Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 29

Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 29
1) uppgötvun þyngdarlögmálsins og stjarnfræðilegar rannsóknir, 2) ljósrannsóknir, 3) uppgötvanir í stærðfræði. Sagan segir, að eitt sinn, þegar Newton lá í garði móður sinnar og hafi séð epli falla til jarðar, hafi hann grunað, að vera mætti, að sami kraftur væri hér að verki og sá, sem ylli því, að tunglið snerist kringum jörðina. Fjarlægðin frá jarðmiðjunni til tunglsins er 385000 km. eða 60 jarðradíar. Eftir slíkri braut fer tunglið hringferð sína á 27,3217 sólarhringum. Á hverri klukkustund fer því tunglið ca. 3680 km. Ef nú sá kraftur, sem heldur tunglinu í þessari hringhreyfingu, hætti verkun sinni, mundi tunglið hendast út í himingeyminn eftir snertilínu frá hring- braut sinni samkvæmt tregðulögmálinu. Þá mundi það fjarlægjast jörðina um 0,00136 m. á hverri sek., en nú fellur það, sem þessu nemur, inn á móts við jörðina. Newton sá, að þetta „fall“ er miklu minna en hluta við yfirborð jarðar. Gizkaði hann á, að aðdrátt- ur jarðar á hlutina stæði í öfugu hlutfalli við fjarlægðir þeirra frá jarðmiðjunni í 2. veldi. Þar sem nú eru 60 jarðradíar til tungls- ins, ætti fall þess við jarðyfirborðið að vex-a 60 • 60 • 0,00136 — 4.9 m. En á dögum New- tons var fall hluta á jörðinni ekki álitið nema 13 fet (3.96 m.), af því að radíus jarðar var þá talinn annar en hann er, vegna þess að gráðumælingar á jörðunni voru þá svo ónákvæmar. Newton hélt því, að ágizkun sín væri í'öng og starf- aði ekkert að þessum rannsóknum í næstu 18 ár. Hann setti þyngdarlögmálið ekki fram fyrr en í 3. hefti hins stórmerka rits Philo- sophiae naturalis principia mathematica. Hann orðaði lögmálið svo, að tveir efnis- kenndir hlutir, sem væru undir aðdráttar- áhrifum hvors annars, drægju hvor annan að sér í beinu hlutfalli við massa (efnisfylld- ir) sína, en í öfugu hlutfalli við kvaðratið af fjarlægðinni milli þeirra. Með þessu ein- falda lögmáli var lagður grundvöllurinn að ISAAC NEWTON aflfi'æði himingeimsins. Með því var hægt að reikna út þyngdir himinhnattanna. Á árunum 1666—72 gaf Newton sig að ljósrannsóknum. Hugmyndir manna um ljós- ið höfðu áður verið mjög óljósar. Tilraunir þær, sem Newton skýrir frá í riti sínu, New Theory about Light and Colours, hafaámarga lund oi'ðið undirstaða ljóseðlisfræði síðari tíma. Hann lét sólargeisla falla gegnum þrí- strent gler (prisma), og á bakgrunninn kom fram aflangur ljósblettur í öllum regnbog- ans litum, rauður efst, en fjólublár neðst. Sýndi hann þannig fram á, að hver ljós- geisli væri sínum lögum háður, þótt allir mynduðu þeir hvítt ljós, er þeir rynnu sam- an. Newton aðgreindi í litrófinu 7 aðalliti. Er álitið, að hann hafi talið litina 7 til að fá samræmi við hina 7 tóna áttundarbilsins í hljóðfræðinni. En eins og vitað er, eru litir litrófsins óendanlega margir, og mannsaugað á að geta aðgreint þar 160 liti. Newton hélt því fram, að ljósbrotið staf- aði af mismunandi tegundum smáagna, sem ljósgjafinn varpaði frá sér, og var þetta nefnt Skólablaðið 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.