Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 25
FRIÐRIK SIGURBJÖRNSSON:
Það er dáinn maður í þessu húsi
Smásaga um sumar og sólskin, æskuástir
og afbrýðisemi.
Ég heyrði það ekki fyrr en í dag. í gær
var hann með fullu fjöri, en í dag liðið lík.
Það var tilviljun ein, að ég fékk að vita það.
Mér varð gengið fram hjá lágreistum timb-
urkofa með fjórum hornskökkum gluggum
á gaflinum.
Þá sá ég, að fyrir einn gluggann var dreg-
ið, og um leið sagði mér drenghnokki, að
það væri vegna þess, að dáinn maður væri
í húsinu. Ég spurði að heiti mannsins, og
stráksi sagði hann heita Einar Pálsson.
Meira þurfti ég ekki að vita. — Ég vissi,
hver hann var. — Mig setti hljóðan augna-
blik, en svo brosti ég í laumi og hélt áfram.
„Þá var hann farinn,“ hugsaði ég. „Hvar
skyldi hann nú hafa lent? Á þeim efra eða
neðra?“ Ég var í vafa. Og var það nokkur
furða? Ég þekkti Einar Pálsson. Ef til vill
hafði enginn þekkt hánn betur en ég. Ef til
vill hafði enginn orðið fyrir bitrari reynslu
vegna hans en ég.
En það er einmitt það, sem mig langar að
segja ykkur frá. — Þið skuluð ekki búast
við neinum stórtíðindum í sambandi við það.
Það verður aðeins sönn saga úr daglega líf-
inu.
Á yngri árum mínum dvaldist ég oftast
í sveit á sumrin. Það var í vinalegum dal
með fjöll á tvær hliðar, víðáttu heiðalands-
ins á þriðju og opið haf á fjórðu hlið. Til-
breytnin í landslagi var geysimikil og varla
mögulegt að láta sér leiðast.
Það hafði þó komið fyrir, að strákgeml-
ingur, sem hafði verið þar til snúninga, hafði
strokið heim til sín, en það var aðeins und-
antekning, enda piltgarmurinn örverpi og
ekki orðinn að manni ennþá.
Bæir voru margir í dalnum, og það var
fögur sjón að horfa frá Hóli, bænum, sem ég
var á, fremst í dalnum, inn yfir, — sjá
bláhvíta reykjarmekki liðast hægt og hátíð-
lega upp í loftið úr litlum reykháfum bæj-
anna. — Slík sjón á fögrum sumardegi, þeg-
ar sólskinið stafaði í hafið og loftið fyllti
af fuglasöng, fyllti menn friði og sátt við
tilveruna og skapara hennar.
Á Hóli bjó hreppstjórinn. Hann átti eina
dóttur barna á aldur við mig, sem Aðalbjörg
Friðrik Sigurbjörnsson.
SKÓLABLAÐIÐ
23