Morgunblaðið - 20.10.2009, Síða 30

Morgunblaðið - 20.10.2009, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2009 Nýjasta mynd Almodóv-ars, Brostin faðmlög,var frumsýnd nú umhelgina. Erfitt er að taka söguþráðinn saman í stutt mál því efniviður hverrar myndar þessarar kempu myndi nægja í a.m.k. tuttugu Hollywood-handrit eins og sést vel á frægustu mynd- um hans Allt um móður mína (Todo sobre mi madre, 1999) og Talaðu við hana (Hable con ella, 2002). En í viðleitni má segja að aðalhetjan Harry Caine (Homar) sé blindur handritshöfundur sem þarf að gera upp fortíðina. Fjórtán árum áður var hann frægur kvik- myndaleikstjóri og þekktur undir sínu rétta nafni, Mateo Blanco. Hann var í óðaönn að leikstýra síð- ustu mynd sinni með hinni íðil- fögru Lenu (Cruz) í aðalhlutverki. Þau felldu hugi saman en ýmsir aðstandendur þeirra fundu mein- bugi á sambandinu eins og milljónamæringurinn Ernesto Martel (Gómez) sem Lena var heitbundin. Þetta er því ástarsaga með afbrigðum, heift, spennu- þrungnum hefndum og losta. Myndin er unnin í samstarfi við Sony Pictures og því hafði Almo- dóvar meiri fjárráð en áður til framkvæmda. Hingað til hefur hann valið að starfa sjálfstætt á Spáni þar sem hann hefur full yf- irráð og hömlur kvikmyndaaka- demíunnar eru minni. Hollywood hefur gengið á eftir honum með grasið í skónum um alllangt skeið og svo virðist sem höfundurinn hafi loks látið slag standa. Myndin er fyrir vikið ekki eins stuðandi og fyrri verk hans. Hún er fínpúss- aðri bæði í stíl og frásögn og rífur lítið sem ekkert í siðferðiskennd áhorfenda þar sem minna fer fyrir afkáralegu gríni, bannhelgi og stríðri árás á bragðdaufa meðal- mennsku. Þess í stað er afþreying- argildi myndarinnar hámarkað og stílhrein formfágun hennar vekur sjónræna nautn meðal áhorfenda. Öll leikumgjörð, kvikmyndataka og lýsing er stórfengleg. Hver einasti rammi er útpældur, litir og áferð ríma og takast á og sviðsmyndin er gjarnan notuð til innrömmunar. Almodóvar hefur þó alls ekki kastað öllum einkennum höfund- arverks síns fyrir róða. Persónur sem leika tveimur skjöldum og stjórnast af hamslausum ástríðum ráða ríkjum. Endalausar ramma- frásagnir, með sögu inni í sögu og endurlitum, eru fyrirferðarmiklar bæði í frásögn og myndrænni framsetningu. Almodóvar heldur einnig keikur áfram að endurvinna kvikmyndaarfinn almennt og höf- undarverk sitt með vísunum í frægar myndir. Síðasta kvikmynd Harrys Caines er í raun ný útgáfa af mynd Almodóvars, Konur á barmi taugaáfalls (Mujeres al borde de un ataque de nervios, 1988), sem hann hefur lengi ætlað að gera sjónvarpsseríu úr fyrir bandarískan markað. Almodóvar hefur einnig sjálfur gantast með og mundað dulnefnið Harry Caine þegar hann þykist sýta þær höml- ur sem vinsældir og væntingar áhorfenda setja honum. Það eru því ekki bara persónur sem villa um fyrir áhorfendum með hrífandi, litríkum ráðgátum – höfundurinn ber sig eins að. hjordst@hi.is Stílhrein formfágun Kvikmynd í kvikmynd Leikkonan Penélope Cruz leikur leikkonuna Lenu í Brostnum faðmlögum Almodóvars. Græna ljósið, Regnboginn. Brostin faðmlög/Los abrazos rotos bbbbm Leikstjórn og handrit: Pedro Almodóvar. Aðalhlutverk: Penélope Cruz, Lluís Homar, Blanca Portillo, José Luis Góm- ez, Tamar Novas, Rubén Ochandiano. 