Morgunblaðið - 04.10.2009, Page 42
42 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
✝ Sigþór Pálssonfæddist á Litla-
Steinsvaði í Hróars-
tungu 30. desember
1922. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á Egils-
stöðum 13. september
2009. Foreldrar hans
voru hjónin Páll Sig-
urðsson, f. 24.1. 1884,
d. 9.6. 1966 og Jóna
Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir, f. 2.11.
1889, d. 25.9. 1970.
Sigþór var næst-
yngstur fimm
bræðra. Hinir eru: Sigurður, f. 2.10.
1014, d. 16.10. 1997, Einar Sveinn,
f. 8.8. 1916, d. 27.7. 1984, Guð-
mundur, f. 2.9. 1918, d. 9.10. 2000
og Björn Þór, f. 22.12. 1926.
Sigþór kvæntist 16. desember
1945 Guðbjörgu Aðalheiði Gunn-
arsdóttur, f. 10.4. 1917, d. 22. jan-
úar 2004. Foreldrar hennar voru
hjónin Gunnar Magnússon, f. 28.3.
1883, d. 9.8. 1955 og Guðný Sig-
12.2002, Álfrún Freyja Heið-
arsdóttir, f. 17.5. 2004, Dalrós Rí-
key Guðmundsdóttir, f. 14.3. 2006,
Kjartan Hafdal Ómarsson, f. 24.7.
2006, Aðalsteinn Máni Guðmunds-
son, f. 7.10. 2007, Kolka Dögg Óm-
arsdóttir, f. 10.8. 2008, Alma Rúna
Oddsdóttir Varela, f. 12.3. 2009,
óskírð stúlka Guðmundsdóttir, f.
2.6. 2009 og óskírður drengur
Reynisson, f. 21.8. 2009.
Sigþór ólst upp í foreldrahúsum
á Úthéraði og í Vopnafirði en fór
um fermingu að vinna fyrir sér
sjálfur við landbúnað og fleiri störf.
Sigþór og Aðalheiður hófu búskap
á Hjaltastað II 1945 og bjuggu þar
til 1980; brugðu þá búi, fluttust í
Egilsstaði og bjuggu þar síðan. Á
Hjaltastað var kirkjustaður og var
Sigþór lengi formaður sóknar-
nefndar og meðhjálpari í kirkjunni
og hafði umsjón með henni. Hann
gegndi einnig ýmsum fleiri trún-
aðarstörfum í félagslífi sveit-
arinnar. Á Egilsstöðum starfaði
Sigþór fyrst hjá Rafmagnsveitum
ríkisins og síðar um tíma við vernd-
aðan vinnustað, Stólpa.
Útför Sigþórs fór fram 26. sept-
ember, í kyrrþey.
þrúður Rustikusdótt-
ir, f. 18.7. 1889, d.
10.4. 1918. Börn Sig-
þórs og Aðalheiðar
eru: 1) Guðný Hildi-
gunnur, húsfreyja og
bóndi í Svínafelli í
Hjaltastaðaþinghá, f.
15.8. 1946, gift Yngva
Dal Ingvarssyni, f.
29.11. 1941. Börn
þeirra eru: Sigþór
Heiðar, f. 26.3. 1966,
Ómar Ársæll, f. 17.3.
1971, Guðný Dalbjörk
24.6. 1981 og Ingunn
Heiðdís, f. 24. 6. 1983. 2) Páll Sig-
urbjörn, skrifstofumaður Egils-
stöðum, f. 10.6. 1949. 3) Rúnar, f.
25.5. 1953, dósent við Háskólann á
Akureyri, giftur Guðnýju Mar-
inósdóttur kennara, f. 11.9. 1944.
Synir þeirra eru Oddur Már, f. 16.4.
1976 og Heiðar Þór, f. 8.9. 1978.
Barnabarnabörnin eru tíu: Kristján
Ingvar Ómarsson, f. 8.10. 2000,
Karen Helga Ómarsdóttir, f. 7.
Sigþór Pálsson, tengdafaðir
minn, lést hinn 13. september síð-
astliðinn á sjúkrahúsinu á Egils-
stöðum. Hann hafði þá dvalið þar
að mestu í rúmt ár en oft verið
heima um helgar.
Það eru um 34 ár liðin frá því að
ég kom inn í fjölskylduna er við
Rúnar hófum sambúð. Sigþór tók
mér þá af þeirri miklu hlýju sem
einkenndi samskipti okkar alla tíð;
hann var alltaf þessi trausti, góði
maður, vinur okkar og sona okkar
og verður umhyggja hans og þeirra
hjóna fyrir þeim seint fullþökkuð.
Þrátt fyrir næstum 30 ára bú-
setu á Egilsstöðum var Sigþór í
mínum huga alltaf bóndinn, hinn
íslenski bóndi sem ólst upp í sveit
og þurfti ungur að fara að vinna og
leggja hönd á plóg. Líf hans var
samofið sögu sveitanna, sögu kyn-
slóðarinnar sem fæddist inn í
bláfátækt áranna eftir fyrri heims-
styrjöld, háði sitt stríð við kreppu
og búfjársjúkdóma en hafði sigur
með þrotlausri elju og dugnaði.
Sigþór fór mjög ungur að heim-
an í vinnumennsku á öðrum bæjum
og fleiri störf. Hann dreymdi, eins
og fleiri af hans kynslóð, um að
afla sér menntunar en sá draumur
varð að engu þegar hann veiktist
og þurfti að dveljast vetrarlangt á
sjúkrahúsinu á Seyðisfirði. Eftir þá
dvöl varð hann að fara að vinna
aftur til að greiða útgjöld sem
stofnað var til meðan á sjúkra-
húsdvölinni stóð. Síðar réðst hann
kaupamaður að Hjaltastað og þar
kynntist hann heimasætunni mynd-
arlegu, Aðalheiði, sem seinna varð
konan hans og fylginautur í gegn-
um lífið. Þau bjuggu myndarbúi á
Hjaltastað og þar var snyrti-
mennska í hávegum höfð, innan
dyra sem utan.
