Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 48
— Ég klíp mig allan og kreisti, hristi höf-
uðið, hlusta eftir andadrættinum, tel æða-
slögin. — Nei, ég er stálhraustur, og þetta
bjargar ekki.
En hvernig væri það að þykjast hafa
sofið yfir sig. Það hefur mörgum reynzt
vel. Ég slepp þá að minnsta kosti við fyrsta
tímann. Það er betra en ekkert.
Ég íhuga það mál vandlega, en kemst
að þeirri niðurstöðu, að það sé gagnslaust og
afskaplega vitlaust. í fyrsta lagi væri það
lygi af verstu tegund, og enginn, sem vill
verða fullkominn maður, lýgur. Það væri
voðalegt brot á mínum góðu reglum um fag-
urt og hreint líf. — I öðru lagi er þetta svo
mikil hneisa, að allir myndu gera gys að
mér fyrir það. Það sofa engir yfir sig í raun
og veru nema letingjar og ræflar, sem aldrei
geta drullazt í bælið. Menn myndu segja við
mig: „Nú hefurðu verið að lesa í nótt,“ eða:
„þú varst á kvennafári í gærkvöldi". — Nei
og aftur nei. Sízt af öllu sef ég yfir mig.
Það er þá alveg vonlaust, að hægt sé að
losna við tímana. Ég verð að fara. Það er
ekkert tillit tekið til sálar- og líkamskval-
anna, sem þetta hefur í för með sér.
Á meðan ég klæði mig, renni ég huganum
yfir hinn ókomna tíma. Það er alveg vanda-
laust, því að allir virkir dagar eru eins.
Mánudagur og þriðjudagur, miðvikudagur
og fimmtudagur, föstudagur og laugardagur,
— það eru sex dagar sálarkvala og leiðinda. Á
þeim eru 32 kennslustundir, þrjátíu og tveir
möguleikar til að kvelja mann með spurn-
ingafargani. Og ég eygi enga möguleika út
úr ógöngunum.
Já, sannarlega er lífið þjáning — og
heimska líka. Fyrst þjáist maður sex daga
í skólanum, bölvandi og formælandi öllum
þessum lærdómi, sem maður er þó að sækj-
ast eftir. Á þeim sjöunda, sem á að vera
helgur dagur, ætti maður þá víst að vera
góður og skemmtilegur, — ó, nei, ekki er
því nú að heilsa. Þá tekur nú út yfir allt
það illa frá virku dögunum. Þeir eru bara
svolítið barnagull á móti þessum sunnudög-
um. — Alla vikuna hlakkar maður til sunnu-
dagsins, þótt í hausnum séu mörg hundruð
minningar um þessa daga. Sífelld von um,
að næsti sunnudagur verði betri, er alltaf
að svífa um í heilabúinu. En næsti sunnu-
dagur verður bara ekkert betri. Hann verður
eins og allir hinir. — Og það eina, sem aldrei
getur orðið, er það, að sunnudagurinn verði
skemmtilegur.
(Hugleiðingar á mánudagsmorgni,
21. febrúar. Úr stíl.)
Friðrik Þórðarson.
Heildverzlunin HEKLA h.f.
REYKJAVÍK Hafnarstræti 10—12 Símar 1275—1277
SÖLUTJMBOÐ FYRIR: VINNUFATAVERKSMIÐJAN H.F. VERKSMIÐJAN MERKÚR H.F. HERKÚLES H.F.
Utvegum frá Bandaríkjunum flestar fáanlegar vörur.
46
Skólablaðið