129 mín. Spánn, 2009. HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR KVIKMYND Ferill leikkonunnar Penélope Cruz blómstrar í samstarfi við Almodóvar. Brostin faðmlög er fjórða samstarfsverkefni þeirra en þess má geta að hjartaknús- arinn Antonio Banderas ruddi sér til rúms með leik sínum í nokkrum myndum Almodóvars á níunda áratug síðustu aldar. Hlutverk hans voru þó um margt ólík þeim sem hann er hvað frægastur fyrir en hann lék gjarnan ofstækisfulla kyn- lífsfíkla, umsáturs-laungæja og bælda mömmustráka. Fjórða verkefni Cruz FYRSTU átta lögin af vænt- anlegri plötu Tom Waits eru fá- anleg á opinberri heimasíðu Wa- its án endurgjalds. Platan ber heitið Glitter and Doom Live og var tekin upp á tónleikaferð Waits um Evópu og Bandaríkin á síðasta ári. Platan kemur út 24. nóvember næstkomandi. Útgáfan er í tvennu lagi, annars vegar lög úr tónleikaferðinni og hins vegar sögur sem Waits segir áhorf- endum. Fyrstu átta lögin, sem fáanleg eru ókeypis, eru eftirfarandi: „Lucinda / Ain’t Goin Down“ (tekið upp í Birmingham í mars árið 2008), „Singapore“ (tekið upp í Edinborg í júlí), „Get Be- hind the Mule“ (Tulsa, júní), „Fannin Street“ (Knoxville, júní), „Dirt in the Ground“ (Mílanó, júlí), „Such a Scream“ (Mílanó júlí), „Live Circus“ (Jacksonville, júlí) og „Goin’ Out West“ (Tulsa, júní). Lögin má nálgast á vefsíðunni tomwaits.com. Reuters Gjafmildur Tom Waits býður aðdá- endum sínum upp á ókeypis lög. Waits gefur aðdáendum átta lög Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Jóhannes kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára Guð blessi Ísland kl. 6 LEYFÐ Broken Embraces kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.12 ára Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára Jennifer‘s Body kl. 10:20 B.i.16 ára The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 B.i.14 ára Inglorious Bastards kl. 6 - 9 B.i.16 ára Jóhannes kl. 7 - 9 - 11 LEYFÐ Guð blessi Ísland kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 6 - 9 B.i.16 ára The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 B.i.14 ára Antichrist ATH. ótextuð kl. 10:20 B.i.18 ára SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI HHH „Tímamótamynd!” – Erpur Eyvindarson, DV HHH – Sæbjörn Valdimarsson, Mbl „Áhugaverð og skemmtileg.” – Dr. Gunni, Fréttablaðið SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI HHH „9 er með þeim frumlegri – og drungalegri – teiknimyndum sem ég hef séð í langan tíma. Grafíkin er augnakonfekt í orðsins fyllstu merkingu.” T.V. – Kvikmyndir.is HHH „Teikningarnar og tölvu- grafíkin ber vott um hugmyndaauðgi og er afar vönduð, sannkallað konfekt fyrir augað.” -S.V., MBL „9 er allt að því framandi verk í fábreytilegri kvikmyndaflórunni, mynd sem skilur við mann dálítið sleginn út af laginu og jákvæðan” -S.V., MBL SUMIR DAGAR... NÝ ÍSLENSK GAMANMYND www.facebook.com/graenaljosid „Stórskemmtileg!” – Hollywood Reporter HHH „Jóhannes er myndin hans Ladda, hún er röð af bráðfyndnum uppákomum sem hann og pottþétt aukaleikaralið koma frábærlega til skila svo úr verður ósvikin skemmtun. ...Sann- kölluð „feelgood”- mynd, ekki veitir af.” – S.V., MBL HHHHH „Þetta er alvöru tær snilld.” A.K., Útvarpi Sögu HHH -Empire „10 ára sonur minn hafði mun meira gaman af því að horfa á þessa mynd en hina sykursætu Wall-E“ -K.G., Ynja.net 600 k r. 600 kr . 600 kr . HHHHH „Æðisleg. Þetta er það besta síðan Sódóma Reykjavík“ Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.