Saga


Saga - 1957, Side 70

Saga - 1957, Side 70
284 raunverulegan hæðarmismun hafi verið að ræða milli þess fólks, sem sýnishornin eru tekin af. Til þess að auðvelda samanburðinn milli flokkanna hef ég breytt hæð konunnar í tilsvarandi karl- mannshæð með því að deila í konuhæðina með kynvísitölu hæðarinnar, þ. e. a. s. hlutfallinu milli meðalhæðar konu og karls. Það er reiknað út af meðaltali allra flokkanna fyrir 1600 og er 0,925 eða alveg sama hlutfall og nú er á milli hæðar konu og karls (sbr. töflu II). Þessar töl- ur yfir mestu meðalhæð karla, útreiknaðar af hæð beggja kynja, eru í aftasta dálkinum í töflu I, og kemur þar fram, að hæðin er nær sú sama í þrem flokkunum frá tímum kaþólskunn- ar hér á landi, eða frá 171,5 til 172,0 sm, en í flokknum úr heiðni er hæðin nokkru meiri eða 173,2 sm. Munurinn á honum og lægsta flokkn- um (ýmsir fundarstaðir) er þó ekki meiri en það, að hæglega getur tilviljun ein ráðið hon- um, auk þess sem fólkið í þeim flokki hefur vafalaust flest verið almúgafólk, en í þeim heiðna eflaust mestmegnis höfðingjar. Að svo miklu leyti sem unnt er að draga ályktanir af ekki meiri efnivið, þá virðist líkamshæðin hafa haldizt nokkurn veginn óbreytt fyrstu fimm til sex aldirnar, sem þjóðin byggði landið, og trú- lega verið mjög lík alls staðar á landinu, að minnsta kosti á Suður-, Norður- og Suðvestur- landi. í flokkunum frá 17. og 18. öld er líkamshæð- in mun minni en í þeim fyrir 1600, og er þó full ástæða til að álíta, að hæð Skálholtsfólksins sé meiri en almennt gerðist þá á íslandi, vegna þess að aðeins meiri háttar fólk eignaðist leg- stað í Skálholtskirkju. Hver raunveruleg meðal-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.