Saga


Saga - 1957, Page 96

Saga - 1957, Page 96
310 tiltekin örnefni, og um Minþakseyri gegndi auk þess sérstöku máli, þar sem fyrri hluti orðsins var af írskum uppruna og þurfti skýringar við. Enn fremur má minna á þá skaftfellsku arf- sögn, sem getið er um í Landnámu, að enginn hafi þorað að búa fyrir austan Grímsá fyrir landvættum, síðan Hjörleifur var drepinn, fyrr en Ölvir Eysteinsson nam þar land. Ekki er ósennilegt, að frásögnin af vesturvíking Hjör- leifs hafi varðveitzt á sömu slóðum, þótt um það verði ekki fullyrt. II. I Landnámu segir, að þeir Ingólfur og Hjör- leifur færi tvisvar til íslands, í fyrra sinni til að kanna landið, og fám árum síðar til að setj- ast þar að. Þetta kemur heim við það, sem Ari fróði segir um Ingólf, en íslendingabók getur Hjörleifs að engu. Þó er ekki ósennilegt, að Ari hafi þekkt sagnir af Hjörleifi, og Minþakseyri er eitt þeirra fáu örnefna, sem koma fyrir í ís- lendingabók. Samkvæmt Landnámu fór Hjör- leifur í vesturvíking á milli Islandsferðanna og kom að vestan ári fyrr en síðari förin var far- in, eða 873 eftir hinu umdeilda tímatali forn- íslenzkra sagnaritara. Kaflinn um vesturför Hjörleifs hljóðar á þessa leið í Landnámu: „Leifur fór í vesturvíking. Hann herjaði á írland og fann þar jarðhús mikið. Þar gekk hann í, og var myrkt, þar til er lýsti af vopni því, er maður hélt á. Leifur drap þann mann og tók sverðið og mikið fé ann- að. Síðan var hann kallaður Hjörleifur. Hjörleifur herjaði víða um írland og fékk þar mikið herfang. Þar tók hann þræla
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.