Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 38

Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 38
hengja hana upp, hún var ævagömul og af sér gengin, enda varla þess konar mynd, sem átján ára stelpuhnokki myndi vera æst í að hafa yfir rúminu sínu. Hins vegar gat ég ómögulega fleygt myndinni, því að hver veit, nema Brynki gengi þá aftur. — Hvað átti ég að gera? — Til bráðabirgða setti ég mynd- ina í hornið bak við litla borðið og lét hana snúa inn að vegg. Jæja, þetta gleymdist nú smám saman, og líklega hefði myndin fengið að dúsa þarna til eilífðar, ef undarlegt atvik hefði ekki komið fyrir. Það var núna einn föstudag, að ég sat heima og var góða barnið. Ég var búin að hlusta á útvarpssöguna og hlæja mig máttlausa yfir viðskiptum Börs Börssonar og Óla í Fitjakoti, og að því búnu ætlaði ég að sýna mikía framtakssemi og stoppa í sokka, en sokkar eru eitt af mestu áhyggju- efnum kvenfólksins. En það komst nú aldrei svo langt, því að ég fékk óþolandi höfuðverk og dró mig í „koju“. Ég sofnaði næstum tafar- laust og hef víst sofið alllengi, en allt í einu hrökk ég upp með andfælum. Ég heyrði eitt- hvert þrusk og hafði óljóst á tilfinningunni, að einhver annar væri í herberginu hjá mér. Mér varð aldeilis ekki um sel og þorði hvorki að hreyfa legg né lið. En þegar augu mín voru farin að venjast myrkrinu betur, gat ég greint einhverja mannveru í horninu við gluggann. Við nánari athugun sé ég, að þetta er Brynki. Hann er þá búinn að taka myndina, gjöfina frá sjálfum sér, heldur á henni í hendinni og skimar í kringum sig, eins og hann væri að skima að hæfilegum stað fyrir hana. Og viti menn, hann rífur niður skólaspjald af nemöndum Flensborgar- skólans 1938—39 og stingur því út í horn, en sína mynd strýkur hann blíðlega og hengir hana upp með varkárni í staðinn. Þarna stóð hann stundarkorn, virti hana fyrir sér með velþóknun og dæsti ánægjulega, eins og hann var vanur að gera í lifanda lífi. Síð- an leit hann til mín dapurlega á svip og hristi höfuðið, eins og hann vildi segja: „Mikið gott gætirðu lært af þessari mynd, ef þú vildir og nenntir.“ Og sjá, þarna fyr- ir framan mig leystist hann upp í móðu, og áður en ég hafði tíma til að átta mig, sást hvorki tangur né tetur eftir af honum. Mér varð ekki lengri svefns auðið þessa nótt. Ég þorði ekki einu sinni að standa upp og athuga, hvort mér hefði ekki skjátlazt. En um morguninn sá ég, að ég hafði tekið rétt eftir. Skólaspjaldið var komið út í horn og sneri inn að vegg, en á veggnum hékk myndin frá Brynka, og mennirnir tveir virtu mig fyrir sér, annar með yfirlætislegu glotti á vörunum, en hinn gagntekinn af dauðans angist. Ég þarf víst varla að taka það fram, að myndin hefur ekki verið hreyfð síðan. Álfheiður Kjartansdóttir. 5. A. 36 Skólablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.