Ég á margar góðar minningar
frá sumardvöl okkar á Hjaltastað
og þrátt fyrir að stundum læddist
Austfjarðaþokan inn frá Héraðsfló-
anum á kvöldin er eins og sólskins-
bjartir morgnar séu ofar í minning-
unni. Mér fannst líka skemmtilegt
að túnin á bænum báru nöfn, eins
og Sæbjörg og Pálína, sem voru
nefnd í höfuðið á fyrri ábúendum á
hluta jarðarinnar, og svo voru líka
nöfn eins og Dásemd og Órækt
sem vitnuðu um ólíka landkosti
túnanna sem þessi nöfn báru.
Árið 1980 brugðu Sigþór og Að-
alheiður búi og fluttust í Egilsstaði
þar sem þau bjuggu síðan ásamt
Páli syni sínum. Þar áttu þau fal-
legt og hlýlegt heimili þar sem
sömu lögmál giltu og áður. Þar
naut hann þess að geta haldið
áfram að eiga hesta og sinna þeim.
Á seinni árum þurfti Sigþór stund-
um að leita sér lækninga og eftir
að við fluttumst til Akureyrar
dvaldi hann oft hjá okkur í
tengslum við það. Við gátum setið
tímunum saman og talað um gamla
daga og mér fannst alltaf jafn
áhugavert að heyra hann rifja upp
atburði frá liðnum tíma og því ólíka
lífi sem þá var lifað til sveita enda
urðu atburðirnir ljóslifandi í frá-
sögn hans.
Mig langar að ljúka þessum lín-
um með fallegri mynd frá fyrstu
árum mínum í fjölskyldunni. Það
er sunnudagsmorgunn og sólskin.
Ég geng inn fyrir bæinn með son
minn ungan en þegar við lítum upp
í ásana fyrir ofan bæinn sjáum við
mann á hesti bera við himin. Ég
lýk kveðju minni og þakklæti til
Sigþórs með þessari mynd sem ég
geymi í huga mér. Hvíl í friði.
Guðný G. H. Marinósdóttir.
Sigþór Pálsson
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs föður, tengdaföður, afa
og langafa,
ÞÓRARINS JENS ÓSKARSSONAR
húsasmíðameistara.
Við sendum þeim sem önnuðust hann hjá
Heimahjúkrun, Félagsþjónustunni og B-4
Landspítala kærar þakkir. Sérstakar þakkir færum við Rúnari Guðjónssyni
húsverði Skúlagötu 20 og Aðalsteini Guðmundssyni lækni.
Gunnar Þórarinsson, Steinunn Sighvatsdóttir,
Ágúst Þórarinsson, Sigríður H. Jóhannesdóttir,
Sæmundur Þórarinsson, Kristjana Daníelsdóttir,
Katrín Þórarinsdóttir, Haukur Ingason,
Sigrún Þórarinsdóttir, Stefán Örn Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við fráfall föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
PÁLS GUNNARS HALLDÓRSSONAR,
áður til heimilis
Árskógum 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær hjúkrunarfólk Sóltúns.
Erla Benediktsdóttir, Friðbjörn Sveinbjörnsson,
Halldór Ingólfur Pálsson,
Sigurlaug Kristín Pálsdóttir,
Lára Margrét Pálsdóttir, Svanur Tómasson,
afa- og langafabörn.
✝
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju vegna
andláts elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
RAGNARS LÁRUSAR SÓLONSSONAR,
Rjúpnasölum 10,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til heimahlynningar Landspítalans.
Louisa Sampsted,
Ragnheiður Ragnarsdóttir, Ólafur Birgir Bjarnason,
Ingvi Þór Ragnarsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Sólon Lárus Ragnarsson,
Arnar Ragnarsson,
afa- og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengda-
föður, afa, langafa og langalangafa,
MAGNÚSAR ÞÓRARINS SIGURJÓNSSONAR,
Lindargötu 61,
Reykjavík.
Ólafur Magnússon, Jóna Guðjónsdóttir,
Jónína Magnúsdóttir,
Gylfi Þór Magnússon,
Anna Sigurlaug Magnúsdóttir, Frímann Ingi Helgason,
Sigurjón Magnússon, Helga Tryggvadóttir
og afabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
systur okkar, mágkonu og frænku,
KATRÍNAR VIGFÚSDÓTTUR
frá Sunnuhvoli,
Vopnafirði,
sem lést fimmtudaginn 10. september.
Herdís Vigfúsdóttir,
Fanney Vigfúsdóttir,
Haukur Vopni
og aðrir vandamenn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samhug og hlýju við fráfall föður okkar, tengda-
föður, afa, langafa og langalangafa,
LEIFS EIRÍKSSONAR
kennara frá Raufarhöfn,
til heimilis að
dvalarheimilinu Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Eysteinn Völundur Leifsson, Ína Sigurlaug Guðmundsdóttir,
Rannveig Lovísa Leifsdóttir,
Ingibjörg Fríður Leifsdóttir, Jón Guðmundur Sveinsson,
Erlingur Viðar Leifsson, Arndís Jóna Gunnarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýju vegna andláts okkar ástkæra
BERGSTEINS GEORGSSONAR
héraðsdómslögmanns,
sem lést fimmtudaginn 30. júlí.
Unnur Sverrisdóttir,
Sverrir Bergsteinsson, Díanna Dúa Helgadóttir,
Unnur Ásta Bergsteinsdóttir,
Viktor Steinn Sverrisson.
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista