Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 46
SJÁLFSTÆTT ÍSLAND
Framh. af bls. 20.
ar. Síðan kom stríðið, þá breyttust horfur
í þessum efnum, sem fyrr er getið. Það get-
ur ekki hjá því farið, að mönnum verði hugs-
að til, hverjar horfur verða í þessum mál-
um að stríðinu loknu. Sumir leiðandi íslenzk-
ir stjórnmálamenn hafa þegar lagt dóm sinn
á, hvernig umhorfs muni þá verða. Það komi
þeir tímar, að atvinnuleysi geri aftur vart
við sig. Vantrú á mátt og megin þjóðarheild-
arinnar, vantraust á sjálfan sig er einkenni
þeirra manna, er dirfast að halda slíku fram.
Óhætt er að segja, að íslandi er illa stjórn-
að, meðan atvinnuleysi er til í landinu.
Stjórnmálaspilling, flokkadrættir og sundr-
ung hafa um of sett svip sinn á þjóðlíf Is-
lendinga síðustu árin. Þessi veiklun í stjórn-
byggingu landsins hefur smitað mjög út frá
sér og verið oft og tíðum Þrándur í Götu
eðlilegri þróun. Þessi einkenni í fari þjóðar-
innar verða að hverfa og gerast afturræk
úr okkar þjóðlífi. Ef íslendingar í náinni
framtíð temja sér samheldni og einingu um
allan rekstur þjóðarbúsins og samstilltan hug
um að nýta til hlítar öll landsins gæði, get-
um við vænzt glæstrar framtíðar til handa
íslenzkri þjóð.
Gunnar Helgason.
6. B.
Eimskipafélag IsL inds
r 5 hefur frá því 1915 jafnan verið í fararbroddi í sigl- ingamálum íslendinga. —
Látið jafnan skip þess annast flutninga yðar.
ALLT MEÐ
EIMSKIP
44
Skólablaðið