Saga


Saga - 1957, Side 56

Saga - 1957, Side 56
270 til vita, er Teitur nokkur, mikilmenni, er bjó í Auðsholti fyrir austan Skálholt, hann gjörði sig að austan meður flokk manna og vopnaður vel og allt undir Skjaldbreið, eður hvað lengra und- ir jökulinn hann fór að austan, og náttaði þar. En það er sögn hans og þeirra, er með honum voru, að þeim var varla vært um nóttina. Gjörði á þá þoku mikla og létti eigi upp, fyrr en þeir sneru hýbýlum á leið og heim aftur til byggða. En úr þokunni var svo við kveðið: Tröllin taka þig allan, Teitur, ef þú fer að leita. Síðan hef eg ei heyrt getið um, að nokkur hafi til orðið þess að freista að finna upp eða leita að nefndum Áradal, er með réttu heitir Þóris- dalur“, o. s. frv. (Blanda VIÍI, 344). Frásagnir þessar af ferð Teits fylla að nokkru hvor aðra, en þó er frásögn síra Helga miklu skilmerkilegri. Þjóðsögukennt er auðvitað það, sem segir um vísustefið, er kveðið hafi verið úr þokunni, enda minnir það á kviðling einn í Grettis sögu. Að öðru leyti virðist ekkert þurfa að vera athugavert við sannleiksgildi sögunnar. Og þó að rannsóknarferð þessi heppnaðist ekki og Teitur og félagar hans kæmust ekki í Þóris- dal, þá er hún engu að síður merkileg fyrir þá sök, að hún er fyrsta tilraun til að kanna óbyggðir landsins, sem sögur fara af, á síðari öldum. Vopna-Teitur var því brautryðjandi á því sviði, og ætti nafn hans þess vegna skilið að geymast í landfræðisögu vorri. Um þær mundir sem Vopna-Teitur bjó í Auðsholti, bjó Þormóður Ásmundsson lögréttu- maður í Bræðratungu og átti þá jörð. Þormóður
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.