Morgunblaðið - 20.10.2009, Side 28
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2009
Íslenska hryllings(/gaman?)
myndin Reykjavík Whale Watch-
ing Massacre verður sýnd 22. okt.
á Screamfest-hryllingsmyndahátíð-
inni í LA sem hófst 16. okt. Hátíðin
mun vera ein sú mikilvægasta sinn-
ar tegundar í Bandaríkjunum. Von-
andi að RWWM gangi vel í Kanann í
ljósi dræmrar aðsóknar á Íslandi.
Hvalaskoðunarmorð-
æði á Screamfest í LA
Fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
FÉLAGSHYGGJUMAÐURINN og framkvæmda-
forkólfurinn Jakob Frímann Magnússon lét sig ekki
vanta á Iceland Airwaves-hátíðina frekar en fyrri
daginn og skeiðaði hann á milli tónleikastaða eins og
enginn væri morgundagurinn.
„Hátíðin var stórglæsileg og gæðatónlist á hverju
strái. Fyrir minn smekk stóðu Mugison, Hjaltalín,
Dísa, Egill Sæbjörnsson, Feldberg og Caterpillarmen
fremst meðal jafningja en einnig stóðu frændur vor-
ir Danir sig með mikilli prýði og vil ég þá sér-
staklega nefna Trentemöller, svar Danmerkur við
Fatboy Slim, og Oh Land sem svipti sínu upp af
stakri list; útsetningar, hljóðfæraleikur og smíði
hljóðmyndar, allt lék þetta í höndunum á henni.“
Jakob segir að Íslendingar kunni þá heldur betur til
verka á sviði danstónlistar og nefnirsérstaklega
magnaða tónleika Retro Stefson og FM Belfast á
NASA. Jakob segir að það sé ótrúlegt að um 1.800
erlendir gestir komi hingað sérstaklega vegna hátíð-
arinnar og hún hafi löngu sannað sig sem öflugasti
einstaki gestasegullinn hér á landi. Miðborg Reykja-
víkur sé kjörinn vettvangur fyrir hátíð sem þessa,
þar sem hægt sé að hoppa á 3 mínútum á milli
ólíkra tónleikastaða. „Punkurinn yfir i-ið var svo
viðburður sem var ekki inni á opinberri dagskrá há-
tíðarinnar; tónleikar Skúla Sverrissonar í Þjóðmenn-
ingarhúsinu. Að upphefja andann og njóta kyrrðar
fyrir tilstilli þessa hógværa lávarðar lágtíðninnar,
var ekkert minna en þakkarvert.“
Frímann flaug um Airwaves
Magga Stína tróð upp með nýrri
hljómsveit í safnaðarheimili Frí-
kirkjunnar á laugardagskvöldið,
sveit sem annaðhvort heitir An-
órexía eða Búlemía. Ryþmasveitin
er skipuð þungavigtarmönnum,
Birni Blöndal Ham-liða og Kormáki
Geirharðssyni, og á gítar er Her-
mann Stefánsson rithöfundur. Sveit-
in lék reyndar bara eitt lag, ábreiðu
af Starman eftir David Bowie. Óvíst
er hvort þessi nýja sveit Möggu
Stínu mun troða upp aftur en hún
var sett saman til að leika fyrir Bo-
wie-aðdáandann Eirík Guðmunds-
son, útvarpsmann og rithöfund,
sambýlismann söngkonunnar, sem
hélt upp á fertugsafmæli sitt.
Magga Stína söng fyrir
stjörnumanninn sinn
Stórleikarinn og dansmeistarinn
John Travolta lenti Boeing 707-
þotu sinni við Leifsstöð í fyrra-
kvöld. Heyrst hefur að Travolta
hafi beðið um nudd að næturlagi og
nuddari frá Nordica Spa ræstur út
til verksins. Ekki fer sögum af því
hvers konar nudd kappinn fékk en
menn verða oft stífir í flugferðum.
