Morgunblaðið - 04.10.2009, Qupperneq 41
Minningar 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
Ég ætla að setja ljóð eftir þig, Vin-
atraust, sem var í uppáhaldsljóða-
bókinni þinni sem heitir Fallnir engl-
ar og var tileinkað minningu
Áslaugar heitinnar, sem var þér dýr-
mæt.
Þú saknaðir hennar mikið, þarna
hafðir þú misst þinn besta vin en hún
mun taka vel á móti þér.
Ég vona það okkar vegna
að á milli okkar sé sterkur strengur
því annars hefur það engu að gegna
því að vera í sambandi lengur
Ég kveð þig með sorg, en veit að
við hittumst aftur. Ég elska þig.
Þín
mamma.
Elsku yndislegi bróðir minn,
hvernig kem ég orðum niður á blað.
Kl. eitt um nótt hinn 17. september
vaknaði ég við upphringingu frá Ella
bróður. Honum var mikið í mun að fá
að tala við mig og sagðist vera fyrir
utan ásamt mömmu. Vitaskuld brá
mér mikið og ég fann að ekki var allt
með felldu þó að mig hafi ekki órað
fyrir því hvaða fregnir ég fengi.
Hann tilkynnti mér síðan að þú værir
dáinn. Ég ætlaði ekki að trúa þessu
og geri varla enn. Ég hafði reynt að
ná í þig fyrr um kvöldið því ég vildi
koma bláa miðanum til þín áður en
þú færir í greininguna morguninn
eftir. Þarna varstu farinn frá okkur
til annarra heimkynna.
Elsku bróðir, ég veit ekki hversu
marga tíma það tók okkur síðast að
slá nýtt met í gegnum símann en við
gátum talað saman um alla mögulega
hluti. Þú áttir alltaf ráð við öllu og
stappaðir í mig stálinu ef það var eitt-
hvað sem bjátaði á hjá mér en oftast
voru það jákvæðir, fróðlegir og
skemmtilegir hlutir sem við ræddum
saman um enda varst þú afar mikill
fróðleiksmoli.
Að missa þig, Einar minn, er mér
gríðarlegt áfall. Þú varst ekki aðeins
bróðir minn heldur einnig minn besti
trúnaðarvinur. Við vorum í sambandi
á hverjum degi og ef 1-2 dagar liðu án
samskipta gengum við oftar en ekki
úr skugga um að allt væri í lagi. Bara
það að geta ekki hringt í þig núna
finnst mér svo óraunverulegt. Ég átti
allra síst von á því að þú myndir falla
frá svona snemma, elskan mín.
Ég á endalaust af jákvæðum minn-
ingum, allar bíóferðirnar okkar, víd-
eókvöldin, verslunarferðirnar, að
elda saman, bókasöfnin og síðast en
ekki síst hún Elísa mín sem þú hélst
svo mikið upp á. Henni fannst svo
gaman að heimsækja þig og ég hlæ í
gegnum tárin þegar ég hugsa til
sporanna sem þú tókst fyrir okkur
eins og Michael Jackson sjálfur fyrir
skömmu. Ótrúlegt hvað þú gast verið
léttur á þér. Mikið gat ég hlegið að
þér og það yljar mér um hjartarætur
að hugsa til þess. Ég veit að þú vilt
sjá mig hamingjusama og ganga
áfram menntaveginn, enda varstu
svo stoltur af mér og Elísu Björt og
varst ekki feiminn við að segja það.
Hún saknar þín, Einar minn, og
næstum allt á veggjunum í herberg-
inu hennar eru fallegar englamyndir
og ljóð frá þér.
Þú varst virkilega gott skáld og
ljóðabækurnar þínar eru merki þess
hvernig þér leið og hvernig sýn þín á
lífið var. Þú hefur gengið í gegnum
ýmislegt á lífsleiðinni, hjartans bróð-
ir minn, og bera mörg þín bestu ljóð
merki um það. Þú varst gömul og fal-
leg sál í ungum líkama en samt sem
áður ung og falleg sál í þreyttum lík-
ama. Ég sakna þín óendanlega mikið,
ástarengillinn minn, ég veit að þú
munt vaka yfir okkur og vernda
þangað til við sjáumst aftur. Ég gæti
skrifað endalaust en ætla að staldra
við hér.
Elsku pabbi, Ólöf, systkini, ætt-
ingjar og vinir, Guð gefi okkur styrk
á þessum erfiðu tímum.
Ég ætla að láta þetta ljóð, Kveðju,
eftir þig sjálfan fylgja hér.
Ég legg blómvönd að leiði þínu
og kveð þig nú með tárum,
þú engill sem lifðir í hjarta mínu
lifir núna í mínum sárum.
(Ort 27. desember 1997.)
Þín elskandi systir,
Eva Kristjánsdóttir.
Meira: mbl.is/minningar
Elsku bróðir.
