Morgunblaðið - 20.10.2009, Page 32

Morgunblaðið - 20.10.2009, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2009 88/100 CHICAGO SUN-TIMES, ROGER EBERT DRAUMAR GETA RÆST! ÞESSI KEMUR ÞÉR Í „FEELING“ Frábær tónlist, frábær dans, frábær mynd! SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM THE HAUNTING IN CONNECTICUT ATH. ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMASÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA FRÁ LEIKSTJÓRA 40 YEAR OLD VIRGIN OG KNOCKED UP. STÓRKOSLEG GRÍNMYND MEÐ ÞEIM ADAM SANDLER, SETH ROGEN OG ERIC BANA HHHH - S.V. MBL SÝND MEÐÍSLENSKU TALI ÆVINTÝRI, GRÍN OG GAMAN! STÓRSKEMMTILEG MYND FRÁ DISNEY FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA FRÁ LEIKSTJÓRA CRANK HÖRKU HASARMYND ÞÚ SPILAR TIL AÐ LIFA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI / KRINGLUNNI ROBBIE WILLIAMS LIVE Tónleikar í beinni kl. 7D L DIGITAL GAMER kl. 8:15D - 10:20D 16 DIGITAL SKELLIBJALLA OG TÝNDI FJÁRSJ. m. ísl. tali kl. 6D L DIGITAL FAME kl. 8:10D Sýnd á morgun L DIGITAL ORPHAN kl. 10:30 16 SURROGATES kl. 8:20 12 DISTRICT 9 kl. 10:20 16 ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN AÐ VILLA kl. 6D Sýnd á morgun L DIGITAL UPP m. ísl. tali kl. 6 L / ÁLFABAKKA GAMER kl. 5:50 - 8D - 10:10D 16 DIGITAL SURROGATES kl. 8 - 10:20 12 GAMER kl. 8 - 10:10 LÚXUS VIP ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN AÐ VILLA kl. 6 L SKELLIBJALLA.. m. ísl. tali kl. 6D L FUNNY PEOPLE kl. 8 12 FAME kl. 5:50 - 8 - 10:20 L HAUNTING IN CONNECTICUT kl. 10:40 16 ORPHAN kl. 8 - 10:40 16 LÚXUS VIP UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:50 L SURROGATES kl. 6 LÚXUS VIP GAMER ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN... SKELLIBJALLAOGTÝNDIFJ. m FAME ORPHAN Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is HUGRÚN Dögg Árnadóttir og Magni Þorsteinsson, kærustupar og eigendur verslananna Kron og Kronkron, hafa verið að gera það gott seinasta árið. Skór sem þau hanna undir merkinu Kron by Kronkron fást nú í fjölda landa og segist Hugrún hæstánægð með árangurinn, áhuga erlendra versl- ana og viðtökur almennt, m.a. fjöl- miðla. „Við opnuðum Kron fyrir níu ár- um og Kronkron fyrir fimm árum. Svo kom skólínan okkar á markað fyrir ári, í október 2008, þegar svart- nættið var hvað mest hér á landi. Hún fékk rosalega góðar viðtökur og síðan þá eru komnar fjórar línur hjá okkur. Við vorum að koma frá París og London, vorum á tískuvikunum þar að kynna okkur,“ segir Hugrún. Vogue, Elle, Thames & Hudson „Þetta hefur bara gengið svona rosalega vel. Strax í byrjun þessa árs vorum við valin í hitt og þetta, það er svo rosalega margt búið að gerast. Til dæmis má nefna að bóka- útgáfan Thames & Hudson, einn virtasti listabókaútgefandi heims, er að gefa út bók um bestu skólínurnar frá 1950 til samtímans. Við vorum valin inn í þá bók og svo höfum við verið í öllum helstu tískublöðunum, Vogue og Elle t.d., og erum núna komin í nokkra tugi verslana um all- an heim. Þannig að þetta eru spenn- andi tímar,“ segir Hugrún. Þá er Kron by Kronkron komið á As- íumarkað, sem er ansi stórt skref á mælikvarða tískunnar, gríðarstór markaður þar. Er Kron by Kronkron að verða heimsþekkt merki? „Ég ætla ekki að segja neitt til um það, við fáum allavega rosalega góð- ar viðtökur,“ segir Hugrún og bætir því við að Hönnunarsjóður Áróru hafi gert þeim lífið mun auðveldara með því að styrkja þau til sýn- ingahalds erlendis. Eitthvað nýtt gerist á hverjum degi, blaðamenn frá Kína og Hong Kong hafi t.d. ver- ið að skrifa greinar um skóhönnun þeirra Magna í vikunni. Dreymir um skó Nú eru þetta kvenskór, hvað ber að hafa í huga við hönnun þeirra? „Það sem við höfum haft að leiðar- ljósi er að gera það sem okkur lang- ar til, án þess að líta til nokkurs ann- ars. Við byrjuðum með skóbúðina okkar, Kron, fyrir níu árum og við höfum eiginlega alltaf hugsað allt í skóm, það gengur allt út á skó hjá okkur. Mig dreymir skó og ég hugsa í skóm,“ segir Hugrún. Hún hafi m.a.s. hugsað um skó í miðri barns- fæðingu. Hvað er sérstakt við ykkar skó? „Þeir hafa kannski verið svolítið ólíkir öllu öðru sem er til á mark- aðnum. Þeir eru litskrúðugir og mik- ið um smáatriði í þeim, rosalega vel gerðir, handbragðið sést vel. Hönn- unin sem slík virðist höfða til stórs hóps.“ Hvað er framundan hjá ykkur? „Bara að halda okkar striki og gera enn betur.“ Kron by Kronkron nemur lönd víða  Skóhönnun Hugrúnar og Magna verður í yfirlitsbók Thames & Hudson um slíka hönnun  Skóna má finna í fjölda verslana um allan heim og helstu tískuritum Morgunblaðið/Heiddi Hugrún og Magni Skó-parið í skóverslun sinni Kron þar sem hönnun þeirra, Kron by Kronkron, er til sölu. Litríkt Það er mikið lagt í hönnun Kron by Kronkron. Tvist? Þessi unga fyrirsæta er annað hvort að tvista eða að lenda. Svart og hvítt Skvísulegir skór við háa sokka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.