lágmúla 4, Reykjavík s: 595 1300
Heilsugæslan Salahverfi, Kópavogi s: 590 3900
Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem
hann verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Þeim sem leita vilja ráðgjafar er
bent á sína heilsugæslustöð.
Frekari upplýsingar er að finna á vef Heilsugæslunnar, www.heilsugaeslan.is
Fræðsluefni um inflúensu má finna á vef landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is
Reykjavík, 4. október 2009
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Álfabakka 16, 109 Reykjavík sími 585 1300 www.heilsugaeslan.is