Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 26

Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 26
hét. — Kolsvart hár hennar liðaðist niður á herðar og myndaði unaðslega umgjörð um drifhvítt andlitið. Það láir mér víst enginn, að frá því fyrst, að ég sá hana, leizt mér ljómandi vel á hana. -----Ég fann það brátt, að við áttum margt sameiginlegt. Áhugamál okkar fóru víða sam- an. Við gátum setið tvö ein úti í grænni nátt- úrunni tímunum saman. Ég brá henni hálsfestar úr fagurgrænum fíflaleggjum, en hún prýddi föt mín með ægi- fögrum brennisóleyjum eða blágresi.---------- Á meðan sagði ég henni sögur um allt milli himins og jarðar. Ég sagði henni, hversu ógurlega mikið ég ætlaði að verða, þegar ég yrði stór, — eiga marga bíla, 2—3 hús og marga krakka. — Og hún hlustaði á með athygli. Piltur og stúlka á 15. aldursári hafa fullt leyfi til að reisa sér loftkastala. Því að það er satt, sem skáldið segir, að: ,,— svo sem fimmtán ára. — Einmitt þá vex ástarlífsins fyrsti sumargróði og vekur sæta, djúpa, djarfa þrá í draumum vorum, sál og hjartablóði. Þá verður heimur andans allur nýr og eins og harpan fái dýpri strengi. Við leikum fögur ástarævintýr, þau eru smá, en geymast furðu lengi.“ Og áður en við í raun og veru vissum af, vorum við orðin kóngurinn og drottningin 1 þessum loftkastala-heimi okkar. Okkur fannst það svo eðlilegt og sjálfsagt. Fíflafestunum fjölgaði, loftkastalarnir hækkuðu, allt var ákveðið og það með, að engu mætti þar um breyta. Við vorum nærri orðin það, sem fullorðna fólkið með lífsreynsluna kallar trúlofuð. — En oftast kemur skúr eftir skin.---------- Sumarið endaði. Sælan mín á Hóli á blóm- skrýddum bölum og í lyngi vöxnum lautum leið á braut. — Ég fór í fyrra lagi frá Hóli. Þeir þurftu endilega að byrja skólann svo snemma um haustið. Ég kvaddi prinsessu drauma minna með kossi, fyrsta kossinum, sem við höfðum gefið hvort öðru að fullu vitandi vits um verknað- inn.------Angurblíð rödd lóunnar, sem var að kveðja eins og ég, setti svip sinn á um- hverfið. Allt virtist leika í lyndi. Mig grun- aði ekki þá, hversu fljótt veður breytast í lofti.-------- Námið í skólanum fékk mig um stund til að gleyma sælustundum sumarsins. Minning- in um angandi blómskrúð og kvakandi sum- arfugla veittu mér þó alltaf nýjan styrk við og við við lesturinn. — Og þá settist ég nið- ur og skrifaði draumadísinni minni bréf. — Fyrst í stað fékk ég bréf frá henni nokkuð reglulega. Mér fannst í hvert sinn hjarta mitt hoppa af gleði, og mér fannst ég finna angan af blágresi og brennisóley. í byrjun jólaföstu heyrði ég fyrst þess manns getið, sem átti eftir að gerbreyta öll- um áætlunum mínum. Aðalbjörg tjáði mér einu sinni í bréfi, sem auðsætt var, að skrifað var í mikilli geðshræringu, að rétt eftir að ég fór frá Hóli um haustið, hafi komið þang- að 17 ára piltur, sem hreppstjórinn átti að kenna dönsku þá um veturinn, auk þess sem pilturinn átti að aðstoða við gegningar á heimilinu.-----Pilt þennan nefndi hún Ein- ar Pálsson. Ég las það milli línanna, að hálsfestarnar, sem við Aðalbjörg höfðum brugðið hvort öðru um sumarið, voru að gefa sig. Ég fann, að í því myndi Einar þessi eiga nokkurn þátt. Mér fannst eins og bréfið væri bifu- kolla ein á við gullnu túnfíflana, hin bréfin, sem ég hafði fengið. Svo kom jólaleyfið. — Þá hafði ég ákveð- ið að leggja leið mína að Hóli og vita vissu mína, hvað liði loftköstulum mínum og heima- sætunnar. Stundu fyrir miðaftan þriðjudaginn milli jóla og nýárs gekk ég heim traðirnar á Hóli. Úti sást enginn maður. Ég gekk því rakleitt að dyrunum og knúði á. Áður en lokið var upp, opnuðust fjósdyrnar, og ég sá í höfuð á ljóshrokkinhærðum pilti og vissi á samri stundu, að þar var Einar kominn. En á bak við hann sá ég skína í drifhvítt andlit Aðalbjargar, og ég sá hana lyfta lokk frá augum sér, einum þeirra, er heillað höfðu mig svo mjög um sumarið. Ég er viss um, 24 Skólablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.