Ég trúi varla að þú sért virkilega
farinn. Ég hlakkaði svo til að hitta
þig aftur þegar ég kæmi heim til Ís-
lands og styrkja sambandið okkar
sem dofnaði mikið vegna aðstæðna
okkar en þú varst minn eini bróðir og
náðum við mjög vel saman þar sem
við erum mjög lík.
Þegar mamma talaði við mig úti og
sagði mér að þú værir látinn barst ég
í ótrúlega sársaukafullan grát.
Þú varst alltof yndislegur strákur
til að fara svona snemma, áttir alla
framtíðina fyrir þér.
Við slitum sambandi árið 2006 en
um síðustu jól ákvað ég að skrifa þér
bréf og bað þig að fyrirgefa mér. Ég
skrifaði bréf og jólakort og kom með
það heim til þín þar sem þú komst til
dyra, tókst við kortinu en sagðir lítið.
Mamma sagði mér svo að þú hefðir
sent mér jólakort til baka og er ég
svo ótrúlega fegin að ég hafi tekið
þessa ákvörðun að reyna að hitta þig
og færa þér þetta kort. Okkar síðustu
samskipti voru þá allavega í góðu,
elsku Einar minn.
Það sem er mér efst í huga þegar
ég hugsa til þín er hvað þú varst
greindur og gott ljóðskáld. Ávallt er
þú sendir mér bréf fylgdi eitthvert
fallegt ljóð með. Ég veit að núna
ertu kominn á betri stað og hættur að
kveljast. Ég vildi óskað þess að ég
gæti hitt þig bara einu sinni enn til að
knúsa þig og kyssa.
Þegar ég fékk bréf frá mömmu
sem innihélt bréf frá þér þar sem þú
segir að hugur þinn sé hjá mér og að
þú hafir fyllst sorg í hjarta við þær
aðstæður sem ég var komin í. Ég var
að fara skrifa þér bréf til baka til að
segja þér að það væri óþarfi að vera
sorgmæddur. Það væri allt í lagi með
mig.
Því miður kemst ég ekki í útförina,
elsku bróðir, en ég fór í kapelluna í
dag bað til Guðs og kveikti á kerti
handa þér. Ég mun aldrei gleyma
þér, ég elska þig afskaplega mikið og
sakna þín ennþá meira.
Nú ertu hjá Guði og veit ég að þér
líður vel og ert á góðum stað. Minn-
ing þín mun ætíð lifa í hjarta mínu.
Ég elska þig að eilífu.
Þín yngsta systir,
Aldís Ósk.
Ég vil þakka Einari fyrir hversu
natinn hann var við mig við fráfall
dóttur minnar, Áslaugar Perlu.
Hann kom reglulega til mín eða
hringdi. Hann bað um mitt leyfi til að
útbúa leiði hennar, sem ég var hon-
um þakklát fyrir. Þegar ég loksins
kom mér upp í garð sá ég hversu fal-
lega hann hafði gert það. Hann girti
það af með falllegu grindverki.
Keypti lukt sem hann skreytti í
kringum með glerperlum og tvo
hvíta fallega stóra engla. Allt þetta
stendur enn. Þetta valdi hann af
ótrúlegri smekkvísi. Það var ekki við
það komandi að fá að borga honum
kostnaðinn.
Það er ekki langt síðan ég hugsaði
til hans. Ætlaði mér að hringja, en í
langan tíma hefur símtólið virkað á
mig eins og heilt tonn á þyngd. Ég
hringdi ekki og finnst það miður.
Elsku Einar þakka þér fyrir allt.
Ég vildi óska þess að þú hefðir átt
ánægjulegra og lengra líf.
Gerður Berndsen.
Kæri vinur, takk fyrir að
standa með mér í gegnum súrt
og sætt sem dyggur stuðnings-
maður. Það er leitt að ég fékk
ekki að hitta þig og það er sorg-
legt hvernig lífið hefur leikið
þig, en vonandi ertu núna ham-
ingjusamur á betri stað.
Ég vildi óska að ég væri
þarna til að geta verið viðstödd
athöfnina.
Knús
Ásdís Rán Gunnarsdóttir.
HINSTA KVEÐJA Jóhannes S.
Sigvaldason
✝ Jóhannes S.Sigvaldason
fæddist í Reykjavík
20. september 1921.
Hann lést á Drop-
laugarstöðum 10.
september sl.
Foreldrar hans
voru Sigvaldi Sveinbjörnsson, f. 5.9.
1888 og Karítas Jónsdóttir, f. 24.12.
1895. Bræður Jóhannesar voru Einar
Björn, f. 1916, d. 1996, Jón Vikar, f.
1917, d. 1939, Jóhannes, d. 6 mán-
aða, og Sveinbjörn Vilmar, f. 1926, d.
1956.
