Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 15
MAGNÚS FINNBOGASON kennari:
Menntaskólinn í Reykjavík
og erfSavenjur hans
Menntaskólinn í Reykjavík er langelzta
menntastofnun íslendinga, eins og kunnugt
er. Hann er hin eina íslenzka menntastofn-
un, sem á sér nokkra verulega sögu, því að
saga hans nær í raun og veru allt aftur til
1552, en saga flestra annarra íslenzkra skóla
nær aðeins yfir nokkra áratugi eða minna.
Árið 1552 gaf Kristján III., Danakonung-
ur, út tilskipun þess efnis, að stofnaður
skyldi sinn latínuskólinn á hvoru biskups-
setrinu, Skálholti og Hólum. Ekki er það ætl-
unin að rekja hér sögu þessara skóla, meðan
þeir störfuðu á biskupssetrunum, — aðeins
skal þess getið, að Skálholtsskóli var fluttur
til Reykjavíkur eftir móðuharðindin (1787)
og nefndist þá Hólavallaskóli eftir staðnum,
sem hann var reistur á, — og hins, að Hóla-
skóli var lagður niður árið 1801 og samein-
aður Hólavallaskóla. Árið 1805 var Hóla-
vallaskóli fluttur að Bessastöðum, og starf-
aði hann þar, unz hann var fluttur aftur til
Reykjavíkur haustið 1846, og hlaut þá þau
húsakynni, sem hann býr enn við.
Þannig er Menntaskólinn í Reykjavík beint
framhald hinna fornu latínuskóla á biskups-
setrunum.
Hús það, er menntaskólinn hefst við í,
er nú hart nær aldar gamalt og á sér því
miklu lengri sögu en nokkurt annað íslenzkt
skólahús. En þetta gamla hús á sér einnig
aðra sögu, því að það var samkomustaður
hins endurreista Alþingis um langt árabil.
Þótt saga þessa húss taki yfir stuttan
tíma af sögu skólans, er það þó svo fornt,
Magnús Fitinbogason.
að þar má svo að segja heyra skóhljóð
margra liðinna kynslóða, hvenær sem við fá-
um lagt við hlustirnar fyrir glym vígaldar
þeirrar, sem nú svellur umhverfis okkur. —
Um þessi salarkynni, þar sem við, kennarar
og nemendur, störfum saman í dag, hefur
leið margra hinna ágætustu manna þjóðar-
innar legið í nærfellt hundrað ár. Þar hafa
þeir átt sína gleði og sínar áhyggjur, sína
sigra og sína ósigra, sínar vonir og von-
brigði, eins og þið eigið í dag, kæru nem-
endur.
Þessi langa saga skólans og skólahússins
á drýgstan þátt í því, að við hann eru tengd-
Skólablaðið
13