Nuddari ræstur út að
næturlagi fyrir Travolta
SIGTRYGGUR Baldursson trommumeist-
ari hefur verið á túr um Evrópu með Emil-
íönu Torrini og hljómsveit og lýkur honum
með tónleikum í Amsterdam í kvöld. Lay
Low hefur hitað upp fyrir Emilíönu ásamt
hljómsveit. Túr þessi hófst 24. september í
Utrecht í Hollandi og liggja nú að baki tón-
leikar í Þýskalandi, Sviss, Frakklandi,
Belgíu, Ungverjalandi og Austurríki.
Emilíana sló í gegn í Þýskalandi í sumar
með laginu „Jungle Drum“ og mun smell-
urinn hafa heyrst víða í tjöldum á nýlokinni
októberfest í München og þá í ýmsum út-
gáfum, var m.a. flutt af polkaböndum og
lúðrasveitum.
ófögnuði. Þetta ævintýri Sigtryggs kom þó
ekki niður á tónleikahaldinu, hann tromm-
aði eins og vindurinn. Eftir tónleikahald í
Dresden hélt Emíliana til Sviss með fylgd-
arliði en þurfti aðeins að skreppa til Düssel-
dorf til að troða upp í þætti þýsks Hemma
Gunn, Oliver Pocher, og flutti að sjálfsögðu
„Jungle Drum“ við afar góðar undirtektir.
Að lokum má geta þess að þær Emilíana
og Lay Low sungu eitt fríkvöldið saman í
karókí lagið „Crazy“ eftir Patsy Klein. Sig-
tryggur segir þær stöllur hafa sungið af
slíkri innlifun að annað eins hafi vart sést.
Innlifunin mun þó eitthvað hafa komið nið-
ur á gæðum söngsins. helgisnaer@mbl.is
Sigtryggur Baldurs gat þó ekki teygað
bjórinn að hætti þýðverskra þar sem hann
var á pensilín-kúr allsterkum eftir að kýli á
vinstri handleggnum á honum var fjarlægt.
„Þetta var bara lítill fílapensill en svo fór
hann að vefja upp á sig, það myndaðist ein-
hver fituvefur undir húðinni og svo bara
hljóp einhver sýking í þetta,“ segir Sig-
tryggur og verður lesendum Morgunblaðs-
ins hlíft við frekari myndrænum lýsingum
Sigtryggs á kýlinu (en það mun hafa verið
um það bil að taka yfir líkama hans, hvísl-
aði m.a. að honum á nóttunni að hann ætti
að eitra fyrir hljómsveitina). Læknir fjar-
lægði kýlið og segir ekki meir af þeimEmilíana Í þætti Pocher, hins þýska Hemma Gunn.
„Jungle Drum“ á októberfest
og þýskur Hemmi Gunn
Emilíana Torrini og félagar hafa verið á flandri um Evrópu
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
HANN heitir Jón og er skyggn.
Strákurinn sem leikur hann heitir
Magnús Aron Sigurðsson og er í sjö-
unda bekk í Seljaskóla. Við erum
auðvitað að tala um Hamarinn,
spennuþáttinn sem sýndur er í sjón-
varpinu á sunnudagskvöldum. Einn
þáttur er eftir og spennan í hámarki.
Magnús hefur óneitanlega vakið
mikla athygli fyrir fallega túlkun
sína á dulúðuga sveitastráknum.
„Ég fór á tvö leiklistarnámskeið, í
hittiðfyrra og fyrra, og svo kom
pabbi heim einn daginn og sagði mér
að ég væri að fara í prufu. Mér leist
alveg ágætlega á það því ég hafði
einu sinni áður farið í leikprufu,“
segir Magnús. Hann var svo áfjáður
að komast í leiklist að hann lagði það
á sig að fara ofan úr Seljahverfi í
Austurbæjarskólann á námskeiðin –
það var allt fullt á leiklistarnám-
skeiðunum í skólanum hans.