Jóhannes kvæntist 20.9. 1941,
Kristbjörgu Ólafsdóttur, ættaðri frá
Bergvík á Kjalarnesi og voru for-
eldrar hennar Ólafur Finnsson og
Jakobína Björnsdóttir. Jóhannes og
Kristbjörg eignuðust 6 börn. Þau eru:
Sigvaldi, f. 1.2. 1942. Karítas Erla, f.
8.12. 1944, gift Guðmundi Hafsteins-
syni, börn þeirra eru 5, og barnabörn
14. Jakobína Jóhanna, f. 8.7. 1946,
gift Ólafi Hlyni Steingrímssyni, börn
þeirra eru 3, og barnabörn 7. Dóra
Steinunn, f. 3.9.1951, í sambúð með
Fáfni Frostasyni. Dóra Steinunn á 3
börn með fyrrverandi eiginmanni sín-
um Jónasi Jóhannssyni, barnabörn
þeirra eru 4. Ólafur Þorkell, f. 4.7.
1955, kvæntur Andreu Ingibjörgu
Gísladóttur, þau eiga 3 syni og 1
barnabarn. Sveinbjörn Vilmar, f.
22.11. 1958, kvæntur Sigrúnu Jónu
Héðinsdóttir, þau eiga 4 dætur og 6
barnabörn. Fyrir hjónaband eignaðist
Kristbjörg soninn Jón Vikar Jónsson,
f. 13.6. 1939, sem ólst upp hjá móð-
urforeldrum sínum. Faðir hans var
Jón Vikar Sigvaldason, f. 1.12. 1917,
d. 10.11. 1939. Jón Vikar Jónsson er í
sambúð með Maríu Guðmundsdóttur.
Með fyrrverandi eiginkonu sinni, Ing-
unni Guðmundsdóttur, á hann 7
börn, barnabörnin eru 18 og barna-
barnabörnin 3. Jóhannes var pípu-
lagningameistari og starfaði lengst af
hjá Vatnsveitu Reykjavíkur.
Útför Jóhannesar fór fram 18.
september í kyrrþey að ósk hins
látna.
Meira: mbl.is/minningar
Ægir
Benediktsson
✝ Ægir Benedikts-son fæddist í
Reykjavík 14. febrúar
1938. Hann lést á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi 5.
september síðastlið-
inn.
Foreldar hans voru Benedikt Hall-
dórsson, trésmíðameistari í Reykjavík
og kona hans Sigríður Björnsdóttir.
Systur Ægis: Ingibjörg og Árdís.
Ægir kvæntist Ester Jónsdóttur árið
1975 en þau slitu samvistum 1992.
Eftirlifandi sambýliskona Ægis er
Sigríður H. Arndal.
Ægir ólst upp í Reykjavík og ól þar
allan sinn aldur. Hann stundaði nám við
Skildinganesskóla og síðar við Mela-
skóla og lauk þaðan fullnaðarprófi.
Hann stundaði síðar trésmíðanám við
Iðnskólann í Reykjavík, þaðan sem hann
lauk sveinsprófi í iðn sinni. Ægir var til
marga ára til sjós á flutningaskipum
Eimskipa hér sem erlendis. Eftir að
hann hætti til sjós hóf hann störf á tré-
smíðaverkstæði Reykjavíkurhafnar og
lauk starfsferli sínum hjá Reykjavík-
urhöfn eftir þrjá áratugi, síðast sem
umsjónarmaður Hafnarhúsins við
Tryggvagötu.
Útför hans fór fram í kyrrþey frá
Laugarneskirkju þann 15. september
síðastliðinn að ósk hins látna.
Meira: mbl.is/minningar
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL HAUKUR GÍSLASON,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð miðviku-
daginn 23. september.
Útför hans verður gerð frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 7. október kl. 13.00.
Steinunn Unnur Pálsdóttir, Einar Hörður Þórðarson,
Halldóra Pálsdóttir,
Sigurður Pálsson, Jóhanna Skúladóttir,
afa- og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HREFNA MARKAN,
Arnarheiði 5,
Hveragerði,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 18. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Öllum þeim sem önnuðust hana í veikindum hennar eru færðar
alúðarþakkir.
Ólöf Guðrún Hermannsdóttir, Jón Magnússon,
Hörður Hermannsson, Margrét B. Sigurðardóttir,
Kristbjörg Hermannsdóttir, Sigurbjartur Loftsson,
ömmubörn og langömmubarn.
✝
Elskuleg frænka okkar og mágkona mín,
GUÐNÝ KRISTINSDÓTTIR,
Sléttuvegi 23,
Reykjavík,
varð bráðkvödd mánudaginn 28. september.
Jarðsungið verður frá Neskirkju þriðjudaginn
6. október kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir.
Þeir sem vilja minnast hennar láti líknarfélög njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Rakel Viggósdóttir,
Kristín Viggósdóttir,
Ágústa Þórey Haraldsdóttir
og Áslaug Jensdóttir.
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag