Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.04.1944, Qupperneq 17

Skólablaðið - 01.04.1944, Qupperneq 17
í dag, — hugsunarháttar, sem á sér þó sjald- an langan aldur í fari manna, eftir að þeir hafa sagt skilið við skólann. Þessi hugsun- arháttur lýsir sér í þeirri skoðun nemenda, að 1 raun og veru sé skólavistin þeim hið ægilegasta böl, ófrelsi og áþján, sem skiln- ingslausir, illviljaðir og andlausir kennarar baki þeim að mestu leyti. Þessi hugsunarháttur er í senn broslegur og óheillavænlegur. Hann er broslegur vegna þess, að einhvers staðar í hugskoti nemenda hlýtur að vaka sú vitneskja, að þeir eru í skólann komnir annaðhvort að eigin ósk eða þá aðstandenda sinna, sem sumir hafa jafn- vel lagt á það ofurkapp að hrinda þeim inn fyrir dyr þessarar stofnunar líkt og kerling- in skjóðunni með sálinni hans Jóns síns í. Þeim mun og vera ljóst, að af skólans hálfu er ekkert gert til að koma í veg fyrir, að þeir hverfi frá námi, ef þeim er það ógeðfellt. Óheillavænlegur er þessi hugsunarháttur vegna þess, að hann dregur úr námfýsi nem- enda og æskilegum árangri af náminu. Sennilega er orsök þessa hugsunarháttar einkum sú, að í skólanum sé of margt nem- enda, sem þrýst er til náms, en óska þess ekki sjálfir og kysu heldur að stunda önnur störf. Frá slíkum nemendum breiðist óánægj- an út og verður að skoplegum, en óheppileg- legum tízkukvilla. Það er skólanum og þjóðfélaginu í senn hið mesta mein, að hann skuli þurfa að hafa innan sinna vébanda talsverðan hóp nem- enda, sem hafa litla löngun eða getu til náms, einkum þegar þess er gætt, að fjöldi unglinga víðs vegar um landið horfir vonaraugum til þessa sama skóla, sem öðrum er troðið inn í, en á þess engan kost af ýmsum ástæðum að komast inn fyrir dyr hans. Ég þykist vita, að flestir betri nemendur skólans skilji, hve skoplegur og fjarstæður þessi hugsunarháttur er. Þeirra hlutverk er að vinna gegn honum, en efla heilbrigðan hugsunarhátt innan skólans og varðveita all- ar hollar og virðulegar venjur hans. Magnús Finnbogason. SKÓLALÍFIÐ Framh. af bls. 7. arar og nemendur starf sitt með morgun- söng í hátíðasalnum. Hefir sú ráðstöfun vak- ið mikla ánægju. Áður fyrr setti skólinn og nemendur hans mikinn svip á bæinn. Nægir til dæmis um það að nefna leikkvöld skólapilta, sem ætíð hafa verið og eru enn vinsæl meðal Reyk- víkinga, og skólahátíðina 8. apríl, sem fyrir aldamót var svipmesti dansleikur bæjarins, — „og vildu þá allar meyjar með skólapilt- um ganga“. Og enn í dag setur skólinn svip á bæinn, þótt ef til vill beri ekki eins mikið á honum og áður. í greinarkorni þessu hefi ég drepið lítil- lega á nokkra þætti skólalífsins. Enn stend- ur þar margt til bóta. Og á meðan svo er, ber hverjum nemanda skólans að vinna eftir mætti að eflingu þess. Skólablaðið 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.