Ekkert mál að fara í leikprufu
„Þegar ég kom í prufuna talaði ég
við Garúnu sem er aðstoðarleikstjór-
inn. Ég þurfti að þykjast vera sof-
andi. Svo átti ég að ímynda mér að
ég væri í skógi. Svo fór hún að tala
hratt og þegar hún klappaði átti ég
að vakna og anda geðveikt hratt. Svo
átti ég að hlaupa niður og kalla:
Mamma! Það var nú ekki meira en
þetta í prufunni,“ segir Magnús.
„Svo fékk ég hlutverkið og mér
var sagt að ég ætti að leika strák
sem væri skyggn. Ég vissi ekkert
meira. Ég vissi þó nokkurn veginn
hvað það væri að vera skyggn. Ég
hafði bara leikið í leikritum áður og
mér fannst talsvert öðru vísi að leika
fyrir framan myndavélina. En ég
vissi alveg hvað ég átti að gera og
allt var útskýrt mjög vel fyrir mér.“
Magnús hugsar sig vel um þegar
hann er spurður að því hvort hann
og Jón séu líkir.
„Nei, ekkert rosalega. Hann á að
vera átta ára, en ég lék hann þegar
ég var tíu og ellefu ára. Ég lék niður
fyrir mig í aldri og mér var sagt að
leikarar gerðu það oft.
Þetta var ekkert svo erfitt. Hvert
atriði tók í mesta lagi hálftíma en
fyrst eyddi ég heilum degi í að lesa
handritið. Ég þurfti ekki að læra það
utan að, heldur bara lesa það vel og
kunna nokkurn veginn það sem ég
átti að segja og vita hvernig minn
karakter ætti að vera.“
Magnús segir að það hafi verið
mjög gaman að leika með alvöru
leikurum. „Maður lærir ansi mikið af
því. Ég ætla líka fara í leiklistarskól-
ann þegar ég verð eldri.“
Og hvort er betra, leikhús eða
sjónvarp? „Það er mjög gaman núna
þegar verið er að sýna þættina en
það er líka gaman að leika fyrir
framan fullt af áhorfendum.“
Ekkert svo líkur Jóni
Magnús Aron Sigurðsson leikur skyggna strákinn Jón í spennuþættinum Hamrinum
Magnús Aron Sigurðsson „Mjög mörgum í skólanum finnst flott að ég hafi verið að leika í Hamrinum og nokkrir
krakkar hafa beðið mig um eiginhandaráritum. Það er bara mjög gaman að vera svona hálffrægur,“ segir Magnús.
„Það er alltaf gaman að leikstýra
krökkum, sérstaklega ef krakk-
arnir eru áhugasamir“ segir Reynir
Lyngdal leikstjóri Hamarsins.
„Ég hef unnið mikið með
Garúnu, sem er aðstoðarleikstjóri í
þáttunum og þegar við vinnum
með börnum gerum við það saman
til að skapa trúnað við þau. Þá get-
um við skipst á ef mikið er að gera
hjá hinu, þannig að barnið sé aldr-
ei óöruggt. Aðalatriðið er að skapa
þannig umhverfi að krökkunum líði
vel og þau skilji,“ segir Reynir.
Magnús Aron kom í prufu fyrir
hlutverk stráksins í Hamrinum.
„Hann var alveg brillíant. Við könn-
uðumst við hann, því pabbi hans
vinnur stundum við kvikmyndir.
Magnús var alveg á pari við aðra
leikara í þáttunum og það vafðist
heldur ekkert fyrir honum að leika
skyggnan strák. Hann hefur ein-
hvern eiginleika þessi strákur sem
er eins og hann sé sjálfur skyggn.
Það er eitthvað í augunum á hon-
um frá náttúrunnar hendi.“
En veit stráksi hvernig málum er
háttað? „Hann er eins og gamla
konan – finnur hlutina á sér, sér
fyrirboðana og táknin. Kannski
veit hann, kannski ekki.“
Kannski veit hann, kannski ekki
JFM Gerði víðreist á
Iceland Airwaves.